Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Blaðsíða 3
2 LAUGARDAGUR 4. JÚLf 1992. Fréttir Ævintýrið við bryggjuna á Hólmavík stendur enn: Þetta er f iskurinn sem Hafró-menn f undu ekki - segir Kristinn B. Skúlason verkstjóri Guðfinnux Fmnbogason, DV, Hólmavík: „Þama er hann kominn, flskurinn sem Hafró fann ekki,“ varö Kristni B. Skúlasyni verkstjóra að orði þegar Jón Trausti Guðlaugsson kom að landi á trillunni sinni Önn hér á Hólmavík síðdegis á miðvikudag með rúm tvö tonn af fiski eftir tæplega sólarhringsútiveru. Aflinn var að mestu þorskur og aöeins um 150 kg voru undirmálsfiskur. Ævintýrið, sem enn stendur, hófst sl. fóstudagskvöld. Magnús Gústavs- son trillusjómaður var að koma úr róðri þegar hann varð var við miklar lóðningar og fuglager skammt utan við höfnina. Hann fór út eftir löndun og dró um 500 kg á rúmri klukku- stund. Strax komu fleiri bátar og voru að alla nóttina rétt utan við hafnarmannvirkin og náðu sumir allt að l/2 tonrii. Fljótt flýgur fiskisagan og strax á laugardag mátti telja 17 minni báta að veiðum fyrir innan Reykjanes. Afli hefur síðan verið misjafn nokk- uð en yfirleitt mjög góður. Bátamir hafa nú fært sig til og eru sumir komnir á hefðbundna veiðislóð. Afla þó sumir enn vel inni á firðinum og ná allt að tonni á dag, einn maður. Það segir sig sjálft að mikill afli hefur borist að undanfama daga. Því hefur allmikil vinna verið í frysti- húsum á Hólmavík og Drangsnesi og er hún kærkomin, ekki síst skóla- fólkinu. Að sögn Kristins verkstjóra er fiskurinn sem nú berst að frekar ormalítill og góður í vinnslu. Landaö úr önn, báti Jóns Trausta Guðlaugssonar. DV-mynd Guðfinnur Afmælisbömin Björn Valdimarsson og Birna Björnsdóttir færðu frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, blómvönd við komu hennar til Akraness í gær. DV-mynd Sigurgeir Forsetinn heimsótti Akranes í gær Sgurgeir Sveinsson, DV, Akranesi: Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, kom í gær til Akraness í opinbera hemsókn. Ekið var á móti forsetanum að Leyni í bhðskapar- veðri. Viðstaddir móttökuna vom meðal annarra Gísh Gíslason bæjar- stjóri, sýslumaðurinn Sigurður Giz- urarson og bæjarfulltrúar og fjöl- margir bæjarbúar. Afmælisbömin Bjöm Valdimars- son og Bima Bjömsdóttir færðu for- setanum blómvönd viö komuna og forseti bæjarstjórnar, Steinunn Sig- uröardóttir, flutti stutt ávarp og bauð forsetann velkominn. Dagskráin hófst síðan á Dvalarheimilinu Höfða þar sem tekinn var lokaáfangi bygg- ingarinnar. Forritið Louis: Þetta er eins og álvið- ræður - tekur sinn tíma - segir Grímur Laxdal, markaðsstjóri Softis „Þetta er allt saman í góðum gír og lítur vel út. Allt er samkvæmt áætlun, við emm með góða vöm í höndunum og þurfum ekkert að flýta okkur of mikið. Við búumst ekki viö vemlegum tíðindum fyrr en í lok ársins. Þetta er bara svona eins og álviðræður - tekur sinn tíma,“ sagði Grímur Laxdal, markaðsstjóri Softis hf„ en fyrirtækið hefur eins og kunn- ugt er verið aö þróa forritið Louis sem mikið var í fréttum í maí en hefur farið undarlega hljótt síðan. „Viö erum að skoöa marga kosti og emm ekkert að flýta okkur. Við viljum ekki stökkva á hvaö sem er. Eftirspurnin er mikil og við höfum verið að kynna þetta fyrir fjölmiðlum í Bandaríkjunum og viðbrögðin em feiknalega góð. Það hafa margir sett sig í samband við okkur og viljað kaupa hugmyndina eða kaupa sig inn í fyrirtækið en við höfum ekki viljað Ijá því máls eins og er. Við þurfum að klára tæknilegu vinnuna fyrst, síðan getum við farið að huga aö samningum. Það er enginn með neitt svipað og því er engin sam- keppni.