Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1992, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1992, Side 16
16 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992. Skák Einvigi Fischers og Spasskíjs: Fischer teflir vel og Spasskíj sýnir gamla takta - tvær fyrstu skákimar lofa góðu um skemmtilegt einvígi Tuttugasta og fyrsta einvigis- skákin var tefld 1. september í Reykjavík - fyrsta skákin í Sveti Stefan 2. september. Fischer tefldi þessar skákir snilldarlega en þaö er eins og tíminn hafi staöið í stað. Ótrúlegt er aö þær séu tefldar með tuttugu ára millibili. Skákirnar í Sveti Stefan eru eins og beint fram- hald af „einvígi aldarinnar" og benda til þess að Fischer hafi engu gleymt á þessu tímabili. Taflmennskan gefur fátt til kynna um aö svo langt hafi um hð- ið síðan þeir leiddu síðast saman hesta sína. Útlit kappanna hefur hins vegar breyst. Spasskíj, sem er Umsjón Jón L. Árnason orðinn 55 ára gamall, hefur jú grán- að að hætti heldri manna en ber aldurinn vel. Fischer, sem er 49 ára, hefur gjörbreyst, þótt í háttum og tilsvörum mégi greina kunnug- lega takta. Fyrstu tvær skákir einvígisins eru veisla fyrir skákunnendur. Fyrsta skákin var glæsileg endur- koma meistarans að skákborðinu, ný hugmynd í byijun, kristaltær áætlun og leiftrandi flugeldasýning í lokin. I 2. skákinni var Fischer einnig nálægt sigri en þar var kom- ið að Spasskíj að sýna gamla takta er hann bjargaði viðsjárverðri stöðu í jafntefli. Fischer-klukkan Á síðasta ári brá Fischer sér tii Brussel til aö hitta Bessel Kok, þá- verandi forseta alþjóðasamtaka stórmeistara, og kynna síðustu nýjung sína, Fischer-klukkuna. Hugmynd Fischers með þessari byltingarkenndu klukku er aö koma í veg fyrir „bullandi" tíma- hrak - aö skákmenn lendi í þeirri ógæfu að þurfa að leika því sem hendi er næst þegar faflvísirinn hangir uppi á lakkinu einu saman. Fischer-klukkuna má væntan- lega stilla á ýmsa vegu en grunn- hugmyndin er sú að þegar leikiði er og stutt á hnappinn byijar klukka andstæðingsins ekki að tifa! fyrr en eftir ákveðinn tíma. í ein- víginu í Sveti Stefan hefur hvor keppandi 1 klst. og 50 mínútur í upphafi skákar á 40 fyrstu leikina. Eftír hvem leik líður ein aukamín- úta þar tfl klukka mótheijans fer íi gang. Hvor keppenda getur mest fengið 40 aukamínútur á 40 leiki og þann- ig samtals 2 klst. og 30 mínútur. Þetta voru einmitt tímamörkin í einvígi aldarinnar í Laugardals- höllinni en nú er almennt teflt eflít- ið hraðar - 2 klst. sléttar á 40 leiki og síðan 1 klst. á 20 leiki og biðskák eftir 60 leiki. Eftir 40 leikina fá Fischer og Spasskjj nú 40 mínútur tfl viðbótar á 20 leiki + 20 aukamínútur, sem gerir 1 klst. á 20 leiki. Síðan bætast við 30 mínútur á næstu 20 leiki + Bobby Fischer, sem lagöi skákheiminn að fótum sér fyrir tuttugu árum, er snúinn aftur. Eftir fyrstu skákunum við Spasskíj að dæma er eins og timinn hafi Staðiö í staö. Símamynd Reuter 20 aukamínútur og sé skákinni enn ekki lokið fá þeir mínútu á leik - enn að viðbættum aukamínútum. Þannig er tryggt að biðskákum sé útrýmt og skákmaðurinn fær ætíð a.m.k. mínútu tfl að fullgera hvem leik. Athyghsvert er að tvær fyrstu skákimar hefðu farið í bið fyrir tuttugu ámm en nú var barist í einni lotu þar til yfir lauk. Ein krafa Fischers fyrir einvígið var að klukka hans skyldi notuð og var serbneskur verkfræðingur fenginn til þess að annast hönnun hennar. Frumsmíðin er rafeinda- klukka en áhorfendur í Sveti Stef- an hafa kvartað undan því að sjá ekki á hana og vita því trauðla hvemig tímanum líður. Spasskíj á hálum ís Lokin á 2. skákinni, sem tefld var á fimmtudag, vom afar skemmti- leg. Skákin birtist í heild í DV í gær en lítiö ráðrúm gafst til að velta upp möguleikum endataflsins. Víkjum aftur að stöðunni eftir 47. leik Spasskíjs: Svart: Bobby Fischer 8 7 6 5 3 ! 2 1 Hvitt: Boris Spasskij Þótt svartur sé skiptamun og peði yfir em ýmis vandkvæði því bund- in að vinna taflið. Síðasti leikur hvíts var 46. Kf6-e5 og nú hótar hann Ke5-d6-c7 og ráðast að svörtu peðunum. Einnig er Bd7-b5 í mörg- um tilvikum hagstætt og skera á ABCDEFGH vald hróksins á b-peðinu. Svarti kóngurinn er enn langt frá víg- stöðvunum. Þetta endatafl lýtur sínum eigin lögmálum. Sjálfsagt eiga „sérfræð- ingar“ eftir að defla um það um ókomin ár hvort svartur eigi unnið tafl eða hvort hvítur eigi nægileg færi til jafnteflis. Svartur á marga álitlega kosti í stööunni en Fischer velur þann nærtækasta: 47. - Rf3+ 48. Kd6(?) Ekki er auðvelt að sjá hveiju svartur fær áorkað eftir 48. Kd5 og ef 48. - Hd3+ 49. Ke6 og nú er b- peðið í uppnámi. Eða 48. - Rd2? 