Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
íþróttir
Knattspyma - 2. deild:
Naumt hjá Fylki
Fylkismenn tryggðu sér svo gott
sem sæti í 1. deiid að ári með naum-
um sigri á Leiftri, 3-2, í Árbænum í
gærkvöldi.
Fyrri háifleikur var tíöindalítill,
Fylkismenn voru öllu sterkari í að-
gerðum sínum og gerðu eina mark
hálfleiksins á 24. mín. er Baldur
Bjamason skoraði eftir að hafa leikið
á hálft Leiftursliðið. Norðanmenn
hófu síðari hálfleikinn á því að jafna
á 49. mín. Pétur Bjöm Jónsson skor-
aði þá af stuttu færi eftir laglega
tekna aukaspymu Gorans Banjakt-
arevic. Leiftursmenn tóku síðan for-
ystu á 65. mín. Pétur Marteinsson
komst upp vinstri kant og renndi
boltanum frá vítateigshomi, framhjá
Páli Guðmundssyni, markverði
Fylkis. Á 78. mínútu jafnaði Þórhall-
ur Dan Jóhannsson eftir stimgu-
sendingu Ólafs Hafsteinssonar. Sig-
urmarkiö kom síðan fimm min. síð-
ar. Þórhallur gaf á Baldur sem skor-
aði með þrumuskoti eftir þunga
sókn.
Pétur Bjöm fékk að líta rauða
spjaldið undir lok leiksins fyrir gróft
brot, að mati Gísla Björvinssonar
dómara sem dæmdi prýðilega.
Langþráður sigur Selfoss
Selfyssingar únnu langþráðan sigur
í gær þegar þeir lögðu ÍR-inga að
velli, 4-2. Selfyssingar náðu foryst-
unni á 9. mínútu þegar Tómas
Bjömsson ÍR-ingur sendi boltann í
eigið mark og á 25. mínútu bætti
Sævar Gíslason við öðru marki fyrir
heimamenn. ÍR-ingar núnnkuðu
muninn með marki Ágústs Ólafsson-
ar á 30. mínútu.
Eftir þriggja mínútna leik í síðari
hálfleik skoraði Trausti Ómarsson
þriðja mark Selfyssinga og Gylíi Sig-
uijónsson gerði flórða markið á 65.
mínútu. Bendikt Einarsson lagaði
stöðuna fyrir ÍR skömmu síðar og
þar við sat.
Sigur Selfyssinga hefði hæglega
getað orðið stærri því þeir fengu
fjölda færa sem ekki nýttust. Liðið
sýndi góða baráttu og eygir nú von
um að halda sæti sínu í 2. deild.
IBK í góðri stöðu
Þróttarar hafa ekki mikið upp úr
krafsinu í leikjum sínum við IBK. í
gær sigraði ÍBK, 2-5, og var það
fimmti sigur liðsins á Þrótti á 2 ámm.
ÍBK styrkti þar með stöðu sína í
deildinni. Strax á upphafsmínútun-
um handleggsbrotnaði Axel Gomes,
markvörður Þróttar, efdr samstuð.
Axel lék í nokkrar mínútur eftir það
og kom engum vömum við þegar
Kjartan Einarsson skoraði fyrsta
mark ÍBK. Vamarmaðurinn Kári
Ragnarsson tók stöðu Axels og er
hann 6. markvörðurinn sem reynir
sig í marki liðsins í sumar. Magnús
Pálsson jafnaði metin úr vítaspyrnu
en síðan komu fjögur ÍBK-mörk, Óli
Þór Magnússon 2 og Kjartan Einars-
son 2. Sigfús Kárason lagaði stöðuna
fyrir Þrótt undir lokin. Steinar
Helgason og Ingvar Ólafsson léku
best Þróttara en þeir Óli Þór og Kjart-
an vom bestir í hði ÍBK.
Víðir í mikilli fallhættu
Grindvíkingar unnu sigur á grönn-
um sínum í Garði, 2-3. Hlynur Jó-
hannsson kom Víði í 1-0 á 27. mínútu
en nokkm áður hafði Þórður B.
Bogason, Grindvíkingur, fengið
rauða spjaldið. í upphafi síöari hálf-
leiks fiskaði Hlynur vítaspymu en
Þorsteinn Bjamason sá við honum
og varði. Um miðjan síðari hálfleik
jafnaði Ragnar Eðvarðsson fyrir
Grindavík og stuttu síðar fékk Víðis-
maðurinn Vilhjálmur Einarsson að
sjá rauða spjaldið. Hlynur kom Víðis-
mönnum yfir þegar 15 mínútur vora
eftir en á sömu mínútunni jafnaði
Ólafur Ingólfsson fyrir Grindavík.
