Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR1993
Fréttir
Kristjáni Jóhannssyni vel fagnað eftir frumraunina í Metropolitan:
Það erfiðasta sem
ég hef gert hingað til
sagði Kristján í hópi fjölmargra landa að vel heppnaðri sýningu lokinni
Airna Th. Pálmadóttir, DV, New York:
„Ég er mjög ánægöur með sýning-
una og eigin frammistöðu. En þetta
er það erfiðasta sem ég hef gert hing-
að til,“ sagði Kristján Jóhannsson
óperusöngvari að lokinni frumraun
sinni á sviði Mertopolitan óperunnar
í New York í gærkvöldi.
Á göngum hússins fyrir sýningu
hljómuðu íslenskar raddir úr hveiju
horni, margir komnir langt að til að
hiusta á Kristján Jóhannsson. Þar
voru fjölmargir vinir og aðdáendur
Kristjáns auk fjölmiðlafólks frá nær
öllum fjölmiðlum heima.
Líst bara
Ijómandi á soninn
Við fengum að heimsækja Kristján
í búningsherbergið, merkt meistar-
anum. Þar var hann ásamt Sigurjónu
Sverrisdóttur, eiginkonu sinni og
Fanneyju Oddgeirsdóttur, móður
sinni, að fagna að leikslokum. Fyrir
utan beið hópur vina, tvær systur
Kristjáns, tengdaforeldrar og aðdá-
endur sem óska vildu Kristjáni til
hamingju.
Aðspurð um álit á sýningunni sagði
Fanney, móðir Kristjáns: „Ja, mér
líst bara ljómandi vel á soninn." í
þakklætisskyni smellti Kristján ein-
lægum kossi á kinn móður sinnar.
í stuttu samtali vil Egil Jónsson og
Herdísi Júlíusdóttur, vinafólk Kristj-
áns, sögðust þau hafa hlustaö á hann
syngja víða um heim og að þessi sýn-
ing hefði sannarlega jafnast á við það
semJKristján hefði gert best á óperu-
sviðinu hingað til.
Sendiherrann í Moskvu
kom á sýninguna
Ólafur Egilsson, sendiherra í
Moskvu og kunningi Kristjáns,
hlustaði á Kristján fyrst þegar hann
söng í Scalaóperuni í Mílanó og kom
nú alla leið frá Rússlandi til New
York til að fá að heyra í Kristjáni í
Metropolitan. Ólafur lofaði mikið
sýninguna og söng Kristjáns og sagði
houm hafa farið mikið fram frá
fyrstu Scalasporunum.
Krlstján Jóhannsson fyrir utan
Metropolitan óperuna.
Úr óperunni var svo haldið yfir á
Plaza hótel sem er eitt finasta hótel
New York borgar og í eigu Donalds
Trump. Þar hafði verið undirbúin
veisla til heiðurs Kristjáni í boði ís-
lenska útvarpsfélagsins.
Veislugestir voru, auk fjölskyldu
Kristjáns og Siguijónu, Hörður Sig-
urgestsson og Áslaug Þorbjörg Ottes-
en, kona hans. Ólafur Egilsson sendi-
herra í Moskvu og Páll Dungal í
Pennanum. Ingvi Hrafn Jónsson
fréttastjóri og Ragnheiður Sara, kona
hans, og Jón Ólafsson hjá íslenska
útvarpsfélaginu.
Sigurður Demetz
„sökudólgurinn“
Þá kom til New York af þessu til-
efni Sigurður Demetz Franzson,
óperusögnvari og fyrsti kennari
Kristjáns. Sigurði var vel fagnað og
kallaði Kristján hann „sökudólginn“
því það væri Sigurði Demetz að
„kenna“ að hann hefði lagt út á söng-
brautina.
Kristján tók til máls í samkvæminu
klökkur af þakklæti og lofaði að
halda áfram á sömu braut og helst
að gera betur.
Kjarasamningarmr:
Efasemdir um samflot
launþegasamtakanna
- efastumdagsetningaráátökum
Það sem vefst nú fyrir ASI-mönn-
um, ef samflot á að vera með BSRB
og öðrum, er aö þá er búið að setja
fram dagsetningar á átök, ASÍ gæti
verið að dragast aftur úr. Ef atvinnu-
rekendum og stjómvöldum er ein-
hver akkur í því að semja, vilji
semja, þá verði þeir að fara að spila
einhveiju út strax, að öðrum kosti
verði þeir að bara að semja við BSRB.
Felli BSRB verkfallsboðun sé máhö
búið fyrir alla, þá verði erfitt að halda
dampi og ef þeir samþykkja og ASÍ
ætli aö bíða og sjá hvað setur þá geti
verið alltof stuttur tími til stefnu fyr-
ir ASÍ til að gera nokkum skapaðan
hlut. Og þegar verkfall BSRB er
skollið á þá verði engin samninga-
vinna í gangi. Því séu það hagsmunir
allra að einhveijar viðræður fari af
stað strax. Sumir segja að það sé
ekkert mál að semja við ASÍ því þeir
séu svo Ijúfir og góðir og leyfa hinum
að fara í verkfall.
Þetta ræða ASÍ-menn nú í sínum
hópi. Þeir verkalýðsforingjar sem
DV hefur rætt við telja að ipjög vafa-
samt sé fyrir launþegasamtökin að
vera í samfloti. Bæði vegna þess sem
að framan segir og eins vegna þess
að áherslur ASÍ annars vegar og
BSRB og kennara hins vegar á kröfur
em nokkuð ólíkar.
Ari/S.dór
Eldur í undirgöngum
í Hamraborg
Kveikt var í msh í geymslu í
undirgöngunum undir skiptistöð-
inni í Kópavogi að morgni sunnu-
dags. Slökkvihð kom á vettvang og
gekk greiölega að slökkva eldinn.
