Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1993.
Menning
Menrúngarverðlaun D V:
Tilnef ningar í
kvikmyndum
Kynningar á tilnefningum heldur
áfram og er nú komið að kvikmynd-
um. Þegar er búið að birta tilnefning-
ar í myndlist, tónbst, bókmenntum
og byggingarlist. Nú er komið að
kvikmyndum. í dómnefnd sátu Hilm-
ar Karlsson, Árni Þórarinsson og
Baldur Hjaltason. Tilnefningarnar
íimm eru:
Inga Lisa Middleton er tilnefnd fyr-
ir stuttmynd sína Ævintýri á okkar
tímum. Mynd þessi er snjöll útfærsla
á tækni í kvikmyndagerð sem lítið
hefur veriö notuð. Frumleg túlkun á
brennandi máb í umhverfisvemd.
Kjartan Kjartansson hljóðmaður
er tilnefndur fyrir hljóösetningu við
tvær kvikmyndir; Svo á jörðu sem á
himni og Sódóma Reykjavík. Það
hefur lengi loðað við íslenskar kvik-
myndir að hljóðið hefur verið slæmt
en það hefur farið batnandi og er
Kjartan einn þeirra sem hafa átt stór-
an þátt í framþróun á þessu sviði.
Hljóðvinnsla hans við tvær fyrr-
nefndar kvikmyndir er eins og best
verður á kosið.
Óskar Jónasson er tilnefndur fyrir
leikstjóm og handrit að Sódóma
Reykjavík. Óskar er hugmyndaríkur
og frumlegur kvikmyndagerðarmað-
ur sem hefur á síðustu ámm komið
með nýjan ferskleika í íslenska kvik-
Snorri Þórisson kvikmyndatöku-
maður.
myndagerö og er Sódóma Reykjavík
gott dæmi um djarfan og metnaðar-
fullan stíl hans.
Snorri Þórisson kvikmyndatöku-
maöur er tilnefndur fyrir kvikmynd-
un sína á Svo á jörðu sem á himni.
Lífræn og hreyfanleg myndataka
Snorra ásamt mjög fáguðum vinnu-
brögðum auka á gildi myndarinnr
og fellur myndstíllinn vel að efninu.
Verstöðin ísland. Kvikmyndafyrir-
tækið Lifandi myndir, sem gerir Ver-
stöðina ísland, hefur skapað metnaö-
arfullt grundvallarverk í íslenskri
heimildarmyndagerð. Myndin sýnir
að hægt er að gera skapandi verk úr
Óskar Jónasson leikstjóri.
pantaöri kvikmynd fyrir íslensk
hagsmunasamtök.
Kjartan Kjartansson hljóðmaður.
Verstöðin ísland.
Úr kvikmynd Ingu Lisu Middleton, Ævintýri á okkar
dögum.
Umbætur til almannaheilla
- Verkefni framundan -
Reykjavík
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra
Alþýðuflokkurinn
boðar til opins
stjórnmálafundar
í Súlnasal Hótel Sögu
þriðjudaginn 23. febrúar
kl. 20.30.
Sighratur Björgvinsson
heilbrigðisráðhcrra
Framsögumenn verða:
WF-'- ' w ■ I, í Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
Wk (PA,. Fundarstjóri verður Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins.
Allir velkomnir
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðberra
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
Össur Skarphéðinsson,
formaður þingflokks
Alþýðuflokksins
Annars konar
fjölskyldu-
Ijósmyndir
- Nanna Bisp Buchert í Gallerí Úmbru
Við Amtmannsstíginn er staðsettur lítill sýningarsalur sem hentar afar
vel fyrir sýningar af smærri gerðinni. Þar hafa m.a. sýnt nokkrir ljós-
myndarar og þessa dagana sýnir þar Nanna Bisp Buchert „annars konar
fjölskylduljósmyndir". Galleríið ber nafnið Úmbra og í innri sal þess eru
tíl sýnis og sölu leirlistaverk Guðnýjar Magnúsdóttur. Sýning Nönnu
Bisp Buchert er í fremri salnum og umfangsmikil miðað við stærð hans.
Á sýningunni er alls tuttugu og eitt verk, allt nokkurs konar kyrralífs-
myndir og 1 mörgum tilvikum ljósmyndir af ljósmyndum. Listakonan
hefur aflað sér nokkurrar viðurkenningar í sínu fagi og hafa myndir eft-
ir hana verið valdar á stórsýningar á borð við Scandinavia Today í Banda-
ríkjunum og „Tender is the North“ í Barbican Center.
Ljósmyndir af Ijósmyndum
Nanna Bisp Buchert hefur verið búsett í Kaupmannahöfn mestan part
ævi sinnar. Hún ólst þó upp í Reykjavik. Móðir hennar var íslensk og
lést hún um aldur fram í Kaupmannahöfn árið 1946. Má segja að sýning
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
þessi sé seinni tíma viðleitni dóttur til að nálgast móður sína. Til þess
bregður hún fyrir sig sjónhverfingum af ýmsu tagi. Hún notar gamla
borða, fólnuð blóm og kjól af flóamarkaði til að búa tfi viðeigandi stemn-
ingar. Rauði þráðurinn er svo safn gamalla ljósmynda og bréfa. Ljósmynd-
unum er ýmist bætt ofan á stemningarilötinn síöar og myndin þannig
tvítekin eða að þær eru sjálfar bakgrunnur og stemningargefandi hlutir
þar yfir. Sumar mynda Nönnu Bisp Buchert minna á mexíkóskt heimih-
saltari þar sem gjaman er safnað saman á einn stað ljósmyndum af látn-
um fjölskyldumeðlimum, ættargripum og ýmsu tilfallandi.
Náin fortíð verður nýsköpun
Meginkostur verkanna er fólginn í þeirri afstöðu listakonunnar til þess-
arar nátengdu fortíðar sinnar að þar sé um efnivið í nýsköpun að ræða.
Þetta kemur vel fram í verki númer tvö, Brot úr bréfi, þar sem sendibréf
hefur verið rifið í ræmur vegna þess að þannig þjónaði það betur mynd-
heildinni. Myndimar em flestar dökkar yfirlitum, en listakonan byggir
í mörgum tilvikum upp dulúðuga spennu í myndfletinum fyrir tilstyrk
hinna dimmu flata. Greinilegt er hins vegar að að baki myndunum hggur
mismunandi mikil vinna. Ljósmynd er t.a.m. einkennilega útfærö yfir
kjól í mynd númer sjö. Eins standa uppstillingamar oft lýsingunni og
ljósmynduninni sjálfri að baki. En í hefid er sýning þessi gleðigjafi unn-
endum annars konar Ijósmyndunar.
Síðasti sýningardagur er miðvikudagurinn 24. febrúar.
W* SMÁAUGLÝSINGASiMINN
FYRIR LANDSBYGGOINA:
j 99-6272
^ Gsa ^minn sssa
^4 - talandi dæmi um þjónustu!