Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1992, Side 28
40
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1992.
Fréttir
Sex sveitarfélög sameinast um rekstur Almenningsvagna:
Strætisvagnaþjónusta
samræmd á öllu svæðinu
Sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu, Bessastaðahreppur, Garðabær,
Hafnarflörður, Kjalameshreppur,
Kópavogur og Mosfellsbær, hafa
sameinast um rekstur Almennings-
vagna sem hófu starfsemi sína síð-
astliðinn laugardag. Meginmarkmið
fyrirtækisins er að samræma þjón-
ustu almenningsvagna á höfuðborg-
arsvæðinu og hafa Almenningsvagn-
ar nú með höndum allar strætis-
vagnaferðir á milh þessara sex sveit-
arfélaga og innan þeirra.
Að sögn Amar Karlssonar, fram-
kvæmdastjóra Almenningsvagna,
hafa nokkrir hnökrar á leiðakerfinu
komið í ljós þessa fyrstu starfsdaga
en unnið er að því að laga þá. Vegna
ábendinga farþega hefur til dæmis
verið bætt við morgunferð í suðurátt
frá Lækjargötu sem fer kl. 7.04. Þá
hefur komið í ljós að á mestu anna-
tímum á morgnana hafa vagnamir
verið yfirfullir og þvi hefur þurft að
bæta við vögnum til að anna farþega-
fjöldanum.
Áætlað er að árleg rekstrargjöld
Almenningsvagna nemi um 280
milljónum króna en fargjaldatekjur
verði um 140 milljónir króna. Rekstr-
arhalli Almenningsvagna verður
greiddur beint af þeim sveitarfélög-
um sem reka fyrirtækið.
Vagnar Almenningsvagna aka að
jafnaði á 20 mínútna fresti og nokkr-
ar hraðleiðir munu ganga á milli
sveitarfélaganna. Að sögn Amar var
reynt að ná sem bestri samræmingu
við leiðakerfi SVR við hönnun kerfis-
ins og aka vagnar Almenningsvagna
því til allra aðalskiptistöðva SVR í
Reykjavík.
Nýtt fyrirtæki, Almenningsvagnar, hefur nú hafið starfsemi sina og annast
það alla almenningsvagnaþjónustu milli sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu. DV-mynd GVA
Sérstakur næturvagn mun aka að-
faranætur laugardaga og sunnudaga
fram til kl. 4.00 að morgni frá miðbæ
Reykjavíkur til Kópavogs, Garða-
bæjar og Hafnarfjarðar. Þetta er nýj-
ung sem stendur í tilraimaskyni
fram til áramóta.
Almenningsvagnar og SVR hafa
ekki með sér skiptimiðasamning svo
að skiptimiðar frá öðm hvora fyrir-
tækinu gilda ekki í hinu.
-ból
Leiðakerfi
Reykjavík
.140/141
Alftánes
63B/140/141
tpavoi
140/14:
51/142
)rfjörður
42/45
Aðalleio
Næturferðir
Akstursleið
Skiptistöð
Biðstöð
Pop
Frumafl-Ýmsir
Kemur á óvart
Frumafl er nafn á nýstárlegri safnplötu sem Axel Einarsson stendur
fyrir útgáfu á og opnar nýjar leiðir fyrir óþekkta og lítt þekkta listamenn
að koma sér og sínu efni á framfæri. Hugmyndin gengur út á það að
menn kaupa sér einfaldlega pláss á plötu fyrir ákveðiö verð og fá í stað-
inn ákveðinn eintakafjölda af plötunni til ráðstöfunar. Þetta er vissulega
athyglisverð hugmynd og komust víst færri að en vildu á þessari fyrstu
plötu þessarar tegxmdar hérlendis.
Eins og við er að búast er efni plötunnar hið fjölbreyttasta en það sem
kemur fyrst og fremst á óvart er hversu margt er hér vel gert og á fylli-
lega skilið að koma út á plötu. Það má segja að þessi plata sýni að hér á
landi er ótrúlega mikið af frambærilegum lagasmiðum og flytjendum.
Reyndar era ekki aUt óþekktir listamenn á plötunni því hér koma viö
sögu þekktir tónlistarmenn eins og Bjami Arason, Viðar Jónsson, Sigur-
geir Sigmundsson, Ásgeir Óskarsson, Haraldur Þorsteinsson, Tryggvi
Hljómplötur
Sigurður Þór Saivarsson
Hubner, Björgvin Gíslason, Magnús og Jóhann, Pétur Kristjánsson, Einar
Júlíusson, Pálmi Gunnarsson og Axel Einarsson, svo að einhveijir séu
nefndir. Flestir þessara manna em þó aðeins í hlutverki meðreiðarsveina
í lögum en ekki flytjendir sem slikir.
