Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Side 4
4
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR1993
Fréttir
„Þá veistu svarið“ sigraði 1 Söngvakeppni Sjónvarpsins:
Nú hefst vinnan við
lagið fyrir alvöru
„Nú hefst viiman við lagið fyrir
alvöru. Væntanlega verður bætt við
bakröddum og ýmsir hlutir lagfærðir
til þess að gera lagið sem best úr
garði fyrir keppnina í írlandi. Ingi-
björg mun syngja lagið úti enda á
hún sinn hluta í sigrinum," segir Jon
Kjell Seljeseth, höfundur sigurlags-
ins í Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Lag hans, Þá veistu svarið, verður
framlag íslendinga í Eurovision
söngvakeppninni sem haldin verður
í maí í írlandi.
Jon Kjell hefur áður komiö nálægt
söngvakeppninni en þá sem útsetjari
og hljóðfæraleikari. Þetta er þó ekki
fyrsta lag hans sem gengur vel í
keppni því í vetur sigraði hann i
keppninni um Landslagið sem haldin
var á Akureyri. Hann segist ekki
hafa samið mikið af lögum sökum
tímaskorts því hann hafi nóg að gera
við upptökur, hljóðfæraleik og út-
setningar. Jon Kjell er fæddur í Nor-
egi en kom hingað til lands árið 1980
og hefur búið hér síðan.
„Ég var nokkuð spenntur meðan á
- segir höfundurinn, Jon Kjell Seljeseth
Hamingjusamir sigurvegarar í Söngvakeppni Sjónvarpsins, Jon Kjell Seljeseth höfundur og Ingibjörg Stetánsdótt-
ir söngkona. Þau fara sem fulltrúar íslands til írlands I maí og keppa þar I Eurovislon. DV-myndir GVA
talningunni stóð en ég er nokkuð
vanur að fylgjast með sem þátttak-
andi. Ég er ákaflega ánægður með
sigurinn og ætla aö gera mitt besta
í Irlandi," segir Jon Kjell Seljeseth.
-JJ
Verkalýðsfélag Húsavíkur leitar verkfallsheimildar:
VSÍ leikur sér að því að tefja málin
- menn óttast endalausar viðræður um ekki neitt, segir formaðurinn
„Menn óttast að allt sé að fara í
safna farið og síðast þegar menn voru
ýfir þessu í einhveija mánuði án þess
að nokkuð gerðist. Sem sagt enda-
lausar umræður um ekki neitt. VSÍ
er búið að taka sér rúma viku tfi að
skipa í svokallaða starfshópa vegna
atvinnumálaumræðu og hefur ekki
klárað það ennþá. Það er ljóst að
þeir eru að leika sér að því að tefja
viðræðumar. Vfiji menn semja, ef
einhver alvara er í því, þá verður það
aö fara að gerast nú,“ segir Kári Ar-
nór Kárason, formaður Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur.
Stjóm og trúnaðarráð félagsins
samþykkti á fóstudaginn að óska eft-
ir því við félagsmenn að þeir gæfu
heimild tfi verkfallsboðunar. Gert er
ráð fyrir að það skýrist í vikulok
hvort heimfidin fæst.
„Ég hef enga ástæðu til að trúa
öðm en að menn samþykki verkfalls-
heimild miðað við þær umræður sem
orðið hafa innan félagsins. Það er að
vísu svo að það er lögð talsvert mik-
fi áhersla á að það sé sem víðtækust
samstaða um þetta innan ASÍ og
helst með öðram launþegasamtökum
en það verður hins vegar eitthvað
að fara að gerast," segir Kári.
-Ari
Slökkvilið Reykjavíkur var tvi-
svar kafiað á Hótel Sögu á sama
sólarhringnum. Fyrra útkallið
var klukkan rúmlega tvö aðfara-
nótt laugardags. Handboði hatöi
verið brotinn og sjálfvirka boð-
kerfið fór í gang. Lfkur eru á að
hótelgestur hafi þama verið að
verki.
Seinna útkalfið var laust fyrir
þrjú aðfaranótt sunnudags en þá
vareldurlausíöskubakkaáann- ,
arri hæð. Sjálfvirka útkallskerfið
fór í gang og þegar slökkvilið kom
á vettvang logaöí eldur í plast-
penna í öskubakkanum. -JJ
Bflveita á
Akureyri
Gyffi Kriatjárœson, DV, Akureyri;
Ökuraaöur, sem grunaður er
um ölvun við akstur, velti bifreið
sinni á EyjaiQarðarbraut móts við
flugvöllinn á Akureyri í fyrrinótt.
Ökumaðurinn var einn í bif-
reiöinni sem er mjög mikið
skemmd eftir veltuna. Okumað-
urinn var fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið og lagður þarinn en
mun ekki hafa verið alvarlega
slasaður.
inni Sæbjörgu í Ólafsvik slösuð-
ust á æfmgu sem sveitin stóð fyr-
ir í gær ásaml björgunarsveitinni
Björg á Hellissandi.
Tíldrög eru þau að níu manns
úr sveitunum vom að æfa ijalla-
björgun í berginu rétt við Olafs-
vik. Asahláka hafði verið um
morguninn og viö umganginn
hmndi úr berginu yfir mann-
skapinn. Grjót lenti á höfði ann-
ars en á öxl hins.
Farið var með félagana, mann:
og konu, í sjúkraflugi tfi Reykja-
víkur tfi nánari skoðunar, Bæði
vom með hjálma á höfði og
meiðslin ekki talin alvarleg.
