Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1993, Blaðsíða 20
32 FIMMTUDAGUR11. FEBRÚAR1993 Iþróttir Knattspyrna: Framarar verða lík- lega án Ríkharðs Daðasonar, sóknar- mannsins úr 21-árs landsliðinu, þegar íslandsmótið í knattspyrnu hefst í vor. Ríkharð- ur hefur átt við þrálát roeiðsli i hné að stríða frá síðasta sumri, var skorinn upp í Bandaríkjun- um fyrir áramótin og síðan aftur nu fyrir skömmu, en hann dvelur við nám þar vestra. Ríkharður verður í gipsi naestu víkurnar og talið er ólíklegt að hann verði búinn að ná nægilegum bata fyrr en í júní. -VS óheppinn ísfiröingarnir Amar Pálsson og Hlynur Guðmundsson urðu í 52. og 57. sæti í 10 kílómetra göngu á ólympíudögum æskunnar á It- aliu í gær. Arnar fékk tímann 52:23,1 mín og Hlynur 53:53,6 min. í stórsvigi féllu þeir GísU Már Helgason og Bjarmi Skarphéðins- son í brautinni og duttu þannig úr keppni. Gísli Már var í 36. sæti af 74 keppendum eitir fyrri ferð og með 10. besta millitíma í síðari ferðinni en féU þegar hann átti skammt eftir í markið. -GH FatSaðirtiS Malntö Á morgun halda 55 fatlaðir is- lenskir íþróttamenn til keppni á Malmö-open, stórmótinu árlega sem frarn fer i Sviþjóð um helg- ina, Þar af eru 43 frá ÍFR, 9 frá Ösp, 2 frá Suðra og einn frá Nesi. íslendingarnir keppa í boccia, borötennis, bogfimi, keilu og sundi, og nánast ailt fremsta íþróttafólk landsins í þessum greinum tekur þátt í mótinu. -VS Egerbestur - segir kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson Svo virðist sem kanadíski sprett- hlauparinn Ben Johnson sé loks að rétta úr kútnum eftir að hann var laus úr tveggja ára keppnisbanni vegna lyfjaneyslu á Ólympíuleikun- um í Seoul 1988. Á dögunum sigraði Johnson í 50 metra hlaupi á móti í Frakklandi 'og náði besta tíma þessa árs, hljóp á 5,65 sekúndum. Johnson var kokhraustur eftir hlaupið og sagði í viðtaU við franska blaðið l’Ecuipe: „Enn á ný er ég orð- inn sá besti. Þetta veit fólkið, þaö elskar mig og segir mér að ég sé sá besti. í Toronto stöðvar fólk mig á götu og segir: Vertu hugrakkur og haltu sjálfstraustinu. Við styðjum þig heUshugar. Fólkið trúir því enn á mig.“ „Nú er ég aftur kominn í forystuhlutverkið“ Tími Johnsons í Frakklandi var 1/10 úr sekúndu lakari en hann á best en hann hljóp á 5,55 sekúndum 1987. Þrátt fyrir það eru margir þeirrar skoðunar að hann sé líklegur til af- reka og jafnvel sigurs á HM innan- húss í heimabæ sínum í Kanada, Toronto, í næsta mánuði. „Síðan 1991, þegar ég var laus úr keppnis- banninu, hef ég aHtaf staðið í skugga annarra spretthlaupara. Nú er ég hins vegar kominn í forystuhlut- verkið á ný. Þetta er eins og í gamla daga. Og þessa stöðu hefur mig lengi dreymt um. Eg hef hins vegar lagt afar hart að mér við æfingar undanf- arið til að ná þessari stöðu.“ „Tala við þá sem vilja tala við mig“ Ben Johnson sagði þegar hann var spurður um áHt annarra íþrótta- manna á sér eftir hneyksUð í Seoul: „Ég tala við þá sem vilja tala við mig. Ef þeir vilja ekki tala viö mig þá tala þeir ekki. Það er ekki mitt vandamát.“ Sigraði og meiddist Ben Johnson sigraði í 50 metra hlaupi í Belgíu í gærkvöldi og meidd- ist á ökla. Eftir hlaupið sagðist hann vonast til að meiösUn væru smá- vægileg en engu að síður yrði hann aö láta lækni athuga máHð. -SK Ben Johnson á heimleið ásamt systur sinni eftir ólympíuleikana í Seoul. Nú segist hann vera bestur á ný. Símamynd Reuter David Moores, stjómarformaður hjá Liverpool: Styðjum þjálfarann Afar slakt gengi enska stórHðsins Liverpool í ensku knattspyrnunni í vetur hefur vakið mikla athygli og nú má ljóst vera að þeir titlar, sem í boði eru, munu renna félaginu úr greipum. Reyndar er og hefur Li- verpool ekki verið nálægt því að vinna stór afrek sem oft áður. Þeir eru því margir sem telja að farið sé að hitna óþægilega undir Graeme Sounness, framkvæmdastjóra hðs- ins, en svo ku ekki vera. Liverpool er sem stendur í 13. sæti í ensku úrvalsdeiidinni en þar leika 22 lið. Liverpool er tæpum 20 stigum á eftir topphði Manchester United og reyndar mun nær fahsvæðinu en toppsvæðinu. Allt bendir því til þess að Liverpool komist ekki í Evrópu- keppni í fyrsta skipti frá árinu 1964. Þátttaka hðsins í bikarkeppninni fékk skjótan endi en 2. deildar hð Bolton sló liðið út með eftirminnileg- um hætti. David Moores, stjómarformaður Liverpool, sagði í gær: „í augnabhk- inu höfum vlð ákveðið að halda ró okkar og standa við bak þjálfarans og leikmannanna. Við viljum gera aht sem við getum til að sigrast á þeim erfiðleikum sem við er að glíma í dag.