Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1992, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1992, Blaðsíða 21
20 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1992. íþróttir í Barcelona Badminton Einliðaleikur karla - úralit 1. AllanBudiKusuma.Indónesíu 2. ArdyWiranata.....Indónesíu 3. Thomas S. Lauridsen ....................Danmörku 3. HermawanSusantoJndónesíu Kusuma vann Wiranata i úrslit- um. 15-12 og 18-13. Einliðaleikur kvenna - úrslit 1. SusiSusanti.....Indónesíu 2. BangSoo-hyun......S-Kóreu 3. HuangHua.............Kína 4. TangJiuhong..........Kína Tviliðaleikur kvenna - úrslit 1. Hwang Hye-young/Chung So- young................S-Kóreu 2. Guan Weizhein/Nong Qunhua Kína 3. GilYoung-ah/SHimEun-jung ................... S-Kórea 3. LínYanfen/YaoFen.....Kína Hye-young og So-young unnu í úrslitum, 18-16,12-15 og 15-13 Körfuknattleikur Átta liða úrslit Króatía - Ástralía.......98-65 Sam veldin - Þýskaland...83-76 Litháen -Brasilía ...114-%(48-52) Bandaríkin - Púertó Rikó ................ 115-77(67-40) Leikir um 9.-12. sæti Venesúela- Spánn.........81-95 Angóla-Kína..............79-69 Handknattleikur A-riðiIl Ungverjaland - Tékkó......20-18 S-Kórea - BrasOía....:....30-26 ísland - Svíþjóð..........18-25 B-riðill Frakkland - Egyptaland....22-19 Samveldin - Rúmenía.......27-25 Spánn - Þýskaland.........19-18 Borðtennis Tvíliðaleikur karla - úrslit 1. LuLin/WangTao........Kína 2. Steffen Fetzner/Jord Rosskopf Þýskalandi 3. Kang Hee-chan/Lee Chul- seung.................S-Kóreu 3. KimTaek-soo/Nam-kyu .................. S-Kórea Lu Lin og Wang Tao unnu í úrslit- um 26-24, 18-21, 21-18, 13-21 og 21-14 Blak kvenna Leikur um 7.-8. sætið Spánn-Kína...............0-3 Undankepni hinna sex liðanna Bandaríkin - Holland.....3-1 Japan-Brasilía...........1-3 Homaboiti Undanúrslit Japan-Taiwan.............2-5 Kúba - Bandaríkin....,..,6-1 HokkiknatUeikur UndanúrsHt kvenna Þýskaland - Bretland.....2-1 S-Kórea - Spánn........ 2-1 Leikiö um 5.-8. sætí Kanada N-Sjúland.........8-7 HoIIand - Ástralía.......6-6 Dýfingar Keppni karla af 10 m háum palU 1. SunShuwel,Kína...677,310 2. ScottDonie,USA...633,630 3. Xiong Ni.Kína....600,150 Samveldinuog Svíumspáð íúrslitaleik Fréttamönnum, sem fylgst hafa með handboltakeppninni á ólympíu- leikunum, var í gærkvöldi gefinn kostur á að spá um hvaöa þjóðir myndu leika til úrslita á laugardag- inn kemur. Við fljótlega yfirferð kom í ljós aö flestir spá því að Svíar og Samveldið leiki til úrshta og setti meirihlutinn að Svíar myndu fara með sigur í þeirri viðureign. í sömu spá, sem var meira til gamans gerð, voru fleiri sem hölluðust að því að Frakkar hrepptu bronsverðlaunin. Víst má telja að íslendingar séu nú ekki tilbúnir að fallast á þessa spá. Margirkomu akandifrá sólarströndum Um 200 íslendingar voru á leiknum gegn Svium í gærkvöldi. Margir þeirra voru búnir að leggja talsvert á sig til aö koma á leikinn. Nokkrir úr þessum hópi kom frá Benidorm. Leigðu þeir sér bílaleigubíla og lögðu af stað um morguninn og komu á leikstað rétt fyrir leikinn. Já, landinn leggur mikið á sig þegar mikið Hggur við. Þess má geta að um 1000 Svíar hvöttu sína menn á leiknum í gær- kvöldi. Héðinn verður meðgegn Samveldinu Þorbergur Aðalsteinsson landsliðs- þjálfari átti von á því í gærkvöldi að Héðinn Gilsson yrði búinn að ná sér af meiðslunum fyrir leikinn gegn Samveldinu á fimmtudaginn. Héðinn er meiddur á ökkla. Handboltakona flúði heim Sumir eru sendir heim en aðrir flýja. Austurríska stúlkan Kerstin Joensson flúði heim til