Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993 Fréttir Vinnueftirlit ríkisins: Forstjórinn í viku- ferð til Indlands „Á þessa ráðstefnu fara forstjórar vinnueftirlita allra Norðurlandanna. Þetta er á vinnuvemdarsviði í tengsl- um við starfið. Það var búiö að gera áætlun um kostnað en ferðin var seint. til komin. Hin Norðurlöndin geta oft gert hagstæðari samninga með svona ferðir því þau semja með löngum fyrirvara. Það er oft erfitt hér því feröaáætlanir eru samþykkt- ar rnjög seint," sagði Dagrún Þórðar- dóttir, skrifstofustjóri Vinnueftirlits ríkisins, í samtali við DV. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, fór fyrir helgi í ferð til Indlands þar sem hann situr nú ráðstefnu. Hann kemur heim þann 10. apríl. Dagrún sagöist ekki hafa undir höndum gögn sem sýndu áætlaðan kostnað við fór forstjórans en sagði að nokkuð hagkvæmir ferðasamn- ingar hefðu náðst miðað við hve stuttur fyrirvarinn var á fór Eyjólfs. „Eins og hjá ríkisstofnunum þurf- mn við að gera áætlanir 1 janúar, febrúar eða mars - þá þurfa ferða- áætlanir fyrir árið að vera tilbúnar. Oft tekur tíma að fá þetta samþykkt þannig að þaö er aldrei hægt að skipuleggja. Þaö er hægt að gera hag- kvæmari ferðaáætlun hjá ríkinu geri ég ráð fyrir ef það væri hægt að skipuleggja svolítiö fyrirfram,“ sagði Dagrún. -ÓTT Skíöasvæöin yfir hátíðisdagana: Gott skíðafæri Skíðamenn hafa ekki fengið mörg tækifæri til að renna sér í vetur en útht er fyrir gott skíðafæri á öllum skíðasvæðum landsins yfir páskana. Bláfjöll, Skálfell og Hengill í skíðalöndum í nágrenni höfuð- borgarinnar verður opið frá klukkan 10-18 alla páskahelgina. Á öllum svæðunum er nægur snjór og ágætis færi. Reyndar hefur færið mýkst nokkuð þegar hðið hefur á daginn enda hiti verið um eitt stig en útht fyrir betra færi þegar kólnar yfir nóttina. Skiðakennsla verður í gangi aha daga í Bláfjöllum og Skálafelh og messa í Bláfjöllum á páskadag. ísafjörður Opið verður klukkan 10-17 aUa páskahelgina. Nægur snjór er á Seljalandsdal og þokkalegt færi, mætti kólna. Skíöavika verður í gangi til 12. apríl þar sem keppt verð- ur í öUum greinum og mikið verður um uppákomur ýmiss konar. Siglufjörður A skíðasvæði Siglfirðinga verður opið klukkan 10-17 hátíöisdagana. Nægur snjór er og þokkalegt færi, betra ofar í brekkunum. Færið mun batna þegar kólnar á nóttunni. Akureyri í Hlíöarfjalli verður opið 10-17 alla páskahelgina. Nægur snjór er en færi í mýkri kantinum, þyrfti að frysta og snjóa um leiö. Skíðakennsla verður yfir helgina og bamaskíða- mót og parakeppni á skíðum á laug- ardag. A páskadag verður árleg al- menningsganga. Göngubrautir fyrir ýmsar vegalengdir veröa troðnar og sérstakt svæði útbúið fyrir þá sem renna sér á brettum. Dalvík Á Dalvík verður opið 10-17 alla daga. Nægur snjór er en færiö hefur verið að Unast. Á skírdag verður tveggja brauta firmakeppni. Oddsskarð í Oddsskarði verður opið klukkan 10-17 alla páskahelgina. Þar er meira en nóg af snjó og prýðhegt færi. Um helgina verður Týról-hátíð með ýms- um uppákomum, bæði að deginum og á kvöldin. Á laugardag verður keppniírisasvigi. -hlh Á skíðasvæðum landsins eru ágætar aðstæður til að fara á skíði - nú eða þá aö leika listir sinar á snjóbretti eins og þessi ungi piltur. DV-mynd GVA Fíkniefnalögreglan handtók sjö manns í kjölfar húsleitar í Breiö- holtinu ámánudagskvöld ogyfir- heyrði og leitaöi á þremur til við- bótar. Við húsleitina fundust 18 grömm af hassi og fannst hluti af fíkniefhunum í frystikistu i geymslu sem ótengdur íbúí í fjöl- býUshúsinu 1 Tvíburabræður, 21 árs, búa í íbúöinni sem lögregla réðst til inngöngu í. 7 karlmenn, sá elsti 38 ára en flestir á aldrinum 18-20 ára, voru í heimsókn hjá tvíbur- unum og tveir 19 ára piltar og ein 16 ára stúlka komu í heimsókn á meðan lögreglan var við leit í íbúðinni. Flestir þeir sem voru í heim- sókn hjá tvíburabræðrunum voru meö peninga með sér og leikur grunur á að þeir hafi kom- ið til að kaupa fíkniefni af bræðr- unum. Sjö refsidómar Tvíbinarnir hafa margsinnis komið við sögu Iögreglu og hafa hlotið alls 7 refsidóma. Þeir voru í janúarlok dæmdir í árs fangelsi hvor fyrir umfangsmikið fíkni- efnamisferli á árunum 1989-1990 en hafa ekki hafiö afþlánun. I því máli veittu þeir lögreglu mótspymu með hnifum við hand- töku og var mikiJI flöldi ung- menna handtekinn og yfirheyrð- ur í kjölfariö. Sannað þótti að þeir heföu keypt samtals um 4 kfló af hassi og endurselt um 2 kfló