Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Síða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÚLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Horfur 1993
Margir reyna um áramót að spá fyrir næsta ár. Efna-
hags- og atvinnumálin eru í brennidepli á þessum sam-
dráttartímum, og nýjar spár jafnan forvitnilegar. í bréfi
Þjóðhagsstofnunar til fjárlaganefndar Alþingis frá 17.
þessa mánaðar kemur fram hið nýjasta, sem fyrir hggur
um horfurnar á árinu 1993.
Þjóðhagsstofnun gefur í bréfinu yfirlit um helztu
breytingar, sem orðið hafa að undanförnu að hennar
mati. Horfur eru á, að viðskiptakjönn við útlönd verði
lakari en fyrr haföi komið fram. í fyrsta lagi frestast
gildistaka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið,
EES, eins og alkunna er. Það kostar okkur skiiding. í
því felst að tollalækkanir á sjávarafurðum samkvæmt
samningnum taka ekki gildi í byrjun árs 1993 heldur
talsvert síðar. í áætlun Þjóðhagsstofnunar var reiknað
með, að þessi lækkun tolla heföi hagstæð áhrif á verð
sjávarafurða okkar, sem næmu á bihnu 1-1,5 milljörðum
króna miðað við heilt ár. Ef við búumst nú við, að áhrif-
in komi fram hálfu ári síðar, eða um mitt ár í stað ára-
móta, hefur íslenzka þjóðarbúið misst af ávinningi upp
á 0,5-0,75 mihjarða króna. Þetta munar okkur því miklu.
Efnahagsbati í heiminum hefur látið á sér standa, sem
hefur leitt til þess, að verð á útflutningsafurðum okkar
er nú almennt lægra en búizt var við. Þetta á meðal
annars við um ál og kísiljám.
Þjóðhagsstofnun segir, að horfur um útflutningsfram-
leiðsluna hafi ekki breytzt mikið að undanförnu, þó sé
ráðgert að draga nokkuð úr álframleiðslu, og óvissa ríki
um framleiðslu kísiljáms. Tekjur af varnarhðinu verði
minni en búizt haföi verið við. Á móti kemur að nokkm,
að loðnuafli kann að verða meiri en reiknað var með.
Stofnunin er nú svartsýnni en áður á atvinnuhorfur
á næsta ári. Hún segir, að atvinnuleysi hafi aukizt jafnt
og þétt að undanfömu og sé nú 3,4 prósent af mannaflan-
um. Það muni enn aukast á næstunni. Þjóðarútgjöld
muni dragast töluvert meira saman á árinu 1992 en
gert var ráð fyrir í þjóðhagsáætlun og úárlagafrum-
varpi og því verði atvinnuleysi næsta ári, 1993, líklega
meira en búizt var við í fyrri spám stofnunarinnar. Þjóð-
hagsstofnun gerir því skóna, að atvinnuleysið verði yfir
4 prósentum.
Þjóðhagsstofnun telur spá um 4 prósenta verðbólgu
vera nærri lagi. Það er minni verðbólga en stofnunin
haföi áður spáð fyrir næsta ár. En Vinnuveitendasam-
bandið spáði nýlega aðeins 3 prósenta verðbólgu á kom-
andi ári.
Flest það, sem breytzt hefur að undanfömu, er þann-
ig ekki til uppörvunar. Við skulum hta á þessar upplýs-
ingar í tengslum við spár frá því fyrr í vetur. Spá 63ja
af stærstu fyrirtækjunum var kynnt á spástefnu Stjóm-
unarfélags íslands hinn 3. þessa mánaðar. Að meðaltali
spáðu fyrirtækin 1,6 prósenta samdrætti í framleiðslu,
en Þjóðhagsstofnun haföi þá spáð svipuðum samdrætti,
1,4 prósentum. Fyrirtækin spáðu 5,1 prósents verðbólgu
og Þjóðhagsstofnun nú um 4 prósenta verðbólgu.
Spá fyrirtækjanna á spástefnunni hljóðaði upp á 4,3
prósenta atvinnuleysi, og spá Þjóðhagsstofnunar er nú
að verða svipuð því samkvæmt því sem sagði hér að
framan.
Síðustu fréttir, sem greint var frá í framangreindu
bréfi Þjóðhagsstofnunar, gefa þannig til kynna, að spár
Þjóðhagsstofnunar nálgist spár fyrirtækjanna á spá-
stefnunni í flestum atriðum.
Haukur Helgason
Hjá mörgum nagrannaþjóöum okkar er barnamatur og barnaföt undanþegin virðisaukaskatti einmitt til aö
létta undir með barnafólki, segir m.a. í greininni.
Hvaða tilgangi
þjóna barnabætur?
Barnabætur og tilvist þeirra eru
yfirleitt studdar þremur meginrök-
semdum. Þær hafa hins vegar horf-
iö fyrir allri annarri umíjöllun um
þær sem aftur á móti er vert aö
rifja upp nú þegar uppi eru hug-
myndir sem miöa aö því að skeröa
bamabætur og tekjutengja.
Barnabætur sem „verðlaun“
í flestum velferðarsamfélögum
Vesturlanda þykir ráðamönnum
svo mikils um vert aö þjóðunum
fjölgi aö ástæöa þykir til aö verö-
launa þá foreldra sem ala böm. Er
þetta viðurkenning samfélagsins á
mikilvægi bamauppeldis sem jafn-
framt getur létt undir lífsbarátt-
unni á efnaminni heimilum.
í nágrannalöndum okkar nema
þessar bætur oft umtalsveröum
fjárhæðum. Bamabætur á íslandi
hafa aldrei náö þeim fjárhæðum
sem greiddar hafa verið í þeim ná-
grannalöndum okkar sem við vfij-
um helst bera okkur saman við.
