Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1992, Page 30
34
ÞRIÐJUDÁGUR 29. DESEMBER 1992.
Afmæli
Salvar Júlíusson
Salvar Júlíusson, bóndi aö Jórvík
I, Álftaveri í Vestur-Skaftafells-
sýslu, er fertugur í dag.
Starfsferill
Salvar fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Norðurhjáleigu í Álftaveri.
Hann hlaut gagnfræöamenntun frá
Skógaskóla. Salvar starfaði á búi
fóður síns, auk þess sem hann var
til sjós margar vertíðir, einkum frá
Vestmannaeyjum. Hann varð bóndi
á Jórvík 11985 og hefur búið þar
síðan.
Salvar er formaður sauðfjár-
bænda í Vestur-Skaftafellssýslu,
deildarstjóri Sláturfélags Suður-
lands í Álftaveri ogijallakóngur
Álftveringa.
Fjölskylda
Salvar kvæntist 14.12.1980 Soffiu
Guðrúnu Gunnarsdóttur, f. 5.8.1954,
bónda. Hún er dóttir Gunnars J.
Jónssonar, f. 14.12.1932, skipstjóra
á rannsóknarskipinu Dröfn, og
Gróu S. Guðjónsdóttur, f. 21.8.1934,
starfsmanns hjá Hagkaupi.
Dóttir Salvars frá því fyrir hjóna-
band er Elísabet Hrund Salvarsdótt-
ir, f. 11.6.1977, nemi í Kirkjubæjar-
skólaáSíðu.
Dóttir Soffiu frá því fyrir hjóna-
band er Ásgerður Gróa Hrafnsdótt-
ir, f. 28.8.1975, nemi við Bændaskól-
annáHvanneyri.
Sonur Salvars og Soffiu er Gunnar
Símon Salvarsson, f. 13.9.1985.
Systkini Salvars: Jón Júlíusson,
f. 30.8.1954, íþróttafulltrúi í Kópa-
vogi, kvæntur Helgu Gunnarsdóttur
og eiga þau þrjú börn; Gísli Þóröm
Júlíusson, f. 13.1.1956, héraðslæknir
á Hvammstanga, kvæntur Rakel
Þórisdóttur og eiga þau þrjú böm;
Ragnheiður Guðrún Júlíusdóttir, f.
13.12.1957, b. í Norðurhjáleigu, býr
með Kára Gunnarssyni og eigaþau
saman tvær dætur, auk þess sem
Ragnheiður átti son áður og Kári
dóttur; Ólafur Elvar Júliusson, f.
14.11.1958, byggingafulltrúi á Húsa-
vík, býr með Ónnu Skúladóttur og
eiga þau einn son; Jóhanna Sólveig
Júlíusdóttir, f. 1.5.1961, býr með
Ólafi Þ. Hansen og eiga þau einn
son; Þórunn Júlíusdóttir, f. 1.7.1962,
d. 18.10.1964; Símon Þórir Júlíusson,
f. 12.4.1966, d. 17.5.1986.
Foreldrar Salvars em Júlíus Jóns-
son, f. 26.2.1920, bóndi og fyrrv.
hreppstjóri í Norðurhjáleigu, og
kona hans, Arndís Salvarsdóttir, f.
14.5.1929, ljósmóðir.
Ætt
Júlíus er sonur Jóns, oddvita,
hreppstjóra og alþingismanns í
Norðurhjáleigu, Gíslasonar, hrepp-
stjóra í Norðurhjáleigu, Magnús-
sonar, b. í Jórvik, Ólafssonar. Móðir
Jóns alþingismanns var Þóra Brynj-
ólfsdóttir, b. í Hraungerði og í
Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri,
Eiríkssonar, b. í Holti í Mýrdal,
Guðmundssonar, b. í Holti, Lofts-
sonar. Móðir Eiríks var Ástríður
Pálsdóttir. Móðir Brynjólfs var Þór-
hildur Gísladóttir, b. í Pétursey,
Guðmundssonar, og Jórunnar
Magnúsdóttur.
Ólafur Magnússon
Ólafur Magnússon húsasmíða-
meistari, Dalbraut20, Reykjavík, er
áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Kárastöðum í
Borgarhreppi í Mýrasýslu en ólst
upp hjá móðurforeldrum sínum í
Lækjarkoti í Borgarhreppi. Hann
lærði húsasmíðar hjá Áma Erasm-
ussyni, húsasmíðameistara í
Reykjavík, og lauk sveinsprófi frá
Iðnskólanum í Reykjavík 1930 en
meistararéttindi öðlaðist hann 1945.
Ólafur var búsettur á Akranesi á
árnnum 1932-42 þar sem hann
stundaði einkum smíðar. Hann
fluttist til Reykjavíkur 1942 og vann
þar við húsasmíðar þar til hann
hætti störfum 1984. Ölafur sá um
byggingu íjölda húsa í Reykjavík en
síðustu starfsárin vann hann við
Iðnskólann í Reykjavík.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 27.3.1931 fyrri
konu sinni, Valgerði Kaprasíusdótt-
ur, f. 12.5.1904, d. 23.1.1942, húsmóð-
ur. Hún var dóttir Kaprasíusar
Gunnarssonar og Guörúnar Jóns-
dóttur sem bjuggu á Leirá og síðar
áAkranesi.
