Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993
Útlönd DV
Þéringar eru nú femar að ryðja
sér aflur tíl rúms í Sviþjóð eftír
að þær hurfu svo tíl alveg fyrir
tuttugu og tínun árum. Ungt fólk
er ferið að þéra sér eldra fólk og
þá sem það þekkir ekki. Sömu
sögu er að segja úr þjónustu-
greinunum þar sem kurteisi þyk-
ir sjálfsögö.
Meðal þeirra staða þar sem þér-
ingar tíðkast nú aftur eru veit-
ingahús. Og kennarar í veitinga-
skólum segja nemendum sínum
að ekki sé við hæfl aö þúa við-
skiptavinina.
Ásfralirdrekka
ekki barabjór-
heldurvínlika
Það er ekki alls kostar rétt að
Ástralir séu einungis bjórsvelgir
miklir. Þeim finnst lika gaman
að skvetta í sig sterkari drykkjum
og léttvíni.
Samkvæmt nýrri könnun
drekkur meðaifjölskyldan í Ástr-
alíu 936 bjórdósir, 61 flösku af
iéttvíni og 20 flöskur af sterku
áfengi á ári hverju. í meöaiijöl-
skyldu eru afi, móðir, faðir og
tveír táningar. Sama fjölskylda
tekur einnig inn 67 lyfjategundir
og reykir 1144 sígarettur á ári.
Norska stjórnin
hefur700ný
sænskstörfí
hendisér
Norska ríkisstjórain hefur þaö
í hendi sér í þessum mánuði
hvort hægt veröi aö skapa sjö
hundruð ný störf i Svíþjóð. Um
er að ræða hvort stjómin fellst á
eða Iiafnar sölu norsk-sænska
súkkulaðifyrirtækisins Freia/M-
arabou til bandaríska matvæla-
fyrirtækisins Kraft General
Foods. Ef af sölunni verður hefur
ameríska fyrirtækiö lofað að
byggja við verksmiðjuna í Upp-
lands Vásby við Stokkhólm. Að
öðrum kosti verður verksmiðjan
reist í Belgíu.
Kraft General Foods hefur boð-
ið rúma sjötíu milljarða íslenskra
króna fyrir norrænu súkkulaði-
fabrikkuna.
Rúmlegasextug
konastjórnaði
eiturlyfjasölu
Sextíu og tveggja ára gömul
kona í Milanó á Italíu notaði ibúð
sína sem höfuöstöðvar eituriyfja-
hrings sem smyglaöi 50 tonnum
af hassi frá Marokkó um Spán
og Portúgal til Ítalíu. Konan er
tólf baraa móðir.
Konan var meðal þijátiu
manna sem lögreglan á Noröur-
ítaliu handtók í víðtækum að-
geröum sínum i gærmorgun.
Nokkrir synir konunnar voru
einnig handteknir í aögeröum
lögreglunnar.
fyrSrflengingu
Áströlskum atvinnurekanda
hefur verið gert aö greiða konu í
þjónustu sinni nærri hálfa milij-
ón króna í skaðabætur fyrir aö
hafa kippt niður um hana nær-
buxunum og flengt hana.
Konunni varö svo mikið um
þessa kynferðislegu áreitni aö
hún þurftí að hætta í vinnunni.
fíún starfaði sem ræstingakona í
stórmarkaði í Brisbane árið 1989
þegar yfirmaöur hennar bað
hana að fera á fjóra fætur og
hreinsa undir eldavél. Þegar kon-
an neitaöi geröi hann sér lítíð
fyrir og rassskellti hana.
TT og Reuter
Færeysklr landsstjómarmenn fá enga áheym hjá dönsku stjóminni:
Framfaraflokkurinn
stöðvar alla aðstoð
- gagnrýni hans á stjóm Færeyja hefur mikinn hljómgrunn meðal almennings
Jens Dalsgaaid, DV, Færeyjum;
Danska ríkissstjómin hefur ákveð-
ið að verða ekki við kröfum færeysku
landsstjómarinnar um aukinn
stuðning og meiri áhrif á stjóm fjár-
mála í eyjunum. Færeyingar vilja fá
meirihluta í stjórn Færeyjagruims-
ins, fjárfestíngasjóðs sem Richard
Mickelsen, fyrrum seðlabankastjóri
Dana, ræður fyrir.
Mikil óánægja er með sjóðsstjóm-
ina í Færeyjum. Á hennar vegum er
verið að undirbúa sölu á færeysku
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum
Marita Petersen og ráðherra hennar
fóru fýluferð til Danmerkur.
í hendur danskrar verslanakeðju.
Fjórir landsstjómarmenn áttu
fund með dönskum ráðherram í gær
en fengu þar enga áheym viö kröfum
sínum. Danmerkurforin hefur því
orðiö til lítils. Þaö er einkum Fólka-
flokkurinn sem heldur uppi kröfum
um aö Færeyingar fái meira að segja
um sín mál.
Danska stjómin er í klemmu vegna
ástandsins í Færeyjum. Hún sætir
harðri gagnrýni, einkum frá þing-
mönnum Framfaraflokksins, vegna
fiárausturs í færeysku efnahagshít-
ina. Þessi málflutningur á mikinn
hljómgrunn meöal almennings í
Danmörku og veldur mestu um að
stjómin getur ekki orðið viö óskum
Færeyinga.
