Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992.
Utlönd
Ellefta einvígisskákin 1 Sveti Stefan:
Handbragð heimsmeistara
Sprengingí
námuaðyfir-
lögðuráðf
Lögreglan í Vancouver í
Kanada sagði í gær aö hún teldi
sprengingu, sem varð níu manns
aö bana i gullnámu á heim-
skautasvæðinu, vera afleiðingu
skeramdarverka og þvi væri litiö
á dauðsföllin sem morð.
Sprengingin varð á 250 metra
dýpi í námugöngunum í YeUow-
knife á föstudag. Aö söp lögregl-
unnar varð sprengingin við
brautarteinana inni í námu-
göngunum.
Hópur sérfræðinga vinnur nú
að því að rannsaka verksum-
merki á slysstaðnum.
Belgarunnu
fyrsta kappflug
loftbelgja
Tveir Belgar svifu innyfir
strönd Portúgals snemma í morg-
un og urðu þar með fyrstir i mark
i fyrsta kappflugi loftbelgja yfir
Atlantshafiö.
HoUenskt Uð haföi gert sér von-
ir um aö sigra en þær vonir urðu
að engu þegar Uðsmenn þurftu
aö leita aðstoðar björgunarsveita
í landi vegna slæmra veðurskil-
yrða.
„Við erum ansi spenntir yfir að
vera fyrstir i kappfluginu og viö
þökkum öUum þeim sem geröu
þetta kleift," var haft eftir Wim
Verstraeten, foringja belgíska
liðsins, eftir að belgur hans kom
yfir portúgölsku ströndina.
Fimm loftbelgir tóku þátt í
kappfluginu og var lagt í ’ann frá
borginni Bangor í MainefyUd á
austurströnd Bandaríkjanna á
miðvikudag. Þýskt iið þurfti að
lenda í sjónum á laugardagskvöld
vegnaslæmsveðurs. Reuter
Franskir kjósendur samþykktu
Maastricht-samkomulagið um nán-
ari samruna Evrópubandalagsríkj-
anna í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær
en svo mjótt var á mununum að
óvissa ríkir um samrunaferlið og
pólitíska framtíö Francois Mitter-
rand Frakklandsforseta.
Lokaniðurstöðurnar, sem birtar
voru snemma í morgun, sýndu að
50,95 prósent kjósenda voru hlynntir
pólitískum og efnahagslegum sam-
runa Evrópu en 49,05 prósent voru
andvíg. Kjörsókn var 70,5 prósent.
Þegar úrslitin lágu fyrir sagði Mitt-
errand, einn af arkitektum sam-
komulagsins: „Frakkland hefur sýnt
fram á þaö aftur aö það getur enn
verið hvetjandi fyrir Evrópu sem er
nú í þeirri stöðu að verða jafnoki
voldugustu ríkja heimsins."
Stjómmálaskýrendur sögðu að sig-
ur stuðningsmanna Maastricht væri
svo naumur að staðfestingu sam-
komulagsins væri stefnt í voða í
Bretlandi þar sem miklar efasemdir
ríkja um Evrópusamstarfið og að
áhrif Mitterrands hefðu minnkað til
muna.
Búist er við miklu öngþveiti innan
frönsku stjórnmálaflokkanna eftir
úrslitin í gær þar sem fylgjendur og
andstæðingar Maastricht munu gera
upp sín í milli.
Stjómmálamenn í Evrópubanda-
laginu fögnuðu niðurstöðum þjóðar-
atkvæðagreiöslunnar eftir margra
vikna óróa á fjármálamörkuðum.
John Major, forsætisráðherra Bret-
Stuðningsmenn Maastricht-samkomulagsins um samruna Evrópubandalagsins fagna úrslitum þjóðaratkvæða-
greiðsiunnar í Frakklandi. Simamynd Reuter
lands, gerði lýðum ljóst að hann ætl-
aöi ekki aö hraða Maastricht-sam-
komulaginu í gegnum breska þingið.
