Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1993, Page 36
Frjálst,óháö dagblað
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1993.
„Við munum afhenda bæjar-
stjóra undirskriftir 5.300 manna
klukkan þijú í dag,“ sagði Kristján
Bersi Ólafsson, skóiameistari í
Flensborg, og einn talsmanna fé-
firði.
síðustu þijár helgar og dagana þar
á milii safnað um 5.300 undirskrift-
um þar sem skorað er á bæjaryfir-
völd í Hafnarfirði að fyrirhuguö
bygging í miðbæ Hafnarfjarðar
falli að umhverfi og verði ekki
hærri en þau hús sem fyrir eru.
„Við munum skoða þetta vel en
ég get ekki sagt til um hvort þetta
muni hafa áhrif á endanlegt útlit
hússins. Þaö er enn í hönnun og
það eru takmörk fyrir hverju er.
hægt að breyta. Það era ekki bæjar-
yfirvöld sem eru að byggja heldur
einkaaöilar,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson, bæjarsljóri í
Hafnarfirði. Hann sagði að á sið-
ustu 50 til 60 árum hefði verið rifist
um eitthvað um tíu byggingar í
miðbæ Hafnaríjarðar. „Þaö virðist
frekar vera regla en undantekning
að rifist sé um byggingar i míðbæn-
um,“ sagði Guðmundur Árni.
Krisiján Bersi sagði að það gætu
í mesta lagi verið um 100 af þeim
sem skrifuöu undir sem væru ekki
kosningabærir Hafnfirðingar, en
samtals væru þeir tæp ellefu þús-
und, þannig að helmingm- þeirra
hefur skrífað undir, „Þetta er í
raun meira því við náðum ekki til
allra. Okkur virðist sem 70 til 80
prósent þeirra sem við náðum til
hafi skrifað undir,“ sagði Kristján
Guðmundur Árni sagðist ekki
taka þessar undirskriftir sem
harða aðgerð gegn bæjaryfirvöld-
um þar sem húsinu er ekki mót-
mælt heldur aöeins hæð þess. Hann
sagði ekkert liggja á að endurskoða
hæðina þó svo að framkvæmdír
væru að hefjast þar sem byrjað
yrði á grunninum.
-sme
Hæsta þorsk-
verðið
„ íEvrópuer
á íslandi
„Hæsta verðið á þorski í Evrópu í
dag er á íslandi. Þaö var tími til kom-
inn. En það er lækkandi verð á öllum
fiski, það er búið að vera þannig frá
í haust og á jafnvel ennþá eftir að
lækka. Þetta er aðallega út af þorsk-
inrnn sem kemur úr Barentshafinu
þó að Friðrik og þeir vilji ekki viður-
kenna það. Þetta er allt á niðurleið
og er ekkert nýtt. Ég veit ekki betur
en að siglingar á England séu bók-
staflega dottnar niður en á Þýska-
land er enn verið að fara með karf-
ann. Við hljótum að eiga eftir að fara
j^r neðar og þetta verði okkur erfið-
ara,“ sagði Gísh Jón Hermannsson,
framkvæmdastjóri Ögurvíkur, við
DV í morgun, aðspurður um horfur
á fiskmörkuðum erlendis þar sem
verð hefúr lækkað mjög.
Aðspurður um aðgerðir EB og inn-
flutningshöft á fiskmarkaði í þeim
löndum sagði Gísh. „Nei, ég held
þeir geri það ekki. Þeir styrkja bara
sína menn. Svo eigum við að keppa
við þá með því að lagðir séu á okkur
skattar - það á að búa til og setja á
okkur þróunarsjóð. Helstefna Krata
heldur þetta, að við getum borgað
, allt sukkið þeirra undanfarin ár með
þessu.“ -ÓTT
Stal kókdósum
fyrir 12 þúsund
Um hádegisbilið í gær braut þjófur
upp kóksjálfsaia við Hafnarstræti 20
og stal kókdósum að verðmæti um
12 þúsund krónur. Hann náðist ekki.
Þá var lögreglu tilkynnt um inn-
brot í mannlausa íbúð á Laugavegin-
um. Þar höíðu þjófamir meðal ann-
ars á brott með sér sjónvarpstæki og
hijómflutningstæki. -ból
Stal hluta inn-
búsins
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Þegar íbúðareigandi nokkur á Ak-
ureyri sofnaöi ölvunarsvefni í íbúð
sinni á laugardagsmorgun tók
drykkjufélagi hans á brott með sér
eitt og annað lauslegt úr íbúðinni.
Hann hafði m.a. á brott með sér
sjónvarpstæki, hljómflutningstæki
og síma og þegar íbúðareigandinn
vaknaði síðdegis í gær var hann fijót-
m- að leggja saman tvo og tvo og fékk
út að „góssið" væri í höndum
drykkjufélagans sem reyndist vera.
Reyndu að
söluturna
Þrír unghngar, tveir strákar og ein
stúlka, voru í gær tekin höndum þar
sem þau voru að reyna að selja þýfi
úr innbrotum í sölutuma.
Eldri pilturinn, sem er 17 ára, hefur
ítrekað komið við sögu lögreglu fyrir
margvísleg brot, síðast fyrir að stela
lyfjatösku frá lækni. Hinn drengur-
inn og stúlkan em 15 og 14 ára.
Sjoppueigandi lét lögreglu vita þeg-
ar unglingamir buðu honum góssið
til sölu. í bíl þeirra fannst mikið af
þýfi, svo sem vindhngalengjur og
útvarpstæki. -ból
Stal peninga-
kassa frá hóteli
Lögreglan handtók í gær mann sem
hafði stohð peningakassa frá Hótel
Mar í Brautarholti.
Árvökul kona í Skipholtinu hringdi
í lögregluna um miðjan dag og til-
kynnti að einhver gmnsamlegur
maður væri að bauka við peninga-
kassa í bakgarðinum. Þegar lögregl-
an kom á vettvang var maðurinn að
reyna að opna peningakassann.
Það getur verið spennandi að fylgjast með atkvæðagreiðslunni í Söngvakeppni Sjónvarsins. Þær Ingibjörg Stefáns- Hann var það nýbúinn að stela kass-
dóttlr, sem söng sigurlagið, og Anna Mjöll Ólafsdóttir, sem söng iagið sem varð í 2. sæti, fylgjast hér með atkvæða- anum að eigandinn hafði ekki enn
greiðslunni á laugardagskvöldið. Sjá ennfremur bls. 4. DV-myndGVA uppgötvað þjófnaðinn. -ból
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
r-iT-i-'j1-111 j J -v jj
LOKI
Þeim fjölgar Hafnarfjarð-
arbröndurunum!
Veöriðámorgun:
Hvassviðri
og skúrir
I Á morgun verður suðvestanátt
á landinu, allhvöss suðaustan- og
austanlands en hægari annars
staðar. Skúrir sunnan- og austan-
lands en slydduél vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 46
.
-
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
M*líÞuls&n
Suðuriandsbraut 10. S. 686489.