Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Side 3
i
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
Fréttir
„Reikningur Kjaradóms er til
skoðunar hér en hann hefur ekki
verið greiddur enn,“ sagði Frið-
rik Sophusson fjármálaráðherra
er DV spurði hairn hvort um-
ræddur reikningur hefði verið
greiddur.
Hinir fimm dómendur Kjara-
dóms hafa sent fjármálaráðu-
neytinu reikning fyrir störf sín
vegna úrskuröa um laun æðstu
embættismanna ríkisins og
presta. Reikningurinn er upp á
samtals 4,6 milljónir króna. Það
þýðh’ að hver hinna fimm dóm-
enda, auk ritara dómsins, verð-
leggur þávinnu sína á 770 þusund
krónur.
Fulitrúar Kjaradóms fS föst
laun i hveijum mánuði fyrir að
sitja í dómnum. Forseti hans fær
greiddar 13 þúsund krónur en
hver hinna 10.600.
Aðspurður um hvort mönnum
þætti reikningurinn ekki hár
kvaðst íjármálaráðherra ekkert
vilja um það segja á þessu stigi
málsíns. Verið væri að kanna
hvaða vínna lægi að baki honum.
Ekki væri hægt að segja til um
hvenær þeirri könnun lyki.
-JSS
Brögð að þvl að sjómenn fari 1 kringum reglur:
Höfrungakjöt boðið í
f iskbúðum og á hótelum
- veiðamar óheimilar án leyfis, segir Jón B. Jónasson í sjávarútvegsráðuneytinu
Ivar Þór Þórisson í fiskbúðinni að Nethyl 2 með vænar sneiðar af höfrunga-
kjöti en það er nú boðið til sölu í fiskbúðum á Akureyri og í Reykjavík. Að
sögn kunnugra minnir kjötið á hrefnukjöt og er matreitt á svipaðan hátt og
nautakjöt. DV-mynd GVA
Nokkuð hefur borið á því að
undanfomu að sjómenn í Eyja-
firði og jafnvel víðar veiði höfr-
unga. Kjötið hefur meðal annars
veriö boðið til sölu á veitingastöð-
um og hótelum. Ein fiskbúð á
Akureyri selur höfrungakjöt og
að minnsta kosti ein fiskbúð í
Reykjavík.
Bannað er að veiða höfrunga
en leyfilegt er að nýta allt sem
kemur í veiðarfærin. Eitthvað
hafa sjómenn farið í kringum
þetta og dæmi eru um að þeir
veiði dýrin sérstaklega, þó ekki
sé það í stórmn stíl. Af hveiju
dýri fæst um og yfir 100 kg af
kjöti.
Þeir sjómenn, sem DV hefur
rætt við, segja greinilegt að fjöldi
höfmnga viö strendur landsins
hafi aukist og algengt sé að þeir
éti fiskinn af línunni. Þeir telja
brýna þörf á því að setja skýrar
reglur um höfmngaveiðar sem
taki af allan vafa um þessi mál.
Þeir vilja að veiðarnar verði sam-
þykktar, veiðileyfum úthlutað á
ákveðinn fjölda dýra og skýrt
kveöið á um með hvaða aðferðum
megi drepa dýrin.
„Það er óheimilt að veiða höfr-
unga án sérstaks leyfis og ég man
ekki eftir því að menn hafi
nokkm sinni sótt um leyfi til að
veiða smærri tannhvali eins og
höfrunga og hnísur. Það er ekk-
ert að því að nýta það sem kafnar
í netum og er hvort eð er dautt
en allar hvalveiðar við ísland em
bannaðar nema að fengnu sér-
stöku leyfi samkvæmt lögum um
hvalveiðar frá 1949 og reglugerð
frá 1973,“ segir Jón B. Jónasson,
skrifstofustjóri i ~ sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
Að sögn Jóns hafa smáhvala-
veiðar aldrei verið stundaðar að
neinu ráði í kringum ísland. „Ef
umsókn bærist til sjávarútvegs-
ráðuneytisins mn að fá að veiða
einhver dýr af þessum smærri
hvölum, sem Alþjóða hvalveiöi-
ráðiö fjallar ekki um, þá mun það
verða skoðað. Ef til þess kæmi
þá getur ráðuneytið sett reglur
um meðferð dýranna, hvaða að-
ferðum skuli beita og fleira," seg-
ir Jón.
-ból
6
iörnu
PA
stjörmuspAin ÞlN
ER I SÍMANUM
Nú getur þú hringt á hverjum degi í síma 99 1234 og
heyrt stjörnuspána þína. Með einu símtali færðu að
vita hvað stjörnurnar segja um vinnuna, fjármálin,
áhugamálin, vinina, ástina og að sjálfsögðu framtfðina.
Ný stjörnuspá fyrir hvert merki er á hverjum degi.
Símtalið kostar aðeins 39,90 krónur mínútan og sama
verð um land allt.
Teleworld Island
Nú er gaman í símanum