Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
OKKAR TILBOÐ
PD 101 Geislaspilari
VERSLUNIN
HVERFISGÖTU 103; SIMI2S999
Umboðsmenn um land allt.
flD PIONEER
flö RIOIMEER
3ja ára ábyrgð
VERÐ AÐEINS 16.900
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
yUj^ERDAR
Útlönd
Israelska lögreglan kemur í veg fyrir að ísraelskir arabar geti farið yfir landamærin til Líbanons til að færa 415
útlægum Palestínumönnum matvæli og lyf. Símamynd Reuter
Israelsk stjómvöld:
íhuga að heimila
hjálparsendingar
Israelsk stjómvöld íhuga nú aö
heimila að hjálpargögn verði flutt
um ísraelskt landsvæði til Palestínu-
mannanna 415 sem þau ráku úr landi
og hafa nú setið fastir í auöninni í
suðurhluta Líbanons í tólf daga. ísra-
elska útvarpið skýrði frá þessu í
morgun.
Gad Ben-Ari, talsmaður Yitzhaks
Rabins, forsætisráðherra ísraels,
vildi hvorki staðfesta né neita frétt-
inni um að ísraelsmenn ætluðu að
leyfa einni sendingu af hjálpargögn-
um að fara í gegn.
Stjómvöld bæði í ísrael og Líbanon
hafa hafnaö beiðni Alþjóða Rauða
krossins um að fá aðgang að útlögun-
um og lýsa ábyrgð á mönnunum á
hendur hinum aðilanum. Mennirnir
vom reknir burt af ísraelsku landi
fyrir meint tengsl við íslamska and-
spyrnuhópa. Snjór er nú yfir öllu þar
sem mennimir hafa slegið upp tjald-
búðum, klæða- og matarhthr.
í frétt ísraelska útvarpsins sagði
að Rabin og Shimon Peres utanríkis-
ráðherra mundu ræða málið við Ja-
mes Jonah, sérlegan sendimann
Sameinuðu þjóðanna, þegar hann
kemur aftur til ísraels frá Líbanon á
morgun.
Jonah hefur verið í ísrael frá því á
sunnudag til að kynna sér málefni
útlaganna. Hann verður í Líbanon í
dag. Þarlend stjómvöld hafa sagt að
hann megi ekki fara um líbanskt
landsvæði til að heimsækja Palest-
ínumennina.
ísraelsk yfirvöld sögðu í morgun
að tíu Palestínumannanna gætu snú-
ið aftur heim eftir að herinn komst
að því að brottrekstur þeirra heföi
verið á misskilningi byggður. í yfir-
lýsingu frá hemum sagði að sumir
tímenninganna yrðu dregnir fyrir
rétt í ísrael eftir að þeir sneru aftur
til síns heima.
Reutér
MISSIÐ EKKI AF
SKATTAFSLÆTTIN U M!!
Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér skatt-
afslátt fyrir árið 1992. Hlutabréfasjóðurinn
Auðlind er settur saman af traustum
skuldabréfum og hlutabréfum í fjölmörgum
traustum fyrirtækjum. Slík dreifing minnkar
áhættuna enda hafa hlutabréfasjóðir í vörslu
Kaupþings komið best út allra hlutabréfa-
sjóða á árinu.
Hlutabréfakaup á árinu 1992 geta lækkað
tekjuskattstofn hjóna um allt að 200.000 kr.
»
SPARISJÓÐIRNIR
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kring/unni 5, stmi 689080
/ eigu Búnaðarbanka íslands
ogsparisjóðanna