Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
Útlönd
sáluga, Aristótelesar Onassis, var
sett á uppboð í Grikklandi í gær.
Aöeins tveir hugsanlegir kaup-
endur létu sjá sig og báöir sögðu
að lágmarksverðið, sem farið
væri frara á, um 230 milljónír
króna, væri of hátt.
Gríska ríkið fékk skútuna, sem
er 325 feta löng og heitir Christ-
ina, eftir dótturínni sálugu, að
gjöf árið 1978 en fjármálaráðu-
neytið sagðist ekki hafa efni á að
reka hana og halda henni við.
Um ftmm hundruð málverk og
iinnur listaverk voru fjarlægð úr
skútunni áður en hún fór á upp-
boðið.
Margt frægra manna hefur sótt
veislur um borö í skútunni, þar
á meðal Marlon Brando, María
Callas, Winston Churchill og ein-
hverjir úr bresku konungsflöl-
skyldunni.
Vanfærarkonur
skylduforðast
gufuböð
Konur, sem gera sér það að leik
að liggja í heitum pottum eða
gufubaði við upphaf meögöngu-
timans, eíga á hættu að skaða
börnin sem þær ganga með.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar sem birtar voru í gær
hefur fundist fylgni milli kvenna
sem sækja í slíka hitastaði á
fyrstu vikum meðgöngunnar og
ungbama með ákveöna tegund
heila- og mænuskaða.
Vísindamennirnir komust að
þvi að líkumar á skaöanum juk-
ust eftir því sem vanfæra konan
fór oftar i heitan pott eða gufu-
bað. Böm mæðra sem fóru tvisv-
ar í slíkt hitabaö voru þrisvar og
hálfum sinnum Uklegri til að fá
skaðann en önnur.
Stalinsettitvö
þúsundútlend-
ingaígúlagið
Rúmlega tvö þúsund útlending-
ar fengu að gista þrælkunarbúðir
í Síberíu á tímum ógnarstjórnar
Jósefs Stalíns í Sovétrikjunum.
Að sögn öryggisraálaráðuneytis
Rússlands voru útlendingar þess-
ir frá 31 landi.
Meðal útlendmganna, sem voru
sendir í gúlagiö, vora 501 Búlg-
ari, 155 Mongólar, 116 Þjóðverjar
og tveir Bretar. Ekki er ljóst hvaö
varö af útlendingunum sem eru
á listanum sem ráðuneytið
kynnti.
Démararnirfá
skothelt gler í
réttarsalinn
Borgaryfirvold 1 Oaklandí Kali-
fomíu hafa ákveöiö að vemda
dómara í réttarsölum borgarinn-
ar með skotheldum glerskjöld-
um. Er þaö gert vegna sívaxandi
ofbeldis í bandarlskum réttarsöl-
um.
Skildimir munu aðeins vernda
neðri hluta líkama dómarans
þannig að ef ofbeldi brýst út verð-
ur hann að beygja sig niður.
Starfsmenn
dýragarðsbitnir
Tveir starfsmenn dýragarösins
í Wroclav í Póllandi vora bitnir
af tveimur ungum mönnum sem
reyndu að komast inn í garðinn
án þess að greiða aðgangseyrinn.
Forstjóri dýragarösins segir að
annar starfsmaðurinn hafi hönd-
ina enn í fatla vegna árásarinnar.
Reuter
x>v
Bush lofar breytingum
á næstu ríkisstjórn
- Barbara segir fréttir um kvennafar forsetans lygi
Barbara Bush, forsetafrú í Bandaríkjunum, ræðir við Bruce Willis leikara á flokksþingi repúblikana í Houston í Texas.
Simamynd Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann mundi gera gagn-
gerar breytingar á ríkisstjórn sinni
næði hann endurkjöri í kosningun-
um í nóvember og hófust þegar
vangaveltur um hverjir yrðu látnir
íjúka.
Vagavelturnar snerast aðallega um
tvo aðalhöfunda efnahagsstefnu
stjómar Bush, þá Nicholas Brady
fjármálaráðherra og Richard Dar-
man fjárlagaráðherra.
Dagblaðið New York Times sagði í
morgun að forsetinn væri að íhuga
aö tilkynna í ræðu sinni á morgun
að James Baker utanríkisráðherra,
sem tekur við starfi starfsmanna-
stjóra Hvíta hússins á mánudag,
verði áfram í Hvíta húsinu eftir kosn-
ingamar til að hafa yfiramsjón með
efnahagsstefnunni. Sagt er að Baker
sé ekki mjög hrifinn af þeirri hug-
mynd.
Barbara Bush forsetafrú lét til sín
taka á flokksþingi repúblikana í gær
þegar hún reyndi að jafna ágreining
í flokknum um fóstureyðingar. Hún
ítrekaði fyrri skoðim sína að fóstur-
eyðingar væra einkamál og því ætti
ekki að fjalla um þær í stefnuskrá
flokksins.
