Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992. Merming Kúnstin að IHa á því sem aðrír deyja af Dunganon (Hjalti Rögnvaldsson) er hér að útbúa eitt af mörgum heiðursskjölum sem hann flaggaði, að þessu sinni frá páfanum. DV-mynd BG „Að hlátri varð í hálfri stöku öll heimsins frægð.“ Svo mælir Karl Einarsson Dunganon, her- toginn af Sankti Kilda, í erindi úr kvæðinu Vikivaka. Margt bendir þó til þess að hann hafi, þrátt fyrir ólíkindalætin, þráð frægð og viður- kenningu fyrir verk sín ekkert síöur en aörir. Nú hefur Bjöm Th. Bjömsson reist honum óbrotgjaman bautastein meö leikritinu Dunganon sem byggt er á nokkmm árum úr ævi hans og kryddað frumlegum uppá- tækjum sem þessi óvenjulegi landi okkar varðaði leið sína í gegnum lífið með. Byrjað með bravúr Sýning verksins á stóra sviði Borgarleik- hússins byrjaði með bravúr sem lofaði góðu og sennilega hefur aldrei veriö marserað eins flott hér á landi og í upphafsatriöinu. Vönduð og samhæfð vinnubrögð skiluðu sér þannig frá fyrstu mínútu og þó aö stundum slaknaði á var sýningin þegar upp var staðið eftir- minnileg leikhúsupplifun. Verkið hverfist um persónu Karls Einars- sonar, þar sem mannlýsingin er þungamiðja þess og lífæð, en óneitanlega á kostnað dramatískrar framvindu. Atriðin eru mörg og skiptingar tíðar því að hertoginn kom viða við og brallaði margt. En þó að leikritiö eigi sér þannig vissar staðreyndir sem kjarna er það auðvitað skáldleg uppbygging þess og heildarsýn sem skipta máU þegar á sviðið er komið. Þó aö ekki sé alfarið komist fram hjá þeim vanköntum, sem stuttum atriðum og mörg- um skiptingum fylgja, er allt kapp lagt á að draga úr spennufalli og lausnir leikhússins eru markvissar. Leikmynd Sigurjóns Jóhannssonar er í upphafi að miklu leyti falin í ólögulegum hrauk á miðju sviðinu en svo raðast úr þessu og sviðið tekur svo á sig ólíkustu myndir sem stuðla að þeirri tilfmningu að í rauninni sé hertoginn alltaf á sama stað þó hann sé að feröast svo aö aöeins sé snúið upp á alþekkt orð Jónasar Hallgrímssonar. Flestar lausnir leikmyndarinnar voru snjallar og sumar afburðagóðar, eins og t.d. bæði í upphafs- og lokaatriði verksins. Þar eins og víðar var tækni leikhússins nýtt af fagmennsku til þess að framkalla stórbrotin áhrif og átti lýsing Lárusar Bjömssonar þar dijúgan hlut í. Eina útfærslan, sem mér fannst hinum síðri, var klefi skipstjórans á Brúarfossi. Brynja Benediktsdóttir leiksljóri heldur öllum þráðum í öruggum höndum. Hér eins og fyrri daginn hefur hún lag á að virkja Leiklist Auður Eydal samstarfsfólk sitt í markvissu sameiginlegu starfi. Hún kafar eftir kjarnanum og beitir galdri leikhússins til þess að leiða áhorfand- ann á vit ævintýra og horfins tíma. / Hrekkjalómur og heimslistamaður í verkinu „stígur hertoginn dansinn", hrekkjalómur og heimslistamaður, sem kjaftar sig út úr hverri klípu og gefur öllu viðteknu gildismati langt nef ef því er að skipta. Hann bókstaflega gerir út á trúgirni náungans og það hlakkar prakkaralega í honum þegar honum tekst best upp. Þó að verkið gerist á tímum heimsstyijald- ar og Karl Einarsson lifi í háskanum miðjum lætur hann eins og hann vití ekki af nálægð dauðans. Jafnvel frammi fyrir aftökusveit bregður hann fyrir sig ólíkindalátum og ein- hvers konar dáleiðandi orðhengilshætti sem ruglar menn gjörsamlega í ríminu. „Sá sem trúir er ekki svikinn. Manneskjan trúir ekki á staðreyndir“ segir hann og hug- myndaflugi hans eru engin takmörk sett. Texti sá er Bjöm Th. leggur honum í munn er bæði kraftmikill og líflegur, oft fyndinn, og í honum má auk þess finna dægilegustu guilkorn. Stjörnuleikur