Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1993, Blaðsíða 30
42
FIMMTUDAGUR11. FEBRÚAR1993
Afmæli
Þórir ísfeld
Þórir ísfeld, deildarfulltrúi hjá
Hitaveitu Reykjavíkur, aö Leiru-
bakka 12, Reykjavík, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Þórir fæddist á Neskaupstað og
ólst þar upp til sautján ára aldurs.
Þá flutti hann til Reykjavíkur,
stundaði leiktjaldasmíðar við Þjóð-
leikhúsið í tvö og hálft ár og var
jafnframt sýningarstjóri hússins í
eitt ár. Þórir stundaði verslunar-
störf um skeið en ók síðan strætis-
vagni hjá SVR til 1974. Þá hóf hann
störf hjá Hitaveitu Reykjavíkur þar
sem hann hefur verið deildarfull-
trúisíðustu árin.
Þórir sat í fulltrúaráði Starfs-
mannafélags Reykjavikurborgar í
sex ár. Hann sat í stjórn Starfs-
mannafélags Hitaveitunnar og var
formaður þess í eitt ár.
Fjölskylda
Þórir kvæntist 1959 Torfhildi
Ragnarsdóttur, f. 1939, starfsmanni
við Landsbanka íslands, en þau slitu
samvistum 1979. '
Dóttir Þóris og Torfhildar er Ás-
gerður ísfeld, f. 10.8.1957, húsmóðir
á Akranesi, gift Teiti Stefánssyni
framkvæmdastjóra og eiga þau tvö
börn, Fríöu og Ragnar.
Alsystir Þóris er Ólafía ísfeld, f.
1928, húsmóðir i Kópavogi.
Hálfsystkini Þóris: Jóna Sigríður
Jónsdóttir, f. 1939, starfsmaður
Hitaveitu Reykjavíkur, og Guð-
mundur Jónsson, f. 1941, d. 1992,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Þóris voru Jón ísfeld, f.
1890, d. 1935, kaupmaður á Neskaup-
stað, og kona hans, Ásgerður Guð-
mundsdóttir, f. 1907, d. 1986, hús-
móðir á Neskaupstað og síðar
starfsmaður við Laugavegsapótek i
Reykjavík.
Ætt
Bróðir Jóns ísfeld var Kristján
faðir Jóns ísfeld, prests og rithöf-
undar. Jón var sonur Guðmundar,
b. á Hesteyri, hálfbróður Guðlaugar,
ömmu Guðmundar Sveinssonar,
skólameistara FB. Guðmundur var
sonur Guðmundar, b. á Ekkjufelli,
Sturlusonar, b. á Ekkjufelli, Stef-
ánssonar, b. á Þverhamri, Magnús-
sonar, bróður Sigríðar, langömmu
Önnu, langömmu Þórbergs Þórðar-
sonar, og langömmu Þorbjargar,
langömmu Davíðs, fyrrv. seðla-
bankastjóra, fóður Ólafs, ráðuneyt-
isstjóra forsætisráðuneytisins.
Móðir Guðmundar á Hesteyri var
Anna Jónsdóttir, b. á Urriðavatni,
Árnasonar. Móðir Jóns ísfeld var
Þórunn Pálsdóttir ísfeld, snikkara á
Lambeyri í Reyöarfirði, Eyjólfsson-
ar ísfeld skyggna, snikkara á
Syðra-Fjalli, langafa Jóhönnu,
langömmu Vals Arnþórssonar
bankastjóra. Móðir Þórunnar var
Gróa Eiríksdóttir, b. á Egilsstöðum,
bróður Kristínar, ömmu Sigfúsar
Sigfússonar þjóðsagnasafnara og
langömmu Eysteins, fyrrv. ráð-
herra og dr. Jakobs prests, fóður
rithöfundanna Jökuls og Svövu. Ei-
ríkur var sonur Jóns, prests í Valla-
nesi, bróður Sturlu á Ekkjufelli.
