Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
39
frá Bandaríkjunum, með BS-gráðu í
markaðsfræðum frá Massachusetts-
háskóla. Þá tók hann iðnaðarsál-
fræði sem aukagrein. HaUdór út-
skrifaðist 1985. Á sumrin var HaUdór
á ýmiss konar námskeiðum og í
starfsþjálfun hjá Coca Cola í Banda-
ríkjunum. „Ég fékk mjög raunhæfa
þjálfun vestra."
Við heimkomuna var Eldur-ís æv-
intýrið að fara af stað. Hann vann
þá mikið með Ólafi Stephensen, þá
auglýsingamanni Glenmore á Is-
landi, við að kynna fuUtrúum fyrir-
tækisins land og þjóð, gera auglýs-
ingamyndir og fleira. „Það komu
stanslaust hópar af fólki frá Glen-
more í tæpt ár og það var gríðarleg
vinna í kringum heimsóknirnar."
í snyrtivörurnar
Upp úr þessu kynnist HaUdór konu
sinni, Kristínu Stefánsdóttur, snyrti-
fræðingi og förðunarmeistara. Krist-
ín rak snyrtistofu á Laugaveginum,
snyrtistofuna NN, í sex ár. Hún seldi
stofuna eftir að þau Halldór stofnuðu
Rek-ís fyrir fjórum árum. Rek-ís hef-
ur aðallega verið í innflutningi á
snyrtivörum frá No Name og ýmsum
skyldum vörum. „Þetta er lítið fyrir-
tæki sem byrjaði smátt en hefur
bætt hægt og rólega við sig,“ segja
þau og bæta við með ákveðnu stolti
í röddinni: „Við látum íslenskar
stúlkur auglýsa aUar okkar snyrti-
vörur, erum eina fyrirtækið sem get-
ur auglýst íslenska fegurð með
snyrtivörunum."
Kristín er vesturbæingur eins og
HaUdór, dóttir Stefáns Ólafssonar
heitins sem átti og kenndur var við
Múlakaffi. Móðir Kristínar er Jó-
hanna R. Jóhannesdóttir. Kristín ólst
upp á Einimelnum eins og Halldór
en þau þekktust ekki í þá daga. Hall-
dór þekkti bræður Kristínar og vissi
af henni sem Utlu systur Jóhannesar
á horninu (sem nú rekur Múiakaffi).
Hann óraði þá ekki fyrir að þau
mundu síðar giftast og stofna fyrir-
tæki satnan. Kristín er ekki sami eld-
heiti KR-ingurinn og HaUdór og hann
gerir góðlátlegt grín að tilraunum
hennar tU að fylgjast með íþróttum.
Barnlaus og
á kafi í vinnu
HaUdór og Kristín eru ung, hann
33 ára og hún 28 ára. Þau eru kannski
dæmigerð fyrir ungt athafnafólk, eru
barnlaus og á kafi í vinnu. „Bamið“
á heimUinu er ógnarsmá tík af teg-
undinni kínverskur pug. Hún er átta
ára gömul, ein tólf slíkra á landinu.
Vinnan tekur nær allan tíma HaU-
dórs og Kristínar. Hann vinnur langt
fram á kvöld við fyrirtækið og hún
er stöðugt í förðun og snyrtingu og
ráðleggingum í þeim efnum auk þess
sem hún heldur námskeið. Kristín
segir að vinnan og áhugamálið fari
mjög vel saman.
Það er Utill tími fyrir önnur áhuga-
mál en vinnuna en þau segjast reyna
að fara sem oftast í sumarbústað for-
eldra Halldórs við Þingvallavatn.
Vegna anna hefur þó ekki orðiö mik-
ið úr ferðum austur upp á síökastið.
HaUdór hefur annars mikinn
áhuga á bandaríska körfuboltanum,
NBA-deildinni. Hann er einlægur
aðdáandi Boston Celtics og hefur séð
hundruð leikja með þeim og fleiri Uð-
um. Suma leiki Boston Celtics hefur
HaUdór margoft séð. HaUdór segist
lesa mikið af aUs kyns bókmenntum.
Þá er hann sífellt með nefið í dagblöð-
um og ýmsum tímaritum, er hálf-
gerður fíkUl í þeim efnum að sögn
Kristínar.
Aðspurður hvort hann spiU golf
fussar hann og segist ekki hafa
nokkra þolinmæði í slíkt. „Ég hef
áhuga á öllu hraðskreiðu sem hefur
mótor, hvort sem það eru bUar, bátar
eða vélsleðar. Ég hef ekki og mun
aldrei hafa þoUnmæði í golf og slíkt,
Halldór með „barnið“ á heimilinu, átta ára gamlan kínverskan pug. „Það
er erfitt að eiga kökuna og borða hana líka. Það er því spurning hvort
maður verði ekki alfarið að hætta að drekka," segir hann og hlær.
„Ég fékk rosalega gusu yfir mig eftir að tilboðin voru opnuð. Þegar ég kom
í verkefni var alltaf verið að spyrja mig hvort ég væri byrjuð að brugga
og svoleiðis," segir Kristin.
ég hef reynt það. Ég vU umfram allt
hraða og „aksjón". Hins vegar get ég
alveg slappað af og leggst af og til í
algera leti.“
Gull og
grænir skógar?
