Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992.
37
Meiming
Ég veit þú kemur, syngur Kór Langhoitskirkju og einsöngvararanir Andrea Gylfadóttir, Ólöf Kolbrún Haröardóttir,
Bergþór Pálsson og Egill Ólafsson, en lagið er eitt þekktra íslenskra dæguriaga sem sungið verður á styrktartón-
leikum Kórs Langholtskirkju í október. DV-mynd BG
Söf nunarátak fyrir orgeli
upp á 40 milljónir
- Styrktartónleikar og geisladiskur meö lögum frá tónleikunum
Langholtskirkja er eitthvert vin-
sælasta tónleikahús landsins. Stafar
þaö fyrst og fremst af því aö betri
hljómburður fyrir tónlist finnst vart
hérlendis. Mælingar hafa fariö fram
á tónburði Langholtskirkju og kem-
ur í ljós að hljómburðinum svipar til
bestu tónleikasala í heiminum.
í Langholtskirkju starfar einn
kröftugasti kór landsins, Kór Lang-
holtskirkju, sem haldið hefur marga
stórtónleika í kirkjunni. Það hefur
háð Langholtskirkju að gott orgel
hefur ekki verið í húsinu. Nú á að
gera bragarbót á því og er hafið mik-
iö söfnunarátak þar sem takmarkið
er að safna 40 milljónum á fiórum
árum til kaupa á nýju orgeli.
Jón Stefánsson, organisti og stjórn-
andi kórsins, sagði að fyrirhugað
væri að að kaupa 30 radda orgel sem
væri ekki nema rúmlega miðlungs-
stórt. Til samburðar mætti nefna að
orgelið í Hallgrímskirkju væri 70
raddir. En þar sem tónskilyrði væru
það góð í kirkjunni þyrfti ekki stærra
orgel. Sagði Jón einnig að orgel þetta
kæmi til með að geta þjónað sinfóníu-
hljómsveit í verkum þar sem þyrfti
aö nota stórt orgel.
Til að byija þetta mikla söfnunará-
tak hafa verið ákveðnir þrír styrkt-
artónleikar fyrir þá sem leggja mán-
aðarlega í orgelsjóðinn, en hver sem
gerist styrktaraðili fær afhenta tvo
miða. Fyrstu tónleikarnir verða 13.
október og verður þá flutt létt og vin-
sæl íslensk tónlist. Auk kórsins
koma fram fiölmargir hstamenn á
tónleikum þessum, má þar nefna
Andreu Gylfadóttur, Egil Ólafsson,
Bergþór Pálsson, Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur, Pálma Gunnarsson,
Sigríði Beinteinsdóttur og Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur. Nýjar útsetningar
hafa gert Jón Sigurðsson, Ríkarður
Örn Pálsson og Olafur Gaukur.
Tónleikarnir verða teknir upp og
um miðjan nóvember verður gefinn
út geisladiskur þar sem verðar meðal
annarra lög frá þessum tónleikum. Á
geisladiskinum, sem mun bera heitið
Það var lagið, mun Kór Langholts-
kirkju ásamt þeim söngvurum sem
koma fram á tónleikunum flytja létt
dægurlög.
-HK
Kennum það sem nemand-
inn vill læra á gítarinn sinn
- seglr Friörik Karlsson gítarleikari
Gitarleikararnir kunnu, Friðrik Karlsson og Bjöm Thoroddsen, kenna ásamt
aðstoðarkennurum verðandi gitarleikurum i Nýja gítarskólanum.
DV-mynd BG
Gítarinn er eitt allra vinsælasta
hljóðfærið og er búinn að vera það
lengi. Mikill fiöldi fer árlega í gít-
amám og þótt margir heltist úr lest-
inni halda einnig margir áfram námi.
Nýi gitarskólinn er að byija sitt
þriðja starfsár og nú í nýju húsnæði.
Þeir sem reka skólann og kenna
ásamt aðstoðarkennurum eru hinir
landsþekktu gítarleikarar FTiörik
Karlsson og Bjöm Tlioroddsen sem
hafa langa reynslu af gítarleik hér
heima sem og á erlendri gmnd. Þeir
leggja áherslu á að hver sem kemur
í skólann læri það sem hann langar
til að læra. Viö spurðum Friðrik um
tildrög að stofnun skólans:
„Við Bjöm kenndum báðir við Tón-
listarskóla FÍH og Bjöm gerir það
reyndar enn. Þar vom aðeins teknir
inn tuttugu nemendur af um það bil
áttatíu sem sóttu um gítamám. Ég
og Bjöm sáum fram á að það væri
hægt að leyfa þessum Qölda að
stunda nám með því að stofna til
námskeiða þar sem ekki þurfti sér-
staklega til undirbúningsnám eins
og skilyrði er í FÍH-skólanum. Nýi
gítarskólinn varö til og viðbrögöin
urðu strax mjög góö og hafa nám-
skeiðin verið þétt setin en við erum
með tvö þriggja mánaða námskeið á
vetri og um það bil 150 nemendur.
Við erum nú sjö sem kennum við
skólann.
„Við leggjum áherslu á að þeir sem
hefia nám hjá okkur geti lært það
sem þá langar til hvort sem þaö er
klassískur gítarflutningur, djass,
rokk, blús, þjóðlagatónlist eða
þungarokk. Unglingur sem kemur til
okkar og vill verða þungarokksgítar-
leikari lærir þar með eingöngu
hvemir á að spila slíka tónlist. Nem-
endur geta með góðu móti verið hjá
okkur í þijú ár ef þeir sinna náminu
vel eða þar til við getum ekki kennt
þeim meira.
Nemendur okkar koma úr ýmsum
áttum. Þaö kemur til okkar ungt fólk
sem aldrei hefur leikið á gítar áður,
sumir koma til að rifia upp og aðrir
sem hafa til að mynda verið í klass-
ísku gítarnámi vilja söðla yfir í rag-
magnsgítarinn og öfugt.“
Friðrik sagði að lokum að fyrstu
tvö árin hefði skólinn verið að mót-
ast en nú væru þeir fluttir í.nýtt
húsnæði að Laugamesvegi 52 og
komnir með góða aðstöðu og meiri
festa væri í öllu starfi skólans. „Við
útskrifum enga úr skólanum með
prófskírteini, en þeir sem ljúka námi
em hæfir gítarleikara sem geta þá
síðan farið í framhaldsnám.“
-HK
/°ap\
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Bókaútgáfu Menningarsjóðs óskar
eftir kauptilboðum í útgáfurétt, bókalager og prentfilmur útgáfunn-
ar.
Tilboósgögn eru seld á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavik
á kr. 1.500,-
Kauptilboð veröa opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h. þann 1. októb-
er 1992 í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
IIMNKAUPASTOFIMUW RÍKISINS
BORGARTUNI 7 1()S RKYKJAVIK
FASTEIGNASALA
Lögfræðingur, sem hefur starfað sjálfstætt að lög-
fræðistörfum í 25 ár og hefur í hyggju að fara út í
fasteigna-/skipasölu jafnframt málflutningsstörfum
slnum, óskar eftir að fá sem sölumenn tvo unga vlð-
skiptafræðínga eða aðra með sambærilega mennt-
un. Eignaraðild að fasteígnasölunni kæmi vel til
greina að fengnum góðum reynslutlma. Nýtt og
glæsilegt húsnæði fyrir starfsemina er fyrir hendi.
Snyrtimennska, góð framkoma og heiðarleiki skil-
yrði. Umsóknir um aldur og fyrri störf sendist DV,
- merkt „W-7103", fyrir 25. sept. nk.
BREYTINGASALA
Vegna fyrirhugaðrar breytingar og standsetningar á versl-
unarhúsnæði okkar seljum við föt og skó á mjög niður-
settu verði. Allt nýjar og góðar vörur fyrir fjölskylduna.
Verödæmi: Kvenblússur frá
kr. 800.
Gallabuxur, margir litir og
gerðir, frá kr. 1.995.
Barnaúlpur frá kr. 1.999.
Herra- og dömujakkar frá
kr. 1.900.
Betri buxur kvenna, karla
og unglinga, kr. 1.900.
Herrablazerar á kr. 4.900.
Dömublazerar á kr. 4.700.
Barnablazerar á kr. 3.500.
Ullarjakkar barna, kr. 3.500
o.fl. o.fl.
Moonboots á börn, kr. 900
Romika inniskór, kr. 1.200.
Tátiljur, kr. 400.
Lakkskór á börn, kr. 700,
og allir aörir skór á börn
og fullorðna á kr. 600.
Ullarkápur, kr. 8.200.
Aörir frakkar og kápur á kr.
6.200
o.fl. o.fl.
0PIÐ ÞESSA VIKU FRÁ KL. 10-18
GAMLA KAUPFÉLAGIÐ
HAFNARFIRÐI, STRANDGÖTU 26, VIÐ HLIÐINA Á PÓSTHÚSINU
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur fariö fram áttundi
útdráttur húsbréfa
í 1. flokki 1989
og fimmti útdráttur húsbréfa
í 1. flokki 1990.
og fjóröi útdráttur
í 2. flokki 1990
Einnig annar útdráttur
í 2. flokki 1991.
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. nóvember 1992.
Öll númerin veröa birt í
næsta Lögbirtingablaði og
upplýsingar liggja frammi í
Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæöisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum,
sparisjóöum og
verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD - SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVlK - SlMI 696900