Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1992, Side 47
LAUGARDAGUR 21. MARS 1992. 59 Afmæli Ásgeir Pétursson Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti í Kópavogi, Sólheimum 9, Reykjavík, ersjötugurídag. Starfsferill Ásgeir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Borgarfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1943, embætt- isprófi í lögfræði frá HÍ1950 og stundaði framhaldsnám í stjórn- fræðideild Kalifomíuháskóla í Berkeley í Bandaríkjunum 1952-53. Hdl-réttindi öðlaðist hann 1954. Ásgeir varð þingfréttaritari Morg- unblaðsins 1949, fulltrúi í forsætis- og menntamálaráðuneytinu 1950, deildarstjóri þar 1956, sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 1961 og bæjarfógeti í Kópavogi frá 1979. Ásgeir var formaður Stúdentafé- lags Háskólans 1945, sat í Stúdenta- ráði HÍ1946-47, var formaður Heimdallar 1950-52, formaður SUS og í miðstjóm Sjálfstæðisflokksins 1955-57, og varaþingmaður 1965-74. Ásgeir sat í stjóm Sementsverk- smiðju ríkisins 1959-89, lengst af stjórnarformaður, í stjóm Anda- kílsárvirkjunar 1963-79, í Ólympíu- nefnd íslands 1963-65, formaður Sýslumannafélags íslands 1974-76, formaður Dómarafélags íslands 1985-86, formaður Náttúruvemdar- ráðs íslands frá stofnun 1956-60, formaður Náttúruverndarráðs Vesturlands 1974-75, formaður LÍN 1952-54. Fjölskylda Ásgeir kvæntist 25.5.1946 Sigrúnu Hannesdóttur, f. 15.10.1923, hús- móður. Hún er dóttir Hannesar Kr. Hannessonar, málarameistara í Reykjavík, og konu hans, Guðrúnar Kristmundsdóttur húsmóður. Börn Ásgeirs og Sigrúnar eru Guðrún, f. 6.9.1946, lyfjatæknir, gift Sigurði Halldórssyni hagfræðingi; Ingibjörg, f. 14.7.1951, deildarstjóri í Námsgagnastofnun, gift Ólafi Þor- bjömssyni verkfræðingi; Sigríður, f. 20.4.1953, B.A.Hon. glerlistamað- ur, gift Þórði Kristinssyni, próf- stjóra HÍ; Pétur, f. 3.11.1962, hag- fræðingur, kvæntur Jóhönnu Gunnarsdóttur lögfræðingi. Fóstur- sonur og dóttursonur Ásgeirs og Sigrúnar er Andrés P. Rúnarsson, f. 18.2.1971, nemi. Systkini Ásgeirs: Magnús, f. 4.8. 1914, d. 30.1.1984, lögreglumaður og forstjóri á Litla-Hrauni; Guðmund- ur, f. 25.7.1917, hæstaréttarlögmað- ur í Reykjavík; Sigríður, f. 6.12.1919, húsmóðir í Noregi; Andrés, f. 1.7. 1924, útgerðarmaður í Garðabæ; Stefán, f. 9.4.1926, hrl. og aðstoöar- bankastjóri Landsbankans í Reykja- vík; Þorbjörg, f. 8.4.1928, húsfreyja á Guðnabakka í Stafholtstungum; Pétur, f. 8.2.1931, forstjóri í Reykja- vík. HálfbróðirÁsgeirs, samfeðra, er Gunnar Már, f. 16.10.1919, deild- ■ arstjóri hjá Sjóvá-Almennum í Reykjavík. Foreldrar Ásgeirs voru Pétur Magnússon, f. 10.1.1888, d. 26.6.1948, hrl., bankastjóri, alþingismaður og ráðherra, og kona hans, Þórunn Ingibjörg Guðmundsdóttir Viborg, f. 6.6.1895, d. 14.1.1966, húsmóðir. Ætt