Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
Fiskimenn! Fiskimenn!
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan heldur fé-
lagsfund um málefni fiskimanna að Borgartúni 18,
3. hæð, miðvikudaginn 30. desember kl. 16.00.
Stjórnin
Blindrabókasafn íslands
er lokað til mánudagsins 11. janúar vegna skipulags-
breytinga á bókakosti safnsins. Sjálfboðaliðar óskast
í síma 686935.
Við óskum lánþegum og öðrum velunnurum gleðilegs árs.
Blindrabókasafn íslands
____Jil viÓskiptamanna_
banka og sparisjóða
Lokun
4. janúar
og eindagar
víxla.
Afgreiðslur banka og sparisjóða
verða lokaðar mánudaginn
4. janúar 1993.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, 7. desember 1992.
*— Samvinnunefnd banka og sparisjóða
Dregið var í símahappdrætti
STYRKTARFÉLAGS
LAMAÐRA 0G FATLAÐRA
þann 24. desember sl.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
1. vinningur bifreið Ford Explorer XLT.91-35647
2. vinningur bifreið Saab 9000 CS....96-23406
3. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ..91-678240
4. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ....91-12029
5. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ....91-36798
6. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ....91-30033
7. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ..91-626475
8. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ..985-30797
9. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ....91-42471
10. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ..91-641566
11. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ..91-656246
12. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ..91-641558
13. vinningur bifreið Ford Escort CL1300 ....98-21183
Styrktarfélagið þakkar landsmönnum
veittan stuðning.
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA OG FATLAÐRA
Háaleitisbraut 11-13, Reykjavík
Utlönd
Sea Shepherd reynir að sökkva norskum hvalveiðibáti:
Ný herferð gegn
Noregi í sumar
Paul Watson, leiðtogi Sea Shepherd, á Islandi 1988.
Paul Watson, leiðtogi bandarísku
umhverfisverndarsamtakanna Sea
Shepherd, hringdi frá Amsterdam í
gær til norsku lögreglunnar og
kvaðst bera ábyrgð á tilrauninni til
að sökkva hvalveiðibátnum Nyhrána
í Lofoten aðfaranótt sunnudags. Að
sögn norsku lögreglunnar kvaöst
Watson sjálfur hafa verið í bænum
Steine ásamt öðrum manni til að
sökkva skipinu. Hann sagðist reiðu-
búinn að mæta fyrir rétti í Noregi
þegar málið yrði tekið.fyrir.
Þegar eigandi Nybrána vitjaði báts
síns síðdegis á sunnudaginn var bát-
urinn að sökkva. Vélarrúmið hafði
fyllst af sjó en slökkviliði tókst að
dæla úr bátnum í tæka tíð.
í viðtali við Reutersfréttastofuna í
gær sagöi Watson að skemmdarverk-
ið hefði verið jólagjöf til Atlantshafs-
ins og bama heimsins. Þetta heföi
verið upphaflð að herferð gegn hval-
veiðum Norðmanna. Gripið yrði til
aðgerða á heimshöfunum næsta
sumar. Watson hefur ítrekað staðfest
að það hafi verið samtök hans sem
sökktu tveimur íslenskum hvalhát-
um 1986.
í blaði samtaka sinna síðastliðið
haust auglýsti Watson eftir aðilum
sem gætu tekið þátt í aðgerðum gegn
hvalveiðum Norðmanna.
NTB
Norskur dómstóll:
Hellisbúi baði sig fyrir próf
Maðurinn, sem síðasthðin 14 ár
hefur búið í helli nálægt háskólanum
í Ósló, verður að þvo sér og fara í
hrein fót áður en hann fær að taka
próf. Þetta er úrskurður norsks dóm-
stóls.
Hellisbúinn, sem er 39 ára, hafði
stefnt norska ríkinu þar sem honum
hefur frá 1981 verið meinaö að ljúka
námi sínu í stjarneðlisfræði við Osló-
arháskóla. Námið hóf hann 1972.
Árið 1978 var honum vikið frá stúd-
entagaröi vegna ónógra námsafkasta
og skorts á hreinlæti. Það var þá sem
hann flutti í hellinn.
Síðan hefur stjórn Óslóarháskóla
neitað manninum um að stunda nám
og taka próf og yfirhöfuð dveljast á
svæði háskólans vegna mikils óþefs
af honum. Það hefur komið fram að
hellisbúinn þvær sér þara einu sinni
á ári.
Hann segir aö spurningin um
hreinlæti hans sé bara fyrirsláttur
til að geta vísað honum úr skólanum.
Það sé lífsstíll hans sem menn ekki
þoli. Að þúa í helli sé hluti af mennt-
un hans.
Hellisbúinn kveðst ætla að áfrýja
málinu. ntb
Bosníumenn undirbúa
stórsókn gegn Serbum
Hersveitir íslama eru sagöar vera
að búa sig undir stórsókn gegn Serb-
um til að binda enda á umsátrið
kringum Sarajevo, höfuöborg Bos-
níu. Þar gekk vetur í garð í gær.
Starfsmenn Sameinuöu þjóöanna
sögðu vistmenn á elliheimiii í borg-
inni vera fama að látast úr kulda.
Fréttir af undirbúningi stórsóknar
valda milligöngumönnum um friðar-
viðræður í Genf áhyggjum. Á laugar-
daginn er fyrirhugaður þar fyrsti
fundur leiðtoga hinna stríðandi afla.
Nauðsynlegt þykir aö þardagamir
verði í lágmarki þangað til.
Bandarísk yfirvöld vömðu í gær
Serþa við átökum í Kosovo sem heyr-
ir undir Serbíu. Albanir eru í meiri-
hluta í Kosovohéraði. Vesturlönd ótt-
ast að átök í Kosovo ógni alþjóðlegu
öryggi og kalli á viðþrögð.
Bandaríska dagþlaðið New York
Times greindi frá þvi í gær að Bush
Bandarikjaforseti hefði varað serb-
neska leiðtoga við því að Bandaríkin
myndu þeita hervaldi ef átökin
breiddust út til Kosovo þar sem Al-
þanir era í meirihluta. Talsmaður
Snjór þekur nú leiðin í kirkjugarðinum í Sarajevo. Vetur er genginn í garð
í borginni. Þar var i gær tíu stiga frost og vistmenn á elliheimilum iátast
úr kulda. Símamynd Reuter
bandaríska utanríkisráðuneytisins ir. Hann lagði áherslu á að höfð yrði
vildi ekki staðfesta þessa frétt en samvinna við Sameinuðu þjóðimar.
kvaðst ekki útiloka sérstakar aðgerö- Reuter