Móðir Eiríks var Þóra Stefánsdóttir,
skálds í Vallanesi, Ólafssonar,
skálds á Kirkjubæ, Einarssonar,
skálds í Eydölum, Sigurðssonar.
Ásgerður var dóttir Guðmundar,
smiðs í Steinholti í Borgarfirði
eystra, bróður Guðmundar, refa-
skyttu á Ingjaldssandi. Systir Guð-
mundar var Helga, fyrri kona Sig-
urðar bókbindara, fóður Helga Sig-
urðssonar hitaveitustjóra. Guð-
mundur var sonur Einars, b. á
Heggsstöðum í Andakíl, Guðmunds-
sonar Vestmann, b. á Háhóli á Mýr-
um, Ólafssonar. Móðir Einars var
Helga, systir Sigurðar, afa Helga
Hjörvar. Helga var dóttir Horna-
Salómons, Bjarnasonar. Móöir Guð-
mundar var Steinþóra Einarsdóttir,
b. í Tjamarhúsum á Seltjarnarnesi,
bróður Solveigar, móður Kristins í
Engey, langafa Bjarna Benedikts-
Þórir ísfeld.
sonar forsætisráðherra og Guðrún-
ar, konu Jóhannesar Zoga hita-
veitustjóra. Einar var sonur Korts,
óöalsb. á Möðmvöllum í Kjós, Þor-
varðarsonar. Móðir Steinþóru var
Guðrún Gísladóttir, b. á Seljalandi,
Jónssonar og Sigríðar Lýðsdóttur,
sýslumanns í Vík, Guðmundssonar.
Móðir Ásgerðar var Sigríður
Bjarnadóttir, b. á Hofi í Dýrafirði,
Björnssonar og Valgerðar Þor-
steinsdóttur, prests á Stað á Snæ-
fjallaströnd, Þórðarsonar.
Þórir er að heiman á afmælisdag-
inn.
Dagbjört Jóna
Guðmundsdóttir
Hrefna Stefánsdóttir,
Vesturgötu 22, Reykjavik.
Dagbjört Jóna Guðmundsdóttir,
Furugmnd 20, Kópavogi, er fimm-
tugídag.
Starfsferill
Dagbjört fæddist í Vogum á Vatns-
leysuströnd og ólst þar upp til sext-
án áraaldurs.
Hún stundaði nám í Héraðsskól-
anum á Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp árið 1957-58 en fluttist ári síðar
til Reykjavíkur og bjó þar til ársins
1966.
Þá flutti Dagbjört til Grundar-
fjarðar og bjó þar næstu átján árin.
Árið 1984 flutti hún svo í Kópavog-
inn þar sem hún býr í dag.
Dagbjört hefur því starfað víða,
m.a. við fiskvinnslu, á vöggustofu
Thorvaldsens 1964-65, á Hótel Óð-
insvéum 1985-88, og við heimilis-
hjálp frá 1988.
Fjölskylda
Dagbjört giftist 16.11.1968 Ágústi
Siguijónssyni, f. 7.7.1925, d. 24.12.
1982, bifreiðarstjóra frá Norður-Bár
í Eyrarsveit. Hann var sonur Sigur-
jóns Halldórssonar, skipstjóra og
útgerðarmanns í Grundarfirði, og
Bjargar Hermannsdóttur húsmóð-
ur.
Börn Dagbjartar og Ágústs eru:
Björg, f. 24.3.1968, nemi, í sambúð
meö Hermanni Gíslasyni; Stein-
þóra, f. 21.12.1969, í sambúð með
Sverri Ingimundarsyni matreiðslu-
manni og eiga þau Ágústu, f. 1988,
og Ingimund Sigurð, f. 1992; Dagný,
f.5.8.1981.
Hálfsystkini Dagbjartar, sam-
mæðra, eru: Ragnheiður Gróa
Vormsdóttir, f. 18.9.1922, d. 4.9.1987;
Guðrún Elísabet Vormsdóttir, f.