Óli Breckmann, annar þingmanna
Færeyinga á danska þinginu, segir
aö danska sfiórnin komi nú fram eins
og „herforingjastjórn í bananalýð-
veldi,“ og vísar þá til þess að öll
helstu fyrirtæki í Færeyjum veröa
senn komin í danska eigu.
Marita Petersen og jafnaðarmenn
segja á hinn bóginn að það sem nú
er að gerast sé bein afleiðing af fyrri
björgunaraðgerðum Dana.
Ráðist gegn glæpum
Yfirvöld í Flórída í Bandaríkjunum
leggja nú á ráðin um hvemig þau
getí bundið enda á afbrotaöldu í
Miami þar sem ferðamenn em fóm-
arlömbin. Fylkissfiómin hefur sett á
fót sérstaka nefnd og hitti hún full-
trúa löggæslu í Miami í gær.
Sex ferðamenn, þar af þrír Þjóö-
verjar, hafa verið myrtir í Flórída frá
því í desember. Síðast á fostudag var
39 ára gömul þýsk kona barin til
bana að móöur sinni og bömum ásjá-
andi. Það morð varð tilefni mikilla
blaðaskrifa í Evrópu.
Þýska utanríkisráöuneytið bað í
gær ferðamenn á leið til Flórída að
sýna varkámi en gekk ekki svo langt
að mæla gegn slíkiun ferðum.
Á mánudag var m.a. gerð tilraun
tíl að ræna þrjár danskar konur.
Lögreglusfióri Miami bað þær per-
sónulega afsökunar.
Ferðamenn eru helsta tekjulind
Flórída. Fjömtíu milljón gestir koma
til fylkisins á ári og tekjur af þeim
Ala
BROWARD SYSLA
DADESÝSLA
Fia. Míami
67TH
STRÆT!
Ferðamaður
drepinn
em nærri 200 milljaröar króna.
Reuter
Norðmenn á hval-
veiðar eftir páska
Demi Moore og Bruce Willis, einhver umtöluðustu hjónin í leikarastétt um
þessar mundir, komu í gærkvöldi til forsýningar á nýjustu mynd frúarinnar
i Samuel Goldwin kvikmyndahúsinu i Beverley Hills. Myndin sú kallast
Dónalegt bónorð og verður sýnd almenningi innan skamms. Simamynd Reuter
Fjórir norskir hvalbátar leggja úr
höfn i næstu viku tíl aö skjóta 136
hrefnur í vísindaskyni í Barentshafi,
þrátt fyrir mótmæli umhverfis-
vemdarsinna. Meðal þeirra er bátur-
inn Nybrána sem Sea Shepard sam-
tökin reyndu aö sökkva í höfn um
jólaleytið í fyrra..
Steinar Bastesen, leiðtogi hval-
veiöimanna, sagði í samtali við
norska sjónvarpið að hann óttaðist
ekki aðgerðir umhverfisvemdar-
manna. Hann sagði að Barentshafið
væri of stórt til að hægt væri að hafa
uppi á fiórum hvalbátum.
Grænfriðungar hvöttu Evrópu-
bandalagið í gær til þess að banna
hvalveiðar og sögöu að sefia ætti það
sem skilyrði fyrir inngöngu Norð-
manna í bandalagið að þeir létu taf-
arlaust af veiðunum.
Viðræður Norömanna og EB um
bandalagsaðildina hófust í Lúxem-
borg í gær og við upphaf þeirra sagði
aðalsamningamaður Norðmanna að
hann liti ekki á hvalveiðamar sem
vandamál og um þær væri ekki hægt
að semja.
Norðmenn ætla að hefla hvalveiðar
í ábataskyni síðar á árinu og verða
veidd milli 300 og 800 dýr.
Reuter
Perulaga vöxtur vitnar um frjósemi
Hollenskir læknar segja að pem-
laga vöxtur kvenna vitni um ftjó-
semi. Þessi niðurstaöan fékkst eftir
rannsókn á 500 konum sem allar leit-
uðu eftir gerviffjóvgim á sjúkrahúsi
í Leiden.
Mál vora tekin af öllum konunum
og reyndist samband véra á milli
vaxtarlags þeirra og möguleikans á
að þær yröu þungaðar. Læknamir
segja að konur sem em vaxnar líkt
og epli eða egg séu ófrjósamari en
hinar.
Rannsókn læknanna leiddi einnig
í ljós að vöxturinn ræður meirn um
fijósemina en nokkur annar einstak-
nonenskir læknar segja aó perulaga vaxnar konur sé frjósamari en aðrar.
ur þáttur. Aldur, fita og reykingar
höfðu reyndust litlu skipta.
Læknamir segja aö vöxtur kvenna
ráöist af hormónastarfsemi í líkama
þeirra. Kvenhormón leiði af sér mik-
iö lendamál. Konur meö mikiö af
karlhormónum í líkamanum verða
jafnari í vextinu og jafnvel kúlulaga
meö aldrinum. Hormónamir valda
einnig mestu rnn fijósemina.
Læknamir segja að konumar 500
hafi allar verið taldar hafa jafnar lík-
ur á að verða þungaðar. Það þótti
hins vegar grunsamlegt þegar kven-
legur vöxturjók líkurnar á frjógvim.