Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
Fréttir
Formaður Lögreglufélags Reykjavíkur:
Spurning hvenær lögreglu-
menn láta Ivf ið í starf i
- miklir fíkniefnafl ármunir í umferð og vopnameðferð algeng
Lögreglumenn eru felmtri slegnir
yfir atburöinum í Mosfellsbæ í fyrri-
nótt þegar eltingaleikur viö meintan
fíknieíhasala endaði meö hörðum
árekstri við lögreglubíl og líkamsá-
rás í handtöku. Jón Pétursson, for-
maður Lögreglufélags Reykjavíkur,
segir í samtali við DV að tímaspurs-
mál sé hvenær lögreglumenn látist
við skyldustörf.
„Heimurinn hér er orðinn harður,
miklu harðari en nokkum tímann
áður. Hins vegar kemur þetta atvik
okkur ekkert á óvart. Við erum
margbúnir að benda á að svona lagað
geti gerst í viðskiptum okkar við
fíkniefnaneytendur og -sala, jafnvel
enn alvarlegri hlutir. En það hefur
ekki verið hlustað á okkur.“ Jón seg-
ir að almenningur átti sig ekki á því
hvað fíkniefnaheimurinn á íslandi
sé orðinn harður og óvæginn. „Hér
er um líf og dauða að tefla. Miklir
fjármunir eru í umferð. Meðferð
vopna er orðin algeng meðal fíkni-
efnaneytenda. Það er vitað um mikið
smygl á vopnum til landsins."
Aðspurður sagðist Jón vera per-
sónulega mótfallinn því að lögreglan
fái að bera vopn. „Það er samt ljóst
að eitthvað þaif að gera. Við þurfum
ekki endilega að vera með skotvopn,
það er hægt að bera eitthvað annað.“
Þurfum að geta mútað fólki
Jón sagði að Lögreglufélag Reykja-
víkur myndi athuga sín mál í kjölfar
handtöku mannsins í MosfeÚsbæ.
„Við höfum vitað það í langan tíma
að það er ekki spuming hvort eitt-
hvað alvarlegt gerist heldur hvenær.
Lögreglumenn á Norðurlöndum eru
undrandi yfir því að lögreglmnenn
hér á íslandi skuli ekki hafa látist
við störf," sagði Jón ennfremur.
Hvað varðar aðgerðir sagði Jón að
meira fjármagn þyrfti til löggæsl-
unnar. „Þetta snýst allt um peninga.
Það eru stórar fjárhæðir í gangi í
fíkniefnunum. Við verðum að mæta
því með miklum fjárhæðum líka. Við
þurfum að geta mútað fólki til að fá
upplýsingar. Þetta er þaö lítið þjóðfé-
lag að við eigum ekki að láta eyði-
leggja það,“ sagði Jón að lokum í
samtah við DV.
-bjb
Benedikt Lund segist aldrei hafa upplifað að félagi hans sé i lifshættu. Á myndinni er hann við flak bílsins sem
hann og félagi hans voru á í fyrrinótt þegar kókainmaðurinn ók aftan á þá í Mosfelisbæ. DV-mynd S
Benedikt Lund, ökumaður lögreglubílsins sem ekið var á:
Sá eitt eldhaf þegar
ég steig út úr bflnum
- eldur kominn 1 aftursæti þegar félagi hans náðist út
„Mér líður alveg óskaplega illa. Ég
hef aldrei áður orðið fýrir því að fé-
lagi minn sé í lífshættu. Að vera með
kátan félaga við hlið sér en augna-
bliki síðar meðvitundarlausan er
lífsreynsla sem ég á vonandi aldrei
eftir að lenda í aftur,“ sagði Benedikt
Lund, lögreglumaður í Mosfellsbæ, í
samtali við DV.
Benedikt ók lögreglubílnum sem
ekið var harkalega á í Mosfellsbæ í
fyrrinótt. Benedikt slapp frá árekstr-
inum með mar á baki, tognun í hálsi
og brotnar tennur. Félagi hans slas-
aðist hins vegar lífshættulega. Bene-
dikt segist ekki hafa séð umræddan
ökumann, sem var með 1,2 kg af
kókaíni í bfl sínum, fyrr en á slysa-
deild um nóttina. Þá hafi maðurinn
viðurkennt að hafa verið á 160 km
hraða við ákeyrsluna.
„Við vorum ákveðnir í að fara á
móti ökumanninum. Við ókum frá
Mosfellsbæ og við afleggjarann að
Blikastöðum sneri ég lögreglubíln-
um við tfl að keyra á undan mannin-
um á svipuðum hraða. Síðan gerðust
hlutimir mjög snöggt. Ég sá bíliim
koma á ofsahraða með parkijósin á.
Ég steig bensíngjöfina í botn og var
ekki kominn á nema um 60 kflómetra
hraða þegar ég sé bílinn rétt fyrir
aftan okkur. Þá fór ég út í hægri
kantinn en á svipstundu skall bíllinn
aftan á okkur, hægra megin," segir
Benedikt.
