Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
Fréttir
Hlutur ríkisins í heilbrigðis- og tryggingamálum:
700 þúsund á ári á
hverja fjölskyldu
- segir Sigbjöm Gunnarsson, alþingismaður og formaður heilbrigðisnefndar
„Á sama tíma og stjórnarandstað-
an og fleiri segja að verið sé að rústa
almannatrygginga- og heilbrigðis-
kerfið erum við að verja sífellt stærri
hlut af heildarútgjöldum til þessa
málaflokks sem ég hef reyndar ekk-
ert nema gott um að segja. Þessi
málaflokkur kallar á mikil útgjöld,
eða um 40 prósent af heildarútgjöld-
um ríkissjóðs á hverju ári. Við höfum
verið að spyrna við fótum og það
verðum við að gera. Málaflokkurinn
kallar sjálfkrafa á meira og meira
fjármagn," sagði Sigbjöm Gunnars-
son, alþingismaður og formaður heil-
brigðis- og trygginganefndar Alþing-
is, en hann hefur tekið saman hvað
hið opinbera greiðir að jafnaði fyrir
hvern einstakling í gegnum heil-
brigðis- og tryggingakerfið.
„Ég held að þeir sem hafa getu til
verði að greiða fyrir fengna þjónustu.
Samfélagið á ekki að greiða að fullu
nema fyrir þá sem ekki geta það sjálf-
ir,“ sagði Sigbjöm Gunnarsson.
Einstaklingar
| 1992
■ 1993
Útgjöld ríkissjóðs vegna
heilbrigðis- og tryggingamála
693.216 703-968
Á mánuði
Allai tolur i kronum é nuvirði
\
Wm
III
Á i
4ra manna
fjölskylda
A® # 1
Á mánuði Á árí
Hér má sjá hversu mikið er greitt úr rikissjóði að jafnaði á hvern íbúa og
hverja meðalfjölskyldu á hverjum mánuði og á hverju ári. Tölurnar eru á
núvirði. Þessar tölur eru einungis yfir hluta ríkissjóðs en ekki þann hluta
sem fólk greiðir sjálft.
Heilbrigdis - og tryggingamál
sem hlutfall (%) af fjárlögum
40,55 40,76
Hér má sjá hversu hátt hlutfall af
heildarútgjöldum ríkissjóðs hefur
runnið til heilbrigðis- og trygginga-
mála á síðustu árum.
Tæplega 15 þúsund á mánuði
Á núvirði runnu úr ríkissjóði 14.442
krónur á mánuði, miðað við fjárlög
fyrir 1992, að jafnaði á hvern íslend-
ing á þessu ári en samkvæmt fjárlög-
um næsta árs verður upphæðin
14.666 á mánuði. Á heilu ári eru
greiðslur vegna hvers einstakhngs
að jafnaði á þessu ári 173.300 en verða
á næsta ári 175.990. Ef við hins vegar
skoðum greiðslur úr ríkissjóði vegna
fjögurra manna fjölskyldu þá voru
þær 57.768 á þessu ári á hverjum
mánuði en verða 58.664 á næsta ári
og ef reiknaö er til heils árs þá vom
greiðslurnar á þessu ári 693.216 en
verða 703.968 ef tekið er mið af fjár-
lögum hvors árs.
Hæsta hlutfall síðustu ára
Heildarútgjöld í fjárlagafrumvarp-
inu fyrir 1990 voru 96 milljarðar og
232 milljónir. Af þeim fóm 38.616
milljónir, eða 40,55 prósent, til heil-
brigðis- og tryggingamála. 1991 voru
heildarútgjöldin 105.767 milljónir og
til heilbrigðis- og tryggingamála fóru
43.119 milljónir. 1992 vom heildarút-
gjöld samkvæmt fjárlögum 109.575
milljónir og til þessa málaflokks fóra
43.973 millljónir eða 40,13 prósent.
Samkvæmt fjárlögum næsta árs er
gert ráð fyrir að heildarútgjöld ríkis-
sjóðs verði 111.015 milljónir króna
og þar af fari til heilbrigðis- og trygg-
ingamála 46.146 milljónir eða 41,57
prósent heildarútgjalda ríkissjóös á
næsta ári.
-sme
„Skotúr fyrir raketta“
„Þetta sona skotúr fyrir raketta.
Mikið grín, mikið gaman," sagði
grínverjinn Ho Si Mattana, en
það útleggst á íslensku Hló sig
máttvana, í gærdag þegar hann
kynnti nýjustu tímatökutækin
sem notuð verða um áramót.
Þetta eru sérstök úr sem hann
hefur sjálfur hannað til þess að
allir skjóti upp sinum rakettum á
sama tíma. Ho Si er sérstakur
flugeldagerðarmaður Lands-
bjargar og vinnur við það eliefu
mánuði ársins. Hann á von á
langþráðu fríi i janúar en þá er
hann alveg „búmm“ eftir ára-
mótin þegar „allt springa í
tætla“. DV-mynd ÞÖK
Mikiðumjóla-
skreytingar
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Mikið er um jólaskreytingar í
Selfossbæ. Skreytingamar eru
fallegar og látlausar, bæði úti og
inni.
