Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Page 10
10
MÁNUDAGÚR 22. FEBRÚAR 1993.
NORTON
SLÍPIVÖRUR
Imlm ss&o
SKEIFUNNI 11D - SÍMI 686466
7
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97
y
wwwwwvwwv
SMAAUGLYSINGADEILD
OPIÐ:
Virka daga frá kl. 9-22,
laugardaga frákl. 9-16,
sunnudaga frá kl. 18-22.
ATH.! Smáauglýsing í helgar-
blað DV verður að berast
okkur fyrir kl. 17 á föstudag.
Þverholti 11-105 Reykjavík
Sími 91-632700
Bréfasími 91 -632727
Græni síminn: 99-6272
IsænsktI
I Þak- I
I og ueggstal |
lallir fylgihlutir |
I
I
I
I
I
| milliliðalaust Þú sparar 30%
| Upplýsingar og tilboð
IMABKAÐSÞJÓHUSTAH
I Skipholti 19 3. hæð
I Simi:91-2691l Fax:91-26904|
Útlönd
Framkvæmdastjóm EB viU afstýra neyðarástandi:
Skyndifundur
um lágt f iskverð
- ódýrum innflutningi frá íslandi kennt um
Framkvæmdastjórn Evrópubanda-
lagsins heldur skyndifund í dag
vegna lágs fiskverðs í löndum banda-
lagsins. Framkvæmdastjómin sagði
í gær að hún mundi leggja til sérstak-
ar neyöarráðstafanir á næstu dögum
til að afstýra kreppu í fiskiðnaði
bandalagslandanna vegna ódýrs inn-
flutts fisks og gjaldeyrisóróans að
undanfómu.
„Þeir hafa vakið athygli á þvi að
það ríkir vandræðaástand," sagði
talsmaður framkvæmdastjómarinn-
ar eftir fund embættismanna frá
Frakklandi og bandalaginu um fisk-
veiðimál í Brussel. „Við munum
leggja til aðgerðir til að bæta ástand-
ið á mörkuðunum.“
Verð á fiskmörkuðum í Evrópu-
bandalaginu öllu hefur lækkað milli
fimmtán og þijátíu prósent og ódýr
influttur fiskur frá Rússlandi, Noregi
og íslandi, svo og ótryggt gengi
gjaldmiðla EB, hafa aukið á vanda
fiskiðnaðarins.
Björn Westh, sjávarútvegsráðherra
Danmerkur.
Franska ríkisstjómin lofaði sjó-
mönnum andvirði rúmlega þriggja
mifijarða íslenskra króna í aðstoð á
fóstudag eftir margra vikna mótmæli
sjómanna. Þeir sögðu að vandræði
sín stöfuðu af ódýrum fiski frá Rúss-
landi og Chile og sökuðu breskar
hafnir um að selja fisk undir lág-
marksverði EB.
Sjómenn, einkum á norðvestan-
verðum Bretagneskaganum, lögðu
áherslu á málfutning sinh með því
að kasta fiski á þjóðvegi eða gefa
hann. Þeir kveiktu einnig í bíldekkj-
um í hafnarborgum.
Talsmaður framkvæmdastjómar-
innar sagði að Yannis Paleokrassas
sem fer með fiskveiðimál EB mundi
gera drög að áætlun um betra fisk-
verð og leggja þaö fyrir fram-
kvæmdastjómina, sennilega um.
miðja vikuna.
Bjöm Westh, sjávarútvegsráð-
herra Danmerkur, sagði um helgina
að hann óskaði eftir því að fá skýr-
ingu á hinu lága verði svo fljótt sem
auðiö væri.
Reuter og Ritzau
Dansað á ströndinni í Ríi
Kjötkveðjuhátíðin í Rio de Janeiro I Brasilíu stendur nú sem hæst. Allir sem vettlingi geta valdið flykkjast út á
götur borgarinnar til að dansa, eins og þessi unga stúlka niöri viö strönd. Úrhellisrigning undanfarinna daga
hefur ekki nád aö slá á kæti manna. Kjötkveðjuhátíöinni lýkur á öskudag. Simamynd Reuter
Önnur bflalest SÞ fer til
sveftandi Bosníubúa í dag
Önnur bílalest á vegum Samein-
uðu þjóðanna leggur í dag upp í ferð
með hjálpargögn til íslamstrúar-
manna í austurhluta Bosníu eftir að
uppreisnarmenn Serba hleyptu
hjálparbílum fram hjá yfir helgina.