Vaxandi andstöðu við þaö gætir nú
innan íhaldsflokksins, flokks forsæt-
isráðherrans og þar eru æ fleiri
þeirrar skoðunar að endurskoða
þurfi sammnaferlið innan Evrópu.
Major sagði að hann mundi boða til
aukafundar leiðtoga Evrópubanda-
lagslandanna tólf snemma í næsta
mánuði.
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands,
sagði að niðurstöðumar í Frakklandi
mundu veita Evrópu aukinn kraft
og að hann ætlaði nú aö vinna að því
að taka ný ríki inn í Evrópubanda-
lagið.
Kannanir sýndu að menntaðir
kjósendur voru fylgjandi Maastricht
en verkamenn og bændur andvígir
þar sem þeir óttuðust um atvinnu
sína og framtíö.
Reuter
Stuðningsmenn Evrópusameiningar höfðu nauman sigur:
Óvissa eftir samþykkt
Maastricht í Frakklandi
Garrí Kasparov þótti ekki mikið til
taflmennsku Fischers og Spasskíjs
koma í viðtali við DV á dögunum en
eftir 11. einvígisskákina, sem tefld
var í gær, hljóta aö renna á hann
tvær grímur.
Fischer tefldi skákina með snilld-
arbrag. Peðsfórn í byrjun gaf honum
hættuleg sóknarfæri og síðan rak
hver þrumuleikurinn annan. Skákin
var ekki síður Spasskíj til sóma sem
varðist hugvitssamlega í erfiðri
stöðu. Undir lokin mátti ekki miklu
muna aö hann slyppi fyrir hom en
Fischer haföi reiknað dæmið hárrétt
til enda. Besta skákin í einvíginu til
þessa og gott veganesti kappanna til
Belgrad, þar sem þeir setjast aftur
að tafli að viku Uöinni.
Fischer er farinn að tefla af miklum
þrótti og hefur unnið fjórar af fimm
síðustu skákum. Hann var nálægt
sigri í 10. skákinni á laugardag en
Spasskíj tókst aö bjarga sér í enda-
tafli þar sem hann haföi peði minna.
„Þetta var mfög góð skák - mörg
ævintýri," sagöi Spassky að henni
lokinni og Fischer hrósaði vámar-
taflmennsku hans. Eftir 68 leiki sætt-
ust þeir á skiptan hlut.
Einvígið er nú hálfhað - Fischer
hefur hlotið fimm vinninga en
Spasskíj tvo. Fátt virðist geta stöðvaö
sigurgöngu Fischers en spumingin
er hversu lengi Spasskíj heldur út.
Hann er annars þekktur fýrir að bíta
frá sér þar til yfir lýkiff. Eftir tíu
skákir i einvígi viðKortsnoj IBelgrad
1978 haföi hann tapað fimm skákum
en enga unnið en gerði sér þá lítið
fyrir og vaím ftérar næstu.
Ellefta einvigisskákin
Hvítt: Bobby Fischer
Svart: Boris Spasskij
- glæsilegur sigur Fischers 1 bestu skák einvígisins
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5
Eftir ófarirnar í níundu skákinni
bryddar Spasskíj upp á Sikfleyjar-
vörn en óvæntur „glaðningur" bíður
hans.
2. Rf3 Rc6 3. Bb5!
Þannig hefur Fischer aöeins einu
sinni teflt fyrr, gegn Matulovic á
miUisvæðamótinu á Mallorca 1970.
Þess má geta að í 20. skákinni í Laug-
ardalshöll kaus Fischer að leika 3.
d4 og tefla á hefðbundinn hátt.
3.7 g6 4. Bxc6 bxc6 5.0-0 Bg7 6. Hel e5
í þessari stöðu er 7. c3 þekkt en í
nýlegum skákum hefur svartur mátt
vel við una. Fischer hristir nýjung
fram úr erminni.
7. b4!
