Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1993.
17
Neytendur
Tómas Ingvason og Jón Sigurðsson með myndarlegan ostrubakka. Fyrirtæki þeirra, VB-sjávarafurðir, kynnti afurð-
ir sínar á veitingahúsinu Við tjörnina á dögunum og tóku gestir hraustlega til matar sins. DV-mynd GVA
Ferskar ostrur
á íslandi
íslenskir fiskaðdáendur eiga nú
kost á að kaupa ferskar ostrur í
verslunum. Það er fyrirtækið VB-
sjávarafurðir sem flytja ostrumar
ferskar inn frá Suður-Englandi en
þar eru þær ræktaðar.
Fyrir utan innflutning á ostmm er
fyrirtækið með vinnslu og sölu á
trjónukrabba, beitukóngi, öðuskel,
Gleymist að
leggja baunirnar
í bleyti?
Það kemur stundum fyrir besta
fólk að gleyma að leggja baunirnar í
bleyti nógu tímanlega fyrir eldun.
Hægt er að bjarga sér út úr slíkum
vandræðum með því að setja baun-
irnar í stóran pott og lítið vatn yfir.
Látið sjóða á hæsta straum í hálftíma
og varist að vatnið gufi upp. Setjið
hálfsoðnar baunimar í matvinnslu-
vél og maukið þær vel. Eftir þessa
meðferð geta þær farið í súpuna sam-
kvæmt uppskriftinni. Einnig má
meyra baunimar í örbylgjuofni. Setj-
ið baunir og vatn í skál og matreiðið
á hæsta styrk í 20 mínútur til aö
byrja með. Þaö nægir jafnvel til þess
að auðvelt sé að mauka þær í súpuna.
hámeri, reyktum háfi, reyktri rækju
og reyktri hörpuskel.
Undanfarið hafa eigendur fyrir-
tækisins, Tómas Ingvarson og Jón
Sigurðsson, kynnt þessar afurðir í
verslunum á höfuöborgarsvæðinu
við góðar undirtektir. Þeir hafa
samning við báta frá Breiðafirði við
öflun krabbans, beitukóngsins og
öðuskeljarinnar en til skamms tíma
hefur þessu hnossgæti verið hent í
stómm stíl og aðeins hirtur lítill hluti
í sérpantanir. Nú hyggjast þeir félag-
ar hafa framboð á íslenskum neyt-
endamarkaði jafnt og þétt eftir því
sem aflast. Verslanir, sem fyrstar
taka þessar tegundir inn, em Hag-
kaup, Mikligarður og Nóatún. -JJ
Bollurnar eru rétt famar að
sjatna S maga Iandsmanna þegar
þeir fara aö huga aö sprengidegin-
um. Þótt saltkjöt og baunir séu á
undanhaldi sem matur hjá yngra
fólki finnst sumum hefðin fyrir
baununum skemmtileg og þess
virði að halda í hana.
Flestir fá uppskriftina úr fjöl-
skyldunni en hér birtist ein hefð-
bundin með tilbrígöum.
Súpan:
1 pk gular baunir, lagðar í bleyti
kvöldiðáður
1,5 kg saltkjöt
31 vatn
3-5 beikonsneiðar í bitum
1 stór laukur eða tveir litlir
l kg grænmeti; gulrætur, gulrófur,
sellerí, blaðlaukur eða annaö gott
grænmeti.
Baunimar lagðar í bleyti í V4-1
sólarhring. Vatn, saitkjöt og beikon
sett í pottinn. Ef kjötið er mjög salt
er ekki ráðlegt að sjóða nema lítinn
hluta meö baununum og afganginn
í öðmm potti ur tveim vötnum.
Fleytiö froðuna ofan af. Sjóöiö í
rúma klukkustund. Hreinsið græn-
metið og skerið í hæfilega bita og
sjóðið með síðustu 20 mínúturnar
hið mhmsta.
Með saltkjötinu má bera fram
hvítan jaflnng iikt og með hangi-
kjötinu.
Lisa, sem hér er með móður sinni, Priscillu, er alveg sláandi lík föður sín-
um, Elvis Presley.
Sviðsljós
lisa fékk
ekki
arfinn
Lisa Marie Presley Keough varð 25
ára um daginn og hélt að sjálfsögðu
upp á það með viðeigandi hætti. Á
þessum tímamótum var ráögert aö
hún tæki formlega við auðæfum föð-
ur síns en Lisa hefur samþykkt að
bíða með það í fimm ár til viðbótar.
Á þrítugsafmælinu hennar bíður því
hús rokkarans sáluga í Memphis í
Tennessee, Graceland, og ávísun upp
á nokkur hundruð milljónir Banda-
ríkjadala.
Astmi vegna
efnamengunar
Samtök gegn astma og ofnæmi halda fræðslufund
mánudaginn 22. febrúar kl. 20.30 í Múiabæ, Armúla 34,3. hæð.
Helgi Guðbjömsson læknir,
sérfræðmgur í atvinnusjúkdómum, ræðir um atvinnuastma,
snertiofnæmi og húsasótt og svarar fy rirspumum.
Allir em velkomnir á fúndinn, kaffiveitingar.
SAMTÖK GEGN ASTMA OG OFNÆMI
VELTISÖGIN
FRÁ ISELCO
MESTSELDA BYGGINGASÖG LANDSINS UM ÁRABIL
NÝ SENDING
Á SÉRLEGA GÓÐU VERÐI
ÚRVALS KARBIT SAGARBLÖÐ FYLGJA
Skeifunni 11 D, sími 686466