Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1993.
39
r>v Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11
■ Þjónusta
MMC Pajero Wagon '89, glæsilegur bíll,
bensínvél, 4 cyl., ekinn 86 þús. km, 5
gíra, vökvastýri, samlæsing, rafdrifn-
ar rúður, dráttarkúla með rafmagni,
31" dekk og krómfelgur. Verð 1.650
þús., skipti á ódýrari. Sími frá kl. 9-18
685870 og e.kl. 18 624205.
Til sölu Toyota extra cab, árg. '90,
nýskráður ’91, ekinn aðeins 18 þús.
mílur, V-6. sjálfskiptur, klæddur
pallur, plasthús, 31" dekk og álfelgur.
Uppl. í s. 40886 e.kl. 19 í kvöld og
næstu kvöld eða 985-34576 á daginn.
É^Útihuióir
STAPAHRAUNI 5,
SiMI 54595.
Traust tréverk i anda hússins og sér-
tilboð út þennan mánuð. Smíðum eftir
máli. Er við símann í dag. Útihurðir
hf., Stapahrauni 5, sími 91-54595.
Dodge 4x4 Power Ram 250 pickup, árg.
'89, til sölu, 6 cyl., sjálfskiptur, Cumm-
ings, turbo, dísil. Upplýsingar í síma
91-814024 eða 91-73913.
■ Jeppar
Til sölu Chevy Cheyenne 1500, árg. '88,
4,3 EFi, beinskiptur, 4.88 hlutföll, heil
framhásing Dana 44, gormafjöðrun
o.fl. Skipti möguleg. Upplýsingar í
símum 91-23428 og 985-34638 fram á
fimmtudag.
Til sölu Jeep Comanche, árg. '88, 38"
radial, læstur að framan og aftan,
aukamillikassi o.fl. Upplýsingar í sím-
um 91-650573 og 91-14560.
Fréttir
Laxveiðimarkaðuritm:
Tilboð í gangi um lægra verð
„Það hefur gengið vel að selja út-
lendingum veiðileyfm en það er
þyngra með íslendingana," sagði
einn af þeim mörgu sem selja lax-
veiðileyfi í veiðiánum.
. „íslendingar kaupa veiðileyfin en
þeir þrúkka um verð fram og til baka,
enda var veröið alltof hátt í fyrra og
er það ennþá. Ég hef aldrei kynnst
öðrum eins boðum og eru í gangi á
milli manna þessa dagana. Það býður
hver í kapp við annað. Hópur veiði-
manna, sem sendi inn tilboð fyrir
fáum dögum, fékk þau mörg á góðu
verði,“ sagði veiðileyfaselj andinn
ennfremur.
Veiðimenn, sem DV hefur rætt við
síðustu daga, kannast vel við þessi
boð fram og til baka. Verðið á veiði-
leyfunum er of hátt ennþá.
„Ég hef heyrt um þetta og ef menn
kaupa mikið fá þeir afslátt, þaö er
ekki það mikið af íjármagni í gangi
þessa dagana í þjóðfélaginu," sagði
Egill Guðjohnsen veiðimaður í sam-
tali viö DV.
„Ég keypti veiðileyfi í laxveiðiá fyr-
ir skömmu og fékk góðan afslátt. En
það ætla margir að bíða og sjá hvern-
ig veiðin verður, svo veröa veiðileyfi
keypt eftir veiðinni," sagði Egill að
lokum.
„Við fengum nokkur tilboð og höf-
um skoðað málið, við tókum tilboði
sem var boðið í Laxá í Leirársveit.
Þaö var sanngjamt tilboð,“ sagði
Helgi Kr. Eiríksson en hann og veiði-
félagar hans báðu um tilboð í lax-
veiöileyfi fyrir 14 manna veiðihóp
þeirra. Þeir hafa veitt saman í 10 ár.
„Okkur fannst kominn tími til að
veiðileyfin lækkuðu, þetta var orðið
alltof dýrt. Margir voru hættir að
hafa efni á þessu. Við fengum tilboð
úr 8 veiðiám, m.a. Haííjarðará,
Þverá, Laxá í Kjós og Laxá í Leirár-
sveit. Ég held aö við höfum brotið
ísinn með þessu og þessi boð hafa
haldið áfram síðan við gerðum þetta.
Við ýttum skriöunni af stað,“ sagði
Helgi ennfremur.
-G. Bender
Veiðimenn kætast yfir lægra verði á laxveiðileyfum en mikið framboð er
þessa dagana á markaðnum.
Sauðárkrókur:
Aukið vinnuframboð
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Fiskiöjan á Sauðárkróki er aö taka
upp vaktavinnu í frystihúsinu, sem
hefur í för með sér að á hátt í 30 störf
bætast við hjá fyrirtækinu.
Verið er að ráða í þau og kemur
fólk meðal annars úr Skagafiröi -
Lýtingsstaðahreppi og hreppunum
kringum Varmahlíð. Sem kunnugt
er þá er mikil húsnæðisekla hér. Nær
útilokað að að útvega fólki húsnæði
á Sauðárkróki.
Unnið veröur á tveimur átta tíma
vöktum, frá sex á morgnana til tvö
og frá tvö til tíu á kvöldin. Komið
verður á fostum ferðum í sveitimar.
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. bygginga-
deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í
smíði á leiktækjum og ýmsum búnaði fyrir Fjöl-
skyldugarð í Laugardal.
Um er að ræða smíði og uppsetningu leiktækja úr
tré ásamt merkingum og uppsetningu á leiktækjum
og frágangi við leiksvæði.
Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 23. fe-
brúar gegn kr. 15.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
10. mars 1993 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
A P T O N
Einfalt • auðvelt • handhægt
Smíðakerfi
sniðiÖ fyrir hvern og einn
0DEXION SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SfMI 62 72 22
Landsbanki íslands auglýsir nú fjórða árið í röð eftir
umsóknum um NÁMU-styrki. Veittir verða 7 styrkir.
Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu
Landsbanka íslands, eiga rétt á að sækja um þessa
styrki.
I Allir þeir sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir
15. mars 1993 eiga rétt á að sækja um styrk vegna
þessa námsárs.
I Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir
verða afhentir í apríl 1993 og veittir NÁMU-félögum
skv. eftirfarandi flokkun:
2 styrkirtil háskólanáms á íslandi, 2 styrkirti! náms
við framhaldsskóla hérlendis, 2 styrkir til fram-
haldsnáms erlendis og 1 styrkurtil listnáms.
@ Umsóknum ertilgreini námsferil, námsárangur,
heimilishagi og framtíðaráform, skal skilað til Lands-
banka íslands eigi síðar en 15. mars næstkomandi.
j§ Umsóknir sendist til:
Landsbanki íslands, Markaðssvið
b.t. Gunnbjörns Þórs Ingvarssonar
Bankastræti 7, 155 Reykjavík
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna