Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Side 21
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992.
ÐV Sviðsljós
Elis Andrésson ásamt eiginkonu sinni, Aðalheiði Ingimundardóttur. Fyrir
aftan standa synirnir Ingimundur og Andrés og tengdadæturnar Svana og
Lára.
* 60 ára afmæli
I ____________________________________
Emil Thorarensen, DV, F.skifirði:
Elís Andrésson, vélstjóri og fyrr-
verandi útgerðarmaður á Eskifirði,
hélt upp á 60 ára afmæli sitt nú á
dögunum.
Hann tók á móti gestum í Slysa-
varnarfélagshúsinu á Eskifirði. Eins
og vænta mátti komu margir ættingj-
ar, vinir og kunningjar, víðs vegar
af landinu, og heilsuðu upp á Elís á
þessum merku tímamótum. Gestirn-
ir áttu ógleymanlega kvöldstund og
þáðu í leiðinni rausnarlegar veiting-
ar sem fram voru bornar.
Það var svo sannarlega glatt á hjalla í sextugsafmælinu hans Elísar eins
og sjá má á þeim vinkonum Nönnu Bjarnadóttur og Elínborgu Þorsteinsdótt-
ur. DV-myndir Emil
Skólastjórahjónin á
Sólgörðum kvödd
Öm Þóraiinsson, DV, Fljótum:
Uni síðustu mánaöamót lét Valberg
^ Hannesson af starfi sem skólastjóri
w barnaskólans að Sólgörðum í Fljót-
um. Hann hafði þá gegnt starfi skóla-
stjóra í Fljótum samfleytt í 34 ár.
9 Fyrst við bamaskólann í Holts-
hreppi, sem starfræktur var í Ketil-
ási, en þegar skólarnir í Fljótum voru
sameinaðir á Sólgörðum fluttist Val-
berg þangað.
í tilefni af starfslokum Valbergs
var honum og konu hans, frú Áshildi
Öfjörð, haldið kaffisamsæti af íbúum
Fljótahrepps fyrir skömmu þar sem
þeim hjónum voru þökkuð margþætt
störf í þágu sveitarinnar á undan-
fórnum árum. í því sambandi má
geta þess að Valberg var oddviti
hreppsnefndar Haganeshrepps um
árabil en Áshildur sat í stjórn kven-
félagsins Framtíðarinnar í mörg ár.
Auk þess starfaði hún í sóknarnefnd
Barðskirkju í nokkur ár og vann
mikið starf í sambandi við endurbæt-
ur á kirkjunni og umhverfi hennar.
í samsætinu, sem þorri íbúa sveit-
arinnar sótti, var þeim hjónum af-
hent mynd úr sveitinni að gjöf, þá
voru fluttar ræður og rifiaðir upp
ýmsir atburðir frá hðinni tíö.
Valberg og Áshildur veita viðtöku mynd frá Stíflu í Fljótum.
DV-mynd Örn
21
ORUGG LEIÐ TIL AÐ
Þú getur haft áhrif á upphæð
hitaveitureikningsins með því að nýta
hitaveituvatnið betur.
Sjálfvirki Danfoss
ofnhitastillirinn
skammtar nákvæmlega
það rennsli sem þarf til
að skapa þann hita sem
óskað er.
Með Danfoss ofnhitastilla
og þrýstijafnara á hita-
kerfinu fæst kjörhiti í
hverju herbergi og
lágmarks húshitunar-
kostnaður.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SÍMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJÖF
TOPPARNIRILANDSLIÐINU
Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason og Þórhallur Sigurðsson
komnir aftur með nýtt efni til að...
þenja hláturtaugar gesta okkar -
Útsetning og hljómsveitarstjóm: Jónas Þórir
* Leikstjóm: Egill Eðvarðsson
LAUGARDAGSKVOLD
Stórkostleg skemmtun, þrírétta veislukvöldverður (val á réttum) og dansleikur. Verð kr. 4.800
Opinn dansleikur frá kl. 23:30 til 3:00
HLJOMSVEIT
BJÖRGVINS HALLDÓRSSONAR
Vetrarverð á gistingu. Pantanir í síma 29900. Grœnt númer
lofar góðu !
ARGUS/SlA