Selfossbær er sannkallaður
þjónustubær, alls staðar frábær
þjónusta og það er sama hvort
talað er um stóra eða smáa versl-
un, alls staðar er þjónustan jafn-
góð.
Bókartitill Höfundur
1. Bakviðbláuaugun Þorgrímur Þráinsson
2. Alltaf til í slaginn Friðrik Erlingsson
3. Dansað i háloftunum Þorsteinn E. Jónsson
4. Lalli Ijósastaur Þorgrímur Þráinsson
5. Heimskra manna ráð Einar Kárason
6. Seld Zana Muhsen
7. Islenskirauðmenn Jónas Sigurgeirsson, Pálmi Jónasson
8. Stúlkan í skóginum VigdísGrímsdóttir
9. Ófyrirframan Þórarinn Eldjárn
10. Lífsganga Lydiu Helga Guðrún Johnson
Þorgrímur söluhæstur
- með tvær metsölubækur
Knattspymu- og blaðamaðurinn
Þorgrímur Þráinsson er metsöluhöf-
undur þessa árs með bækur sínar
tvær, Bak við bláu augun og Lalla
ljósastaur. Bak við bláu er í fyrsta
sæti og Lalli ljósastaur í íjórða.
íslenskir ævintýramenn, sem fetað
hafa ótroðnar slóðir, reynast vinsæl-
ir því saga Sigurðar Þorsteinssonar
er í 2. sæti og ævisaga Þorsteins E.
Jónssonar í því þriðja. Æviminning-
ar konu sem líka hefur lifað óvenju-
legu lífi, Lífsganga Lydiu, er í tíunda
sæti. íslenskar skáldsögur verma
þrjú sæti á listanum en það eru
Stúlkan í skóginum eftir Vigdísi
Grímsdóttur, Heimskra manna ráð
eftir Einar Kárason og Ó fyrir fram-
an eftir Þórarin Eldjám. Eina er-
lenda bókin á listanum í ár er Seld
eftir Zana Muhsen. íslenskir auð-
menn er í sjöunda sæti.
Næstar koma um Þóranni Maggý
miðil, Öldin okkar og Úr óvæntri átt
eftir Sidney Sheldon.
Þetta er fimmti og síðasti listinn
sem DV tekur saman síðan í desemb-
erbyijun. Töluverðar breytingar
hafa orðið á þeim fyrsta og síðasta.
Bókin um Báru rauk strax í fyrsta
sæti en færðist alltaf neöar þegar
nær dró jólum þar til hún datt út af
listanum nú. Bak við bláu augun
byijaði hins vegar í sjötta sæti og
fetaði sig upp á viö og hefur þrisvar
lent í 1. sæti. Sigurður Þorsteinsson
og Þorsteinn E. Jónsson hafa haldist
inni á listanum frá byrjun og alltaf
farið upp á við.
Bókaverslanirnar, sem þátt taka í
könnuninni, eru Bókabúðin Borg í
Reykjavík, Bókabúð Böðvars í Hafn-
arfirði, Hagkaup í Skeifunni í
Reykjavík, Kaupstaður í Mjódd í
Reykjavík, Bókabúð Jónasar Jó-
hannssonar á Akureyri, Bókabúð
Brynjars á Sauðárkróki, Bókaversl-
un Jónasar Tómassonar á ísafirði,
Bókabúð Sigbjöms Brynjólfssonar á
Egilsstöðum og Bókabúð Sigurðar
Jónassonar í Stykkishólmi.
Teknar em saman sölutölur síð-
ustu viku í hverri verslun og bókun-
um raðað frá 1 til 10. Síðan er stigum
fyrir hveija bók raðað saman og
heildartala gefur endanlega útkomu
á lista.
-JJ
Afmælisveisla Borgarspítalans 7
Mikið var um dýrðir í gaer vegna 25 ára afmælis Borgarspítalans. Meðal annars var efnt til mótttöku í ráðhúsinu
og var þar mikið fjölmenni eins og þessi mynd ber með sér. DV-mynd ÞÖK
Hádegismatur í Fríkirkjunni:
Um leið og sjálf boðaliðar fást
„Við opnum safnaðarheimilið í
hádeginu og veitum súpu, brauð og
kaffi um leið og við fáum nógu marga
sjálfboðaliða til starfa," segir Cecil
Haraldsson fríkirkjuprestur.
Hann segir þörfina mikla. Fyrir
þessi jól hafi til dæmis fleiri leitað
til hans vegna fjárhagsörðugleika en
samanlagt hin fjögur jólin sem hann
hefur starfað í söfnuðinum.
„Safnaðarheimilið yrði væntan-
lega opið í hádeginu og framyfir há-
degi. En við getum hvorki borgað
fyrir hráefni né greitt laun fyrir
störfin," tekur Cecil fram. Nokkrir
kaupmenn hafa lofaö matargjöfum,
að sögn Cecils. Hann segir samt þörf
á fleiri fijálsum framlögum.
-IBS