Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR1993
Fréttir
Nýjar leiðir 1 baráttimni gegn atvinnuleysi:
Eigum að steinhætta
að fjármagna iðjuleysi
- segir Jón Erlendsson, forstöðumaður Upplýsingaþjónustu Háskólans
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Viö erum búnir að vera í fjögur
ár í þindarlausu átaki á þessu sviði,
búnir að byggja upp gagnabanka
yfir 10-20 þúsund erlenda aðila og
þróa sérstakt sjálfsnámskerfi um
atvinnumál og tækifærasköpun
sem nýtist einstaklingum, fyrir-
tækjum og stofnunum til að skapa
sér tækifæri á ódýrasta mögulegan
hátt,“ segir Jón Erlendsson, for-
stöðumaður Upplýsingaþjónustu
Háskólans.
Það kerfi sem Jón hefur byggt
upp byggist fyrst og fremst á sjálfs-
námi, og reyndar ekki síður á gjör-
breyttum aðferðum á öllum svið-
um. Nú standa yfir viöræður við
Atvinnuleysistryggingasjóð, Akur-
eyrarbæ, Reykjavíkurborg og
Hafnarfjarðarbæ um aö þessir aðil-
ar styðji atvinnulausa viö að koma
inn í það kerfi.
Sáhvert stefndi
„Árið 1987 þegar ég sá hvert okk-
ar ruglaða þjóðfélag stefndi hellti
ég mér í þetta verkefni af fullum
krafti og það hefur allt gengið eftir
sem ég spáði.
Okkar nálgun og annarra sem
hafa staðið í þessu er mjög ólk. Iðn-
tæknistofnun t.d. hefur verið að
einbeita sér að einu og einu tæki-
færi. Þeir safna saman miklu af
hugmyndum sem fara síðan í
vinnslu. Svo enda þeir með t.d. 4
hugmyndir sem eru unnar fyrir
15-30 milljónir. Þetta er kolvitlaus
aðferð. Það sem við þurfum eru
ekki 4 hugmyndir sem skapa 20-30
störf, heldur þarf að miða við 2-10
þúsund manns.“
„Franchise“ er öflug aðferð
- Hvaöa boðskap hefur þú að færa
Akureyringum sem hafa eitt mesta
atvinnuleysi á landinu?
„Ég get bent á ýmsar leiðir. Eitt
er það fyrirbæri sem nefnt er
„Franchise" sem úti í heimi er ein
öflugasta aðgerðin til að efla at-
vinnu og hefur gagnast hér á landi
lika. Þetta byggist á sölu eða leigu
hugmynda. Fjármagnið í hverju
landi er nýtt og þetta hefur dreift
úr sér með eldingarhraða. Á alþjóð-
legum markaði eru boðin 5-6 þús-
und „Franchise", og ég reikna með
aö 1-5% af þessu sé raunhæft fyrir
okkur. Þetta byggist mikið upp á
þjónustu og því að þeir sem hafa
ekki ipjög mikla menntim fá tæki-
færin upp í hendumar og þjálfun
hjá höfuðstöðvunum, þeir geti fariö
í gang á örskömmum tíma. Þetta
fyrirbæri hefur farið um Evrópu
eins og eldur í sinu.“
Vitleysan skelfileg
Jón segir að hér á landi tíðkist
það að huga ekki að lausnum á
þessu sviði fyrr en allt sé komið í
óefni, i stað þess að hafa lausnir
aðgengilegar áður en á þeim þarf
að halda. „Vitleysan er svo skelfi-
leg og það er sama hvaða kerfi
tæki við, það myndi bæta þetta. Þaö
atvinnutryggingakerfi sem ég er að
hugsa um og er eiginlega sambland
af atvinnutrygginum og nýsköpun
og tryggir mönnum atvinnu fyrir
bætur en ekki iðjuleysi fyrir bæt-
ur. Ég vildi sjá þetta kerfi þannig
að þeir sem standa í nýsköpun og
eru aö reyna að koma fyrirtækjum
á legg fái mjög ódýrt vinnuafl. Við
höfum einn framleiðsluþátt á
lausu, vinnuafliö. Það er argasta
vitleysa að nýta það ekki. Mgin-
reglan á að vera sú að við stein-
hættum að fjármagna iðjuleysi,"
segir Jón.
DV-myndir öm
Togarinn Sunna við bryggju á Siglufirði.
Hægt að draga tvö troll samtímis
- eftir breytingar á nýjasta togara Þormóös ramma
Jón Dýrfjörð, framkvæmdastjóri vélaverkstæðis J&E, til vinstri, ásamt einum
af starfsmönnum fyrirtækisins.
Öm Þórarinssan, DV, Fljótum:
Nýjasti togari Þormóðs ramma hf.
á Siglufirði, Sunna SI67, hélt til veiöa
nýlega að loknum talsveröum breyt-
ingum á skipinu sem stóðu yfir í
þijár vikur. Helsta breytingin var að
sett var þriöja togspilið í skipið og
með tilkomu þess á að vera hægt að
draga tvö troll samtímis.