Hjalta Hjaltí Rögnvaldsson hefur hvert smáatriði gjörsamlega á valdi sínu. Hann verður þung- ur langt umfram sína líkamsbyggingu og málrómur og fas eru í samræmi við þetta. Dunganon er í túlkun hans í senn seiðmagn- aður og óþolandi. Hér búa spekingur og kjaft- askur í einum búk, og hann sendir frá sér bæði jákvæðar og neikvæðar bylgjur beint til áhorfandans svo úr verður lifandi persóna sem ekki gleymist. Eins og áður var vikið aö hverfist öll fram- vindan um þessa einu persónu og uppbygg- ing verksins gerir það að verkum að flestar aðrar persónur flögra í kringum hann eins og flugur um stund, en hverfa síðan. Karl Einarsson leikritsins bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamenn svo að því leyti passar þetta ágætlega en um leið eru aörar persónur lítt mótaðar frá höf- undarins hálfu. Margir koma aðeins fyrir í einu atriði hver fyrir sig og eru frekar undir- leikarar en jafningjar hans. Þetta veldur mótleikurunum vissum erfiðleikum þó að flestir spili vel úr heldur einhliða efnivið. Af þeim má nefna Jón Júlíusson sem var makalaus Sjúrdur, Valgerði Dan í hlutverki hinnar óhagganlegu Kristínar, Árna Pétur Guðjónsson sem Guðmund bróður hertogans og Kristján Franklín Magnús í hlutverki off- ísera. Þröstur Guðbjartsson vakti enn at- hygli með ísmeygilega fyndinni túlkun á herra Ross og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir náði undir lokin að lyfta hlutverki Úrsúlu út úr rammanum með eftirminnilegum leik og söng í atriðinu frammi fyrir aftökusveit- inni. Grand Finale Búningarnir (Siguijón Jóhannsson) áttu líka sinn þátt í að skapa þá gegnumvönduðu heildarmynd sem einkenndi sýninguna, auk tónlistar Hjálmars H. Ragnarssonar og Karls Einarssonar sjálfs. Hjörtur Howser lék götuspilara sem alltaf var nálægur og tregablandnir tónar harm- óníkunnar áttu sinn þátt í að fylla loftið af öndum fortíöar og mikilla örlagatíma þó að skelfingar stríðsins væru utan ramma verks- ins. Þó að hertoginn ætti eftir að lifa lengi éftir 1947, þar sem leikriti Björns Th. lýkur, þá verður það að teljast alveg í hans stíl að enda verkið við Hekluelda þar sem Karl Einarsson Dunganon stjórnar gosinu að vild. Sannarlega Grand Finale. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á stóra sviðinu i Borg- arleikhúsi: DUNGANON Höfundur: Björn Th. Björnsson Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir Leikmynd og buningar: Sigurjón Jóhannsson Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson Lýsing: Lárus Björnsson Ást og hatur, líf og dauði við haf ið Olafur Haukur Símonarson velur atburð- um í Hafinu sviö (sjávarþorp) og tíma (ára- mót) sem vega þungt í framvindu verksins. Það eru miklar breytingar fyrirsjáanlegar í atvinnumálum og framtíð fólksins í þorpinu ræðst af þeim ákvörðunum sem teknar verða. Áramótin eru þar að auki tími uppstokkun- ar og nýrra heita. Fjölskylduátök En þessar ytri aðstæður eru einungis ramminn utan um hið eiginlega yrkisefni Ólafs Hauks sem er það einkar lagið að fletta yfirborðinu af persónum sínum lag fyrir lag, uns þær standa berskjaldaðar eftir. Þegar upp er staðið gæti atburðarásin allt eins hafa gerst við ólíkar aðstæður og á hvaða tíma sem er því aö meginátök verksins eru fólgin í hatrömmum sviptingum og upp- gjöri innan flölskyldu Þóröar. útgerðar- manns. Uppgjöri sem hefur beðið alltof lengi og hlýtur að enda með því að ekki stendur steinn yfir steini í samskiptum þessa fólks. Það dottar enginn í leikhúsinu á meðan öldurótið gengur yfir og ávirðingar dynja eins og holskeflur þó mestan part sé aðeins vegist á með oröum. Samtölin eru oft snörp og textinn vel