Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1992, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992.
MUDDER
FYRSTA FLOKKS DEKK
Á FRÁBÆRU VERDI
GÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
RÉTTARHÁLSI 2, S.814008 &
91-814009 SKIPHOLTI 35 S. 31055
NOTAÐIR BILAR
Á GÓÐU VERÐI í EIGU RÆSIS HF.
TIL SÖLU HJÁ BÍLAHÖLLINNI HF.
Mazda 626 2000 GLX'87. V. 550.000 M. Benz station 200 disil ’87. V.
| stgr. 1.275.000 stgr.
IToyota Tercel RV special ’88. V. iDaihatsu Feroza EL-II ’89. V.
1670.000 stgr. 1830.000 stgr.
| M. Benz 280 SE, ’80. V. 850.000 stgr. Daihatsu Charade CX, 5 d., sjálfsk..
V. 490.000 stgr.
Opið laugardaga frá kl. 10.30-17.00
og sunnudaga frá kl. 13.00-16.00
BÍLASALA
BlLDSHÖFÐA 5 •
112 REYKJAVÍK
Matgæðingur vikiirinar
Nafnlaus:
Lambakjöts-
pottréttur
„Matargerð mín byggist töluvert
á slembilukku. Þá á ég við að ég fer
lítið eftir uppskriftum og árangur-
inn verður stundum skrítinn,” seg-
ir Bergmann Þorleifsson, starfs-
maður Járnblendiverksmiðjunnar
á Akranesi og matgæöingur vik-
unnar. Bergmann þykir mjög góð-
ur kokkur og hugmyndaríkur.
„Ég legg alltaf nokkra vinnu í
helgarmatinn,” segir Bergmann.
„Hann getur tekiö aUt að tvo til
þrjá tíma í vinnslu en í skyndirétti
nota ég oft t.d. grjón, grænmeti og
skinku, svo eitthvað sé nefnt. Oft
gríp ég til Skagaskötunnar (tinda-
bikkju) sem Páll Hannesson verkar
og er mikið lostæti. Ekki má heldur
gleyma skyrinu frá Borgamesi en
það er eins og enginn geti búiö til
gott skyr nema starfsfólk Mjólkur-
samlagsins þar,“ segir Bergmann.
Þá er það uppskriftin sem Berg-
mann segir að sé nafnlaus. Uppi-
staðan er lambakjöt sem aldrei
bregst. Uppskriftin er ætluö fyrir
flóra matlystuga.
Aðferðin
750 g beinlaust lambakjöt
Bergmann Þorleifsson, matgæð-
ingur vikunnar.
DV-mynd Árni Árnason, Akranesi
'A dós niðursoðinn maís
50 g frosnar grænar baunir
100 g gulrófur
100 g gulrætur
3 meðalstórir saxaöir laukar
1 hvítlauksrif
smábiti mulið lárviðarlauf
A tsk. timian
'A tsk. sykur
smásmjörkhpa
1 msk. matarolía
'A msk. hveiti
salt og pipar eftir smekk
Kjötið er skorið í htla bita, ca
2x2x2, og brúnað í olíu/smjöri í
potti. Strásykri og hveiti hrært vel
saman við. Kalt vatn sett í pottinn
svo að næstum fljóti yfir kjötið.
Hvítlaukur, lárviðarlauf og timian
sett út í og kjötið látið sjóða hægt
í 45 mínútur. Kjötið tekið upp úr
pottinum og soðið marið í gegnum
sigti. Sósa, kjöt og niðurskorið
grænmeti sett í pottinn og soðið þar
til grænmetið er meyrt. Bætið maís
út í, kryddið með salti og pipar og
látið suðuna koma upp. Borið fram
með soðnum kartöflum og frönsk-
um smábrauðum. Best er að
drekka ískalt vatn með þessum
rétti.
Bergmann ætlar að skora á Stef-
án Óskarsson, húsasmið og trillu-
útgerðarmann, að koma með næsta
rétt. „Hann er einn af þessum mat-
argerðarsnilhngum sem aldrei
bregðast. Stefán er sérlega frum-
legur í matargerð.”
-ELA
Hinhlidin
GróaÁsgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Fegurðarsamkeppni íslands:
Leiðinlegast að
vera aðgerðalaus
Þaö hefur mikið mætt á Gróu
Ásgeirsdóttur undanfarnar vikur
og mánuði. Gróa er framkvæmda-
stjóri Fegurðarsamkeppni íslands
sem lauk að kvöldi síðasta vetrar-
dags. Hún hefur verið fram-
kvæmdastjóri keppninnar síðathð-
in fimm ár. Fyrir nokkrum árum
komu fram gagnrýnisraddir á feg-
urðarsamkeppnir og áhuginn á
þeim virtist dvína en hvemig er
áhuginn í dag?
„Mér finnst áhuginn vera að auk-
ast mikið. í keppninni taka þátt
margar stelpur utan af landi og
viðbrögð fólks vegna keppninnar
um allt land eru mjög mikil. Það
er fylgst vel með keppninni.”
Gróa segir vinnuna við fegurð-
arsamkeppnina vera í gangi allt
árið en stúlkumar eru einnig
sendar utan í aðrar keppnir. Hins
vegar er mest að gera frá og með
áramótum ár hvert og eykst álagið
og vinnan stöðugt þar til krýning
fegurðardrottningar íslands hefur
farið fram, þá er unnið myrkranna
á milh.
Það er Gróa Ásgeirsdóttir sem
sýnir lesendum DV á sér hina hhð-
ina að þessu sinni.
Fullt nafn: Gróa Ásgeirsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 17. apríl 1965.
Maki: Jón Axel Olafsson.
Börn Engin.
Bifreið: BMW.
Starf: Hef verslunarstarf í verslun-
inni Kúnígúnd að aöalstarfi en
aukastarf er framkvæmdastjóri
Fegurðarsamkeppni íslands. Þessa
dagana hefur hið síðamefnda
reyndar tekið nær allan minn tíma.
Gróa Ásgeirsdóttir.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Fjölskyldan, starfið og
ferðalög. Annars hefur veriö htih
tími fyrir önnur áhugamál en starf-
ið síðustu vikumar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Enga held ég, alla
vega mjög fáar.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Ferðast um og slappa af í San
Diego í Bandaríkjunum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vera aðgerðalaus.
Uppáhaldsmatur: Steikur frá Jón-
asi Þór kjötsala.
Uppáhaldsdrykkur: ískalt vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég fylgist
mjög htið með íþróttum og veit því
lítið um hvað er að gerast í þeim.
Uppáhaldstímarit: Vogue og flestöll
tískublöð.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Vilhjálmur
Ámi Garðarsson.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Bæði hlynnt og andvíg.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Bandaríkjaforseta.
Uppáhaldsleikari: Kevin Costner.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep.
Uppáhaldssöngvari: Placido Dom-
ingo.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Fred Fhntstone.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Gamlar
dans- og söngvamyndir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlynnt.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón Axel
Ólafsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ger-
aldo.
Uppáhaldsskemmtistaður: Hótel
ísland.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Ekkert
uppáhaldsfélag.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að ferðast og skoða
mig eins mikið um í heiminum og
ég get - og lifa hfinu lifandi.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég stefni á að komast til út-
landa en það er allt óákveðið enn-
þá. -hlh