- Áfengisframleiðsla ætti að geta
malað ykkur guU en við búum óneit-
anlega við sérstakar markaðsaö-
stæður þar sem áfengisauglýsingar
eru bannaðar og ÁTVR hefur einka-
rétt á sölu áfengis.
„Jú, en maður veit náttúrlega ekki
hvað framtíðin ber í skauti sér.
Næstu árin sér maður fram á óbreytt
ástand í þessum efnum. Við framleið-
um og seljum, vonandi í stórum stíl,
til ÁTVR.“
- Stefnið þið á einhvern útflutning?
„Ég sé ekki fyrir mér að við flytjum
innlenda framleiðslu út en við mun-
um halda þróunarvinnu áfram og
reyna að finna pláss og markað fyrir
vodkann Eldur-ís í framtíðinni. Við
fengum fimm ára reynslu meðan
Eldur-ís var fluttur út og höfum
ákveðnar hugmyndir um hvernig á
að gera þetta í framtíðinni."
- Einhveijir kunna að halda að þar
sem þið tengist kókfiölskyldunni
mjög náið eigið þið góðan bakhjarl
og þurfið ekki að hafa meiri háttar
áhyggjur af rekstrinum?"
„VífilfeU tengist áfengisframleiðsl-
unni ekki á einn eða neinn hátt og
gengst ekki í peningalegar ábyrgðir
eða slíkt. Þetta eru fullkomlega að-
skUin fyrirtæki."
Það datt
af mér andlitið
Eins og fram hefur komið var
Kristín með hæsta tílboðið í fram-
leiðsludeUd ÁTVR, um 17,5 mUljónir.
En hvernig varð Kristínu við að
standa skyndUega uppi með hæsta
tilboðið?
„Ég fékk rosalega gusu yfir mig.
Þegar ég kom í verkefni var alltaf
verið að spyrja mig hvort ég væri
byijuð aö brugga og svoleiðis. Það
var náttúrlega mikU spenna þegar
tilboðin voru opnuð. Þegar í ljós kom
aö viö vorum með fimm hæstu til-
boðin féll ég frá rnínu."
Þó að Kristín hafi fylgst með undir-
búningi tUboðanna í framleiðslu-
deUdina var hún víðs fiarri þegar til-
boðin voru opnuð og vissi reyndar
ekki að hennar nafn var á hæsta til-
boðinu frá fiölskyldunni.
„Ég var með vinkonum mínum á
Akureyri yfir helgi en við höldum
eins konar árshátíð á hverju ári og
förum þá á ball úti á landi. Halldór
var búinn að vinna í þessu á fullu.
Þegar ég fór norður vissi ég ekki
annað en að það átti að opna tílboðin
á mánudagsmorgninum. Ég var með
eitt tilboðið en í öUum látunum haföi
HaUdóri láðst að segja mér að mitt
tilboð væri það hæsta. Það datt því
af mér andlitið þegar ég heyrði nafn-
ið mitt í útvarpinu og sjónvarpinu
þar sem sagt var að ég ætti hæsta
tílboðið í framleiðsludeildina. Vin-
konumar hlógu alveg rosalega þegar
þær sáu svipinn á mér og gerðu mik-
ið at í mér.“
Bara blöndun
og áfylling
Þegar viðtaliö fór fram haföi HaU-
dór ekki fengið hinar dýrmætu upp-
skriftir að íslensku brennivíni og
fleiri drykkjum í hendur. Hann haföi
þó fylgst með framleiðsluferUnu og
veit hvaö er í brennivíninu. Kom
honum eitthvað á óvart?
„Nei. Ég veit úr hverju drykkirnir
eru en þekki ekki hlutföhin. Það er
ekki flókin samsetning að búa til
áfengi svo framarlega sem maður
þarf ekki að búa tíl spírann, eima.
Spírinn er aUur innfluttur og fer í
gegnum ÁTVR sem er með einka-
leyfi á innflutningi hans. Þeir gera á
honum gæða- og styrkleikamæling-
ar. Viö verðið bætist fimm prósent
þjónustugjald. Við fáum spírann og
blöndum hann síðan eftir uppskrift-
unum. Blandan er sett á biðtank eða
áfyllingarvél og fer síðan hefð-
bundna leið tU neytandans. Þetta
snýst ekki um annað en blöndun
samkvæmt uppskrift og áfylhngu."
Gárungamir og vinir Halldórs hafa
verið að stríða honum undanfarið. í
stað Dóra í kók er komið Dóri í vín-
inu og HaUdór blauti og blaðamaður
haföi heyrt nafn eins og Brennivíns-
baróninn. HaUdór tekur þessu öllu
með jafnaðargeði.
„Gamla formúlan segir manni aö
það sé erfitt að eiga kökuna og borða
hana líka. Það er þvi spurning hvort
maður verði ekki alfarið að hætta að
drekka,“ segir HaUdór og hlær.
-hlh
Brennivín blandast kóki
Halldór Kristjánsson
framkvæmdastjórí Rek- íss
Iðunn Björnsdóttir Kristján Halldórsson
eigandi um 1/3 af Vifilfelli framkvstj. Vífilfells
Björn Ólafsson
stofnandi Vífilfells
Ásta Pétursdóttir | Halldór Kjartansson | Else Marie Nielsen
stofn. Elding Trading
OV