-JJ
í dag mælir Dagfari
Maturinn er málið
Morgunblaöiö greinir frá því um
helgina að mataræði íþróttafólks
sé bágborið. íþróttafólk neytir
óhollrar fæðu. Aöeins 10% íþrótt-
manna neyta fæðu sem samræmist
ráðleggingum um hlutfall kolvetna
og fitu. Sami fjöldi neytir sykurs
langt umfram það sem hollt getur
talist. Þetta gengur svo langt að það
jaðrar við brot á manneldi án þess
þó að mataræði íþróttafólks hafi
verið kært til manneldisráðs. En
það hlýtur fljótt að koma að því.
Af þessari frétt má draga þá
ályktun að íþróttafólk éti óhollari
fseðu en annað fólk. Það sýnir hvað
íþróttir eru óhollar. Það er ekki
þorandi fyrir nokkum mann, sem
á annað borð vill lifa heilbrigðu og
hefisubætandi lífi, aö leggja fyrir
sig íþróttir. Þá er hann samstundis
farinn að borða ranga og óholla
fæðu. íþróttafólk er sagt drekka
kók og borða prins jafnskjótt og það
fer að stunda íþróttir. Það dæUr í
sig sykrinum og fitunni eins og það
eigi lífið að leysa og ef marka má
þessa frétt í Mogga er það forsenda
fyrir því að maður borði holla fæðu
að maður stundi ekki íþróttir. Alls
ekki. íþróttafólk borðar óholla
fæðu. Það er málið.
Dagfara kemur þessi firétt ekki á
óvart. Það er ekki einasta að
íþróttafólk sé áberandi illa á sig
komið. Dagfari hefur lengi undrast
það hve íslensku íþróttafólki hefúr
gengiö illa í keppni við útlendinga.
Iþróttamenn standa sig svosum
sæmfiega þegar þeir keppa hver við
annan en skýringin er auðvitað sú
að þar era afiir á sama báti, þar éta
allir óholla fæðu og standa þannig
jafnt aö vígi. En þegar kemur að
keppni við útlendinga segir matur-
inn tfi sín og íslendingar eiga ekki
sjens vegna þess að þeir alast upp
á sykri, meðan keppinautamir
leggja kolvetni sér til munns.
Satt að segja er það merkfiegt í
sjálfu sér hvað íslendingum hefur
tekist upp miðað við þetta vitlausa
át sitt. Islenska handboltalandslið-
ið hefur tfi dæmis verið í keppnis-
feröalagi að undanfomu. Vann
einn leik en tapaði tveim. Skýring-
in er áreiðanlega fólgin í því að
handboltamennimir okkar hafa
verið á rangri fæðu fyrir þess tvo
leiki sem þeir töpuðu. Dagfari er
viss um að þeir gætu orðið heims-
meistarar með réttu mataræði í
staðinn fyrir kók og prins fyrir leík.
Það má eiginlega segja að öll sú
keppni sem Islendingar hafa þreytt
gegn útlendingum frá fyrstu tíð
hafi verið ómark. Þeir hafa jú æft
sig og undirbúið sig og sofið og
hvílst samkvæmt kúnstarinnar
reglum en þeir hafa alla tíð gleymt
að borða eins og íþróttamenn eiga
að borða, meðan andstæðingamir
hafa vitað hvað þeir áttu að borða.
Þetta hefúr verið ójafn leikur og
engin sanngimi í því að ásaka okk-
ar fólk fyrir slælega frammistöðu
þegar það hefur aldrei haft hug-
mynd um aö maturinn ræður úr-
slitum og það hefur alltaf haft of
mikla fitu í blóðinu og of mikinn
sykur í staðinn fyrir kolvetni. Það
er keppt á fólskum forsendum.
Héðan í ffá ættu íslenskir íþrótta-
menn að ráða sér matvælafræðing
í stað þjálfara. Þjálfarar gera hvort
sem er ekkert gagn. Þeir kenna
dómurum rnn ósigra eða aðstæðum
eða hafa jafnvel játaö að íslensku
keppendumir væm lakari en hinir
eriendu sem þeir kepptu við. Þetta
er allt saman bull og vitleysa og ef
þeir hefðu fengið réttan mat og
sleppt kókinu og prinsinu væri ís-
land meðal fremstu þjóða heims á
íþróttasviðinu.
ímyndið ykkur ólympíuleikana,
þar sem við töpuðum naumlega í‘
handboltanum og spjótkastinu og
töpuðum í badminton og einhveij-
um öðrum íþróttagreinum, vegna
þess að íþróttamennirnir okkar
vissu ekki hvað þeir áttu að borða
fyrir keppni! Það var raunar á
mörkunum að skíöagöngumaður-
inn okkar kæmist í mark á síðustu
vetrarleikum. Auðvitað er því um
að kenna að hann hefur ekki borð-
að réttan mat áður en hann lagði
af stað. Auðvitað hefði hann komist
í mark á undan öðrum eða að
minnsta kosti á undan sjálfum sér
ef hann hefði haft matvælaffæðing
með sér á göngunni í staðinn fyrir
þjálfara, sem hafði ekki hugmynd
um aö matseðillnn var'miklu mfidl-
vægari heldur en æfingapró-
grammið.
Það er ekki æfingin sem skapar
meistarann, heldur maturinn.
Dagfari