Fimm mínútum fyrir leikslok tryggði
Guðlaugur Jónsson Grindvíkingum
öll stigin.
Jafnt á ísafirði
BÍ og Stjaman gerðu 1-1 jafntefli á
ísafirði. Gunnar Torfason skoraði
með skalla eftir 15 mínútna leik fyrir
BÍ en í upphafi síðari hálfleiks jafn-
aði Merab Zordanya metin fyrir
Stjömuna. Bæði þessi lið em enn í
fallbaráttu. -BL/SH/ÆMK/KG
Knattspyma -1. deild kvenna:
Óvæntur Stjörnusigur
gegn Val í Garðabæ
Stjömustúlkm- unnu óvæntan en
sanngjaman sigur á ÍA í 1. deild
kvenna á Stjömuvelli í gærkvöldi,
2-1.
Skagastúlkur vora ákveðnari í
fyrri hálfleik en Stjömustúlkurnar
biðu átekta, vörðust vel og áttu
nokkrar hættulegar skyndisóknir.
Síðari hálfleikur var fjöragur, bæði
Reykjavíkur
maraþon
eftir
4
daga
Uð settu meiri kraft í sóknarleikinn
og við það opnaðist leikurinn upp á
gátt. Rósa Dögg Jónsdóttir skoraði
fyrst fýrir Stjömuna og var vel að
því marki staðið. Gréta Guðnadóttir
fékk boltann út á hægri kant, lék upp
að endamörkum og sendi boltann
fyrir markið þar sem Rósa skallaði
af öryggi í markið.
Skagastúlkurnar efldust við mark-
ið og settu enn meiri kraft í sóknina
og það skilaði sér. Á 60. mínútu sendi
Jónína Víglundsdóttir boltann fyrir
mark Stjömunnar, inn í markteig
þar sem Helena Ólafsdóttir renndi
honum í netið, l-l. En Stjömustúlk-
ur vora ekki á því að gefast upp og
aðeins átta mínútum síöar átti Anna
Sigurðardóttir góða sendingu inn
fyrir vöm ÍA þar sem Guðný Guðna-
dóttir lék á Steindóra Steinsdóttur
markvörð og sendi boltann í autt
markið. Eftir markið skiptust Uðin á
að sæKja, ÍA sótti heldur meira en
Sfjömustúlkur vora þó nær því að
bæta við þriðja markinu heldur en
ÍA að jafiia.
Það var sterk Uösheild Stjömunnar
öðra ffemur sem skóp þennan sigur.
Auður Skúladóttir, Anna Sigurðar-
dóttir og Ásgerður H. Ingibergsdóttir
stóðu þó upp úr í ipjög jöfiiu Uði.
Skagastúlkur áttu dapran dag og
virtist öflug mótspyma Stjömunnar
koma þeim í opna skjöldu. Jónína
Víglundsdóttir var sú eina í Skagal-
iðinu sem lék samkvæmt getu, hinar
vora langt frá sínu besta.
-ih
Sveit Þrasta sigraði á sumar-
móti Japís í keilu sem haldið var
í KeUulandi í Garðabæ á dögun-
um. Þrestirair hlutu 108 stig en
Keilulandssveitín, sem varð í
öðru sæti, Maut 106 stig. í þríðja
sæti var J.P. Kast með 98 stig. í
keppni með forgjöf sigraðu Feðg-
arnir, hlutu 94 stig, Keiiir varð í
öðru sæti með 86 stig og jafnir í
þriðja sæti urðu Keiluböðlarair
og Við strákamir með 74 stig
hvor.
Böðvarvann
Böðvar Þórisson varð hlut-
skarpastur á Egilsmótinu í sigl-
ingum á seglbrettum, sem fram
fór um síöustu helgi, en mótiö var
hlutí af íslandsmeistarakeppn-
inni. Keppnin var tviskipt, svig
og brautarkeppni. Böðvar sigraði
i báðum greinunum og því einnig
varð annar í svigi og samanlögöu
og Jóhannes Ævarsson varð ann-
ar í brautarkeppni og þriöji í sam-
anlögöu. Þeir Böðvar og Valdi-
mar munu taka þátt i heims-
meistaramótinu sem haldiö verö-
ur á Rhodos i byijun september.