til 40-50 unglinga. Árið 1991 voru þeir dæmdir f 15 mánaða skilorðsbundið fang- elsi og síðar á því árií mánaðar skflorðsbundið fangelsi. Með þessu máli nú hafa tvíbur- amir rofið bæði þessi skilorö og mega því eiga von á aö þurfa að sitja af sér þá dóma aö viðbættum árs fangelsisdómnum frá því í janúar, alls um 2 og hálft ár. -ból í dag mælir Dagfari Lausn á atvinnuvanda í öllum látunum vegna ráöningar Hrafns Gunnlaugssonar sem fram- kvæmdastjóra Sjónvarps hefur mönnum fllilega yfirsést eitt mik- ilsvert atriði. Mönnum hefur yfir- sést að sjálfstæðisráðherramir hafa fundið lausn á atvinnuvanda þjóðarinnar. Eins og öllum er ljóst finna ráöherramir tfl þegar blásak- laus og hæfileikaríkur maður er fyrirvaralaust rekinn úr starfi. Hrafn Gunnlaugsson varð fyrir barðinu á þessu óréttlæti. Hann haföi ekkert sér tfl saka unnið ann- að en að úthúða pínulítið þeirri stofnun sem hann var ráðinn tfl og sparkaö obbolítið í punginn á sínu samstarfsfólki. En þaö var allt í góðu, eins og Hrafti er margbúinn að segja, enda drengskaparmaður eins og útvarpsstjóri sem er dreng- skaparmaður líka. Fyrir þetta var Hrafn rekinn og sjáflstæðisráðherramir fylgjast vel með uppsögnum og atvinnuleysi landsmanna og hafa áhyggjur af þeirri þróun að fleiri og fleiri verði atvinnulausir og það er auðvitað ennþá átakanlegra þegar menn em reknir fyrir engar sakir. Þess vegna gekk maður undjr manns hönd í ríkisstjóminni, að minnsta kosti sjálfstæöisráðherramir, og leituðu ráða tfl að finna nýtt starf handa atvinnulausu séníi. . Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins mega ekkert aumt sjá og þeir gættu sín á því að láta ekki krataráöherrana vita, vegna þess að kratamir em ekki eins viðkvæmir fýrir atvinnuleys- inu. Enda mátti heyra það í ræðu Össurar Skarphéðinssonar að hann var óánægður með ráöningu Hrafns og kvartaði undan því að hafa ekki verið látinn vita því þá hefði hann kannske getað komið í veg fyrir hana. Nei, það var eins gott að kratam- ir fréttu ekkert um þetta, vegna þess aö hér em sjálfstæðisrráð- herramir búnir að finna upp lausn á atvinnuvandanum. Þeir sem sagt gáfu öðrum manni frí á fullum launum tfl aö geta útvegað Hrafni starf! Pétur Guðfinnsson hefur starfaö sem framkvæmdastjóri Sjónvarps í nær þijátíu ár og er að eigin sögn orðinn afskaplega þreyttur á því aö þurfa að mæta tfl vinnu. Hann var margbúinn að fara fram á það aö fá frí á kaupi, vegna þess að hann var orðinn þreyttur á vinnunni. Jafnvel alveg frá upphafi. Og sjálfstæðisráðherramir slógu tvær flugur í einu höggi. Leystu aumingja Pétur undan því fargi að mæta tfl vinnu og leyfa honum að vera heima hjá sér á fullum laun- um. En jafnframt settu þeir Hrafn Gunnlaugsson í starfið og þar með em tveir menn á fullum launum sem framkvæmdastjórar hjá Sjón- varpinu án þess að annar þurfi að mæta. Hinn þarf aö vísu að mæta en hann á hvort sem er erindi nið- ur í Sjónvarp stöku sinnum því hann á inni hjá Sjónvarpinu nokkr- ar mifljónir fyrir bíómyndir sem hann ætlar að klára þegar hann má vera að. Til að Hrafn geti staöið við skifld- bindingar sínar gagnvart Sjón- varpinu um gerð þessara kvik- mynda er ekki óeðlilegt að hann fái fljótlega frí á fullum launum tfl að ljúka þvi verkefni og þá má setja annan mann í embættið og þá em komnir þrír menn á fullum launum í eitt og sama starfið. Þetta er upplagt fordæmi um aðr- ar stöður hjá ríkinu. Því miður gerist þaö um allt stjómsýslukerfiö aö fólki er haldið í vinnu á ríkis- kontórum sem er þjakað af vinnu- leiða eins og Pétur Guöfinnsson og vildi gjarnan fá frí á fifllum launum tfl að hvfla sig á erilsömu og leiðin- legu starfi. Með því að gefa öllu þessu fólki frí á fullum launum, sem er sanngjamt eftir langt og giftudrjúgt úthald í þreytandi og leiðinlegri vinnu, má skapa ný störf í þjóðfélaginu sem dregur mjög úr atvinnuleysinu. Dagfari veit um marga ágæta embættismenn sem eru dauð- þreyttir í störfum sínum. Af hveiju ekki aö gefa þeim frí? Af hveriu ekki að senda þá heim svo blásak- laust og hæfileikaríkt fólk geti fengið að vinna og ekki sakar ef það fær tækflæri til að sparka svo- lítið í punginn á öðrum opinberum starfsmönnum í leiðinni og koma fútti í stjómkerfið? Ekki veitir af Það eru margir Hrafnar á atvinnu- leysisskrá sem glaðir mundu gera smávegis usla, ef það yröi til þess að sjálfstæðisráöherramir sjái aumur á þeim og reddi þeim um vinnu. Dagfari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.