Að sögn Sigurður R. Stefánssonar
úrgerðarstjóra vona menn að þriðja
spfiið auki veiðihæfni skipsins um
20-30% því nú verði i raun hægt að
hafa tvö veiðarfæri úti samtímis.
Sunna er eingöngu á rækjuveiðum
og er stærsta skip íslenska flotans
sem þessi búnaður hefur verið settur
í. Bíða menn nú spenntir hver árang-
ur verður.
Samhliða því að spUið var sett í
skipiö voru ýmsar framkvæmdir
sem miðuðu að því að taka meiri afla
í einu um borð og vinna hann. Settur
var frystibúnaður í aðra lestina og
eru þá báðar lestir þannig búnar.
Aðalverktaki viö framkvæmdimar
var Vélaverkstæði Jóns og ErUngs á
Siglufirði. Þaö átti lægsta tilboö í
verkið, tæpar 17 miUj. króna. Fjöl-
margir iðnaðarmenn á Siglufirði
unnu við skipið sem undirverktakar
en einnig komu menn frá Akureyri
og Sauöárkróki í ákveðna verkþætti.
Með þessu verki og endurbótum á
togaranum Siglfirðingi í fyrra hefur
Siglfiröingum tekist að halda tveim-
ur nokkuð stórum verkefnum í bæj-
arfélaginu. Það hlýtur að teljast mik-
U1 ávinningm- þegar þrengir aö á
vinnumarkaðnum.
Selir elta sjóbirting
í Héraðsvötnum
Þóihallur Asmundssan, DV, Sauðárkióki:
Talsvert hefur verið um seli í
vesturósi Héraðsvatna að undan-
fómu og ekki óalgengt að þeir séu
2-3 saman. Friðberg Sveinsson skaut
þar sel nýlega við vök og margir
fleiri hafa sést þar á ísnum.
Aö sögn selfangara er mikið um að
selir komi upp á ísinn tíl aö hvfla sig
á ferð sinni inn eftir Héraðsvötnum
þar sem þeir elta sjóbirting. Oft hefur
orðið vart við sel á ís framan við
Glaumbæ og svo langt fer selurinn í
eltingaleiknum viö sjóbirting að sést
hefur tU hans í vötnunum til móts
við Akra í BlönduhUð.
Selur lét fara vel um sig við vök
skammt frá vesturósi Héraðsvatna
á sunnudag. DV-mynd Þórhallur
Flugleiðir tengdar beint
í 100 þúsund tölvuskjái
Lokið er tengihgu bókunarkerfis
Flugleiða við tölvudreifikerfið
AMADEUS. Þar með hefur þeim
skjám sem tengdir em beint við
ALEX, bókunarkerfi Flugleiða, fjölg-
að úr 350 í um 100 þúsund hjá ferða-
skrifstofum og flugfélögum beggja
vegna Atlantshafs.
Aö sögn Flugleiðamanna er hér um
mikla hagræðingu að ræða, sérstak-
lega fyrir sölufólk erlendis. Ávinn-
ingur Flugleiöa af beintengingu við
Amadeus er einkum þríþættur: Þjón-
usta og allar nýjungar félagsins kom-
ast fyrr í sölu, auðveldara veröur
fyrir starfsfólk ferðaskrifstofa að
bóka með Flugleiðum og síðast en
ekki síst mun sú kynning sem flugfé-
lagið fær í Amadeus, þar sem það er
sett undir sama hatt og erlend risa-
flugfélög, stuðla að því að ferðaskrif-
stofur fái aukið traust á því. Einnig
opnast íslenskum ferðaskrifstofum
milliliðalaust aðgangur að bókunar-
kerfum annarra flugfélaga. Amad-
eus tryggir Flugleiðum að þjónusta
þeirra sé boðin fram með sama hætti
og sé neytendum jafnaögengileg og
þjónusta evrópsku risafélaganna.
Fram til þessa hafa tölvukerfi verið
mismunandi eftir löndum. Reglur
Evrópubandalagsins mæla fyrir um
sameiningu bókunarkerfa aðildar-
landa en það kemur einkum smærri
flugfélögunum til góða því þar með
er þeim gert kleift aö tengjast stórum
og fullkomnum tölvukerfum sem
þau myndu sjálf aldrei hafa efni á
að koma sér upp.
-VP
Lægsta tilboði tekið í lyftu
Ægir Már Káiason, DV, Suðumesijuin:
Byggingarnefnd Grunnskóla
Njarðvíkur hefur samþykkt að taka
lægsta tilboði í lyftu fyrir skólann frá
HM-lyftum sem hijóðaði upp á krón-
ur 3.110.000.
Tvö önnur tilboð bárust í verkið.
Þau voru frá Bræðrunum Ormsson,
3.534.000 krónur, og Héðni Schindler
sem átti hæsta tilboðið, 3.994,000
krónur.