Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Side 2
2 LAUGARDAGUR 21. MARS 1992. Fréttir Niðurgreiðslur að upphæð 826 milljónir í gegnum MS - sem er þriðjungur allra niðurgreiðslna 1 landinu Á síðasta ári innheimti Mjólkurs- amsalan niðurgreiðslur að upphæð 826,7 milljónir króna. Á fjárlögum þess sama árs fóru um 2400 milljónir til niðurgreiðslu á mjólkurvörum hér á landi. Um þriðjungur aUra nið- urgreiðslna í landinu fór því í gegn- um Mjólkursamsöluria. í skýrslu súkkulaðinefndarinnar svokölluðu, sem unnið hefur grein- argerð um verðjöfnunarkerfi í súkkulaðiframleiðslu, er meðal ann- ars bent á að kerfið, eins og það er nú, þar sem niðurgreiðslur og milli- færslur koma inn á vinnslustigi, sé einmitt það fyrirkomuiag sem hvar- vetna hafi verið horfið frá. Færu nið- urgreiðslur beint til bænda, í stað þess að láta þær fara í gegnum vinnsluna, eins og nú er, myndi það stuðla að því aö niðurgreiðslurnar trufluðu markaðinn sem minnst, eins og stefnt sé að innan OECD og GATT. Þannig sé hægt aö auka sam- keppni í framleiöslu og vinnslu land- búnaðarvara til muna og tryggja um leið eðlileg samkeppnisskilyrði inn- an vinnslunnar. Þá er bent á að í nágrannalöndum okkar hafi verið teknar upp beinar niðurgreiðslur til bænda. Hafi þetta verið gert af hagkvæmnisástæöum. Þannig sé vinnsla mjólkurvara látin keppa á jafnréttisgrundvelli sé um niðurgreiðslur að ræða. Að auki megi komast hjá margfoldunaráhrif- um á milliliðakostnað fari niður- greiðslurnar beint til bændanna. -JSS Starfsmenn með afkvæmi sin og einnig tvö fyrstu lömb vorsins sem ærin Prinsessa eignaðist á miðvikudaginn. Efri röð f.v. Helga Einarsdóttir, kennari garðsins, með soninn Pál sem fæddist 31. október, Guðjón Jóhannesson bufræðingur með óskírðan son sem fæddist 27. febrúar, Tómas Ó. Guðjónsson forstöðumaður með soninn Pétur Martein sem fæddist 9.8. 1991. í neðri röð: Þorsteinn Narfason líffræðingur með soninn Eyvind sem fæddist 25. janúar, Daniel Guðmundsson búfræðingur með fyrsta lamb vorsins, Elin Finnbogadóttir dýrahirðir með soninn Daniel Daníelsson sem fæddist 27. febrúar og Margrét Jóhannesdóttir með soninn Viktor Má sem fæddist 22. júlí. DV-mynd Brynjar Gauti Fijósemi starfsmanna í Húsdýragarðinum: Sex sveinbörn á einu misseri - sjöunda bamið á leiðinni „Við kunnum satt að segja enga sérstaka skýringu á þessari miklu frjósemi hér. Þessi sex eru ailt dreng- ir og við búumst auðvitað við því að það sjöunda, sem á að fæðast eftir tvær vikur, verði líka drengur. Það má því segja aö burður standi enn yfir,“ segir Tómas Guðjónsson, for- stöðumaður Húsdýragarðsins í Laugardal, en hann er einn sjö starfsmanna í Húsdýragarðinum sem hafa eignast son síðustu sjö mánuði. Tveir yngstu drengimir fæddust sama dag í síðasta mánuði og eru synir þeirra tveggja búfræðinga sem vinna í Húsdýragarðinum. Og enn er von á fjölgun því ein starfskona á von á bami innan tveggja vikna. Og þessu til viðbótar má geta þess að á miðvikudag fæddust fyrstu lömb ársins í garðinum. Ærin var tví- lembd og lömbin eru að sjálfsögðu bæðihrútar. -VD Greenpeace gegn Magnúsi Guömundssyni: Agreiningur um túlkun kom í veg fyrír dómsátt „Grænfriðungar vom tilbúnir að fallast á þá dómsátt að Magnús drægi til baka öll meiðandi ummæfi úr mynd sinni og breytti henni sam- kvæmt okkar óskum. Tillögu dómar- ans þessa efnis rangtúlkaði Magnús hins vegar. Hann hljóp með hana óundirritaða í fjölmiðla og túlkar á þann veg að Greenpeace viðurkenni að hafa sviðsett seladráp í áróðurs- skyni. Þetta er fáheyrður óheiðar- leiki og það er alveg ljóst að við skrif- um ekki undir neitt samkomulag við Magnús," segir Ami Finnsson, tals- maöur Grænfriðunga. Líkur voru taldar á i gærmorgun að dómsátt næðist í meiðyröamáii Greenpeace gegn Magnúsi Guð- myndssyni vegna myndar hans Lífs- björg í norðurhöfum. Af því varð þó ekki vegna ágreinings