Ólafur kvæntist 27.10.1945 seinni
konu sinni, Helgu Ástu Guðmunds-
dóttur, f. 5.6.1907, ljósmóður. Hún
er dóttir Guðmundar Jóhannssonar
og Jónínu Sólveigar Guðmundsdótt-
ur sem bjuggu á Þingvöllum í Helga-
fellssveit.
Böm Ólafs og Valgerðar eru Ólaf-
ur Alexander, f. 27.1.1931, málari
og múrari í Reykjavík, kvæntur
Maríu Gísladóttur og eiga þau fimm
böm og ellefu bamabörn; Katrín
Guðrún, f. 15.3.1932, húsmóðir á
Akranesi, gift Braga Magnússyni
húsasmíðameistara og eiga þau
fimm börn og átta barnaböm.
Dætur Ólafs og Helgu Ástu em
Sólveig Guðrún, f. 12.9.1946, fóstra,
gift Haraldi Tyrfingssyni flugvél-
stjóra og eiga þau fjögur börn og
eitt bamabarn; María Magnea, f.
1.2.1954, húsmóðir í Reykjavík, gift
Mámsi Guðmundssyni trésmið og
eiga þau tvær dætur.
Systkini Ólafs: Guðmundur, f.
13.10.1906, d. 15.2.1977; Magnús, f.
Ólafur Magnússon.
30.4.1909, d. 6.6.1977; Katrín, f. 28.5.
1911; Guðbjörg, f. 2.6.1914; Valgerð-
ur, f. 19.7.1916; Kjartan, f. 27.3.1921.
Foreldrar Ólafs voru Magnús Jó-
hannesson, f. 7.2.1882, d. 17.2.1970,
og María Ólafsdóttir, f. 3.11.1880,
d. 1.2.1969.
Ólafur og Helga munu taka á móti
gestum á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar að Vesturbergi 115 frá
klukkan 16.00 á afmælisdaginn.
ívarNielsson, ::::
Strandgötu8, Hvmnmstanga.
Dalatanga 6, Mosfellsbæ.
Grétar Hinriksson,
Grýtubaklca 14, Reykjavík.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Krossi, Hofshreppi.
Níels Unnar Hauksson,
Helgafelb 3, Mosfellsbæ.
Haraldur Stefónsson,
Skipasundi92, Reykjavík.
Björg Jónína Kristjánsdóttir,
Fossheiði 48, Selfossi.,
GarðarFinnbogason,
Miðvangi 41, Hafharfiröi.
Magnús Helgason,
Þrastanesi 17, Garðabæ.
70 ára
Kristinn Gunnarsson,
Stóragerði 9, Reykjayik.
Jón Vigfusson, ;
Lars Erik Bromell,
Grænukinn 18, Hafnarfirði.
Hólmfríður Pétursdóttir,
Vesturhólum 5, Reykjavik.
Svava Jónína Níelsdóttir,
Kirkj ubraut 43, Höfn í Hornafirði.
Guðrún Jósteinsdóttir,
Löngumýrill, Akureyri.
Stefán Rafnar Jóhannsson,
Bragagötu 30, Reykjavik.
Kristinn Jónsson,
Hjarðarhaga 26, Reykjavík.
Stanislav Mikulas,
Sunnubraut2, Keflavik.
ORÆNIt
SÍMINN
1
DV
-talandi,
dmmi um
þjónuatul >
99-6272
SMÁAUGLÝSINGA’
SÍMINN FYRIR
LANDSBYGGÐINA
Móðir Júlíusar var Þórunn, systir
Bjarna, föður Vilhjálms, stofnanda
og fyrrv. framkvæmdastjóra Kassa-
gerðar Reykjavíkur, föður fram-
kvæmdastjóranna Bjama og Hilm-
ars. Þómnn var dóttir Páls, b. í Jór-
vík, Símonarsonar, b. í Mosakoti,
Jónssonar, b. í Hlíð, Magnússonar.
Móðir Símonar var Guðríður Odds-
dóttir. Móðir Páls var Guðrún Páls-
dóttir. Móðir Þómnnar var Hildur
Runólfsdóttir.
Meðal systkina Arndísar er Sig-
ríður, húsfreyja í Vigur, móðir
Bjargar Bcúdursdóttur, skólastjóra
á ísafirði, Ólafía, prófastsfrú í
Vatnsfirði, og Hákon, hreppstjóri í
Reykjarfirði. Amdís er dóttir Salv-
ars, b. í Reykjarfirði við ísafjarðar-
djúp, Ólafssonar Jónssonar, b. í
Reykjarfirði. Móðir Ólafs var Evlal-
ía Kristjánsdóttir. Móðir Amdísar
var Ragnheiður Hákonardóttir
Magnússonar. Móðir Hákonar var
Bryndís, systir Ragnheiðar, móður
Jóns Leifs. Bryndís var einnig systir
Böðvars, föður Bjama hljómsveitar-
Salvar Júlíusson.
stjóra, föður Ragnars söngvara.