Flokkurinn ákvað eftir harðar
umræður að hvetja til þess að fóstur-
eyðingabann yrði sett í stjómarskrá
landsins.
Barbara veittist einnig að fréttum
um að forsetinn hefði haidið fram
hjá henni og kallaði þær „viður-
styggilega" lygi.
FuUtrúar á flokksþinginu héldu
áfram árásum sínum á Bill Clinton,
forsetaefni demókrata. Einn embætt-
ismaður stjórnarinnar blés nýju lífi
í orðróminn um framhjáhald Clint-
ons með því að kalla hann „kvenna-
flagara". Embættismaðurinn baðst
síðar afsökunar á orðum sínum.
Þá var Clinton sakaður um að hafa
komið sér hjá herþjónustu í Víet-
namstríðinu og hann var sagður
kvæntur róttækum femínistalög-
fræðingi sem hvetti böm til að fara
í mál við foreldra sína. Clinton var
einnig sakaður um fara fyrir flokki
sem stuðlaði að samkynhneigð.
Reuter
Menn úr lögregluliöi Bosníu í Sarajevo gráta fallinn félaga. Stööugar skærur eru í borginni þótt ekki hafi komið
til meiri háttar átaka þar síðustu daga. Simamynd Reuter
Bretar tilbúnir að senda
1800 hermenn til Bosníu
Breska stjómin lýsti því yfir í gær
að ekkert væri því til fyrirstöðu að
senda 1800 manna hersveit til Bosníu
eftir að skotið var á breska flugvél
sem flutti hjálpargögn til Sarajevo á
vegum Sameinuðu þjóðanna. Enginn
í vélinn særðist og hún komst á loft
lítið skemmd.
Hermönnunum er eingöngu ætlað
að tryggja framgang hjálparstarfsins
og eiga að forðast átök ef af för þeirra
til Bosníu verður. Ekkert er ákveðið
um herflutningana.
Ekki er lengur flogið með þjálpar-
gögn til Sarajevo af hálfu Sameinuðu
þjóðanna vegna umsátursástandsins
á flugvellinum þar. Völlurinn er þó
enn opinn ef einhver vill hætta á að
lenda þar.
í gær var eld- og reyksprengjum
varpað á flugvöllinn eftir að skotið
var á bresku flutningavélina. Einnig
kom til átaka milli Serba og her-
sveita íslama í nágrenni vallarins.
Báðir aðilar hafa þar öffugt fið þótt
hvoragir áræði að taka völlinn sem
er á valdi gæsluliða Sameinuðu þjóð-
anna.
í Washington var ekki talið útilok-
að aö hefnt yrði fyrir árásina á
bresku flugvélina með loftárásum á
stöðvar Serba. Engin ákvörðun hefur
þó verið tekin um aðgerðir og raunar
er ekki vitað rneð vissu hvort það
voru Serbar sem skutu en ekki ísl-
amar.
Líkur hafa þó aukist á að hervaldi
vrið beitt til að tryggja framhald
hjálparstarfs í Sarajevo og annars
staðar í Bosníu. Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna heimilar slíkar aðgerö-
ir og næg tilefni era til að hefjast
handa. Reuter
Kastaðisérút
umgluggaaf
óttaviðaðverða
sköllóttur
Ungur námsmaður í Inchon í
Suður-Kóreu kastaði sér út um
gfugga á fjöfbýlishúsi þar sem
hann taldi að líhð yrði sér óbæri-
legt vegna skalla. Námsmaður-
inn lét lífið við faliið.
Undanfarna mánuði hafði borið
á miklu hárlosi hjá honum og
hann sá fram á að verða sköllótt-
ur á skömmum tíma. Fólk úr fjöl-
skyldu hins látna sagði að hann
hefði óttast að fá ekki vinnu að
námi loknu vegna skailans. Eins
óttaðist hann að njóta ekki hylli
meðal kvenfólks vegna hárleysis-
ins.
Ástarfleysettá
flottilaðafstýra
fólksfækkun
Borgarstjómin í Sendai,
skammt norðan Tokýo í Japan,
hefur ákveðið að hefja útgerð
sérstaks ástarfleys í von um að
einhverjir af fjölmörgum pipar-
sveinum borgarinnar finni sér
maka um borð.
Fólki fækkar ár frá ári í borg-
inni en þar búa fjölmargir karlar
einir. Yflrvöldum þykir því borg-
arbúar ekki endurnýja sig nægi-
lega ört.
Piparsveinimum verður boðið
upp á tveggja daga ferð með
ástarfleyinu og sér borgarstjóm-
in til þess að um borð verði gott
úrval kvenna. Þegar hafa yfir
3000 karlar falast eftir feröum.
Reuter