um hvemig túlka bæri tillögu norska dómarans að samkomulagi. Að sögn Ama fól samkomulagið í sér að Magnús breytti myndinni og tæki út úr henni fuílyrðingar um að Greenpeace beitti sviðsetningu og folsunum í áróðurskyni. Einnig skyldi skýrt tekið fram að öfgafullar baráttuaðferðir Sea Shepherd ættu ekki viö um Greenpeace. „Fyrir okkur hefði þessi dómsátt verið ásættanleg enda eram við að sækjast eftir því að Magnús viður- kenni að hafa haft rangt fyrir sér. Hins vegar komumst viö að því aö Magnús túlkaði þetta á annan veg, að Grænfriöungar viðurkenndu sviðsetningu. Það er hvergi nærri sannleikanum," segir Ámi. -kaa Borgarspítalinn tekur við bráða- vöktum Landakots Bráðavaktir handlæknis- og lyf- læknisdeildar Landakotsspítala flytjast nú þegar til Borgarspítala samkvæmt samningi sem gerður var í gær. Jafnframt var gert samkomu- lag um að þeir starfsmenn Landa- kotsspítala, sem missa þar atvinnu, hafi forgang að störfum á Borgarspít- ala. Heilbrigðisráðherra tekur fram í bréfi að þessi ráöstöfun bráðavakta taki aðeins til ársins í ár. Ekki sé endanlega búiö að festa verkaskipt- ingu sjúkrahúsanna á höfuðborgar- svæðinu. Vegna þessara breytinga fær Borg- arspítalinn 200 milljónir króna til að standa undir rekstrarkostnaði vegna yfirtöku bráðavakta og að auki 100 milljónir til framkvæmda. Lagt er til að Landakotsspítalinn fái 45 milljón- ir til almenns rekstrar af safnliðum. Þá fá Ríkisspítalar 95 milljónir króna til rekstrar, þar af 50 milljónir tfi að viðhalda óbreyttri starfsemi á hjarta- skurðlækningadeild. Þá mun ráðherra beita sér fyrir að St. Jósefsspítaii í Hafnarfirði fái við- bótarfiárveitingu að upphæð 25 milljónir króna til að sinna hjúkrun aldraðra. Ráðuneytið hefur einnig óskað eftir því að Landakotsspítali taki að sér aukna þjónustu við aldr- aða hjúkmnarsjúkhnga gegn sér- stakrirekstrarfiárveitingu. -JH Flateyri: Trilla sökk í höfiúnni á Flateyri stutt í endunum. Þegar fór að flæða í fyrrinótt eför að eigendur höíðu undan trillunni nánast hékk hún í búiö hana undir slæmt veður. landfestunum á bryggjunni. Gert var ráö fýrir slæmu veðri Fremri festingin gaf sig og stakkst fyrir vestan í fyrrinótt. Fluttu eig- báturinn þá á nefið í sjóinn. Þegar endur trillunnar hana þá að aftur fór að flæða að fór aliur bát- hryggju sem talin var tryggarl urinn á kaf. Skemmdir urðu tals- Var hún vel bundin en heldur var verðarábátnum. -ÓTT Guömundur J. og Dagsbrúnarmenn: Stöðvuðu losun skips í Sundahöf n Dagsbrún, með Guðmund J. Guð- mundsson í broddi fylkingar, stöðv- aöi afgreiðslu verktaka frá Suður- nesjum í skipi í Sundahöfn í gær. Skipið var aö losa rör fyrir Hitaveitu Reykjavíkur í Sundahöfn. Þar sem Sundahöfn er athafna- og vinnu- svæöi Eimskips, og þar með svæði Dagsbrúnarmanna samkvæmt sér- samningi, var mælst tíl þess að Suð- úmesjamenn hyrfu frá losun skips- ins. Dagsbrún hafði samband við skipaafgreiðslu Eimskips og bað um að menn yrðu útvegaðir fyrir losun skipsins. Hafnarverkamenn frá fé- laginu hófu síðan vinnu viö skipið um hádegisbihð í gær. Aö sögn Sigurðar Rúnars Magnús- sonar, aðaltrúnaðarmanns Dags- brúnar í Sundahöfn, komu Suður- nesjamenn í vinnu í Sundahöfn vegna rangra upplýsinga sem þeim vora gefnar um vinnu við höfnina. Dómarar skipaðir Hervör Þorvaldsdóttir dómarafull- tnii hefur verið skipuð héraösdóm- ari við héraðsdóm Vesturlands. Þá hefur Georg Kr. Lámsson, settur borgardómari, verið skipaður sýslu- maður í Vestmannaeyjum. Einnig hefm- Hahdór Hahdórsson dómara- fuhtrúi verið skipaður héraðsdómari við héraðsdóm Norðurlands. Síöasti starfsdagur Ásgeirs Péturs- sonar, bæjarfógeta í Kópavogi, var í gær. Hann er nú hættur vegna ald- urs. Ásgeir kvaddi lögreglumenn og starfsfólk embættisins í samsæti í gær. Ekki hefur veriö ákveðið hver verðurfógetiístaðÁsgeirs. -JH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.