Annar bróðir Bryndísar var Þórður,
kaupmaður í Reykjavík, faðir Reg-
ínu leikkonu og Sigurðar tónskálds,
föður Þórðar, forstöðumanns
Reiknistofnunar bankanna. Brynd-
ís var dóttir Bjarna, b. á Reykhólum,
Þórðarsonar.
Meiming
Hugvitþarfvið
hagleikssmíðar
Út er komið sjötta bindi af safni til Iðnsögu íslendinga. Fyrsta bindið,
Eldur í afli, kom út 1987 og síðan hefur hvert bindið rekið annað. Öllum
bókum þessum er sameiginlegt að þær eru vel unnar að efni til og ekki
síður aö því er lýtur að bókagerð. Hver um sig varðveitir merka þætti í
iðnsögu okkar. Heimildasöfnun við rit sem þessi verður því erfiðari sem
lengur er látið dragast að skrá þær.
í aðfaraorðum segir ritstjórinn, Jón Böðvarsson: .. hefur heimilda-
söfnun verið torveld - einkum vegna þess hve eldri ritheimildir em rýr-
ar. Að venju varð að treysta á viötöl við reynsluríka heimildarmenn. Án
þeirra heföi ógerlegt oröiö að semja yfirlit það er nú birtist."
Höfundar þessa verks eru tveir. Ógmundur Helgason hefur ritað þáttinn
um söðlasmíði en Haukur Már Haraldsson hefur ritað þætti um vagna-
smíði, bifreiðasmíði, bílamálun, glerslípun og speglagerð auk þátta úr
sögu Félags bifreiðasmiða. ■
Aforsíðusegir: „Frættumfarar- n ' 1.., , ,•
tækiogferðabúnaðásamtkaflaum JjOKrnGrLintir
glerslípun og speglagerð." ________________________
Menntamálaráðherra ntar að- Quðmundur G. ÞÓrarínSSOn
faraorð og segir þar: „Allar íðn-
greinar, sem um er fjallað í þessari
bók, koma við sögu samgangna innanlands. Sameiginlegt er þeim einnig
að vera lítt kunnar framleiðslugreinar. Ein er af vettvangi horfin, önnur
virðist vera að hverfa en hinar stunda fáir. Hér sem víðast hvar þokar
tækniþróun handverki í hornkerlingarsess."
Kaflinn um söðlasmíði er tæpar 60 síður og mun aldrei áður hafa verið
birt hér á landi jafnítarlegt yfirlit um þessa iðngrein, hnakka-, söðla- og
aktygjasmíði. Um tíma virtist þessi iðngrein mjög á undanhaldi en síauk-
in hestaeign landsmanna hefur snúið þeirri þróun við.
Vagnasmíði eru helgaðar um 40 blaðsíður en sú iðngrein heyrir nú sög-
unni til, leið undir lok þegar bílaöldin gekk í garö.
Meginþáttur þessa sjötta bindis Iðnsögunnar er um bifreiðasmíðar en
ekki er langt síðan bifreiðasmíði var umfangsmikil atvinnugrein á ís-
landi, því áður fyrr var algengt að bílar kæmu hingað óyfirbyggðir.
Ágætir þættir eru um ryðbætur og réttingar, bólstrun, iðnfræðslu bif-
reiöasmiða, bílamálun, glerslípun og speglagerð, auk þátta úr sögu Félags
bifreiðasmiöa.
Áöur voru komnar tvær bækur um bifvélavirkjun í ritsafninu, Brotin
drif og bílamenn og Áfram veginn...
Bók þessi er prýdd mörgum ljósmyndum og teikningum sem ekki hafa
birst áður.
Bók sem þessi er mikilvæg varðveisla og björgun heimilda.
Sem fyrr segir eru heimildir um hina eldri iðnsögu óðum að glatast.
Byggt er á minni eldri manna. Meö þeim fellur í valinn og glatast þekk-
ing og reynsla, hluti ekki bara iðnsögunnar heldur íslandssögunnar.
Óðum myndast skörð sem erfitt verður að brýna úr.
Núlifandi íslendingar eru að rækja skyldur sínar við fortíðina og forfeð-
ur sína með ritun sögu sem þessarar. Hún segir sögu verkmenningar
þeirra sem viö erföum, lýsir starfi þeirra manna sem við stöndum á herö-
um.
„Að fortíð skal hyggja“ segir og vafalaust fylgir því hætta aö missa öll
tengsl við fortíðina, glata vitneskjunni um sögu og verkmenningu eldri
kynslóða.
VI. bindi Iðnsögunnar er fróðlegt og gagnlegt og verður að teljast vel
unnið.
Eins og menntamálaráðherra orðar það í sínum aðfaraorðum, höfundar
„hafa til bókar fært margvíslegan fróðleik og bætt merkum kafla við allt-
of lítt kunna atvinnusögu íslendinga."
Safn tll Iðnsögu íslendlnga, VI. bindi
Ritstjóri: Jón Böðvarsson
Höfundar: Haukur Már Haraldsson og Ögmundur Helgason
Hlð íslenska bókmenntafélag
446 blaðsiður