Á sínum yngri árum hreifst Fisch-
er af Evans-bragði, sem hefst með
leikjunum 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4
Bc5 4. b4!? og kennt er við enskan
skipstjóra. Vel má vera að það sé
kveikjan að hugmynd hans nú. Ætl-
unin er að Una tök svarts á miöborö-
inu og vinna tíma. „Ég held að Bobby
hafi fundið upp á þessu meöan á
skákinni stóð,“ sagði Spasskíj sem
taldi ekki að áralangar rannsóknir
lægju að baki.
7. - cxb4 8. a3 c5?!
Frumkvæði hvíts verður nú mjög
sterkt. Eftir 8. - bxa3 9. Bxa3 Re7 10.
d4 hefur hvítur einnig góð færi fyrir
peðið.
9. axb4 cxb4 10. d4 exd4 11. Bb2d6?
Nú tekst svörtum aldrei pð Ijúka
Uðsskipan sinni sómasanilega. Ljós
er aö 11. - Re7 er nauösynlegt.
12. Rxd4 Dd7
Hvítur hótaði 13. Rc6 og Bg7 er í
sjónmáU.
13. Rd2 Bb7
Ekki gengur 13. - Re7 14. Rc4 0-0
Fischer tefldi 11. einvígisskákina við Spasskij i gær meistaralega og hefur
nú unnið fimm skákir gegn tveimur Spasskíjs. Þeir taka upp þráðinn að nýju
i Belgrad að viku liðinni. Símamynd Reuter
15. Rb6! o.s.frv.
14. Rc4 Rh6
16. - Kf8 17. Rxh6 f6!?
Spasskij verst af hugvitsemi, þótt
Utt stoði gegn snjaUri taflmennsku
Fischers. Eftir 17. - Bxal 18. Dxal
Dxd619. Dxh8+ eru yfirburðir hvíts
augljósir.
18. Rdf7!
^ Bxb2 16. Rbxd6+!
Ef svartur heföi leikið 14. - Re7 (í
staö 14. - Rh6) væri 16. Rfxd6+ Kf8
17. Rxb2 hagstætt hvftvun en nú ætti
svartur svariö 16. - Ke7.
sl ♦ X
7Í Jl W 4} A
6
5
4 á . u- A
3 fs!|Ét
2 É. A a á &
1 23 23 <á>
Frumleg staðsetning nddaranna!
Hrókurinn á h8 er fangaður á frum-
legan hátt.
18. - Dxdl 19. Haxdl Ke7 20. Rxh8
Hxh8 21. Rf5 + !
Aftur stekkur riddarinn í opinn
dauðann á f5-reitnum. Ef hins vegar
Skák
Jón L. Árnason
21. Rg4 a5 ætti svartur nokkra von í
hraðskreiðu jaðarpeðinu.
21. - gxf5 22. exf5+ Be5
Eini leikurinn.
23. f4 Hc8! 24. fxe5!
Best, því að eftir 24. Hd2 Hc5 nær
svartur aö treysta stöðuna. Fischer
hefur reiknað hámákvæmt.
24. - Hxc2 25. e6! Bc6
Ekki stoðar 25. - Hxg2 + 26. Kfl Bc6
27. Hcl Bd5 28. Hc7+ Ke8 29. e7 og
vinnur.
26. Hcl Hxcl 27. Hxcl Kd6 28. Hdl +
Ke5
Ef 28. - Ke7 29. Hal og eftirleikur-
nrn er auöveldur.
29. e7 a5 30. Hcl Bd7 31. Hc5+ Kd4 32.
Hxa5 b3 33. Ha7 Be8 34. Hb7 Kc3 35. Kf2
Nú-er Ijóst að hveiju stefnir. Kon-
ungurinn ætlar sjálfur að ljúka atlög-
unni eftir að hrókurinn fómar sér
fyrir b-peðið.
35. - b2 36. KeS BÍ737. g4«c2 88. Kd4
bl-í) 39. Hrbl Kxbl 40. Kp5 Kc2 41.
Kd6
Spassky gafst upp því að eftir 41. -
Kd3 42. Kd7 Ke4 43. e8=D + Bxe8 44.
Kxe8 vinnur hvítur auðveldlega.
-JLÁ