23.2.1926; og Þórður Óskar Vorms-
son, f. 28.7.1936.
Fóstursystkini Dagbjartar eru:
Þorbjöm Eiríksson, f. 7.6.1932;
Gunnhildur Eiríksdóttir, f. 16.8.
1941; Guöný Eiríksdóttir, f. 16.8.
1941; og Pétur Sigurðson, f. 10.7.
1949.
Foreldrar Dagbjartar voru Guð-
mundur Sæmundsson, f. 8.4.1892,
d. 26.10.1953, og Steinþóra Bjarndis
Guðmundsdóttir, f. 8.12.1901, d.
Dagbjört Jóna Guðmundsdóttir.
31.12.1951. Þau bjuggu í Vogum á
Vatnsleysuströnd.
Fósturforeldrar Dagbjartar eru
Hulda Dagmar Þorbjörnsdóttir, f.
14.3.1910, og Eiríkur Kristjánsson,
f. 25.12.1904, d. í apríl 1979, vélstjóri.
Dagbjört tekur á móti gestum í sal
Trésmiðafélags Reykjavíkur, Suð-
urlandsbraut 30, H. hæð, eftir kl. 20
fóstudaginn 12. febrúar.
Garðar Tryggvason
Garðar Try ggvason, starfsmaður
Vestmannaeyjabæjar, Miðstræti 15,
Vestmannaeyjum, varð sextugur í
gær, 10. febrúar.
Starfsferill
Garðar fæddist í Eyst'ri-Vestur-
húsum í Vestmannaeyjum og ólst
upp í Vestmannaeyjum. Hann lauk
skyldunámi og fór að því loknu út
ávinnumarkaðinn.
Þar starfaði hann meðal annars
við fiskvinnu í landi og stundaði sjó-
mennsku. Garðar starfrækti einnig
smurstöð í ein níu ár en síðustu
tuttugu árin hefur hann verið
starfsmaður hjá Vestmannaeyjabæ.
Fjölskylda
Garðar kvæntist 27.12.1954 Kol-
brúnu Huldu Siguijónsdóttur, f. 25.2.
1936, sem starfar við aðhlynningu
aldraðra að Hraunbúðum í Vest-
mannaeyjum. Hún er dóttir Sigur-
jóns Halldórssonar bifvélavirkja frá
Hallbjamarstöðum á Tjömesi og Sig-
ríðar Friðriksdóttur frá Gröf í Vest-
mannaeyjum. Þau em bæði látin.
Fósturfaðir Kolbrúnar var Vil-
hjálmur Sigtryggsson útgerðarmað-
ur frá Ytra-Álandi í Þistilfirði sem
nú er látinn. Fósturmóðir hennar er
Kristrún Jóhannsdóttir frá Skálum
á Langanesi. Þau bjuggu á Þórshöfn.
Garðar og Kolbrún eiga fimm
böm. Þau eru: Tryggvi Friðrik, f.
20.2.1955, bifvéla- ogflugvirki, var
kvæntur Huldu Rúnarsdóttur, þau
skildu og eiga þau Kolbrúnu Huldu,
f. 25.2.1975, Þómnni, f. 23.10.1976
og Rúnar, f. 14.8.1980. Núverandi
sambýliskona Tryggva er Hjördís
Árnadóttir frá Borgamesi; Valgeir
Öm, f. 20.8.1957, garðyrkjumaður,
ókvæntur og bamlaus; Jóna Ósk, f.
3.3.1959, sjúkraliði, í sambúð með
Ágústi Guðmundssyni úr Reykjavík
og eiga þau Garðar Óla, f. 8.7.1992;
Vilhjálmur Kristinn, f. 3.9.1960, off-
setprentari, kvæntur Ólöfu Lofts-
dóttur og eiga þau Daða, f. 30.9.1991.
Fyrir átti Vilhjálmur Jennýju Huld,
f. 2.3.1990, með Maríu Gylfadóttur;
og Siguijón Ingi, f. 16.7.1970, nemi.