“ Moores gat þó ekki leynt vonbrigð- um sínum með gengi Liverpool: „Það að Liverpool skuh vera um miðja deild og úr leik í þremur stórum keppnum er algerlega óviðunandi fyrir félag eins og Liverpool. En við í stjórn félagsins erum alhr meðvit- aðir um að nú era ekki tímar til að flanaaðneinu." -SK HMáskíöum: brotin Kanadíska stúlkan Kate Pace vann óvæntan sigur í bruni kvenna á heimsmeistaramótinu í Morioka í Japan í morgun. Pace, sem hafði aldrei náð ofar en í Qórða sæti á stórmóti, handar- brotnaði fyrir skömmuen lét það ekki stöðva sig. Astrid Loedemel, nýhði frá Noregi, kom líka mjög á óvart með þvi að hreppa annað sætiö og flölga enn verðlaunapeningum Norðmanna á mótinu. Anja Haas frá Austurríki varð þriðja en eng- inn verðlaunahafanna hafði áður keppt á heimsmeistaramóti. Urs læhmann frá Sviss sigraði í bruni karla í morgun, Atle Skárdal frá Noregi varð annar og A.J. Kitt: frá Bandarikjunum -VS Alfreð Gíslason, þjáliári og leik- maður KA í handknattleik, hefur fengið tilboð um aö þjálfa sitt gamla félag í Þýskalandi, stórlið- ið Tusem Essen. Morgunblaðið skýrði frá þessu í morgun og í viðtah við blaðið segir Alfreð að tilboðið kitli óneitanlega en hann hafi mikinn áhuga á að bygga uppsterktliðhjáKA, -VS hjá Sievinen Finnski sundmaðurinn Jani Sievinen er óstöövandi þessa dag- ana. í gær setti hann enn eitt heimsmetiö, nú í 200 metra tjór- sundi í 25 metra laug á heimsbik- armóti í Malmö. Sievinen synti á 1:55,59 mínútum og bætti sitt eígið met sem hann setti í París síðasta sunnudag. -GH Fær LHhái kennir list- hlaup hjá Birninum Á dögtmum gekk Skautafélagið Björninn í Reykjavík frá ráðningu á mjög hæfum þjálfara til starfa hjá félaginu. Þar er á ferðinni Mi- roslava Zacharevic frá Litháen og kom hún til landsins fyrir skömmu. Miroslava er 32 ára, er íþrótta- menntuð í hsthlaupi á skautum sem sérgrein og hefur réttindi sam- kvæmt alþjóðlegum staðh til að mennta þjálfara. Miroslava hefur kennt þessa íþrótt í 11 ár í heima- landi sínu og þykir vera einn af fremstu þjálfurum í Litháen. Nýjar aðferðir í þjálfun Að sögn Helgu Sigþórsdóttur hjá Skautafélaginu Biminum hefur Miroslava innleitt nýjar aðferðir varðandi þjálfun. Nú eru krakk- amir ekki lengur settir beint á ís- inn heldur fá aha grunnþjáifun og undirbúningsþjálfun í íþróttasal. Eftir að hafa verið í salnum í ein- hvem tíma fer Miroslava með krakkana út á ísinn og lætur þá skauta, en aldrei lengur en í 30 mínútur í senn. Nokkuð hafði borið á meiðslum hjá krökkunum sem stunduðu þessa íþrótt og var ástæðan tahn vera sú aö ekki hefði verið rétt staðið að þjálfuninni. Skautafélagið Bjöminn lagði það til við íþrótta- hreyfinguna að fenginn yrði til landsins erlendur þjálfari tíl að ryðja brautina og leggja gmnn að íþróttinni. Sigurður Magnússon hjá ÍSÍ gerði fyrirspum til htháiska íþróttasambandsins og úr varð að Miroslava kom til landsins. „Ég teldi æskilegt að fleiri félög tækju upp svipaöar aöferðir og Miroslava hefur innleitt hér á landi," sagði Helga í samtah við DV. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fá jafn hæfan og góðan þjálfara og Miroslava er. Það und- irstrikar hversu nauðsynlegt er í vanþróaðri íþrótt eins og hsthlaup er hér á landi að hafa reyndan þjáifara sem getur séð og metið ein- stakhnga sem geta náð frama í íþróttinni," segir Helga ennfrem- ur. Leikskóli fyrir þá yngstu Að sögn forráðamanna Bjamarins er fyrirhugað að stofnsetja leikskóla fyrir börn frá 5 ára aldri þar sem kennsla fer fram einu sinni í viku enn fyrir eldri böm og þá sem lengra eru komnir verða æfingar oftar í viku. Miroslava eða Miro eins og hún er kölluð segir að mikil áhersla verði lögð á að koma krökkunum af stað í leikfimisalnum. Æfingamar í leikfimisalnum em undirstaðan fyrir íþróttina og þar öðlast krakk- amir þor th að framkvæma hinar ýmsu kúnstir á svellinu. Þetta er íþrótt sem krefst mikihar og góðrar þjálfunar. í hsthlaupi reynir á vöðva sem við notum aldrei nema á skaut- um og uppbyggingin er mjög svipuð og fyrir klassískan bahett,“ segir Miroslava en hún var á sínum yngri árum í mjög frægum bahettdans- flokki í Litíiáen. Þeim sem em með fyrirspumir og vhja innrita sig er bent á að hafa sambandísíma 73349. -GH Miroslava Zacharevic tekur nokkur spor á ísnum. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.