skrif- aður. Það er tiltölulega lygnt fyrst en svo hvessir svo um munar og þá beitir höfundur penna sínum fimlega. Sýningin fer óþarflega hægt af stað og löngum tíma er varið í kynn- ingu en svo kemur skrið á framvinduna um skeiö. í lokin leysist þó samkoman upp með litlum tilþrifum og hálfgert tómahijóð ríkir eftir sýninguna, eins og eitthvað sé ósagt. Tími verksins er aöeins einn og hálfur sól- arhringur. Þórður útgerðarmaður fær börn sín í heimsókn viös vegar að og hyggst taka af skarið um framtíð fyrirtækisins. Börnin, sem öll eru uppkomin, hafa sínar meiningar um máliö og ljóst er að peningagræðgin ræð- ur ferðinni. Þar að auki er þetta einstaklega Leiklist Auður Eydal ástlaus fjölskylda nema þar sem um er að ræða ást í meinum. Kaldlyndi, heimtufrekja og iilgimi ráða ferðinni hjá flestum fjölskyldumeðlimum og ljósu punktamir í þessari mannlífsflóm era fáir. Þetta veikir hefidaráhrif verksins og gerir það óþarflega einlitt. Það kemur í Ijós að beiskjan og hatrið eiga sér rætur í fortíðinni þannig að lítil von er um sættir. Ljóslifandi persónur en vantar meiri snerpu Sviðsmynd Þórunnar Þorgrímsdóttur er stofa, ekki beint stílfærð, en köld og karakt- erlaus, eins og til að undirstrika ástandið á heimilinu. Þessi útfærsla fannst mér ekki ýkja sannfærandi. Það vantaöi að skrefið væri tekið til fulls á annan hvom veginn. Búningamir vora betur heppnaðir þó að stutidum væri skotið yfir markið í litavali og fullfríkuðum útfærslum. Ég hafði á tiifinningunni að leikendumir héldu aftur af sér á framsýningunni og óþarf- leg þyngsli væra yfir sýningunni þó að greinilega væri búiö að finna réttan tón og fullmóta hlutverkin. En það vantaði ennþá meiri glóð og snerpu í samleikinn. Leikstjóm Þóhalls Sigurössonar einkennd- ist einkum af vandaðri útfærslu á einstökum persónum sem margar stigu þarna ljóslifandi á svið. Jóhann Sigurðarson gerði Harald einna eftirminnilegastan þeirra með gegn- heilum leik og fasi sem bókstaflega afhjúpaði þennan lítilsiglda karakter. Ragnheiður Steindórsdóttir var allskraut- leg og fataðist hvergi í hlutverki Áslaugar, sem er tildurdrós á þorpsvísu, og þau Pálmi Gestsson og Edda Amljótsdóttir gátu sýnt töluverð (og svolítið ýkt) tilþrif í hlutverkum Jóns, sem er hið versta fól, og Lóu, lagskonu hans. Samkvæmt textanum og í meðfórum Helga Skúlasonar varð Þórður hins vegar bara vænsti kall, bundinn hjólastól með hugann úti á miðum en hvergi bugaður. Það örlaði hins vegar lítið á þeim harðstjóra, sem böm- in töldu hann vera, þangað til rétt undir lok- in og þaö veikti óneitanlega heildaráhrifin. Um Margréti Guðmundsdóttur má segja að hún lék langt út fyrir rulluna, svo meist- aralega túlkaði hún Kristínu, sambýliskonu Þórðar, með hverri hreyfingu, fasi og augna- tilliti. Og þá var Bríet Héðinsdóttir ekki síðri í hlutverki Katrínar, móður Þóröar, sem hún bæði bætti og kryddaði með fádæma góðum leik. Þó hún væri fullungleg í úliti gleymdi Útgerðarmaður af gamla skólanum. Helgi Skúlason i hlutverki sínu. DV-mynd GVA maður því alveg um leið, svo vel náði hún töktum kerlingar. Aðrir leikendur fara vel með hlutverk sín og móta skýrar persónur. í heild er Hafið mikið drama sem segir átakasögu fjölskyldu. Uppfærsla Þjóðleik- hússins er allrar athygli verð, einkum þegar leikendur hafa hrist af sér drungann og yfir- unnið firringu stóra sviðsins. Því hér verður að neista á milli. Þjóðleikhúsið sýnir á stóra sviöinu: HAFiÐ Höfundur: Ólafur Haukur Sfmonarson Lýsing: Páll Ragnarsson Leikmynd og búningar: Þórunn S. Þorgrimsdóttir Lelkstjórn: Þórhallur Slgurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.