Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Page 28
40
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1993.
Menning
Græskulaust gaman
Svidsljós
íslenska óperan stóð að flutningi
óperettunnar Sardasfurstynj unnar
eftir Emmerich Kálmán sl. föstu-
dagskvöld. Þetta létta og skemmti-
lega verk hefur að geyma mörg falleg
og góð lög og er einfaldleikinn alls-
ráðandi í útfærslu tónlistarinnar. Sú
ágæta söngkona Signý Sæmunds-
dóttir söng aðalhlutverkið, Sylvu
Varescu, og fórst henni það einkar
vel úr hendi. Túlkun hennar leik- og
raddlega, hreyfmgar og dans virkaði
sannfærandi og má þar einnig þakka
góðu samstarfi við leikstjórann
Kjartan Ragnarsson svo og dansa-
höfundinn Auði Bjarnadóttur. Und-
irritaður var hissa hve „break“ radd-
ar Signýjar var áberandi í þessu hlut-
verki, en það var þó enginn stórskaði
þegar á heildina er litið, enda sýndi
hún iðulega frábær tilþrif raddlega.
Edvin Ronald var vel túlkaður af
Þorgeiri J. Andréssyni og er rödd
hans vel mótuð þótt ennþá sé hún
örlítið mött. Tækni hans er góð og
tilþrif sýndi hann, einkum í fyrsta
þætti verksins. Bergþór Pálsson söng
Boni og var hann mjög góður í því
gáskafuUa hlutverki þótt smáhnökr-
ar væru á, til dæmis í byijun og þeg-
ar hann biöur Stasi símlega. Sieg-
linde Kahmann og Kristinn Hallsson
léku á als oddi sem Júlíana og Leop-
old María og fengu m.a. salinn til
þess að syngja með sér. Jóhanna
Lánnet var mjög góð í hlutverki An-
astasíu og Sigurður Bjömsson var
Bergþór Pálsson er hér í hlutverki
hópi kvenna.
Tónlist
Askell Másson
0
Kúplingarsett
Frá Japan og V-Þýskalandi
GSvarahlutir
Hamarshöfða 1 - simi 676744
hér á heimavelli í hlutverki Feri
Bácsi. Leiksnilld Bessa Bjamasonar
naut sín til fulls í hlutverki Kiss dóm-
ara og oftast hreinlega átti hann svið-
ið þegar hann var inni á.
Þýðingar þeirra Flosa Ólafssonar
og Þorsteins Gylfasonar á leik- og
söngtextum voru liprar og hnyttnar
og leikmynd Siguijóns Jóhannsson-
ar er bæði skemmtilega og vel unnið
verk þótt spuming væri hvort ekki
mætti skipta um handrið á stigum
og svölum fyrir síðari þætti verks-
ins. Bæði leikmyndin, svo og búning-
amir, sem Huida Kristín Magnús-
dóttir sá*um, gefa sýningunni litríkt
og létt yfirbragð, svo sem vera ber.
Dansar Auðar Bjamadóttur eru bæði
fjörugir og skondnir og öllu er þessu
haldið vel saman af leikstjóra sýn-
ingarinnar, Kjartani Ragnarssyni,
þótt smáhnökrar séu hér og þar,
einkum er varðar leikræna útfærslu,
en því ætti að vera auðvelt að kippa
í lag á komandi sýningum.
Hljómsveitin lék ákaflega vel undir
stjóm Páls P. Pálssonar sem lifði sig
sinu í Sardasfurstynjunni, umvafinn
DV-mynd ÞÖK
mjög inn í verkið og vom sólóstrófur
klarínetts og konsertmeistarans,
Zbigniew Dubik mjög skemmtilega
útfærðar á ungverska vísu. Þetta er
létt og skemmtilegt verk, græsku-
laust gaman, sem á heildina nýtur
sín vel í þessari uppfærslu íslensku
ópenmnar. Sýningin er ekki galla-
laus en allir ættu að geta átt ánægju-
lega kvöldstund með þessari Sardas-
furstynju.
Við eitt borðið sátu aðstandendur Kolaportsins á aðra hönd og Hag-
kaups á hina. Þarna eru Finnbogi Helgasoon, Elísabet Snorradóttir,
Helga Mogensen, Guðni Pálsson og Guðríður Tómasdóttir. Og á hina
höndina Guðmunda Þórisdóttir, Sigurður Gisli Pálmason, Þórður Sig-
urðsson og Arnbjörg Finnbogadóttir. DV-myndir GVA
Kolaportið og Hag-
kaup mættust hjá Kris
Bandaríski sveitasöngvarinn og
lagahöfundurinn Kris Kristofier-
son dró að húsfylli aðdáenda á
Hótel íslandi um helgina. Hann
söng þar mörg af frægustu lögun-
um síniun eins og Me and Bobby
McGee og Help Me Make It Thro-
ugt the Night.
Meðal gesta mátti sjá aðstand-
endur Kolaportsins og kunna Hag-
kaupsmenn við sama borð. Þama
voru einnig Halldór Ásgrímsson
þingmaður og ótal margir íslenskir
aðdáendur sveitasöngs. Kris Kristofferson.