Austurríkis í gær eftir að hafa lent upp á kant við þjálfara sinn. Joensson, sem leikur með austurríska landsHðinu í hand- bolta, varð ævareið þegar þjálfarinn valdi hana ekki í lið sitt í leik gegn Norðmönnum í gær og tók hún næstu flugvél til síns heima. Patrekur Jóhannesson tekur hraustlega á Svianum Magnus Wislander í leik þjóðanna á óympiuleikunum í gærkvöldi. Sviar sigruðu íslendinga enn eina ferðina á stórmóti en báðar þjóðirnar leika i undanúrslitunum á fimmtudag. Símamynd Reuter Sagt eftir leik íslendinga og Svía: Átti von á meiri mótspyrnu“ - sagði Bengt Johannsson, þjálfari Svía Jón Kristján Sigurösson, DV, Barcelona: „Við tókum leikinn gegn íslendingum mjög alvarlega því það er stefna okkar að fara í gegnum þessa ólympíuleika taplausir. Ég var svolítið hissa aö Héð- inn Gilsson lék ekki með íslenska liðinu en ég frétti það skömmu fyrir leikinn aö hann væri meiddur. íslenska Hðið hefur leikið vel í keppninni og við átt- Firmakeppni I knattspyrnu verður haldin 21.-23. ágúst á nýjum gervigrasvelli Hauka á Ásvöllum. Spilað samkvæmt reglugerð KSÍ í minni knattspyrnu. Þátttökutilkynning berist fyrir 15. ágúst. Upplýsingar í síma 54580. Magn'ús. um allt eins von á mun meiri mót- spyrnu en smám saman tókum viö leik- inn í okkar hendur og það var ekki aft- ur snúið,“ sagði Bengt Johannsson, þjálfari heimsmeistara Svía, í samtali við DV eftir leikinn. „íslendingar hafa komið á óvart“ „í gegnum tíðina höfum við haft gott tak á Islendingum og ég ber alltaf mikla virðingu fyrir þeim. Islenska liðið er það lið sem komið hefur hvað mest á óvart á leikunum. íslendingar geta ver- ið hreyknir af sínum mönnurn," sagði Bengt Johannsson. „Stefnum á gullið“ Johannsson sagði að Anderson heföi leikið frábærlega vel í leiknum og hefði um fram allt lagt grunninn að sigri þeirra í leiknum. Per Carlen var einnig frábær á Ununni en yfirhöfuð er ég ánægður með mína menn. Við erum heimsmeistarar og stefnum að því taka gullið hér á ólympíuleikunum í Barcel- ona. Átti von á þeim sterkari „Ég átti satt best aö segja von á íslend- ingum sterkari í þessum leik en kom á daginn. Sóknin hefur verið aðalsmerki íslendinga en í þessum leik var hún ekki sem best. Auðvitað geta Uð átt sinn dapra dag en við náðum okkur hins vegar á strik eftir því sem á leikinn leið,“ sagði Mats Olson, markvörður Svía: „Við ætlum okkur alla leið í þessari keppni og ég held að það henti okkur betur að leika gegn Frökkum í undan- úrsUtum en Samveldinu. íslendingar mega vera ánægðir með sinn hlut og þeir eiga örugglega eftir aö leika betur en þeir gerðu gegn okkur í þessum leik,“ sagöi Mats Olson við DV eftir leikinn. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1992. 21 Iþróttir Sigurganga íslenska handboltalandsliðsins stöðvuð af heimsmeisturum Svía: Alög Svíagrýlunnar enn á íslendingum - enn einu sinni biðu íslendingar lægri hlut fyrir Svíum á stórmóti í handknattleik Jón Kristján Sigurðsson, DV, Barcelona: Sigurganga íslendinga í handbolta á ólympíuleikunum í Barcelona var stöðvuð af heimsmeisturum Svía í síðasta leik riðlakeppninnar. Svíar höfðu lengstum frumkvæðið í leikn- um og sigruðu að lokum með sjö marka mun, 25-18. Leikurinn hafði ekki mikla þýðingu en hann réð úr- sUtum um hvort liðið lenti í efsta sætinu í A-riðli. Svíar urðu efstir og mæta þvi Frökkum í öðrum undan- úrslitaleiknum en í hinum leiknum mæta íslendingar liði Samveldis- manna. Gamla virðingin fyrir Svíum ífullu gildi Leikur íslendinga og Svía var í raun ekki skemmtilegur, til þess voru yfir- burðir Svía of miklir. Það