Serbamir segja að þeir muni leyfa
bílunum að fara um víglínu sína á
leiðinni frá Belgrad til íslamstrúar-
bæjarins Goradze. Fyrri lestin kom
til bæjarins Zepa í gær. Hún hafði
þá verið kyrrsett við serbneskar eft-
irlitsstöðvar frá því á miðvikudag.
„Þaö er búið að ganga frá öllu varð-
andi bílalestina tíl Goradze," sagði
Slavisa Rakovic, leiðtogi stjómar
Bosníu-Serba. „Það verða ekíd nein
vandamál af okkar háifu.“
Sadako Ogata, yfirmaður flótta-
mannahjálpar SÞ, tilkynnti um helg-
ina að hjálparstarf í Bosníu yröi aftur
sett á fulla ferð eftir að stríðandi fylk-
ingar fúllvissuðu hana um að þær
mundu ekki koma frekar í veg fyrir
dreifingu neyðaraðstoðarinnar.
Ogata hætti allri matvæla- og lyfja-
dreifingu í Sarajevo og austurhluta
Bosníu í síðustu viku þar sem fylk-
ingamar stunduðu pólitíska leUd
meö mannúöaraöstoðina. Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri
SÞ, ónýtti þá ákvörðun hennar
tveimur dögum síðar. Reuter
flytjaburt
Bretar eru svo niðurdregnir
vegna efháhagskreppunnar og
mikUs atvinnuleysis sem fylgir
henni að tæpur helraingur lands-
manna, eða 49 prósent, mundi
flytja ur landi ef hann gæti.
Þetta kemur frarn í GaUup-
könnun sem breska blaöið DaUy
Telegraph birti í morgun. Þar
kemur einnig fram að rúmur
þriðjungur aðspurðra gat ekki
látið sér detta neitt í hug sem
ástæða væri að vera stoltur yfir
fyrir hönd landsins.
Aöeins einn af hveijura tiu taldi
að alit væri í lagi í Bretlandi.
Þá leiðir könnunin í ljós aö
Bretar hafa mjög misst trúna á
stofhanir landsins, einkum fjöl-
miðla, kirkju og þing. Herinn og
lögreglan njóta enn mests
trausts.
Víetnamskir
glæpaflokkarat-
Þýskalandi
Ofbeldissinnaðir víetnamskir
glæpaflokkar hafa ofsótt landa
sína sem vinna í Þýskalandi og
ræna þá sparifénu og aleigunni,
að því er þýska tímaritiö Spiegel
sagöi ura helgina.
Það sagði að glæpaflokkarnir
legðust einkum á víetnamska
verkaraenn sem fengu störf hjá
fyrrum kommúnistastjóminni í
Austur-Þýskalandi. Bófamir fara
heim til verkamannanna þegar
þeir eru að búa sig undir heim-
ferð og hirða af þeim lausafé og
ýmsan neysluvarning. í sumum
tilvikum hafa fórnarlömbin látið
lifið.
ráðastásuður-
hluta Libanons
Þyrlur og stórskotaliðsbyssur
ísraelsmanna létu skothríðina
dynja á þorpum og dölum í suður-
hluta Líbanons eftir að skæruliö-
ar skutu þreraur Katjusja eld-
flaugum inn á „öryggissvæði"
ísraels, að sögn heimildarmanna
innan öryggissveitanna.
Ekki er vitað hvort einhveijir
urðu sárir í árásunum. Hiz-
bollahflokkurinn, sem er hallur
undir írani, skipuleggur árásar-
ferðir sínar til Israels frá svæði
þessu sem er undir eftirliti friðar-
gæsluliða Sameinuðu þjóðanna.
Tíu manns létu lífið í síðustu viku
í bardögum skæruliða við ísraels-
menn og bandamenn þeirra.
Sfjórn Suður-
Afríku mætir
andstæðingumí
eiginflokki
Ríkisstjómin í Suöur-Afríku
fundar í dag með gagnrýnendum
innan sljómarflokksins Þjóðar-
flokksins sem segja að of mikið
hafi verið látiö undan Aíríska
þjóðarráðinu í undirbúningi fyrir
fyrstu kosningai- allra kynþátta í
landinu.
Roelf Meyer, aöalsamninga-
maður stjórnarinnar, mun.ræöa
einslega við alla þingmenn'Þjóö-
arflokksins og stjórnarandstaðan
fær tækifæri til að iekja úr hon-
um gamimar í spumingatíma í
þinginu síðar í dag.
Meyer og Ramaposa, helsti
samningamaöur þjóðárráðsins,
féllust í síðasta mánuöi á aö
mæla með samstjórn fyrstu fimm
árin eftir að kynþáttaaðskilnað-
arstefnan verður endanlega lögð
af. Reutcr