Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Blaðsíða 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÖLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð f lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Börnin hennar Evu
Ódæðiö í Liverpool í Englandi hefur vakið upp mik-
inn óhug. Tveggja ára dreng er rænt í matvörubúð og
finnst látinn tveim dögum síðar þar sem honum hefur
verið kastað fyrir jámbrautarlest. Drengurinn hafði
verið barinn og limlestur áður. Ekki dregur úr óhugnum
þegar sakborningamir virðast vera tíu til ellefu ára
gamlir drengir, nánast böm eins og fórnarlambið.
Á sama tíma gerist það bæði vestan hafs og austan
að foreldrar era látnir svara til saka fyrir að hafa skihð
böm sín eftir ein og yfirgefin og raunar var hópur bama
skilinn eftir í lokuðum vistarverum í Detroit í Banda-
ríkjunum meðan foreldramir fóm í skemmtiferð. Eldur
braust út og sjö böm brunnu inni.
Ekki hefur dregið til svo alvarlegra atburða hér á
landi en frétt í DV á fóstudaginn vakti athygli þar sem
sagt var frá því að sautján ára piltur notaði ósakhæf
böm fil afbrota fyrir sig. Sagt var að pfiturinn hefði
komið alls sextíu sinnum við sögu lögreglunnar fyrir
ýmiss konar afbrot, svo sem fíkniefnaneyslu, þjófnað,
ölvunarakstur, líkamsmeiðingar, skemmdarverk og
innbrot.
Hann dregur önnur yngri böm á tálar og siðferðis-
kennd þessara bama er ekki meiri en svo að þau gera
sér litla grein fyrir því hvað er rétt og hvað er rangt.
Nú væri auðvitað auðveldast að varpa allri sök og
ábyrgð á bömin og unglingana. En máfið er ekki svo
einfalt og atburðir sem spanna allt frá minni háttar af-
brotum tfi voðaverka á borð við það sem gerðist í Liver-
pool em sömu ættar; eiga sér að einhverju leyti sömu
skýringar og sama bakgrunninn. Tíu ára börn drepa
ekki tveggja ára böm nema hafa alvarlega brenglaða
dómgreind og orsakanna er að leita í uppeldi, umhverfi
og þeim heimi sem bömin alast upp í.
Hirðuleysi foreldranna gagnvart börnunum, sem skfi-
in vom ein eftir heima, er ekkert einsdæmi. í vaxandi
mæfi gerist það að böm em án umhyggju og vemdar
foreldra. Fyrir það fyrsta er krafan sú að báðir foreldr-
ar vinni utan heimfiis. Síðan koma aðrar aðstæður tfi
viðbótar. Einstæð foreldri, ábyrgðarleysi, atvinnuleysi,
óregla, fátækt, vanþekking og vangeta tfi að sinna upp-
eldi. Böm em þúsundum saman vanrækt í skeytingar-
leysi, tilfitsleysi, skfiningsleysi. Bömin em skifin eftir
í eigin heimi; heimi götunnar, sjónvarpsins, mynd-
bandsins og heimi örbirgðar og metnaðarleysis.
Ofbeldið er haft fyrir ungviðinu, ofbeldið er oft ein-
asta úrræðið. Atvinnulaust fólk, sem orðið hefur undir
í fifsbaráttunni, fíkniefnaneytendur, sem hafa fíknina
eina að takmarki, brotnar fiölskyldur, þar sem heift og
hatur og beiskja út í þjóðfélagið er allsráðandi, og svo
einfaldlega sjálfhverft fif þeirra sem sagðir em ofan á í
fifinu. Allt hefur þetta þær afleiðingar að bömin verða
afskipt, draga dám af andrúmsloftinu í kringum sig og
fá aldrei vitneskju um rétt og rangt.
Við getum varla ímyndað okkur að voðaverkið í
Liverpool geti endurtekið sig hér á landi. Ástandið er
vonandi ekki orðið svo slæmt hér heima. En þessi verkn-
aður er engu að síður afsprengi þeirrar þróunar og þess
ástands sem hér að framan er dregið upp. Siðbfinda og
ofbeldi í kjölfar minnkandi umsjár og alúðar gagnvart
bömum og ungfingum.
Ef við missum tökin á uppeldinu, ef við látum ofbeldi
myndbandanna, götuna og grimmdina ráða ferðinni í
sandkassanum er skammt í hinar raunverulegu afleið-
ingar. Það er ekki bömunum að kenna heldur okkur
sem eigum að ala þau upp. Ellert B. Schram
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1993.
í mörgum tilfellum er gerður samningur milli foreldra um að það foreldri sem ekki hefur forræði barns taki þátt
i framfærslukostnaði umfram meðlagsgreiðslur, segir m.a. í greininni.
Einstæðir foreldrar undir
hníf heilbrigðisráðheira
Á síðustu dögum Alþingis fyrir
jól fékk ríkisstjóm Alþýðuflokks
og Sjálfstæðisflokks samþykktar á
Alþingi í harðri andstöðu við
stjómarandstöðuna meiri skattaá-
lögur á þjóðina en hún hefur
nokkra sinni staðið frammi fyrir
áður. Það sem þessum álögum er
öllum sameiginlegt er að þær lenda
þyngst á fólki með meðaltekjur;
einstæðum foreldrum og sjúkling-
um.
