Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Blaðsíða 9
8
9
lokasænsku
kjarnorkuveri
Þrír Danir af hverjum Qórum
vilja láía loka sænska kjamorku-
verinu í Barseback, handan við
Eyrarsund. Þetta kemur fram í
Gallup-skoðanakönnun sem birt-
ist í Berlingske Tidende í gær.
Það kom ekki á óvart að íbúar
Kaupmannahaí'nar og Frederiks-
bers eru fremstir í flokki þeirra
scm vilja láta loka verinu eða 83
prósent þeirra.
Rétt rúmlega áttatíu prósent
aðspurðra telja að dönsk stjórn-
völd eigi að þrýsta á þau sænsku
um að verinu verði lokað. Aðeins
þrettán prósent telja að Danir eigi
ekki að skipta sér af því.
Enn eru nær flórir af hveijum
fimm Dönum á móti kjarnorku
en aðeins tólf prósent eru henni
fylgjandi.
Haffræðingurínit
ur Flrakklands
Haffræðingurinn Jacques Co-
usteau er vinsælasti maðurinn í
Frakklandi fimmta árið í röð.
í skoðanakönnun sem birtist í
sunnudagsblaöinu Journal de
Dimanche var hinn 82 ára gamli
könnuður efstur á lista yfir 48
átta menn og konur þar sem m.a.
voru Francois Mitterrandforseti,
kvikmyndaieikkonan Cathérine
Deneuve og ólympíumeistarinn
Marie-José Perec.
í öðru sæti á listanum var Pétur
ábóti, kaþólskur prcstur sem hof-
ur helgað líf sitt umönnun fá-
tækra. Þriðji vinsælasti Frakkinn
er Léon Schwartzenberg, sér-
fræðingur í krabbameinslækn-
ingum og fyrrum heilbrigðísráð-
herra. Forsetinn lenti í 30. sæti.
Metfjöldiffótta-
mannasóttium
Aldrei hafa fleiri sótt um hæli
í Svíþjóð en á árinu sem er að líða.
Búist er við að umsóknirnar
verði 85 þúsund þegar upp verður
staðið eða þrefalt fleiri en í fyrra.
Tii loka nóvemher höföu um
þaö bil 78 þúsund flóttamenn sótt
um hæli í landinu og á fyrstu
þremur vikunum bættust 3.700 í
hóphrn.
Flóttamennirnir eru flestir frá
fyrrum lýðveldum Júgóslavíu
eða um 85 prósent Á síðustu vik-
um hefur orðið umtalsverö fjölg-
un á flóttamönnnm frá átaka-
svæöunum í Bosníu.
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum
forseti Sovétrikjanna, sagði á
sunnudag að stofnun Samveldis
sjálfstæðra ríkja á síðasta ári
heföu verið ónauðsynleg og
hræðileg roistök.
í viötali viö sjónvarp Samveid-
isins, ári eftir hrun Sovétríkj-
anna, sagði hann að Samveidið
heföi ekki staðiö undir þeim
væntingum sem til þess voru
gerðar.
„Ekki einasta hafa vandamálin
ekki veriö leyst heldur hafa þau
versnað,“ sagði hann.
Gorbatsjov hélt uppi vörnum
fyrir tilraunjr tii að halda Sovét-
ríkjunum saman með því að veita
lýöveldunum meira vald og sagði
aö atburðir síðasta árs heföu rétt-
lætt þær.
„Það sem nú er að gerast í Rúss-
landi og Samveldhm sýnir að sú
stefna, sem við fylgdum, var
nauðsynleg," sagði hann.
Ritzau, Reuter og TT
Útlönd
Bandarískir landgönguliðar skjóta á sómalska byssumenn sem höfðu rænt
tækjum erlendra sjónvarpsfréttamanna. Einn Sómalanna lét lífið.
Símamynd Reuter
Sómalía:
Stríðsherrar f aðmast
Tveir helstu stríðsherrar Mogadis-
hu féllust í faðma á friðarfundi í gær
á svokallaðri grænni línu, sem skipt-
ir sundurskotinni höfuðborg Sómal-
íu í tvennt, og sögðu að þeir mundu
vinna að því að sameina landsmenn
að nýju.
Ali Mahdi Mohamed, sjálfskipaður
forseti Sómalíu, og Mohamed Farah
Aideed fóru fyrir meira en tíu þús-
und manns sem veifuðu greinum
sem tákni um frið til að fagna sam-
komulagi stríðsherranna um að
leggja niður skiptingu borgarinnar.
Erlendu hersveitimar undir for-
ustu Bandaríkjamanna hafa lofað að
auka þrýsting sinn á byssubófana í
landinu eftir að stríðsherrarnir
sömdu um friö. Eftir aöeins þriggja
vikna aðgerðir í landinu er fjölþjóða-
herinn búinn að koma sér fyrir í átta
bæjum í miö- og suðurhluta Sómalíu
þar sem hungursneyðin er einna
verst. Þaöan munu hersveitimar
halda lengra inn í landiö til aö vemda
matvælasendingar til hungraðra.
Bandarískir hermenn skutu só-
malskan byssumann til bana í bar-
daga nærri flugvellinum í Mogadis-
hu í gær. Þar með hafa fimm menn
fallið í átökunum við erlendu her-
sveitimar frá 9. desember. Reuter
FLUGELDAR
krónur
krónur
krónur
krónur
STJÖRNULJÓS
FYLGJA
HVERRI KÖKU!
STJÖRNULJÓS
FYLGJA
HVERRI KÖKU!
UTSOLUSTAÐUR
krónur
SIMI 64 29 00
STJÖRNULJÓS
FYLGJA
HVERRI KÖKU!
STJORNUKAUP HF.
SKOTA
KAKA
SKOTA
KAKA