Víöa erlendis mun það einnig vera
svo aö foreldrar og verðandi for-
eldrar taka mið af fjárhæðum
bamabóta viö ákvarðanir um fjöl-
skyldustærð.
Bamabótaauki, sem tekur mið af
tekjum foreldra, hefur einnig verið
greiddur út hér á landi hin síðari
ár. Hefur ríkt samstaða um að láta
þar lokiö tekjutengingu þeirra bóta
sem greiddar em vegna barna.
Ungir efnaminni foreldrar, sem
fram að þessu hafa lagt á sig mikla
vinnu til afla sér aukatekna við að
koma sér upp eigin húsnæði, hafa
þannig margir hverjir orðið af
barnabótaauka fyrir vikið.
Barnabætur sem „persónu-
afsláttur“
Sérhver íslendingur yfir 16 ára
aldri nýtur nú „persónuafsláttar"
sem gengur upp í mánaðarlega
staðgreiðslu tekjuskatta. Ekki er
KjaJlarinn
Bolli Héðinsson
fyrrv. form. Tryggingaráðs
sérstaklega tekið tiilit til bama eða
kostnaðar af framfærslu þeirra við
ákvörðun persónuafsláttar og
nemur hann því sömu upphæð fyr-
ir alla, óháð bamafjölda og öðrum
aðstæðum.
í stað persónuafsláttar vegna
bama hafa foreldrar fengið barna-
bæturnar sem hefur mátt hta á sem
„persónuafslátt" bamanna. í stað
bamabótanna mætti vel sjá fyrir
sér að í stað barnabóta fengju for-
eldrar úthlutað persónufrádrætti
fyrir börn sín, en bamabótaauki
greiddur þeim foreldmm sem ekki
geta notað persónufrádrátt bama
sinna vegna lágra tekna.
Barnabætur sem endur-
greiðsla neysluskatta
Þriðja röksemdin, sem haldið
hefur verið fram fyrir því hvers
vegna ríkinu beri aö borga barna-
bætur, er sú að þar væri um að
ræða endurgreiðslur ríkisins til
foreldra vegna þess hlutar virðis-
aukaskatts sem foreldrar greiða
fyrlr böm sín í matvöm- og fata-
kaupum. Hjá mörgum nágranna-
þjóðum okkar háttar svo til að
bamamatur og bamafot em und-
anþegin virðisaukaskatti einmitt í
þeim tilgangi að létta undir með
bamafólki.
Rökin, sem færð hafa verið fyrir
tekjutengingu bamabóta, em þau
að hálaunafólk þurfi þeirra ekki
með, þar sem bamabætur séu
óverulegur hluti ráðstöfunartekna
þess. Vilji menn halda þeim rök-
semdum á lofti er allt eins hægt að
heimfæra þær upp á persónuaf-
sláttinn sjálfan. Núgildandi per-
sónuafsláttur vegur sárahtið hjá
hátekjufólki þar sem eins mætti
fella hann niður með öhu. Tekju-
tenging persónuafsláttarins gæti
orðið ríkissjóði veruleg búbót, mun
meiri en tekjutenging barnabót-
anna, og í sjálfu sér ekki óréttlátari
aðgerð en tekjutenging barnabóta.
Öllum er þó ljóst að slíkt væri í
raun aðfór að rökréttri uppbygg-
ingu skattkerfisins. Gildir annað
máh um bamabætur?
Bolli Héðinsson
„Rökin, sem færð hafa verið fyrir
tekjutengingu barnabóta, eru þau að
hálaunafólk þurfi þeirra ekki með, þar
sem bamabætur séu óverulegur hluti
ráðstöfunartekna þess.“
Skoðanir annarra
Umræðan um EES
„ Nú dylst það engum, að ríkisstjómin, sem kos-
in var með meirihluta í lýðræðislegum kosningum,
vih að þingið staöfesti samninginn um EES. Fyrir
því er jafnframt sterkur meirihluti á Alþingi. Hver
einustu samtök í atvinnulífinu, sem einhverju máh
skipta, hafa eindregið hvatt til þess að staðfesting-
unni verði hraðað, enda ljóst, aö það þjónar hags-
munum íslands. Þrátt fyrir það hefur ekki tekist aö
koma málinu gegnum þingið. Þess í stað hefur um-
ræðan um EES einkennst af ótrúlega langdregnu
þófi um þingsköp, en í annarri umræðu um máhð
hafa veriö haldnar næstum því tíu sinnum fleiri
ræður um þingsköp en um máhð sjálft. Minnihlutinn
hefur með þófi komið í veg fyrir afgreiðslu á máh
sem meirihlutinn vih ná fram, og er þegar rætt út í
hörgul.“ ÚrforystugreinAlþbl.24.des.
Ovissan um EES
„Það er vandasamt fyrir ísland að bregðast við
þessum aðstæðum, og tvímælalaust er rétt að ijúka
ekki til og staðfesta EES-samninginn á þessari
stundu. Hver sem sjónarmiðin eru til þessa samn-
ings, geta þó allir veriö sammála um að óvissan vex
með hverjum degi um hvemig hann mun lita út eða
hvort hann tekur nokkurn tíma gildi. Þaö skiptir
miklu máh fyrir íslendinga nú, hvort ríkisstjórnin
er tilbúnin til þess aö óska eftir formlegum viðræðum
um framtíöarstöðu íslendinga í ljósi síðustu atburða.
Því verður ekki trúað að nú verði tekinn upp áróður
fyrir umsókn um aðild að EB, þvert ofan í yfirlýsing-
ar ráðherra, þ.á.m. forsætisráðherra, um að aðild sé
ekki á dagskrá."
Úr forystugrein Tímans 23. des.