Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1992.
27
Fréttir
Síðasti billinn dreginn út í áskriftargetraun DV:
„Aldrei frúað því að svona nokkuð
ætti eftir koma fyrír mig“
sagði Anna Björg Níelsdóttir, 22 ára nemi í Garðyrkjuskóla ríkisins, sem hlaut Subaru Legacy í vinmng
sagði Níels, pabbi Önnu Bjargar, en
bætti því við að þetta væri einmitt
rétti bíllinn fyrir Hellisheiöina þar
sem allra veðra væri von á þessum
árstíma.
Anna Björg var hálffeimin að taka
við lyklunum að nýja bílnum, var
varla farin að trúa því enn að þessi
glæsilega, jólagjöf ‘ væri hennar eign
en fyrir áttu hún og kærastinn gami-
an Lancer.
En þegar hún var búin að taka viö
blómvendi úr hendi Þorleifs Þorkels-
sonar, sölustjóra hjá Ingvari Helga-
syni hf., og lyklunum að bílnum úr
hendi Páls þá var bílnum ýtt út úr
Bíóhöhinni og þá var ekkert að van-
búnaði að aka á vit jólanna í léttri
snjókomunni.
Hér tekur Anna Björg Níelsdóttir við lyklunum að glæsilegum Subaru Legacy úr hendi Páls Stefánssonar, auglýs-
ingastjóra DV. Á bak við Önnu er Þorleifur Þorkelsson, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni hf., þá Níels Björn, bróð-
ir hennar, en pabbi hennar, Níels Nielsson, heldur á afastráknum, Arnari Bjarka Sigurðssyni, sjö mánaða syni önnu.
DV-mynd GVA
„Ég hef aldrei unnið neitt og ég
heíði aldrei trúað því að svona nokk-
uð ætti eftir að koma fyrir mig,“ sagði
Anna Björg Níelsdóttir, tuttugu og
tveggja ára nemandi við Garðyrkju-
skóla ríksisins í Hveragerði, þegar
við tilkynntum henni að hún hefði
hlotið glæsilegan fjórhjóladrifinn
Subaru Legacy í vinning í áskriftar-
getraun DV.
Þegar dregið var úr nöfnum skuld-
lausra áskrifenda þann 22. desember
kom í ljóa að, jólagjöfin" okkar hafði
að þessu sinni farið austur fyrir íjall,
tíl Önnu Bjargar Níelsdóttur, Borg-
arheiði 7 í Hveragerði. Ekki ætlaði
að ganga vel að ná í hana th að svara
spurningu okkar svo að hún yrði þar
með réttmætur eigandi að þessum
glæshega bíl.
Þegar við náðum sambandi við
nágranna hennar í Hveragerði feng-
um við að vita að Anna væri nem-
andi í Garðyrkjuskóla ríkisins og
væri sennhega komin í jólafrí. Þá
bárust böndin að föðurhúsum Önnu
í Kópavoginum og mikið rétt, þar var
hún stödd, en að vísu ekki heima þá
stundina. Eftir nokkrar hringingar
náðum við sambandi við Önnu og
ekki stóð á svarinu við spumingunni
og þá loks var henni tilkynnt aö hún
hefði unnið bh.
Byrjaði í sumar
„Ég byrjaði sem áskrifandi í
Kringlunni í sumar en hafði leitt
hugann að því að hætta aftur því að
ég hafði svo mikið að gera að ég
komst aldrei th þess að lesa blaðiö
en lét samt aldrei verða af því,“ sagði
Anna og bætti þvi við að nú yrði hún
örugglega áskrifandi áfram.
Anna byijaði í Garðyrkjuskólan-
um í haust en þetta er tveggja vetra
nám, auk eins árs í verknámi, og því
flutti hún austur í Hveragerði með
kærastanum og Arnari Bjarka, sjö
mánaða syni þeirra.
Mamma ætlaði að
vinna bílinn
Anna kom með fríðu fóruneyti th
að taka við bhnum úr hendi Páls
Stefánssonar, auglýsingastjóra DV, í
Bíóhöllinni í Mjóddinni en þar hafði
bíllinn staðið tíl sýnis síðustu dag-
anna, því með henni voru sonur
hennar, Amar Bjarki, og bróöir, Ní-
els Björn, og pabbi þeirra, Níels Ní-
elsson.
„Mamma hennar er búin að vera
áskrifandi í fjöldamörg ár og hún
ætlaði svo sannarlega að vinna bh-
inn núna en það gekk ekki upp,“
Fjöldi ferðavinninga
í pottinum
Þótt bhaleiknum okkar sé lokið þá
erum við áfram á fullri ferð því að
DV og Flugleiðir verða sameiginlega
með ferðagetraun fyrir áskrifendur
DV fram í september 1993. í boði eru
glæsheg ferðaverðlaun vikulega fyr-
ir tvo, helgarferðir th draumaborga
austan hafs og vestan, sólríkar vetr-
arferðir og - síðast en ekki síst - fjór-
ar ævintýraferðir th framandi landa,
skemmtisigling um Karíbahafið, ferð
th Keníu og Malasíu, auk ævintýris
sem fáum gefst tækifæri th að upp-
lifa - hnattferðar - þar sem stórkost-
legt tækifæri gefst til aö skoða fram-
andi lönd og fjarlægar þjóðir.
Aht þetta bíöur einhverra hepp-
inna áskrifenda DV í hverjum mán-
uði fram í september svo aö það er
um að gera aö sjá th þess að vera
með og það er undirstrikað að ahir
skuldlausir áskrifendur DV, jafnt
nýir og núverandi, eru sjálfkrafa
þátttakendm- í leiknum. Það er því
th mikhs aö vinna ef þú ert áskrif-
andi.
-JR
Lækkaðu skattana þína og láttu hjól
atvinnulífsins vinna fyrir þig.
i skandia
FJARFESTINGARFELAGIÐ
SKANDIA HF
Með kaupum á hlutabréfum í almenningshlutafélögum geta einstaklingar lækkað
tekjuskattsstofn sinn um 94.357 kr. Endurgreiðsla á tekjuskatti er því um 37.500 kr.
Ef um hjón er að ræða eru tölurnar 188.714 og endurgreiðslan um 75.000 kr.
Við hjá FJÁRFESTINGARFÉLAGINU SKANDIA höfum til sölu hlutabréf
í traustum félögum, s.s.: EIMSKIP, FLUGLEIÐUM, SKEUUNGI,
OLÍS, GRANDA, SKAGSTRENDINGI, ÚTGERÐARFÉLAGIAKUREYRINGA
auk annarra félaga.
Upplýsingar um hlutabréf og hlutabréfamarkaðinn veita ráðgjafar
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS SKANDIA í síma 619700 \ Hafnarstræti,
689700 í Kringlunni og 96 -11100 á Akureyri.