Pétur var sonur Magnúsar, pró- fasts og alþingismanns á Gilsbakka Andréssonar, hreppstjóra í Syöra- Langholti, Magnússonar, alþingis- manns þar Andréssonar, langafa Ásmundar Guðmundssonar bisk- ups og Sigríðar, móður Ólafs Skúla- sonar biskups. Móðir Magnúsar var Margrét Ólafsdóttir, b. á Efra-Seli, Magnússonar og konu hans, Marín- ar Guðmundsdóttur, b. á Kópsvatni, Þorsteinssonar, ættfóður Kóps- vatnsættarinnar. Móðir Andrésar var Katrín Eiríksdóttir, dbrm. og ættfoður Reykjaættarinnar, Vigfús- sonar, langafa Sigurgeirs Sigurðs- sonar biskups, fóður Péturs bisk- ups. Móðir Katrínar var Ingunn Ei- ríksdóttir, b. í Bolholti, Jónssonar, ættfoður Bolholtsættarinnar. Móðir Péturs var Sigríður, systir Sigurðar, afa Jónasar Gústavssonar borgar- fógeta. Sigríður var dóttir Péturs Fjeldsted Sívertsen, b. í Höfn í Mela- sveit, Sigurðarsonar Sívertsen, kaupmanns í Rvík, Bjarnasonar Sí- vertsen, kaupmanns í Hafnarfirði. Móðir Sigurðar var Guðrún Guð- mundsdóttir, systir Helga Thorder- Ásgeir Pétursson. sen biskups. Móðir Sigríðar var Sig- ríður Þorsteinsdóttir, systir Ragn- heiðar, langömmu Þorsteins Thor- arensen rithöfundar. Ingibjörg var dóttir Guðmundar Viborg, gullsmiðs á ísafirði, Jónat- anssonar, b. í Sveinshúsum við Djúp, Jónassonar. Móðir Ingibjarg- ar var Helga, systir, samfeðra, Torfa í Ólafsdal, afa Snorra skálds og Torfa tollstjóra Hjartarsona. Helga var dóttir Bjama, b. í Bessatungu, Bjarnasonar. Ásgeir er að heiman á afmælisdag- inn. ÓlafurH. Guðbjartsson Ólafur Hafsteinn Guðbjartsson, húsgagnameistari og fyrrv. oddviti Patrekshrepps, Breiðagerði 15, Reykjavík, verður sjötíu og fimm áraámánudaginn. Starfsferill Ólafur er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám í húsgagnasmíði 1933-37 og öðlaðist meistararéttindi í greininni 1942. Ólafur rak húsgagnavinnustofu í Reykjavík 1942-52, var bóndi i Kolls- vík, Rauðasandshreppi í V-Barða- strandarsýslu, 1952-62, rak tré- smíðavinnustofu og byggingafyrir- tæki á Patreksfirði 1962-80 og var starfsmaður framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins 1976-87. Ólafur hefur tekið þátt í félags- störfum og gegnt ýmsu trúnaðar- störfum. Hann sat t.d. í hreppsnefnd Rauðasandshrepps 1954-58, í stjórn Ræktunarsambands V-Barða- strandarsýslu, skipaður í skatta- nefnd 1959, matsmaður Brunabóta- félags íslands, í hreppsnefnd Pat- rekshrepps 1966-74 og sem oddviti 1970-74. Olafur var í bygginganefnd 1964-80, gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Patrekshrepp og var skipaður form. Sjúkrasamlags Pat- reksfjarðar 1970. Ólafur starfaði með Lionsklúbbi Patreksfjarðar, stangaveiðifélaginu á sama stað og hefur auk þess gegnt ýmsum störfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og var m.a. formaður kjör- dæmisráðs sjálfstæðismannai