kom á dag- inn, eins og margir ótt.uðust, að gamla virðingin fyrir Svíum í hand- bolta var enn í fullu gildi og það kom Barcelona '92 oqo Ingvar Helgason hf Sævarhöföa 2 sími 91-674000 Sími 63 27 OO Skeljungurhf. EinkaumboO fyrir Shol vönjr á Islandi ISLANDSBANKI - í takt við nýja tíma! unuF Glæsibæ, sími 812922. á daginn. Það var aðeins fyrstu tíu mínútur leiksins sem jafnræði var með þjóðunum. Svíar byrjuðu betur og skoruðu tvö fyrstu mörkin en ís- lendingar jöfnuðu jafnharðan og komust yfir. Á þessum leikkafla var vörnin mjög sannfærandi og eins var líf í sóknarleiknum. Þegar á leið fór sóknarleikurinn úr skorðum og vömin varð götótt- ari. Svíar gengu á lagið og sigu jafnt og þétt framúr. Sóknarleikurinn var með versta móti í gærkvöldi og vörn- in og svoleiðis nokkuð geta lið ekki leyft sér gegn jafnsterku liði og Svíar eru. Það kom berlega í Ijós hvað Svíar eiga sterku Uði á að skipa og kæmi fáum á óvart þótt þeir ynnu til gullverðlauna á ólympíuleikunum hér í Barcelona. Nú hefst nýr leikkafli í keppninni Þrátt fyrir ósigur í gær er engin ástæða til að gráta því segja má að nú hefjist nýr leikkafli í keppninni. Fjórar þjóðir hafa tryggt sér sæti í undanúrsUtum og þijár af þeim standa á verðlaunapalli á laugardag- inn kemur. ísland stendur í þessum sporum og mætir Samveldinu á fimmtudagskvöldiö og með sigri leik- ur liðið til úrslita, annars um brons- ið og þá Hklega við Frakka sem verð- ur að telja að eigi ekki mikla mögu- leika gegn Svíum eins og þeir leika þessa dagana. Þeir hafa unnið stór- sigur í öllum leikjum sínum til þessa og það ber að hafa að leiðarljósi. Héðins var sártsaknað íslendingar mættu sterkasta Uðinu á leikunum tU þessa í gærkvöldi. Okk- ar menn léku illa nema rétt i byrjun. Héöinn Gilsson lék ekki með vegna smávægilegra meiðsla og var hans sárt saknað. Gunnar Andrésson kom inn í liðið og skortir hann alla reynslu í mikilvægum leik sem þess- um. Gunnar hefur tímann fyrir sér og ekki er nokkur spurning um að hann er framtíðarmaður í landslið- inu. Ýmislegt má læra af leiknum Geir Sveinsson var bestur í íslenska liðinu ásamt Guðmundi Hrafnkels- syni í markinu sem hefur staðið sig frábærlega vel í keppninni. Útispilar- arnir náðu sér ekki á strik og mikils óöryggis gætti í sóknarleiknum allan leiktímann. Einar Gunnar Sigurðs- son átti góða spretti en reynsluna skorti. Leikurinn var um fram allt góð reynsla fyrir liðið í komandi leikjum. Ýmislegt má læra sem ætti að koma að góðum notum. Liðið hefur sýnt að það hefur alla burði til að standa sig og stefnuna á hiklaust að taka á verðlaunasæti. ÞAKKAR EFTIRTÖLDUM AÐILUM STUÐNINGINN VIÐ ÓLYMPÍULANDSLIÐ ÍSLANDS P E R L A N SJOVA-ALMENNAR POSTUR OG SIMI Sportval Kringlan - Simi 689520 Styrktaraðili íslensku ólympíufaranna 0PINBER STYRKTARAÐILI ÍSLENSKA ÓLYMPÍULIÐSINS VISA ALHEIMS STYRKTARAÐILI ÓLYMPÍULEIKANIMA 1992 OQP adidas BYKO w U.IUM Island (7) 18 Svlþjóö (12)25 Gangur leiksins: 0-1, 0-2, 2-2, 3-2, 3-4, 5-4, 5-7, 6-8, 6-11, 7-12. 7-13, 10-14, 13-13, 13-21, 15-22, 17-23, 18-25. Mörk íslands: Geir Sveinsson 5, Einar Gunnar Sigurðsson 4, Valdimar Grímsson 3, Patrekur Jóhannesson 2, Gunnar Gunn- arsson 2, JúUus Jónsson 1, Jakob Sigurðsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafn- kelsson 13/2. Brottrekstrar: ísland 8 mín., Svíþjóð 4 min. Dómarar: Ole Christensen og Per Jörgensen, slakir og báru alltof mikla viröingu fyrir Svíun- um. Áhorfendur: Um 5000. ispaimr EINANGRUNARGLER málninghlf það segir sig sjdlft HAGKAUP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.