Geymslan er lokuð meö flekahurð
og henghás sem auðvelt er aö
sparka upp. í geymslunni átti leik-
félagið og bærinn dót sem ekki er
telst verðmætt.
JJ
Fór betur en á horf ðist
Sjö ára telpa varö fyrir bíl á Fríkirkjuvegi rétt fyrir hádegi í gær. Farið var
með stúlkuna á slysadeild en meiðsli hennar voru talin minni háttar. Á
myndinni er vinkona hennar að hiúa að henni og sjúkraliðar að mæta á
staðinn. DV-mynd Sveinn
Ágreiningur milli BSRB og ASÍ um áherslur í kjaradeilunni:
Kemur til greina að falla frá launahækkun
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sem vill samstöðu
„Kaupmátturinn nú ræðst af því
að launin hafa staðið í stað en út-
gjöldin hafa hækkað. Ef tekst að
tryggja að útgjöldin fari niöur hefur
takmarkinu verið náð með öðrum
hætti en launahækkunum og auðvit-
að munum við una við það því það
er takmark okkar að standa vörð um
kaupmátt kauptaxtans. Viö viljum
ná samstöðu með ASÍ um að standa
vörð um kauptaxtana og um það vel-
ferðarkerfi sem nú er vegið að,“ seg-
ir Ögmundur Jónasson.
í málflutningi Ögmundar Jónas-
sonar, formanns BSRB, og Benedikts
Davíðssonar, forseta ASÍ, síöustu
daga hefur komið í Ijós ijokkur.
ágreiningur um áherslur í samn-
ingamálum og hefur BSRB fram að
þessu lagt meiri áherslu á að standa
fast á kröfunni um 5% launahækk-
un. ASÍ hefur verið opnara fyrir að
ná kaupmættinum upp með öðrum
leiðum svo sem skattalækkunum eða
öðrum tilfærslum. Spumingin sé
ekki um taxtahækkun heldur kaup-
mátt. Nokkur ágreiningur er einnig
innan ASÍ um hversu mikið samflot
á að vera með BSRB. Innan Verka-
mannasambandsins er mestur áhugi
fyrir því að fara í samflot með BSRB.
-Ari
Stuttar fréttir
Framkvæmdastjórn EB boöar
neyöaiTáðstafanir til að koma í
veg fyrir hrun sjávarútvegs að-
ildarlanda vegna offramboðs
ódýrs fisks frá Rússlandi, Noregi
og ísiandi Davíð Oddsson sagði
á Stöö tvö að ólíklegt væri að inn-
flutrúngshöft yrðu sett á íslensk-
an fisk.
HIK og samninganefhd ríkisins
undirrituðu kjarasamning sl.
fóstudagskvöld sem er á sömu
nótum og miðiunartillaga rikis-:
sáttasemjara frá því fyrir ári.
Samningurinn gildir til næstu
mánaöamóta. Líkur eru á að
BHMR geri svipaðan sámning.
íslenskir útflytjendur á fersk-
um þorski og ýsu fengu helmingi
lægra verð í Bretlandi í síðustu
viku en fyrir mánuði. Þýskur tog-
ari selur afla sinn hér á landi í
dag í fyrsta sirni í áratugi.
TýrtekurHrönn
Varðskipið Týr stóð í gær vél-
bátinn Hrönn EA á meintum
ólöglegum veiðum.
Hagfræðingur ASÍ sagöi á Stöð
tvö að reglur um staögreiðslu
skatta 14 þúsund sjálfstæðra at-
vinnurekenda hvettu til viöleitni
þeirra til að borga sem minnstan
tekjuskatt eftir á.
LagthaWá20kító
Lögreglan hefur ekki áöur lagt
hald á jafn mikiö magn fíkniefna
og á síðasta ári, eöa yfir 20 kíló.
Sterkari efhi eru mjög að ryðja
sér rúms, sagði i frétt Stöðvar tvö.
Farmenn viija itteffa
Farmanna- og fiskimannasam-
bandið vill hærra fiskverð og at-
vhmuöryggi farmanna í komandi
kjarasamningum.
Sjónvarpiö greindi frá að bú-
stjórum þrotabús EG hafa borist
erindi um leigu á rækjuverk-
smiðju og togunun fyrirtækisins.
Ákvörðun um togarasölu verður
tekin í vikunni.
Morgunblaöíð*segir frá því að
Verðlagsstofhun teljí íslenskar
ferðskrifstofur hafa haft ólöglegt
samráð um upphæð forfalla-
tryggingar og afslátt á þeim. Auk
þess sé ekki hægt aö skylda fólk
til að greiða forfallagjald.
Ólafur Skúlason, biskup is-
lands, er nú staddur í Færeyjum
í boði Færeyjabiskups. Heim-
sóknin er í tengslum við íslands-
daga í Norræna húsinu í Þórs-
höfh.
-Ari
Núloönuganga:
Hólmaborgin
með1300
tonntil
EskHjarðar
Hólmaborgin, sem er stærsta
loðnuveiðiskip flotans, kom síðdegis
í gær með mikinn afla til Eskifjarðar
eða 1300 tonn af loðnu sem fékkst
skammt undan Stokksnesi. Setja átti
100 til 200 tonn í frystingu en hiitt fer
í bræðslu. Þrær á IJskifirði eru stút-
fullar um þessar mundir.
Jón Kjartansson fann loðnuna í
fyrradag á svæðinu við Stokksnes en
lítið hafði veiðst í nokkra daga. Nú
eru allmörg loðnuskip á svæðinu. Jón
Kjartansson sigldi með loðmma til
Færeyja en þar vonast menn til að fá
hærraverðenhérlendis. -Ari