Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
25
Popp
Deep Jimi and The Zep Creams - Funky Dinosaur
Betur má ef duga skal
Undanfarin ár hefur fortíöarhyggja
fariö eins og eldur í sinu um íslenskt
tónlistarlíf líkt og annars staðar og
ásókn yngri manna í tónlist fyrri ára
verið áberandi. Sérstaklega hefur
tímabiliö kringum 1970 höföaö sterkt
til ungra manna hér á landi og skýr-
asta dæmið um þaö er hljómsveitin
Deep Jimi and The Zep Creams sem
eins og nafnið gefur til kynna er
undir miklum áhrifum frá helstu
rokkhetjum þessa tíma.
En þeir félagar í Deep Jimi róa
ekki bara á sömu tóniistarmiö og
innlendar hljómsveitir fyrri ára
heldur býr í þeim sama útþráin og
draumamir um frægö og frama í
útlöndum sem ungir íslenskir tón-
listarmenn einbhndu svo mjög á í þá
daga. Þar skilur þó á milli í samlík-
ingunni því liösmenn Deep Jimi létu
sér ekki nægja aö dreyma heldur
geröu þeir gangskör aö því aö láta
drauminn rætast. Og þaö tókst aö því
leyti til að hljómsveitin komst á
samning hjá stóru hljómplötufyrir-
tæki í Bandaríkjunum en spurning-
unni um frægö og frama er enn
ósvarað. í það minnsta held ég að
Hljómplötur
Sigurður Þór
Salvarsson
þessi fyrsta plata sveitarinnar megni
ekki að uppfylla þá drauma.
Yið því er heldur ekki að búast því
enginn veröur óbarinn biskup en
engu að síður gefur þessi plata
ákveðin fyrirheit og staðfestingu á
því aö það var engin tilviljun að
hljómsveitin komst á samning í föð-
urlandi rokksins. Fyrir það fyrsta er
hún firnaþétt og kröftug enda skilst
mér að fáar íslenskar hljómsveitir
Hljómar. Höföu yfirburöastööu í poppinu á sinum tíma.
Hljómar - Hljómar og Hljómar 74:
íslensku
bítlarnir
Bresku bítlarnir syngja og leika.
Þennan frasa mátti oft heyra í rík-
isútvarpinu í gamla daga og rann
jafnan mörgu ungmenninu kalt
vatn milli skinns og hörunds þegar
þulirnir notuðu jafn heimóttarlegt
orðalag. Þetta var á þeim tímum
þegar Hljómar voru keflvísku bítl-
arnir, Hep Stars sænsku bítlarnir
og Supremes gengu undir nafninu
Bítlur.
Hljómar slógu í gegn á útmánuð-
um 1964, nokkru eftir að fjórmenn-
ingamir í The Beatles komu til
Bandaríkjanna og bítlaæðið hófst
formlega í Vesturheimi. Hljómarn-
ir náðu shkri yfirburðastöðu í
poppinu að engum hljómsveitum
íslenskum hefur tekist að ná álíka
vinsældum síðar.
Tólf laga platan Hljómar er aldar-
fjórðungs gömul á þessu ári. Hún
er fyrsta stóra plata íslenska bítla-
tímans. Vegna þeirrar staðreyndar
skipar hún vissan sess í sögu
hljómplötuútgáfunnar. Platan var
tekin upp í London í glænýju hljóð-
veri sem The Beatles voru einmitt
að prófa um svipað leyti og Hljómar
voru ytra. Þar lágu einmitt saman
leiðir Pauls McCartneys og Hljóm-
anna Erhngs Bjömssonar og Engil-
berts Jensens. Að þeim fundi var
vikið á Hljómaskemmtuninni á
Hótel íslandi í haust.
Þessi fyrsta stóra plata Hljóm-
anna fékk ákaflega góðar viðtökur,
varð plata ársins 1967 og seldist
vel. Platan hafði nokkuð rólegra
yfirbragð en það sem Hljómar
höföu sent frá sér til þess tíma og
frá og með henni fóm þeir að höfða
til breiðari hóps en áður. Fram til
þess hafði hljómsveitin nær ein-
göngu sinnt unglingum.
Platan Hljómar ’74 er svanasöng-
ur Hljóma. Erlingur var ekki leng-
ur með en í hans stað komnir Birg-
ir Hrafnsson og Björgvin Hahdórs-
son. Platan var hljóðrituð í Banda-
ríkjunum og undir sterkum áhrif-
um frá vinsælustu tónhst þess tíma
þar vestra. Til dæmis fer ekki á
milh mála að Crosby Sthls og Nash
hafa höföað sterkt til Hljómanna.
Á Hljómum ’74 kom Rúnar Júl-
íusson í fyrsta skipti fram á sjónar-
sviðiö sem lagahöfundur. Tvö af
þremur sterkustu lögum plötunnar
era einmitt eftir hann, lögin Tasko
Hljómplötur
Ásgeir Tómasson
Tostada og Slamat Djalana Mas.
Gunnar Þórðarson samdi hið
þriðja, Silver Morning. - Þótt
Hljómar '74 sé vitaskuld ekki galla-
laus má segja að hún hafi aha tíð
verið vanmetin.
Með því að plötumar Hljómar og
Hljómar ’74 hafa verið endurút-
gefnar á geislaplötum er aðeins eft-
ir aö endurútgefa aðra stóm plöt-
una sem hljóðrituð var 1968, svo
og nokkur lög sem Hljómar sendu
frá sér með enskum textum. Sumt
af því er reyndar að frnna á safninu
Gullnar glæður sem Fálkinn gaf
út árið 1988. Óhætt er að segja að
útgefendur standi sig vel við að
dusta rykið af gömlu Hljómamús-
íkinni.
hafi æft jafn þrotlaust og Deep Jimi.
í öðm lagi em hðsmenn sveitarinnar
afbragðs tónhstarmenn hver á sínu
sviði og fer þar kannski fremstur
söngvarinn Sigurður Eyberg sem
hefur mjög öfluga rödd sem minnir
á Robert Plant þegar hann var upp
á sitt besta.
Lagasmíðarnar em hins vegar ekki
enn í sama klassa og hæfileikar hös-
manna hljómsveitarinnar, lögin em
ahflest afskaplega khsjukennd og flöt
og þau vantar sárlega einhvern inn-
Deep Jimi and the the Zep Cream. Hljómsveit með framtiðarmöguleika.
blástur sem nær að lyfta þeim upp
úr gömlu hjólföranum. Það er gott
og ght að sækja sér hugmyndir th
fyrri tíma en eitthvaö veröa menn
að leggja th frá eigin bijósti meira
en hljóðfæraleik og söng til að út-
koman ööhst eigið líf. ^
r.
Litaðu myndina og sendu til
Krakkaklúbbsins, Þverholti 11,
105 Reykjavik, fyrir 6. janúar nk.
n
í /MJJr
SAMBí
L
100
r
miðar
L
Nafn
Heimili
Staður
J
H
J
Nöfn 50 heppinna krakka verða
dregin úr pottinum og fá þeir tvo
miða á þrjú sýningu á jólasögu
Prúðu leikaranna í Bíóhöllinni
laugardaginn 9. janúar.
Nöfn vinningshafa verða birt
föstudaginn 8. janúar í DV. Vinn-
ingshöfum verða afhentir miðarn-
ir í miðasölu áður en sýning hefst.