Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
11
Merming
Ronja og ræningjarnir
Ævintýrasagan um Ronju ræningjadóttur
er bæði fjörug og skemmtileg lesning, en eins
og í öðrum verkum úr smiðju Astrid Lind-
gren felst í henni nokkurt umhugsunarefni
undir sjálfum söguþræðinum.
Þó að ræningjamir í skóginum séu kannski
ekki guði þóknanlegir með groddalegu líferni
sínu, ránum og gripdeildum, flytur sagan
boðskap sem vel á heima á jólum. Undir yfir-
borðinu Uggja þannig skýr skilaboð um gildi
vináttu, sem yfirstígur allar hindranir, og
ekki síður boðskapur um frið og sátt manna
í milli.
Leiklist
Auður Eydal
í Matthíasarborg, heimkynnum ræningj-
anna, fæðist sem sé eina óveðursnótt lítíll
telpuhnokki sem á eftír að breyta lífsháttum
og viðhorfum þeirra svo um munar.
Björgin klofna
Sýning Borgarleikhússins á leikgerð upp
úr sögunni er mikið sjónarspil þar sem marg-
víslegum ráðum leikhússins er beitt til þess
að gefa ævintýrinu líf.
Leikmynd HUnar Gunnarsdóttur er stór-
brotín og lumar á óvæntum lausnum. Klett-
urinn, sem Matthíasarborg stendur á, klofn-
ar til dæmis í tvo hluta í upphafi sýningar-
innar þegar eldingu lýstur niður nóttina sem
Ronja fæðist. Þetta er útfært meö tilþrifum
á sviðinu, borgin brestur í sundur með dun-
um og dynkjum án þess þó að litlum hjörtum
áhorfendanna sé stórlega ofboðið.
í klettunum leynast líka skemmtilegir heU-
ar og skútar þar sem hægt er að felast, foss
steypist í einu atriðinu fram af bjargbrún,
skógardýr og yfirnáttúrlegar verur búa í1
Ronja ræningjadóttir (Sigrún Edda Björnsdóttir) mundar bogann. Með henni á myndinni
er Birkir Borkason (Gunnar Helgason). DV-mynd ÞÖK
hömrunum og undir kastalanum eru leyni-
göng sem börnin uppgötva og geta notaö tíl
þess að fara á milli Matthíasarborgar og
Borkavirkis.
Allt þetta er útfært á hugmyndaríkan hátt
og lýsing Elvars Bjarnasonar á Uka stóran
þátt í dulúðugu andrúmslofti skógarnátt-
anna. Búningar Hlínar eru ekki síðri, fall-
egar Utasamsetningar og marglaga föt ræn-
ingjanna sem maður er alveg prýðUega sátt-
ur við.
Allt ytra borð sýningarinnar er þannig sér-
staklega vel heppnað og uppfylUr bæði Ust-
rænar kröfur og ekki síður þau skilyrði sem
þarf til þess að ævintýrið fái að njóta sín.
Elskulegur rænlngjalýður
Frammistaða leikaranna er með ágætum.
Fjör og léttleiki einkenna sýninguna sem
rennur mjög vel áfram hæfilega spennandi.
Maður hefur á tilfinningunni að alUr hafi
gaman af að vera með.
Ásdís Skúladóttír leiksfjóri og Auður
Bjarnadóttír dansahöfundur leggja áherslu á
hreyfanleika og hraða, þannig að sjaldan
slaknar á líflegri framvindunni. Leikmyndin
gefur skemmtilega möguleika sem eru vel
nýttir, eins og til dæmis þegar krakkarnir
eru aö metast og taka upp á því að stökkva
fram og til baka yfir hina óttalegu Helvít-
isgjá. Eða þegar þeir stökkva í ána á flótta
undan iUvættum. Atriði af þessu tagi eru fjöl-
mörg og ekki spiUa gervi gráálfanna sem
elta krakkana um skóginn. Glóandi glymur
lýsa í myrkrinu og aUt þeirra athæfi er hið
ámátlegasta.
Og þá má ekki gleyma litlu rassálfunum,
leikbrúöum sem Helga Arnalds útfærir sér-
staklega skemmtilega.