Benedikt segir að lögreglubíllinn
hafi snúist eins og skopparakringla
eftir blautu malbikinu við árekstur-
inn. „Þegar ég steig út úr bílnum sá
ég eitt eldhaf í kringum okkur. Ég
kallaði í félaga mion en fékk engin
viðbrögð. Þá leit ég á hann og sá að
hann var meðvitundarlaus. Ásamt
öðrum lögreglumanni, sem kom að-
vífandi, náði ég félaga mínum út úr
bílnum. Þá var kominn eldur í aftur-
sætið. Þegar við vorum komnir 10
metra frá bílnum var hann allur orð-
inn alelda. Nokkrum sekúndum síð-
ar heyrðum við htla sprengingu. Það
var bensín úti um allt.“
Benedikt segir að tfl að hægt sé að
koma í veg fyrir atvik af þessu tagi
verði meðal annars að auka fjárveit-
ingar tfl löggæslu. „í spamaðinum,
sem á sér stað í löggæslunni, er verið
að henda krónunni en hirða eyrinn.
Með auknu atvinnuleysi koma harð-
ariafbrot." -bjb
Vona að lögreglan
beri aldrei vopn
- segirAmþórlngólfssonyfirlögregluþjónn
„Það sem leitaði fyrst á huga minn
var að ekki skyldi þó fara verr en
raun bar vitni. Eftir ítarlega skoðun
á allri atburðarás höfum við komist
að þeirri niðurstöðu að lögreglu-
mennimir bmgðust nákvæmlega
rétt við aðstæðum sem þama sköp-
uðust," sagði Arnþór Ingólfsson, yf-
irlögregluþjónn í Reykjavík, í sam-
tah við DV, aðspurður um viðbrögð
hans við atburðunum í Mosfehsbæ í
fyrrinótt. Amþór telur óþarfa að lög-
reglan vopnist í kjölfarið.
„Ég vona að það verði aldrei að
lögreglan fái að bera vopn. Sem betur
fer er svona atburður einangrað tfl-
felh. Ég met aðstæður þannig að þær
fa mig ekki til að bohaleggja vopna-
burð hjá lögreglu. Ég vísa tfl bresku
lögreglunnar~sem leyfir ekki vopna-
burð. Hún segir að ef við þurfum að
beita vopnum þá sé vopnum beitt á
okkpr. Fyrir nokkrum árum var
breskur lögreglumaður skotinn til
bana. Undirheimalýðurinn þar
hjálpaði lögreglunni til að finna skot-
manninn. Við hugsum hlutina svip-
að héma,“ sagði Amþór.
Böövar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, er ekki á landinu um
þessar mundir. Amþór sagðist ekki
geta svarað fyrir Böðvar en átti ekki
von á að embættið færi að íhuga
vopnaburð lögreglu. „Vitaskuld hafá
lögreglumenn áhyggjur og við erum
felmtri slegnir. En þetta gat farið
verr. Við búum í harðnandi heimi.
Við höfum sönnun fyrir þvi núna.“
-bjb
Alþingi:
Samkomulag um
forsætisnefnd
Samkomulag tóks síðdegis í gær Þegar þing kom saman síöasthðið
milh stjómarhða og stjómarand- haust hafnaöi Sjálfstæðisflokkur-
stæðinga um nýja skipan forsætis- inn aö láta Kvennahstanum eftir
nefndar Alþingis. Fuhtrúum verð- annað sæti sitt 1 forsætisnefhdinni.
ur öölgað úr fimm í sjöx þannig að Fyrir vikið tilnefndi stjórnarand-
allir þingflokkamir eigi aðild að staðan engan fuhtrúa í npfnHina
nefndinni. Að auki mun forseti Al- Þetta bitnaði mjög á þingstörfum
þingis eiga sæti í nefndinni. Sam- síöasthðinn vetur þar sem htið sem
komulagið nær að auki tfl ýmissa ekkert samráö var milli sijómarl-
smærri breytinga á þingsköpum er iða og stjómarandstæðinga um af-
varða ræöutima og fleira. Til stend- greiðslu mála.
ur að afgreiða frumvarp þessa efn- _itaa
is á þingfundi í dag.
Skákþing íslands:
Stórmeistararnir
á toppnum
Stórmeistaramir á Skákþingi Is-
lands hafa tekið sér stöðu á toppnum
eftir 2 umferðir Helgi Ólafsson vann
Bjöm Fr. Bjömsson í 39 leikjum og
Margeir Pétursson vann Ama Áma-
son í 36 leikjum í 2. umferð í gær.
Sævar Bjamason gerði jafntefh við
Jón Viðarsson og er í 3ja sæti með
I'á v. en Helgi og Margeir hafa 2 v.
Þröstur Þórhallsson og Hannes
Hlífar Stefánsson gerðu jafntefh í 24
leikj um í gær. Þröstur Árnason vann
Jón Ama Jónsson og hefur einn |
vinning eins og Hannes Hhfar efdr
2. umferðir. Biðskák Hannesar og
Róberts Harðarsonar úr 1. umferð
lauk með jafntefh. Biðskák varð í
gær hjá Hauki Angantýssyni og Ró-
bert. 3. umferð hefst kl. 17 í dag.
-hsím