Gæði laganna era auðvitað jafn misjöfn og lögin em mörg og það sem
háir mörgum lagasmiðnum greinilega er aðgangur að góöum söngvara
en misgóður söngur er áberandi á plötunni og mörg þokkaleg lög falla
um nokkra flokka eingöngu vegna þess að söngurinn er slakur. En það
verður að taka viljann fyrir verkið og þetta framtak Axels Einarssonar
er lofsvert og kærkomið fyrir alla þá sem telja sig eiga erindi á plötu en
hafa ekki hlotiö náð fyrir augum útgefenda.
Merming___________________
Áhrifamiklir tónleikar
Tónleikar vora í Listasafni Siguijóns Ólafssonar í
gærkvöldi. Sigurður Halldórsson sellóleikari og Daníel
Þorsteinsson píanóleikari léku saman verk eftir Dmitri
Schostakovits, Claude Debussy, Alfred Schnittke og
Bohuslav Martinu. Húsfyllir var.
Tónleikamir hófust á stuttu verki, Moderato, eftir
Schostakovits. Þetta er hefidstætt verk og tjáningar-
ríkt, skrifað á því útvíkkaða tónala tungumáli sem
gerir tónlist þessa merka rússneska tónskálds svo
sterka og persónulega. Greinileg tengsl em milh
Schostakovits og landa hans Schnittke en eftir hann
var síðasta verkið á tónleikunum, Sonate. Þetta er
verk í þrem þáttum, Largo, Presto, Largo. Minna hægu
þættimir mjög á önnur kammerverk Schnittkes, eins
og t.d. frábært verk fyrir fiðlu og segulband, sem hann
samdi í minningu Schostakovits, og annað verk fyrir
píanó og strengjakvartett. Höfuðviðfangsefhið tækni-
lega í verkum þessum em ómstreitur sem höfundur
meðhöndlar á mjög frumlegan máta. Hinum ómblíð-
ustu tónbilum er stillt upp gegn hinum ómstríðustu
og gjaman er gmnntónn hggjandi eða áberandi á ann-
an hátt til að undirstrika streitur og lausnir. Notkun
höfundarins á pedölum píanósins er smekkleg og áhri-
farík í þessu efni. Imúhald verksins er þjáningin í sín-
um ýmsu fjölbreytilegu myndum. í Presto kaflanum
er sleginn gjörsamlega annar tónn. Sífelldar endur-
tekningar stuttra hendinga minna mjög á frumstæð-
asta minimalisma og er líður á kaflann fara áheyrend-
ur að efast um tilganginn með hjakkinu en einmitt
þá reimur upp fyrir mönnum að þetta er aðeins undir-
búningur undir síðari Largo kaflann, andstæða sem
gerir hann margfalt áhrifameiri. Það er fyrst þegar
verkinu er lokið sem menn sannfærast um að Prestó-
ið sé nákvæmlega eins og það á að vera.
Inni á milli verka hinna rússnesku meistara var
Sonate eftir Debussy og Sonata no. 2 eftir Martinu.
Fyrrgreinda verkið er gott dæmi um hve langt á und-
an samtíð sinni Debussy var. Notkun hans á pizzicato,
glissando og yfirtónum minna mjög á ýmis nútíma-
verk, enda er þessi ágæti höfundur mikið stældur.
Verk Martinus er viðamikið og mjög undir þjóðlaga-
áhrifum. Kraftmikil hrynjandi með sterkum púls og
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
breytilegum áherslum gerir verkið hrífandi og áheyri-
legt.
Þessa vel völdu tónlist léku þeir félagar Sigurður og
Daníel af nákvæmni og mikilli tónelsku. Það er sér-
staklega til þess takandi hve gott vald þeir höfðu á
hljóðfallinu og hve samtaka þeir vom í þessu mikil-
væga atriði sem allt of oft er ábótavant á tónleikum
hér á landi. Leikur þeirra var ekki snurðulaus en
margt var um fallega gerða hluti í túlkun og útfærslu
sem sýndi góðan skilning á innhaldi verkanna og
hæfni til að tjá það. Sem heldur óvænt aukalag léku
þeir félagamir hinn gamla slagara Round Midnight
eftir Thelonius Monk, hinn frumlega meistara jassins
sem ótaldir dansmúsíkkantar hafa grátið yfir í gegnum
árin. Var gaman að heyra hina kunnuglegu jasshljóma
í finlegri og blæbrigðaríkri útfærslu hinna klassískt
þjálfuðu tónlistarmanna.