Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992. 17 Sviðsljós Sjónvarp: litli sérviskupúkinn Hinn seinheppni, klaufalegi og á stundum bij óstumkennanlegi herra Bean hefur náð töluverðum vinsældum hér á landi sem annars staðar. Það er breski leikarinn Rowan Atkinson sem leikur herra Bean. Atkinson er sjónvarpsáhorf- endum að góðu kunnur fyrir hiut- verk sitt í gamanþáttunum um Blackadder höfuösmann (Svörtu nöðruna) sem heldur til, ásamt Baldrick hðþjálfa og fleiri góðum, í skotgröfum í fyrri heimsstyijöld- inni. Þættirnir um Svörtu nöðruna hafa einnig fjallað um höfðingja- sleikju og loddara við hirð Elísabet- ar fyrstu Englandsdrottningar. Herra Bean er alger andstæða við hinn málglaða og sjáifumglaða Blackadder. Um leyndardóminn á bak við velgengni herra Bean segir Atkinson: Rowan Atkinson. Blackadder höfuðsmaður í skotgröfunum. „Ég reyni að gera herra Bean eins alþjóðlegan og mögulegt er meö því að láta hann ekki segja neitt. Þá lendir herra Bean í aðstæðum, sem allir geta séð sjálfa sig í, hvaðan sem þeir eru.“ Þó vel hafi gengið með Blackadd- er hefur Atkinson fyrst slegið al- mennilega í gegn með htla sein- heppna maninum með gúmmíand- htið. En herra Bean er margflókinn persónuleiki. „Það er erfitt að lýsa herra Bean. Hann er aht í senn: velviljaður, eig- ingjam og sérvitur. Herra Bean er engum líkur og það held ég að falh í kramið hjá fólki,“ segir Atkinson. Fljótándi sápa MJÚK SEM KREM FYRIR ÞURRA HÚÐ Ren & mild er umhverfisvæn, unnin úr náttúrulegum jurtaolíum, sem mýkja húðina og viðhlada réttu rakastigi hennar (pH-gildi 7). \ Ren & mild reynist allri tjölskyldunni vel sem freyðandi baðsápa eða hreinleg handsápa sem stendur stöðug við vaskinn. FÆST í ÖLLUM BETRI BÚÐUM 4 nÆSTUM ÓLÉTT Eldfjörug gamanmynd um vandræði hjóna sem langar að eignast barn. Það er leitað aðstoð- ar víða og allar aðferðir notaðar. Eitthvað róttækt verður að gera þegar eiginmaðurinn skýtur púðurskotum. Læknirinn (Dom deLuise) gefur góð ráð, vinur kemur til „hjálpar" en því miður er enginn kraftur í honum. Aðalhlutverk:Tanya Roberts (AViewtoa Kill), Jeff Conaway (Petes Dragon), DomdeLuise. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð Innan 14 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.