Keppnií2.deild
íkörfubolta
Eins og undanfarin ár verður
keppni í 2. deild karla og kvenna
með fjölJiðamótsfyrirkomulagi
og liðum skipt í riðla eftir lands-
hlutum. Þau lið sem bestum ár-
angir ná samanlagt úr þremur
flölliöamótum komast í úrslit þar
sem sigurvegarar riölanna mæt-
ast. Frestur öl aö tilkynna þátt-
töku rennur út 14. september.
-BL
Handboltaskóli FH hefst
fimmtudaginn 20. ágúst í íþrótta-
húsinu í Kaplakríka. 7 og 9 ára
drengir og stúlkur verða frá
klukkan 9-10.30 og 10-14 ára
drengir og stúlkur frá 10.30-14.
Kcnnt vorður í tveimur sölum og
veröa kennarar þeir Guðmundur
Karlsson og Guðjón Árnason.
Náraskeiðiö stendur yfir í 7
kennsludaga og er þátttökugjald
krónur 1500 en veittur er syst-
kynaafsláttur. -GH
Stórleikuríkörfu
í kvöld fer fram fyrsti stórleik-
ufinix: í körfuknattleiknum frá
körfuknattleiksmanna lauk í vor.
Um er að ræöa leik Njarövík-
inga og úrvals af Suðumesjum
og fer leikurinn fram í tílefhi af
50 ára afmæli Njarðvikur. Leik-
urinn hefst í íþróttahúsinu i
Njarðvík klukkan átta í kvöld.
-SK
Allir fremstu borðtennismenn
landsins tóku um síðustu helgi
þátt i boösmóti íþróttasambands
fatlaðra en þar kepptu einnig
tveir fatlaöir borðtennismenn,
þeir Elfar Thorarensen og Jón
Heiðar Jónsson, en hann keppir
i sitjandi flokki.
Mót þetta var mikilvægur liður
í undirbúningi þeirra Elfars og
ember. Allir léku við alla á mót-
inu og reyndi þaö heldur betur á
þá fötluöu sem máttu hafa sig
alla við.
IJrslit mótsins urðu þau að
Kjartan Briem sigraði, Kristján
Jónasson varð annar og Kristján
Haraldsson þriðji. í mótslok var
sett upp ein Iota mSli þeirra
Krisijáns Jónassonar og Jóns
Heiöar þar sem Kristján var
bundinn í hjólastól. Jón Heiöar
haföiþá betur, 21-17. -BL
Larry Bird í baráttu við Magic Johnson í NBA-deildinni. Ljóst er að þeir mæta<
Bird tilkynnti í gær að hann væri hættur áð feika körfuknattleik. Það sama gerði
Gerði allt s<
gat fyrir B(
- Larry Bird hjá Boston Celtics hættur
„Þetta er ekki dapur dagur
lyrir mig. Þvert á móti ósköp
vervjulegur dagur því ég vissi
að það hiytí að koma að þessu
fyrr eða seinna,“ sagði körfuboltasnill-
ingurinn Larry Bird í gær er hann til-
kynnti að hann væri hættur að leika
körfuknattleik með NBA-liðinu Boston
Celtics.
Bird, sem er án efa einn besti leikmað-
urinn sem leikið hefur í NBA-deiIdinni,
hefur um langt skeið átt við alvarleg
meiðsli að stríða og svo fór að lokum aö
þrálát bakmeiðsli bundu enda á feril
þessa snillings.
„Mér líður betur í bakinu í dag en áður
en ég veit að þetta verður aldrei alveg
gott aftur. Ég gaf allt sem ég átti fyrir
Boston og vonandi á samband mitt við
liðið eftir að verða gott í framtíðinni,"
sagði Larry Bird í gær en hann hefúr
leikið sem atvinnumaður í körfunni síð-
ustu 15 árin og án efa verið einn vinsæl-
asti leikmaður NBA-deildarinnar.
Með skömmu millibili hafa tvær skær-
ustu stjömur NBA-deildarinnar til
margra ára orðiö að leggja körfuboltas-
kóna á hilluna. Allir muna hvemig fór
fyrir Magic Johnson en þó em einhveij-
ar líkur á því að hann leiki með New
York Knicks á næsta tímabiii. Ljóst er
þó að hann verður aldrei sá leikmaður
sem hann var áður. Ákvörðun Larry
Bird í gær er mikið áfall fyrir lið Boston
og það stóra skarð sem „fuglinn" skilur
eftir sig verður vandfýllt. Bird er 35 ára
gamall og var, eins og Magic Johnson, í
gullliði Bandaríkjanna á síðustu ólymp-
íuleikum. Tiikynnt var í gær að Bird
myndi starfa áfram fyrir Boston Celtics
í framtíðinni.
-SK