Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
5
Fréttir
Ríkisstjórn ákvað lengd
en breidd réðst af öðru
- segir Ólafur J. Briem hjá Skipatækni sem hannaði Herjólf
„Lengdin var ákveðin af ríMs-
stjóminni og breiddin réðst af þeim
stöðugleikakröfum sem skipinu var
gert að uppfylla sem farþegaskipi
þannig að það var nú ósköp lítið
svigrúm til að hafa þetta ööruvísi.
Ekki nema ríkisstjómin hefði verið
þvinguð til að skipta mn skoðun eða
við fengið að sleppa því að uppfyUa
stöðugleikakröfur. Við máttum ekki
.hafa það lengra en sjötíu metra en
teygðum það reyndar um hálfan
metra," sagði Ólafur J. Briem, skipa-
verkfræðingur hjá Skipatækni. Eins
og fram kom í DV í gær telur skip-
stjórinn á Heijólfi að skipið sé of stutt
miðað við breidd þess vegna látið það
illa í brælu.
Ólafur sagði að breiddin hefði mik-
ið að segja upp á stöðugleika skips-
ins. Upphaflega átti styttri útgáfan
að vera 15 metra breið en sú áætlun
hafi ekki gengið vegna aukinna stöð-
ugleikakrafna og því hafi verið
ákveðið að hafa skipið 16 metra á
breidd. „Aukin lengd hefði án efa
komið sér vel varðandi það vanda-
mál sem upp er komiö núna en við
réðum bara ekki yfir lengdinni."
Upphaflega teikningin af Heijólfi
var gerð af danskri ráðgjafarstofu
sem gerði ráð fyrir að skipið skyldi
vera 79 metrar. Smíði 79 metra skips-
ins var talin kosta um 140 milljónir
danskar krónur á sínum tíma, eða
um haustið 1988, sem eru rúmlega
1340 milljónir á núvirði. Tilboð bár-
ust í verkið en það var hins vegar
ákvörðun þáverandi ríkisstjómar að
ganga ekki að þeim tilboðum heldur
teikna minna skip og Skipatækni var
falið að vinna það verk. Heijólfur
kostaði fullgerður 1277 milljónir.
„Það er augljóst að ef menn era að
sigla í fjögurra metra ölduhæð þá
kemur að því að öll skip byija að
höggva. Spumingin er hvort þetta
byijar óeðlilega snemma í Heijólfi.
Við verðum að fá tíma til að bera
saman skipið eins og það hegðar sér
í dag miðað við módelprófanirnar
sem gerðar vora áður en smíðin
hófst.“ Aðspurður hvort það geti ver-
ið „perastefnið", sem átti að fá aukna
„lengd“ í skipið gæti verið orsökin
Bifreiðastöð Hafnarfjarðar, BH, hefur flutt höfuðstöðvar sínar frá Reykjavík-
urvegi í Fjarðargötu þar i bæ. Nýtt og glæsilegt timburhús var nýlega flutt
frá byggingarstað í Fjarðargötuna. Eins og sést á myndinni þurfti að gæta
að mörgu við flutninginn. Auk þess að sinna þjónustu sinni mun Bifreiða-
stöð Hafnarfjarðar annast afgreiðslu fyrir strætisvagna. Húsið verður enda-
stöðfyrir vagnana. DV-myndGVA
Hugmyndir um fækkun sveitarfelaga:
Siendur ekki til að
lögþvinga sameiningu
- segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
„Mér finnst þeir vera nokkuð fljót-
ir á sér. Það er ekki verið að knýja
nokkurn mann til eins eða neins. Hér
er um að ræöa hagsmunamál sveit-
arfélaganna. Þess vegna höfum við
hvatt til þess að máhn verði rædd
mjög ítarlega og að a.m.k. sveitar-
stjómarmenn bíði rólegir eftir þeirri
vinnu sem nú er í gangi,“ sagði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfull-
trúi sem á sæti í sveitarfélaganefnd.
Orð Vilhjálms féhu í framhaldi af
ummælum Jóns P. Líndals, sveitar-
sijóra Kjalameshrepps, sem sagði að
Kjalameshreppur hefði ekki áhuga á
að sameinast öðrum sveitarfélögum.
Hreppsnefndin í Kjalameshreppi
hefur látið í ljós þá skoðun að sam-
eining sveitarfélaga taki einungis
mið afhagsmunum ríkisins og stærri
sveitarfélaga á kostnað hinna minni.
„Það stendur ekki til að lögþvinga
sameiningu sveitarfélaga," sagði Vil-
hjálmur. „Þetta er eitthvert stærsta
hagmunamál þessa stjómsýslustigs
sveitarfélaganna í landinu og þau
verði færari að taka að sér fleiri
verkefni í stað þess að missa æ fleiri
verkefni í hendur ríkisins. Sveitarfé-
lögin verða því að styrkja sig með
einum eða öðrum hætti. Sameining-
arleiðin hefur lengi verið rædd og
fjölmörg sveitarfélög hafa samein-
ast.“
Vilhjálmur sagðist vilja benda á að
fulltrúaráð Sambands sveitarfélaga,
sem í sitja 45 manns alls staðar af
landinu, heföi samþykkt að fara þá
leið að sameina öll’sveitarfélög innan
héraðs eða sýslu. Sveitarfélögin
myndu ná yfir mjög stór svæði og
aöeins í undantekningartilvikum
yrðu þau með færri en 1000 íbúa.
Sveitarfélögin í landinu yrðu 25 til
30. „En þegar nefndin hefur unnið í
þessu verður niðurstaðan lögð fyrir
fuhtrúaráðið. Sveitarsljórnarmenn
leggja mikla áherslu á að þessi mál
verði könnuð ofan í kjölin. Þetta er
fyrst og fremst gert í þeim tilgangi
að styrkja og efla sveitarstj ómarstig-
ið í landinu," sagði Vilhjálmur.
Skýrsla sveitarfélaganefndar verður
lögðframíbyrjunoktóber. -ask
sagði Olafur að höggin virtust koma skip, hvað gerist þá? „Ef við höfum
þegar skipið lyftir sér upp úr sjónum ekki uppfyllt þær kvaðir sem okkur
og þvi gæti það verið og eitt af því var gert að uppfylla verður það að
sem þeir hygðust skoða. taka það mál upp. Þær módelprófan-
En ef skipið reynist vera óhæft sjó- ir sem gerðar vora á skipinu höfðu
VERÐ-
LÆKKUN
á
LAMBA-
KJÖTI
AFSLÁTTUR AF ÖLLU LAMBAKJÖTI
TIL MANAÐAMÓTA
þann tilgang að kanna hegðun skips-
ins í öldunni. Niðurstöðurnar gáfu
okkur ekki tilefni til að áætla annað
en allt væri með felldu."
-Ari