Vest- fjarðakjördæmi. Fjölskylda Kona Ólafs er Sólrún Anna Jóns- dóttir, f. 22.8.1915, húsmóðir. For- eldrar hennar: Jón Kristjánsson og Þórdís Benediktsdóttir. Börn Ólafs og Sólrúnar: Þórdís Todda, f. 24.3.1936, maki Jón Þ. Arason, málari, þau eiga sex börn; Jón Halldór, f. 7.10.1937, málara- meistari, maki Guðný Davíðsdóttir, þau eiga fiögur börn; Ástbjörg, f. 5.4.1940, maki Guðmundur Haralds- son, sölumaður, þau eiga þrjú börn; Hansína, f. 7.8.1942, maki Ragnar Hafliðason, bankamaður, þau eiga fimm börn; Esther, f. 28.1.1945, maki Grímkell Arnljótsson, loft- skeytamaður; Guðbjartur Ástráður f. 12.12.1948, tæknifræðingur, maki Elín Kristinsdóttir, þau eiga þrjú börn; Anna, f. 19.7.1951, bankamað- ur, hún á þrjú börn; Trausti, f. 25.3. 1955, jarðvegsfræðingur, maki Tina Jory. Systkini Ólafs: Jón, f. 23.10.1913, d. 16.4.1979, hans kona var Unnur Þórðardóttir, þau eignuðust tvö Ólafur Hafsteinn Guðbjartsson. börn; Dóra, f. 4.8.1915, hennar mað- ur var Ólafur Jóhannesson, látinn, þau eignuðust fimm börn; Jóhanna, f. 26.9.1918, d. 11.2.1982, hennar maður var Jeng Classen, látinn, þau eignuðust fjögur böm; Benedikt, f. 1.1.1924, maki María Pétursdóttir, þau eiga fjögur böm. Foreldrar Ólafs: Guðbjartur Ólafs- son, f. 21.3.1889, d. 1961, ogÁstbjörg Jónsdóttir, f. 25.8.1888, d. 1963, en þau bjuggu í Reykjavík. Ólafur og Sólrún taka á móti gest- um sunnudaginn 22.3. í félagsheim- ili KR-inga í Frostaskjóli í Reykjavík kl. 15-18. Óli S. Runólfsson afmælið Aðalgeir Hnlldórsson, Dvalarheimilmu Ilofða, Akranesi. Dagrún Friðfinnsdóttir, Suöurgötu 15, I Keflavik. Hún verður aö I heiman á aöuælis- [ daginn. Guðný Benediktsdóttir, Garöi, Aöaldælahreppi. Guðni Jngibjartsson, Torfunesi, Hlíf 1, ísafiröi. Jónheiður Kristin Lárusdóttir, Hátúni lOa, Reykjavik. Erik Alfreð Kondrup, Hvannavöllum 2, Akureyri. Ólafur Gislason, Bárugötu 17, Akranesi. Margrét Þórðardóttir, Kirkjuteigj 14, Reykjavik. 50 ára Guðrún Iwláksdóttir, Engjavegi 55, Seifossi. Arnaldur Snorrason, Grenivöllum 22, Akureyri. Sigríður M. Tómasdóttir, Kleppsvegi 140, Reykjavík. Halldóra Einarsdóttir, Grafarholti v/Vesturlv„ Reykjavik. 40 ára Margrét I‘orsteinsdóttir, Borgarholtsbraut 72, Kópavogi. Guðlaug Magnús- dóttir, Ljósheimum 20, Reykjavík. Eiginmaöur henn- ar var Pálmi Sveinsson en hann lést 1987. Guölaug tekur á mótí gestqni á af- tnælisdaginn á Holiday Inn, 4. hæö, kl. 15-17.30. 