Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL1993
Dagur í lífl sr. Vigfúsar Þórs Ámasonar:
Ferming, skim og hjónavigsla
Sr. Vigfús Þór Árnason ásamt nokkrum fermingarbarna sinna.
„Það var ætlunin aö vakna kl. sjö
að morgni en eflaust hafa verkefni
dagsins valdið því að ég vaknaði hálf-
tímanum fyrr en ætlað var. Dagur-
inn hófst á hinum gamla sið, að horfa
til veðurs, en það var mér ofarlega í
huga vegna þess að veður skiptir
máli á fermingardögum. Pálma-
sunnudagur er sérstakur dagur hjá
kirkjunni því þá hefst dymbilvika,
kyrravika, síðasta vika fóstunnar, en
þá daga íhuga menn atburði fóstunn-
ar og beina huganum að aðalhátíð
kristinna manna, sjálfum páskun-
um. Þessi dagur hefur einnig verið
sérstakur í huga mínum vegna þess
að þennan dag var fermt á Siglu-
firði, hvar ég gegndi prestsþjónustu
í þrettán ár.
Ræðan samin
Eftír að hafa lokið við morgunkaíf-
ið var sest við tölvuna. Fyrsta verk-
efnið var að semja hjónavígsluræðu.
Hjónavígslan átti að fara fram kl. 16
á heimili brúðhjónanna við Funa-
fold. Við samningu ræöunnar hafði
ég í huga að athöfnin átti að fara fram
á heimili og að brúðurin er félagi í
kirkjukómum minum, kirkjukór
Grafarvogs. Þegar vinnu við ræðu-
gerðina lauk þurfti ég að skrifa
skírnarkveöjur fyrir þau börn sem
átti að skíra þennan dag og síðan
leit ég yfir messuliöi fermingarguös-
þjónustunnar sem átti aö fara fram
kl. 10.30 í Árbæjarkirkju, en eins og
kunnugt er eigum við ekki ennþá
okkar eigin kirkju hér í Grafarvogs-
sókn þó að sóknarbömin séu á
níunda þúsund.
Út í kirkjuna héldum við hjónin
rétt eftir klukkan níu en þá hafði
konan mín séð um að dætur okkar
færa á fætur til að aðstoða við bama-
messuna sem við höldum í messu-
heimih okkar, félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Þegar út í kirkjuna kom var
organistinn Sigurbjörg Helgadóttir
byijuð að æfa kirkjukórinn en við
hjónin, ásamt konum úr Safnaðarfé-
lagi Grafarvogssóknar, þurftum að
undirbúa fermingarguðsþjónustana,
ásamt því að konumar klæddu ferm-
ingarbörnin í kyrtla og gættu að að
ekkert gleymdist, eins og miöar með
nöfnum barnanna og einkunnarorð-
um.
Fermingin
Fermingarguðsþjónustan gekk vel.
Börnin myndarleg og falleg fluttu
einkunnarorð sín vel og tóku virkan
þátt í guðsþjónustunni. Ég er þess
fullviss að þessi stund talaði til þeirra
og að heitið sem þau gáfu var sagt
fram af einlægni barnsins, hjarta
þeirra sló með. Þaö er mikiö rætt um
fermingarveislur og gjafir en í þeirri
umræðu má ekki gleymast hvað það
er ánægjulegt að fá að gleðja aðra og
taka þátt í fjölskylduhátíð, en af þeim
er ekki of mikið í nútímalífi.
Ekki má ég nema lengur staðar við
ferminguna þó að ég vildi segja þar
margt sem má heyrast. Að lokinni
fermingarguösþjónustunni kom til
okkar í kirkjuna Gísli Helgason.
Hann ætlaði aö taka upp fyrir okkur
skírnarsálm sem ég nota viö skírnir
í heimahúsum. Daginn áður hafði ég
komið til hans í hljóðver Blindra-
vinafélagsins. Þar vinna þeir í sam-
vinnu við Lions að skemmtilegu
verkefni sem felst í því að lesa inn á
spólur greinar úr tímariium og senda
til fastra áskrifenda. Ég las fyrir þá
páskahugvekju en á undan mér las
Stefán Skaftason yfirlæknir og á eftir
mér kom Ester Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Slysavarnafélags
íslands.
Að lokinni upptöku ók ég Gísla í
hljóðver en hann ætlaði að ljúka verk-
inu þannig að ég gætí notaö spóluna
í skímarathöfn kl. 14.00. Haldið var
heim í Grafarvoginn í Logafoldina,
en þar gat ég staldrað við í fimm mín-
útur en þá lá leiðin í Blindraheimilið
og síðan til þeirrar fjölskyldu sem
óskað hafði eftír skím. Þar á heimili
kom í ljós að þetta var íjórða bamið
sem ég hefi skírt í íjölskyldunni en
foreldramir búa á ísafirði.
Það er ánægjulegt að vera með
fólkinu um stund og þiggja veitingar,
kynnast því betur, en því miður af-
markar tíminn oft stundina. Næsta
skref var að fara aftur í Grafarvoginn
og eins og áður sagöi annast þar
hjónavígslu og skírn. Þar var
ánægjulegt að dvelja og taka þátt í
gleði hjónanna og fjölskyldunnar.
Þar með í athöfninni var organistinn
minn ásamt hluta af kirkjukómum
sem söng fyrir félaga sinn úr kirkju-
kórnum. Viðvera þeirra setti sterkan
svip á athöfnina. Það var ánægjulegt
aö geta verið þar um stund án þess
að þúrfa að flýta sér. Vegna athafna
var því ekki viðkomið að heimsækja
nokkur fermingarbörn sem höfðu
beðið prestinn sinn aö líta inn ein-
hvern tíma dagsins.
Með fjölskyldunni
Þegar heim var komið aö kvöldi
dags hringdi formaður sóknamefnd-
ar og við ræddum saman um sóknar-
nefndarfund og hvernig hefði gengið
í barnamessunni fyrr um daginn.
Símtalið hjá tveimur áhugamönnum
vun safnaðarstarf var langt en dýr-
mætt fyrir prestinn. Eftir það rædd-
um við hjónin um það hvort að ekki
væri eðlilegt að eiga stund með börn-
unum, en margar athafnir voru
framkvæmdar að laugardeginum og
þess vegna litlum tíma eytt með fjöl-
skyldunni.
Viö ákváðum því að fara í heim-
sókn tíl elsta bróður míns. Þegar
okkur bar að garði vora þau að koma
af fundi með Fáksfélögmn en hesta-
mennskan á hug þeirra og sál.
Þau voru hissa að sjá okkur sem
segir okkur það að alltof lítill tími
er til staðar til að hitta fjölskyldu
sína og vini. Þegar heim var komið
leit ég um stund yfir dagskrá morg-
undagsins um leið og ég þakkaði fyr-
ir góðan og blessunaríkan pálma-
sunnudag."
Finnur þú fimm breytingar? 200
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: ELTA útvarps-
vekjaraklukka að verðmæti
5.450 frá versluninni Tónveri,
Garðastræti 2, Reykjavík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem era í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöíði. Bækumar em gefnar út
af Frjálsri flölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 200
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
nítugustu og áttundu getraun
reyndust vera:
1. Valdimar Gunnarsson
Hamrabergi 42, 111 Reykja-
vík.
2. Hjördís Davíðsdóttir
Álakvísl 84,110 Reykjavík
Vinningarnir verða sendir
heim.