Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
7
dv Sandkom
Sárabætur
UmsSðustu
haldið
polJatnót í fót-
boltaáSauðár-
króki. Þama
komusaman
um350eld-
hressirstrákar
ogstelpurat
Norðurlandiog
spörkuött tuðr-
unni. Þettamót
gengur annars undir nafninu Króks-
mótið og þykir ekki minna merkilegt
en Pollamótið í Eyj um.
Hvað um þaö, þarna var Bjarni
Felixson, íþróttafréttamaðurinn
góðkunni, mættur. Hann kom alltaf
af og til inn í útsendingu rásar 2 og
greindi fró þ ví sem fyrir augu bar.
Gárungamir sögðu reyndar að
Bjarni heföi fengiö að fera á Krókinn
í sárabætur fyrir að komast ekki á
ólympíuleikana í Barcelona. Góð
sldptiþaö.
Til Borganesar
Þaöeróhættað
scgjaaðijöl-
skyldueinni,
sem varaö
hJustaáút-
varpiðsíðast-
liðiðfimmtu-
dagskvöld. haii
runniðkalt
vatnmilli
skinns oghor- i;
unds. Þávar
dagskrárgerðarmaður að Q alla um
væntanlegt biiabíó í Borgarnesi.
Hann ræddi fjálglega um þessa nýj-
ung og lét gamminn geisa í beinrti
útsendingu. Að endingu hvatti hann
hlustendur til að skella sér á útibíó
„til Borganesar". Þetr sem vildu gætu
skotist „til Akranesar" í leiðinni.
Síðan bró dagskrárgerðarmaður-
inn snj alli sér á höfuðborgarsvæðið
á sínu andans flugi og skrapp meðal
annars „til Seltjamarnesar".
Pjölskyldan hafði hlustað á þessar
beygingafimi alveg dolfallin. En þeg-
ar hún hcyrði kónann segja „tón-
lists“ tókhúnútvarpstækið úr sam-
bandi, bar það niður í geymslu og
læstiþaðinni.
Búbót í miðjunni
Hagkaup ætl-
aöinöscijaa
laggirnarnýja
vcmlanakeðju
Boiiusiogfleir-
umtilhöfuðs,
einsogfram
hefurkomiðí
{féttum. Keðj-
anáttiaðheita
Búbótogselja
vörur á „lága“ ;
verðinu.
Málið var svq vel á veg komið að
Hagkaupsmenn voru famir að 11 ta
eför húsnæði undir starfsemina. I>eir
vom komnirmeð ákjósanlegan stað
í sigtí þegar dæmið sneríst við og
þeir keyptu hlut í Bónusi. En hús-
næðið, sem þeir hetðu líkiega byrjað
með verslanakeðjunaf, var mitt á
milli Bónuss og Miklagarös. Það hefði
því orðíö flör í Vogunum ef Búbót
hefðikonústíhúsþar.
Fáránlega spurt
Umþessar
mundirer í :
gangihérá
iandikönnuná
andleguatgervi
aldraðra.Þeir
semvitmaað
þrssari rann-
sókníáraum
landiðog
spyijagamla
fólkiðstaðlaðra
spurninga. Svörin eiga svo að leiða i
ijós hvemig viðkomandi gamalmenni
erásigkomiöandlega.
Við fréttum af norðlenskri konu á
áttræðisaidri sem lenti í prófuninni.
Hún er stálslegin og minnið betra en
hjá mörgum unglingnum. Maðurinn,
sem framkvæmdi könnunina, spurði
þá gömlu m.a. hvorthúntreysti sér
til að þekkja í sundur epli og appel-
sínu. Gamla konan horíði lengi á
spyrilinn yfir gleraúgún sto og spurði
s vo með nokkrum áhyggjutón í
röddinni:
„Er langt síðan aö þúfórst að frana
fyrirþessu, góðitninn?"
—*-------—1----------------------------
Ums|ón: Jóhanna S. Sigþóisdóttlr
Fréttir
Skipt um glugga í gamla barnaskólanum. Fjórir komnir á sinn stað á 2. hæð
- og hvílik breyting. DV-myndir Pétur
SeyðisQöröur:
Bamaskólahúsið
frá 1907 verður
ráðhús bæjarins
Pétur Kristjánsson, DV, Seyðisfirði:
Undanfarið hefur margt gerst á
Seyðisfirði sem gleður þá sem gaman
hafa af gömlum húsum. Eitt þeirra
verka sem nú gleðja augu og hjörtu
manna hér er viðgerð gamla Bama-
skólahússins.
Verið er að skipta um glugga í hús-
inu og verða nýju gluggarnir eins og
þeir sem upprunalega vom í því. Við
þetta breytir húsið algjörlega um
svip. Garðar Eymundsson húsa-
smíðameistari hefur smíðað glugg-
ana og sér um ísetningu. Kostnaður
við verkið er um 5 milljónir króna.
í áætlunum Seyðisfjarðarkaup-
staðar er gert ráð fyrir því að Bama-
skólahúsið, sem var byggt sumarið
1907, verði gert að ráðhúsi bæjarins.
Til þess að svo geti orðið þarf fyrst
að klára nýja skólahúsiö sem verið
hefur í byggingu síöan 1981.