60 ára Stefán G. Guðinundsson, Ljósheimum 6, Reykjavík. Benedikt Sveinbjörnsson, Snæfellsási 1, Hellissandí. Svava Jónsdóttir, Staðarhrauni 13, Grindavík. Magnús Jiorgrímsson, Berugötu 12, Borgarnesí. Arni Bragason, Einigrund 8, Akranesi. Matthias Pálsson, Vallholti 7, Akranesi. Haukar Sævar Halldórsson, Arahólum 4, Reykjavik. Ilaukur og kona hans eru stödd erlend- is. Sigríður Björg Einarsdóttir, Brautarási 7, Reykjavik. Sturla Birgisson, (á afmæli 23.3.) Rapðahjalla 15, Kópavogi. Hann tekur á móti gestum á heimili sínu í dag (21.3.). Móses G. Geirmundsson Óli Stefáns Runólfsson rennismíða- meistari, Háaleitisbraut 15, Reykja- vík, verður sextugur á mánudaginn. Starfsferill Óli er fæddur í Húsavík, Kirkju- bólshreppi í Strandasýslu, og ólst þar upp. Hann vann að mestu við almenn landbúnaðarstörf fram til 1957 en það ár flutti Óli til Reykja- víkur og hóf nám í rennismíði hjá Agli Vilhjálmssyni hf. Óli lauk náminu og varð síðar meistari í greininni. Eftir námið vann hann áfram á renniverkstæði Egils Vilhjálmssonar hf. allt fram til 1984 en þá keypti hann verkstæð- iö ásamt starfsfélögum sínum. Við eigendaskiptin fékk verkstæðið nafnið Vélaverkstæðið Egill hf. og þar hefur Óli unnið síðan. Óli hefur gegnt ýmsum trúnaðar- og nefndarstörfum. Hann hefur t.d. verið í stjórn Félags járniðnaðar- manna frá 1979 og sem vararitari þess frá 1987. Fjölskylda Óli kvæntist 28.12.1963 Guðbjörgu Vilhjálmsdóttur, f. 31.5.1942, hús- móður. Foreldrar hennar: Vilhjálm- ur Ingibergsson, látinn, trésmiða- meistari, og Ragnheiður Þ. Jóns- dóttirhúsmóðir. Dætur Óla og Guðbjargar: Guðrún Heiöur, f. 16.4.1965, deildarstjóri, maki Guömundur HaUgrímsson verkfræðingur, þaueiga einn son, Amór Má; Ragnheiður Kristín, f. 7.9.1967, húsmóðir, hún á einn son, Halldór Kristin; Stefanía Lilja, f. 7.9. 1967, húsmóðir, maki Ingvi Ingólfs- son, húsgagna- og trésmiður, þau eiga einn son, Stefán Inga. Systkini Óla: Grímur Stefáns; Sig- fríður; Agnar; Ragnheiöur. Foreldrar Óla; Runólfur Sigurðs- son, fyrrverandi bóndi og oddviti í Húsavík, Kirkjubólshreppi i Strandasýslu, og kona hans, Stef- Óli Stefáns Runólfsson. anía G. Grímsdóttir húsmóðir. Óli og Guðbjörg taka á móti gest- um sunnudáginn 22. mars í sal málmiðnaðarmanna að Suður- landsbraut 30 í Reykjavík kl. 17-19. Salurinn er á 4. hæð en inngangur er á bak við íslandsbanka. Móses Guðmundur Geirmunds- son, verkstjóri hjá Sæfangi hf., Grundargötu 50, Grundarfirði, verður fimmtugur á morgun. Fjölskylda Móses kvæntist 17.12.1961 Dóm Haraldsdóttur, f. 11.12.1943, stöðv- arstjóra Pósts og síma í Grundar- firði. Foreldrar hennar: Haraldur Eggertsson rafvirkjameistari og Ásta Sigríður Jónasdóttir, húsmóðir oglistakona. Dætur Mósesar og Dóra: Lilja hag- fræðingur, maki ívar Jónsson, dokt- or í félagshagfræði; Hildur, fulltrúi, maki Aðalsteinn Gunnarsson, kjöt- iðnaðarmaður; Ásta, ritari, maki Páll Hermannsson, pípulagninga- maður; Dögg, grunnskólanemi. Móses og Dóra eiga fimm bama- böm. Móses Guðmundur Geirmundsson. Foreldrar Mósesar: Geirmundur Guðmundsson verkamaður og Lilja Torfadóttir verkakona. Móses verður að heiman á afmæl- isdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.