49. Bb5! 48. - Rd2 49. Be6 Getur verið að Spasskíj hafi nú fýrst séð að 49. Bb5? strandar á fall- egri leikfléttu: 49. - Hxb5! 50. cxb5 c4 51. Bxb6 c3 og hvítur ræður ekki viö peðið. Ef 52. Bxa5, eða 52. Be3, þá 52. - Rc4+ og vinnur biskupinn og 52. Bd4 c2 53. Bb2 Rc4+ leiðir tfl sömu niðurstöðu. 49. - Hb4 50. Kc6 Rb3? En nú fer Fischer út af sporinu. Ég sé ekki betur en 50. - Rxc4 51. Bxc4 Hxc4 52. Bxb6 Hxa4 leiöi tfl vinnings á svart. Þá strandar 53. Kb5? á 53. - Hb4+ 54. Kxa5 Hxb6! 55. Kxb6 c4 og vekur upp drottn- ingu. Ef 53. Kxc5 Ha2 54. Kb5 a4 og nú þarf hvítur þijá leiki, Be3, Kb4 og Bcl tfl að halda jafntefli. Þá gæti hann næst leikið Ba3 og a- peðið fellur. En hann getur ekki komið þessu í kring. Ef 55. Kb4? Hb2 + ; ef 55. Be3 a3! 56. Kb4 He2 og a-peðiö geysist upp 1 borð, því að 57. Bd4 gengur ekki vegna 57. - He4 með leppun. Loks ef 55. Kc4 er 55. - Hb2! sterkt og nú getur svartur geyst með kóng sinn á vett- vang. 51. Bd5! Auðvitaö ekki 51. Bxb6? Rd4+ og vinnur mann. Nú er atburðarásin þvinguö. 51. - Hxa4 52. Bxb6 Hal 53. Bxc5 a4 54. Bb4! a3 55. c5! Rd4+ 56. Kd7! A A * 4 I ABCDEFGH Spasskíj teflir þennan þátt skák- arinnar af stakri prýði. Ef nú 56. - a2, þá 57. Bxa2! Hxa2 58. c6 Ha7+ 59. c7 Rb5 60. Ba5 og jafntefli. 56. - Hdl 57. Bxa3! Rc2 Eða 57. - Rb5 58. Bb4 Hxd5 59. Kc6! o.s.frv. 58. c6! Hxd5+ 59. Bd6 - Og nú sættust meistararnir á jafntefli. Þriðja einvígisskákin verður tefld í dag, laugardag, og sú flórða á morgun, sunnudag. Báða dagana verður opið hús á vegum Skáksam- bands íslands í Faxafeni 12, sem ber nú nafn með rentu, enda koma leikimir jafnharðan frá einvígis- staðnum með faxi. Húsið er opnaö kl. 14 en skákimar hefjast hálfri klukkushmd fyrr. íslandsmótið í atskák Um helgina fara fram undanrásir íslandsmótsins í atskák og verður teflt í Reykjavík og á Akureyri. Mótin hefjast kl. 13 í dag, laugar- dag. Þá verða fimm skákir tefldar en fjórar á morgun, sunnudag. Mótið í Reykjavík fer fram í Faxa- feni 12 og em fyrstu verðlaun kr. 18.000. Á Akureyri verður teflt í húsnæði Skákfélagsins og þar em fyrstu verðlaun kr. 10.000. Efstu menn vinna sér þátttöku- rétt í úrslitakeppninni, sem fram mun fara í janúar á næsta ári. Núverandi íslandsmeistari í atskák er Karl Þorsteins, sem vann Helga Ólafsson í spennandi einvígi í Sjón- varpssal. Hellir í Gerðubergi Taflfélagið Heflir, sem er yngsta taflfélagið á höfuðborgarsvæðinu, hefur fengið inni í Menningarmið- stöðinni í Gerðubergi í Breiðholti og fer vetrarstarfsemi félagsins þar fram. Að sögn Hellismanna er öll aðstaða þar tfl skákiðkunar til fyr- irmyndar, góðir stólar og góö borð. Hellir er eina taflfélag landsins sem hefur eingöngu atskák og styttri skákir á stefnuskrá sinni og virðast félagsmenn standa framar- lega á því sviði. í maí tefldu Hefl- isbúar hraðskákir við Taflfélag Kópavogs á átta borðum og höfðu betur, fengu 82 v. gegn 45 vinning- um Kópavogsmanna, en TK sigraöi í 2. defldar keppni Skáksambands- ins í vor. í júní sigmðu Hellismenn síðan íslandsmeistarana, Taflfélag Garðabæjar, í sjö minútna skákum á sjö borðum, með 28,5 gegn 20,5 v. Garðbæinga. Fyrsta mánudag hvers mánaðar verða haldin hraðmót með sjö mín- útna umhugsunartíma og hefjast þau kl. 20. Þátttökugjöld verða kr. 300 fyrir félagsmenn en kr. 400 fyr- ir aöra og renna 60% þeirra tfl sig- urvegarans, auk þess sem veitt em vegleg aukaverðlaun fyrir þá sem fá 40 vinninga eða meira út úr mótum ársins (afls 12 mót). Fyrsta mótið verður hialdið nk. mánudag, 7. september. Þá munu Hellir og Skákfélag Hafnarfjarðar standa fyrir opnu móti í atskák um næstu helgi, 12. og 13. september. Teflt verður frá kl. 13 báða dagana, samtals sjö umferðir eftir Monrad-kerfi. Verð- laun em 20.000, 12.000 og 8.000 og er öllum heimil þátttaka. Teflt í Gerðubergi. jlÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.