Þegar bæjarskrifstofumar flytjast
úr núverandi húsnæði koma safna-
menn til með að gleðjast mjög því að
Gamla símstöðin á Seyðisfirði er
núverandi húsnæði bæjarskrifstof-
anna en verður framtíðarhúsnæði
Tækniminjasafns Seyðisfjarðar.
þá loksins kemst Tækniminjasafn
Seyðisfjarðar í allt það húsnæði sem
því var gefið árið 1974. Upphaflega
var vonast til að þessum flutningum
öllum yrði lokið á hundrað ára af-
mæli kaupstaðarins 1995 en nú þykir
sýnt aö bæjarsjóður þurfi að sinna
brýnni erindum er varða lífsafkomu
staðarins, svo að eitthvað dregst
þetta.
Unnið við steypu á þekju skábrautarinnar í Haganesvik. DV-mynd örn
Skábraut fyrir trill-
urnar í Haganesvík
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
Nýlokið er endurbótum á hafnar-
aðstöðunni í Haganesvík. Þar var
lagfærð skábraut sunnan við bryggj-
una sem notuð er til að taka báta á
land. Þarna var um mjög brýna end-
urbót að ræða því gamla skábrautin
var orðin í bágu ástandi þar sem sjór
skolaði undan henni uppfyllingu og
var því farið að brotna upp úr steypu
í henni.
Nýja brautin nær nokkru lengra
út en sú gamla og mun gera bátaeig-
endum kleift að taka trillur á land,
jafnvel þótt lágt sé í sjó. Áður þurfti
að sæta sjávarfóllum við að ná bát-
unum upp.
Fljótahreppur stóð aö framkvæmd-
inni. Til verksins fékkst fé á fjárlög-
um þessa árs og auk þess lítils háttar
framlag úr Hafnabótasjóði. Meö
þessu má segja að endurbótum á
bryggjunni í Haganesvík sé lokið.
Fyrri áfanginn var tekinn fyrir
nokkrum árum. Þá var sjálf bryggjan
lagfærð og endurbætt.
Umsjón með framkvæmdinni nú
hafði Magnús Eiríksson, bygginga-
meistari á Siglufirði.
Laus staða
Staða deildarsérfræðings í lista- og safnadeild
menntamálaráðuneytisins er laus til umsóknar. Há-
skólamenntun er æskileg. Laun samkvæmt launa-
kerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýs-
ingum um menntun og starfsferil sendist mennta-
málaráðuneytinu fyrir 15. september 1992.
Menntamálaráðuneytið 18. ágúst 1992
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. Hafnamálastofnunar, óskar eftir til-
boðum í mengunarvarnabúnað fyrir 7 hafnir á Norður- og Austur-
landi.
Útboðslýsingar á íslensku og ensku fást á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, R.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 10. september
nk. kl. 11.00 f.h.
INIMKAUPASTOFNUIM RIKISINS
BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
GREIÐSLUÁSKORUN
Gjaldheimtan í Reykjavík skorar hér með á gjaldendur, sem
ekki hafa staðið skil á eftirfarandi opinberum gjöldum, þ.e.
tekjuskatti, útsvari, eignarskatti, sérstökum eignarskatti,
kirkjugarðsgjaldi, gjaldi í framkvæmdasjóð aldraðra, sér-
stökum skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, aðstöðu-
gjaldi, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjaldi, slysatryggingu
skv. 36. gr. almannatryggingarl., slysatryggingargjaldi
v/heimilisstarfa, útflutningsráðsgjaldi, verðbótum af tekju-
skatti og útsvari, sem voru álögð 1992 og féllu í gjalddaga
1. ágúst 1992 ásamt eldri gjöldum, svo og gjöldum sem
Gjaldheimtunni ber að innheimta skv. Norðurlandasamn-
ingi, sbr. lög nr. 46/1990 og auglýsingu nr. 16/1990, að
greiða þau nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá
dagsetningu áskorunar þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðnum.
Reykjavik, 17. ágúst 1992
Gjaldheimtan i Reykjavík.
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði skorar hér með á gjaldendur,
sem ekki hafa staðið skil á þinggjöldum ársins 1992, sem
og fyrri ára, álögðum í Ólafsfirði, en gjöld þessi féllu í gjald-
daga 1. ágúst sl„ að greiða þau nú þegar og ekki síðar
en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Gjöld þessi eru: tekjuskattur, verðbætur á ógreiddan tekju-
skatt, eignaskattur, sérstakur eignaskattur, slysatryggingar-
gjald v. heimilisstarfa, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald,
slysatryggingargjald v. atvinnurekenda, kirkjugarðsgjald,
útsvar, verðbætur á ógreitt útsvar, aðstöðugjald, sérstakur
skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði og gjald í fram-
kvæmdasjóð aldraðra.
Einnig er skorað á gjaldendur að greiða innan sama tíma
tryggingargjald, aðflutningsgjald, skipaskoðunargjald, lög-
skráningargjald, lestargjald, bifreiðagjald, slysatryggingar-
gjald ökumanna og þungaskatt samkv. ökumæli, skipu-
lagsgjald af nýþyggingum, virðisaukaskatt sem í eindaga
er fallinn, sem og viðbótar- og aukaálagningu virðisauka-
skatts vegna fyrri tímabila.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum
eftistöðvum gjaldanna að liðnum ofangreindum tíma.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði
Ólafsfirði, 18. ágúst 1992
Kjartan Þorkelsson