Afmæli
Friðbjörg Kristjana
Ragnarsdóttir
Friðbjörg Kristjana Ragnarsdóttir,
Hellubraut 7, Hafnarfirði, er sextug
ídag.
Starfsferill
Friðbjörg fæddist á Akranesi og
ólst þar upp til níu ára aldurs en
síðan að Læk í Leirársveit þar sem
hún átti heima til tvítugs.
Friðbjörg stundaði nám við Hús-
mæðraskólann að Varmalandi í
Borgarfiröi veturinn 1950-51. Hún
var búsett á Akranesi til 1964 er hún
flutti til Hafnarfiarðar þar sem hún
hefurbúiðsíðan.
Fjölskylda
Friðbjörg giftist 26.12.1958 Jó-
hanni Jóni Jóhannssyni, f. 9.11.
1929, vélsfióra hjá íslenska álfélag-
inu. Hann er sonur Jóhanns J.H.
Jónssonar sem nú er látinn, og Sig-
urlaugar Jóhannsdóttur. Þau
bjuggu í Önundarfirði og í Hrísey,
síðan á Akranesi og loks í Reykjavík
þar sem Sigurlaug býr enn.
Böm Friðbjargar og Jóhanns Jóns
em Jóhann Þór Jóhannsson, f. 15.3.
1954, í sambúð með Rúnu Baldvins-
dóttur og á hann einn son frá fyrrv.
hjónabandi, Daníel Þór, f. 21.8.1978;
Ragnar Steinþór Jóhannsson, f. 10.6.
1958; Friðjón Viðar Jóhannsson, f.
8.3.1962; Edda Sigurbjörg Jóhanns-
dóttir.f. 11.10.1969.
Systkini Friðbjargar em Guðjón,
f. 1931, búsettur í Reykjavík; Hrefna,
f. 1932, búsett á Akranesi; Salvör, f.
1934, búsett á Akranesi; Georg, f.
1938, búsettur í Hafnarfirði; Sig-
valdi, f. 1941, búsettur í Hafnarfirði;
Halldóra, f. 1944, búsett í Reykjavík;
Svanhvít, f. 1944, búsett í Reykjavík;
óskírð systir sem dó í fæðingu, f.
1950.
Foreldrar Friðbjargar: Ragnar
Þórður Sigurðsson, f. 1.7.1901, d.
2.5.1958, verkamaður á Akranesi og
Friðbjörg Kristjana Ragnarsdóttir.
b. á Læk, og kona hans, Friðbjörg
Friðbjamardóttir, f. 26.1.1909, nú
búsett á dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi.
Friðbjörg er að heiman á afmælis-
daginn.
Guðbjörg Bjamadóttir
Guðbjörg Bjamadóttir húsmóðir,
Kársnesbraut 17, Kópavogi, er sjö-
tugídag.
Starfsferill
Guðbjörg fáeddist í Reykjavík en
ólst upp í Litla-Ármóti í Hraungerð-
ishreppi í Flóa. Jafnframt húsmóð-
urstörfum var Guðbjörg matráðs-
kona hjá Stálsmiðjunni í Kópavogi
ítæpatvoáratugi.
Fjölskylda
Guðbjörg giftist 26.2.1955 Helga
Tryggvasyni, f. 10.3.1903, d. 18.8.
1988, presti og yfirkennara við KÍ.
Hann var sonur Tryggva Bjama-
sonar, hreppsfióra í Kothvammi í
Vestur-Húnavatnssýslu, ogElísa-
betar Eggertsdóttur húsfreyju.
Böm Guðbjargar og Helga em
Hellen Sigurbjörg Helgadóttir, f. 3.3.
1956, kennari í Kópavogi, gtft Einari
Eberhardtssyni og eiga þau tvo syni,
Helga Pál, f. 20.1.1983, og Martein,
f. 6.8.1984; Bjami Helgason, f. 9.4.
1957, offsetljósmyndari í Svíþjóð,
kvæntur Sjofn Guðmundsdóttur og
er dóttir þeirra Guðbjörg Olga, f.
16.12.1985,enbömSjafnaraffyrra
hjónabandi em Jósef Eir, f. 8.5.1975,
og Sara, f. 2.12.1976; Eggert Helga-
son, f. 13.7.1958, aðalbókari, búsett-
ur í Kópavogi, kvæntur Erlu Sverr-
isdóttur og em böm þeirra Kristó-
fer, f. 13.8.1984, og Dagný Eva, f.
17.6.1987.
Systkini Guðbjargar em Bjami
Ellert Bjamason, f. 17.11.1921, fyrrv.
bóndi, nú búsettur í Kópavogi, og
Sigríður Bjamadóttir, f. 27.4.1936,
starfsstúlka á hjúkrunarheimili,
búsett í Kópavogi og á hún einn son.
Foreldrar Guðbjargar vom Bjami
Bjamason, f. 25.4.1887, d. 19.1.1971,
Guðbjörg Bjarnadóttir.
jámsmiður og bóndi að Litla-
Ármóti, og Sigurbjörg Sigurðardótt-
ir, f. 14.4.1899, d. 24.10.1982, hús-
freyja.