Sjónhverfingar
Þegar heilbrigðisráðherra kynnti
breytingar á almannatryggingalög-
um á Alþingi lét hann í veðri vaka
að til stæði að bæta kjör einstæðra
foreldra, þ.e. forræðisaöilans, með
því að hækka meðlag úr 7.551 kr. á
mánuði í 10.300 kr. Ég varð var við
það í samtölum mínum við marga
að þeir töldu að þessi breyting, sem
þama væri boðuð, væri mikið rétt-
lætismál og nú væri að birtast í
heilbrigðisráðherranum sú mann-
úð og það mildi sem þar byggi inni
fyrir ásamt jafnréttishugsjón Al-
þýðuflokksins.
En þegar betur var að gáð fylgdi
böggull skammrifi. Þær jólagjafir
sem ríkisstjómin þóttist vera að
færa einstæðum foreldmm hefðu
betur verið geymdar í jólasveina-
poka ráðherranna. Hækkun með-
lagsins kom bömunum ekki til
góða heldur ríkissjóði því aö ríkis-
sjóður velti greiðslubyrðum yfir á
meðlagsgreiðendur þar sem
mæðra- og feðralaunin vom lækk-
uð á móti.
Framfærendur eru tveir
Fyrir einstætt foreldri með eitt
bam, sem hefur forræði bamsins,
þýddi þessi breyting 11.796 kr.
skeröingu á ári, fyrir foreldri með
tvö böm 22.800 kr. og fyrir foreldri
með þrjú böm eða fleiri 35.328 kr.
Þessi hækkun meðlags og lækkun
mæðra- og feðralauna leiddi því til
KjaHarinn
Finnur Ingólfsson
alþingismaöur Framsóknar-
flokksins í Reykjavík
umtalsverðrar skerðingar á kjör-
um þeirra er sjá um framfærslu og
hafa forræði bamanna. Þó upp-
liæðimar á mánuði eða ári séu
ekki ýkja háar þá er skerðingin til-
finnanleg vegna þess að í flestum
tilfellum er hér um að ræða fólk
sem eingöngu verður að lifa af dag-
vinnulaununum og hefur ekki
tækifæri til að afla sér viöbótar-
tekna nema þá með miklum til-
kostnaði vegna bamagæslu.
En það er ekki bara sá sem hefur
forræði bamsins og greiðir stærri
hluta framfærslunnar sem verður
fyrir skerðingu því framfærendur
bams eða bama em tveir; sá sem
forræðið hefur og sá sem meðlagið
greiðir. Skerðing á kjömm þess
sem meðlagið greiðir er ekki síður
tilfinnanleg. Ef skerðing á kjörum
framfæranda, þ.e. þess sem með-
lagið greiðir og þess sem forræöið
hefur, er skoðuö saman þá verður
skerðing framfærandanna með
einu bami á ári 44.784 kr., með
tveimur bömum 88.776 kr. og með
þremur bömum eða fleiri 134.292
kr.
Lendir á þeim
sem síst skyldi
Með hækkuninni á meðlaginu
gæti farið svo að skerðingin hjá
þeim aðila sem sér um framfærsl-
una og hefur forræði bamsins gæti
oröið meiri heldur en að framan
er lýst. Viö skilnaö er í mörgum
tilfellum geröur samningur milli
foreldra um að það foreldri sem
ekki hefur forræði bamsins taki
þátt í kostnaði við framfærslu þess
umfram það sem meðlagið gerir
ráö fyrir.
Þegar meölagið hækkar er hætt-
an því sú aö slíkir samningar haldi
ekki þar sem meðlagsgreiöandinn
treystir sér ekki til að greiða meira
en hiö lögbundna meðlag. Þessi
breyting mun því koma verst niður
á bömum. Það em því þau í þessu
tilfelli sem verða að gjalda fyrir
þessar vanhugsuðu og illa undir-
búnu aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Finnur Ingólfsson
„Þegar meðlagið hækkar er hættan því
sú að slíkir samningar haldi ekki þar
sem meðlagsgreiðandinn treystir sér
ekki til að greiða meira en hið lög-
bundna meðlag.“
Skoðanir annarra
Þá grét þingheimur
„í hópi mótmælenda vom flestir alþingismanna
okkar. Þeir stóðu með alvömsvip og hummuðu með-
an regnið seytlaði niður kinnamar. Það var greini-
lega dagskipun á Alþingi til þingmanna að fara út á
meðal fjöldans og mótmæla allir. í ljósi þess að Al-
þingi hefur sýnt lítinn eða engan áhuga á högum
Bosníumanna rímuðu þessir valinkunnu heiðurs-
menn raunalega illa við ímyndina af boðberum frið-
ar og réttlætis. Alþingi hefur nefnilega ekki gert
nokkum skapaðan hlut.“
Hrafn Jökulsson í Alþbl. 19. febr.
Aff heilindum til samstarfs
„Þaö þarf að miöa aö því að auka atvinnu í stað
þess að hækka laun... Skilyröi þess að þetta takist;
aö við kommnst út úr núverandi aðstæöum okkar;
er friður á vinnumarkaðnum og samvinna allra að-
ila. Opinberir starfsmenn ættu því að slíöra verk-
faUsvopnið og ganga af heilindum til samstarfs á
nýjum forsendum.“ forystugrein Mbl. 19. febr.
Eittafþví
sem skapar ólguna
„Það væri fróðlegt að gera könnun þess efnis hér
á landi hve stóram hluta fólks finnSt efnahagsaðgerð-
ir ríkisstjómarinnar réttlátar og sanngjamar. Ríkis-
stjómin glímir vissulega viö mikinn vanda. Hins
vegar hefur henni mistekist hrapallega að vekja
traust þjóðarinnar og auka henni bjartsýni... Ríkis-
sljómin hefur forðast aUa lífskjarajöfnun í aðgeröum
sínum og það er eitt aö því sem skapar ólguna í land-
Úr forystugrein Tímans 19. febr.