“ Softis auglýsti sl. fimmtudag hluta- bréf í fyrirtækinu til sölu en auka á hlutafé til að standa straum af kynn- ingar- og markaðsstarfsemi á Louis. Forritið á að auðvelda vinnu við for- ritun á notendaviðmóti tölva. Þegar hafa farið rúmlega 50 milljónir í hönnun forritsins. Hjá fyrirtækinu vinna sjö manns og langstærsti hlut- hafinn er Radíóbúðin sem á 45% hlutafjár'. -Ari Umferð að auk- ast á þjóðvegum Mesta ferðahelgi sumarsins til þessa er gengin í garð samkvæmt upplýsingum um umferö á þjóðveg- um landsins í gær. Síðdegis í gær var umferð til að mynda veruleg frá höfuðborgarsvæðinu og Suður- nesjum. Umferð á Suðurlandi, í Borgar- firði og Húnavatnssýslu var tals- vert mikil miðað við síðustu fostu- daga, sömu sögu var að segja frá Höfn og Egilsstöðum. Bílar með hjólhýsi og tjaldvagna aftan í sáust víða og hefur sala á tjaldstæðum glæðst víða á landinu eftir rysjótta tíð. Uppselt var á tjaldstæði í Þórs- mörk. Á fimmtudag komu um 700 ferðamenn með Norrænu sem er mesti fiöldi sem komið hefur með feijunnihingaðtilísumar. -ÓTT verkfall - segir Helgi Laxdal „Ég vil sjá verkfall. Ég lít á þessa niðurstööu sem kröfu minna félagsmanna um aðgerð- ir.“ Vélsfiórar á kaupskipum felldu samning Vélstjórafélags íslands og atvinnurekenda með 35 at- kvæðum gegn 26. Skipstjórar á kaupskipum samþykktu aftur á móti samninginn með 16 atkvæö- um gegn 10. Áöur höfðu félagar þeirra í Stýrimannafélagi íslands kolfellt sama samning. „Máhð er nú í höndum sátta- semjara, ég reikna með að hann boði mjög fljótlega til fundar þar sem við munum leggja Iram kröf- ur um verulegar launahækkan- ir,“ sagði Helgi. Það voru hagræðingarákvæði samningsins sem voru þungam- iðja hans, samkvæmt þeim standa skipstjórar nú vaktir og fá greitt fyrir. Stýrimenn felldu samninginn m.a. vegna þessara ákvæða þar sem þeirra yfirvinna minnkar að sama skapi. Innan þessara félaga eru m.a. yfirmenn á kaupskipum og feij- um. Vottar Jehóva: kirkjuna „Það er sjálfsagt áhyggjuefni hjá kirkjunni hve margir yfirgefa hana og koma til okkar þrátt fyr- ir alls konar áróður þeirra gegn okkur," sagði Páll Pedersen, einn forstöðumanna Votta Jehóva, vegna þeirra viðhorfa biskupsins yfir íslandi að koma þurfi til hjálpar hópi fólks sem hefur farið illa ut úr samskiptum við sértrú- arsöfnuði. „Okkar fólk er mjög ánægt, sérstaklega varðandi þá góðu framtíðarvon sem Vottar Jehóva boöa. Við trúum því að þetta dýrðlega 1000 ára ríki muni kom og innleiða frið og hamingju. Það hefur verið mikil aukning hjá okkur; það varð um 9% aukning á nýjum félögum hjá okkur síð- asthðið ár,“ sagöi PálL _rt íslenskt tónlistarsumar: yr tomeikaíerðalagið hður í á inu íslenskt tónhstarsumar nú er í ftillum gangi í annað s Atakið er á vegum Samh: hljomplötuframleiöenda, Fé íslenskra hljórnlistannarma Sambands tónskálda og eig€ flutningsréttar. „Markmiðið er aö búa til m að fynr íslenska tónhst á öö tíma en jólunum," segir Ste Berg hjá Steinum hf. Hann s atakiö hafa skilað sér vel í fy sumar þar sem útvarpsstöi hafi farið að sinna beiði hlustenda um að íslensk tói yrði leikin meira. Aðstandendur átaksins ■ yrða að í kvöld sé fólki óhæl rúlla teppinu af stofugólfint draga fram dansskóna því varpaö verður beint um allt 1 hSbo« ‘i“Slelk J4pto LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992. 3 Fréttir » r » i » 1» » » Vinnumarkaðskönnun Hagstofu íslands: Fleiri stjórnendur en bændur og sjómenn sjötti hver maður á vhmumarkaði án faglegrar menntunar eða sjómaður í vinnu við frumat- á virmumarkaðinum en samkvæmt vinnugreinarnar, fiskveiðar og land- könnun Hagstofunnar er ríflega búnað. Ófaglært verkafólk er hins sjötti hver vinnandi maður án fag- vegar hlutfallslega stærsti hópurinn legrarmenntunar. -kaa Tæplega 81 prósent landsmanna á aldrinum 16 til 75 ára var á vinnu- markaöi í apríl síðasthðnum. Karlar eru fiölmennari en konur á vinnu- markaðinum og sfiórnendur eru fleiri en bændur og sjómenn. Sjötti hver maður á vinnumarkaðinum er. hins vegar án faglegrar menntunar. Þessar upplýsingar koma meðal ann- ars fram í nýrri vinnumarkaðskönn- un sem Hagstofa íslands fram- kvæmdi í apríl síðasthðnum. Af þeim sem voru á vinnumarkaði í apríl reyndust 3 prósent vera án atvinnu. A sama tíma í fyrra reynd- ist atvinnuleysið 1,8 prósent en í nóv- ember á síðasta ári var það komið upp í 2,7 prósent. Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að atvinnuþátttaka karla reyndist 87,1 prósent en hjá konum reyndist hlutfalhð 74,5 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu var atvinnu- þátttakan 80 prósent, í kaupstöðum landsins 83 prósent og í dreifbýlinu 80,4 prósent. Mest er atvinnuþátttaka lands- manna á aldursbihnu 40 til 49 ára eða um 95 prósent. Minnst er hún hins vegar hjá aldurshópnum 70 til 74 ára eða tæplega 35 prósent. Mest er at- vinnuþátttakan í iðnaði, þar með tal- inn fiskiðnaður, eða 17 prósent af heildarvinnuaflinu. Næstmest er hún í verslun og viðgerðum, 16 pró- sent, þá í heilbrigðis- og félagsþjón- ustu 13,9 prósent. Einungis 5,5 pró- sent vinnuaflsins vinnur við land- búnað og 5,3 prósent við fiskveiðar. Athygli vekur að tæplega sjötti hver maður á vinnumarkaðinum er embættismaður eða sfiórnandi með- an fimmtándi hver maður er bóndi Starfsstéttir í landinu -skipting samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu (í prósentum) - Ófaglærðir 4,8 Vélgæslu- og verksmf. Iðnaðarmenn Bændur og fiskimen Afgreiðsla og þjónusta Skrifstofufólk Tæknarog aðstoðarfólk Sérfræðingar Stjórnendur/embættism 16,9 DV » » Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir vitni að árekstri sem varð á Háaleit- isbraut, norðan Miklubrautar, fóstu- daginn 26. júní síðasthðinn. Brún Lancer bifreið og stór Ford bifreið rákust saman. Á eftir brúna bílnum ók kona á ljósum bíl. Lögreglan biður konuna að gefa sig fram hið fyrsta. Athugasemd Vegna fréttar um grun um her- mannaveiki í útvarpshúsinu, í DV í gær, vih Sigríður Ámadóttir, fulltrúi starfsmannasamtaka Ríkisútvarps- ins, taka fram að rangt hafi verið eftir sér haft að starfsfólk þurfi ekki að óttast faraldur í húsinu. Þar með sé ekki sagt að fólk þurfi ekki aö ótt- ast faraldur. Um það sé einfaldlega ekkert hægt að segja á þessari stundu þar sem máhð sé í rannsókn. Þá var haft eftir Sigríði að fátt bendi til þess að útvarpshúsið sé „sýkt“ af hermannaveiki. Sigríður segir það sama gilda um þetta. Máhð sé í athugun og fyrst þegar niðurstöð- ur hggi fyrir sé hægt að fullyrða um þetta. /^y\ARUD IL Hvernig ferð þú að því að eignast L 18 milljónir? Margir telja sig ekki hafa efni á oð spara þó flestir kjósi oð tryggja fjárhagslegt öryggi sitt og eiga varasjóö til oð láta draumana rcetast. Staöreyndin er hins vegar sú oð jafnvel smáar upphœbir eru fljótar oð vaxa. Besta ieibin er ab gera sparnab ab hluta af„ útgjöldum " hvers mánabar. Einstaklingur sem leggurdaglega fyrir andvirbi eins sígarettu- pakka, um 225 krónur, frá 25 ára til 64 ára aldurs á ab loknum sparnabartíma 18 milljónir króna, m. v. 7% raunávöxtun. Sparnabur í smáum stíl getur þannig skilab 'Cr A § 5 J m mv; sér í háum fjárhœbum án teljandi fyrirhafnar. Til ab tryggja þér árangur í sparnabi býbur íslandsbanki upp á Spariþjónustu. Þú getur samib um þrjár mismunandi leibir til ab koma á reglubundnum sparnabi: 1. Meb sjálfvirkri millifœrslu af tékka- eba sparireikningi. 2. Meb mánabarlegri skuldfœrslu á greibslukort. 3. Meb heimsendum gírósebli. íslandsbanki býbur upp á fimm mismunandi Sparileibir sem bera góba ávöxtun. Þjónustufulltrúar bankans eru tilbúnir ab finna hagstœbustu leibina fyrir þig. Þú finnur rétta svarib og réttu Sparileibina þína íreglubundnum sparnabi meb abstob Spariþjónustu íslandsbanka. Spariþjónusta íslandsbanka - rétta svarib viö reglulegum sparnaöi! ISLANDSBANKI -í takt við nýja tíma!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.