VaUnn hópur túlkar hlutverk ræningja og
annarra sem við sögu koma. Mest mæðir að
sjálfsögðu á Sigrúnu Eddu Bjömsdóttur sem
er hreint ótrúleg, lipur og krakkaleg í hlut-
verki Ronju. Gunnar Helgason veitir henni
gott mótspil sem Birkir Borkason og er ekki
síður innlifaður í hlutverk sitt. Þau unnu
bæði hugi og hjörtu áhorfenda og var ekki
annað að sjá en alUr aldurshópar heföu jafn
gaman af að fylgjast með ævintýrum þeirra.
Theodór JúUusson leikur Matthías, pabba
Ronju, þrjóskan, svoUtið vitgrannan en góð-
hjartaðan ræningja. Theodór og Margrét
Helga Jóhannsdóttir, sem leikur Lovísu,
mömmu Ronju, móta persónurnar mjúkum
Unum og skila þessum hlutverkum með
ágætum.
Ræningjahópurinn í Matthíasarborg er
einstaklega samvalinn og ekki gert minna
en efni standa til úr spaugilegum tilburðum
þeirra. Úr þeirra flokki má nefna Guðmund
Ólafsson í hlutverki Skalla-Péturs og Jón
Hjartarson sem Litla-Skratta en þeir eru
báðir skemmtilegar týpur sem lífga upp á
söguna. Pétur Einarsson og Margrét Aka-
dóttir eru líka góð sem ræningjaparið í
Borkavirki.
í heild er þetta sýning sem bragð er að.
Fjörugir söngvar, Utríkir búningar og stór-
brotin sviðsmynd styðja góða sögu og ekki
spUUr vönduð þýðing þeirra Þorleifs Hauks-
sonar (texti) og Böðvars Guðmundssonar
(söngvar). Hér eru vönduð alvöruvinnu-
brögð viðhöfð í stóru sem smáu, leikhúsinu
til sóma og áhorfendum tU gleði.
Leikfélag Reykjavikur sýnir á stóra sviði Borgar-
ieikhúss:
Ronju ræningjadóttur.
Höfundur: Astrid Lindgren.
Tónlist: Sebastian.
Leikgerð: Annina Pasonsen og Bente Kongsböl.
Þýðing: Þorleifur Hauksson.
Söngtextar: Böðvar Guðmundsson.
Leikstjórn: Ásdís Skúladóttir.
Leikmynd og búningar: Hlin Gunnarsdóttir.
Brúðugerð: Heiga Arnalds.
Tónlistarstjóri: Margrét Pálmadóttir.
Dansahölundur: Auður Bjarnadóttir.
Lýsing: Elvar Bjarnason.
FLUGELDAFOLKIÐ
ODYRIR FLUGELDAR
Gerið verðsamanburð!
Aldrei meira úrval!
Geymið auglýsinguna!
KRAKKAPAKKI, 85 STK., KR. 1.800,-
SÖLUSTAÐIR í ÁR:
ÞÝSKIR FLUGELDAR (20 teg.) SKOTKÖKUR (yfir 30 teg.) ÝMISLEGT
Tolle Lola Kr. 250,- Kökupoki, 3 stk Kr. 2.500,- Stjörnuljós:
Teufels Kr. 500,- Blossom, 70sk Kr. 500,- Lítil (10stk.) Kr.25,-
Signal Kr. 600,- Blossom, 90sk Kr. 1.600,- Miðstærð, 30 cm Kr. 50,-
LasVegas Kr. 800,- TM Repeater, 22 sk Kr. 600,- Risa, 70 cm ...Kr. 250,-
Turbo 3 Kr. 1.700, TM Repeater, 36 sk Kr. 700,- Kúlubiys, 10 sk Kr. 10,-
TM Repeater, 90 sk Kr. 800,- Kúlublys. 20sk Kr. 15,-
Happy Flow., 300 sk Kr. 2.500,- Kúlublys, 30sk Kr. 40,-
Flying Drag., 70sk Kr. 500,- Butterflies, 6stk ...Kr. 120,-
Kínv. kaka, 90 sk Kr. 1.600,- Bengal eidsp Kr. 50,-
Twitter Glitter M Kr.100,-
TwitterGlitter L Kr. 500,-
Samkvæmt venju við BSi.
c
Nú einnig við Sunnukjör (á Tónabæjarplaninu)
OPIÐ MÁNUD. 28/12 - MIÐVIKUD. 30/12 KL. 10-22.
OPIÐ GAMLÁRSDAG KL. 10-16.
og Stórmarkaður að Dugguvogi 12, húsi Bilagalleris.
Farið varlega
og góða skemmtun!!!!!!!!!
GLEÐILEGT ÁR!!!
FLUGELDAFÓLKIÐ