Alsystkini Garðars em: Ólafur, f.
20.2.1932; Guðrún Jóna, f. 6.12.1936;
Svanhvít Inga, f. 13.11.1938. Hálf-
systkini Garðars em: Ásta Gréta
Samúelsdóttir, f. 20.1.1949; Tryggvi
Samúelsson, f. 16.2.1952; Bjarni
Samúelsson, f. 3.8.1956. Fóstursyst-
ur Garðars em: Jenný Samúelsdótt-
ir, f. 23.2.1936; Hulda Samúelsdóttir,
f. 30.10.1937.
Faðir Garðars var Tryggvi Ingv-
arsson, f. 24.1.1910, d. 1945, bifreiða-
stjóri. Móðir Garðars er Jóna
Sveinsdóttir, f. 6.5.1912. Seinni mað-
ur hennar er Samúel Yngvarsson,
f.7.9.1908.
Ragnar Snjólfsson,
Tiaraarbrú 14, Höfn i Homafirði.
Jón Stefánsson,
dvalarheimilinu Skjaldarvík,
Glæsibæjarhreppi.
Sigrún Guðmundsdóttir,
Víðimel 30, Reykjavík.
Sigríður Þorláksdóttir,
Skipasundi 69, Reykjavík.
Emil Gunnlaugsson,
Suðurbrún 6, Hmnamannahreppi.
Ágústa Lúðvíksdóttir,
Lundarbrekku 8, Kópavogi.
Guðmundur Theodór Antonsson,
Hlíðarhjalla 45, Kópavogi.
Ásdís Pedersen,
Deildartúni 4, Akranesi.
Þórhildur Guðmundsdóttir,
Dísarási 13, Reykjavík.
70 ára
Ingibjörg Ingimundardóttir,
Norðurgarði 7, Keflavík.
Ingibjörg verður erlendis á afinæl-
isdaginn.
AxelEiríksson,
Hraunbæ 50, Reykjavík.
60ára
ÖrnReynir
Levísson,
Hringbraut76,
Hafnarfirði.
EiginkonaArn-
arerÁsdís
RagnaValdi-
marsdóttir. Þau
verða að heim-
anáafmælisdaginn.
40 ára
Margrét Þorbjörg Johnson,
Ánalandi 6, Reykjavík.
Þorsteinn Snædal,
Sólheimum23, Reykjavik.
Patricia M. Guðmundsson,
Heiðargerði 76, Reykjavík.
Hafliði Heigason,
IðufellilO,
Reykjavík.
Eiginkona
HafliðaerBar-
baraHelgason.
Þauverðaað
heimanáaf-
mælisdaginn.
ÁskellBjarni Fannberg,
Klausturhvammi 11, Hafharfirði.
Bridge
íslandsmót kvenna í sveitakeppni
Helgina 27.-28. febrúar verða undanúrslit í íslandsmóti kvenna spiluð
í Sigtúni 9. Skráning er hafin á skrifstofu BSÍ og keppnisgjald er 10 þús-
und á sveit. Spílað verður í riðlum, allir við alla og fer fjöldi sveita í riðli
og spilafjöldi eftir þátttöku. Tvær efstu sveitimar úr hverjum riðli kom-
ast síðan í úrslit sem spiluð verða helgina 13.-14. mars.
Bridgefélag Reykjavíkur
Þátttakan í aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur er með miklum
ágætum, alls 24 sveitir. Lokið er einu kvöldi og tveimur umferðum, en
spilað er eftir Monrad-kerfl. Staðan er nú þessi:
1. Hrannar Erlingsson 48
2. Gísli Tryggvason 46
2. Tryggmgamiðstöðin 46
4. Landsbréf 44
5. Gunnlaugur Kristjánsson 38
5. Jón Hersir Eliasson 38
7. Sigurður P. Hauksson 37
8. Ásmundur Ömólfsson 35 -ÍS