Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL1993
Hagnýt lögfræði
„Ef hlutur er gallaöur og kaupandi vill bera hann fyrir sig þá skal hann
skýra seljanda frá þvi án ástæðulausrar tafar.“
Lausa-
fjár-
kaup
Aðallagaboð það sem nú gildir
um kaup hér á landi eru lög um
lausaíjárkaup. nr. 39/1922. Lausa-
íjárkaup er gagnkvæmur samning-
3ur þar sem seljandi lætur af hendi
eign sína (lausafé) en kaupandi
geldur seljanda fyrir með pening-
um sem endurgjald fyrir eignina í
staðinn.
Sú gnmdvallarskylda hvílir á
seljanda lausafjár að afhenda hið
selda í réttu ásigkomulagi, þ.e.a.s.
hið selda verður að vera að magni
og gæðum í samræmi við kaup-
samninginn eða þær hugmyndir
sem hggja homun til grundvallar.
Ef svo er ekki búa kaupalögin hin-
um svikna kaupanda nokkur úr-
ræði þar sem ákvæði þeirra um
galia í lausaíjárkaupum koma tii
sögunnar.
um gæði
Ef ekki eru skýr ákvæði um gæði
hins selda í kaupsamningi veröur
að rifja upp öll þau atvik við samn-
ingsgerðina sem gefið geta minnstu
vísbendingu um það hver þau
skyldu verið hafa. Til leiðbeiningar
um hver þau atvik geta verið má
nefna fyrirhugaða notkun hlutar
og upphæð kaupverðs. Hafi kaup-
andi verið eða mátt vera kunnugt
um galla á hinu selda við kaupin
en ekki hreyft neinum andmælum
getur hann ekki borið þann galla
fyrir sig. Hafi kaupandi rannsakað
Úutinn eða þá að hann hafi van-
rækt það, þó að seljandi hafi skorað
á hann að gera það, getur hann
ekki borið fyrir sig neina þá galla
er hann hefði átt að sjá við þessa
rannsókn nema seljandi hafi haft
svik í frammi. Galla, sem kaupandi
mátti ekki sjá við þessa rannsókn,
getur hann hins vegar boriö fyrir
sig. Því skiptir máli hvort um
leynda galla er að ræða eða ekki.
Réttur seljanda til að bæta úr göll-
um er mjög takmarkaður. Jafnvel
þótt hann bjóðist til að gera við
galiaða hlutinn eða láta annan
Ákvæði
ógallaðan af hendi getur hann þurft
aö sæta alvarlegri afleiöingum
vanefndar af sinni hálfu, þ. á m.
að kaupum verði rift eða að kaup-
andi krefjist skaðabóta eða afslátt-
ar. Sá sem heldur því fram að and-
lag kaups sé gallað ber sönnur
Umsjón
Orator
félag laganema
þeirrar staðhæfingar sinnar með
óyggjandi hætti. Ef hlutur er gaU-
aöur og kaupandi vill bera hann
fyrir sig þá skal hann skýra selj-
anda frá því án ástæöulausrar taf-
ar. Líði meira en ár frá því kaup-
andi fær gallaöan hlut afhentan án
þess að bera annmarka hans fyrir
sig getur hann ekki eftir þann tíma
gert neina sannanlega kröfu af
þeim ástæðum nema seljandi hafi
setið á svikráðum við hann ellegar
skuldbundið sig til að ábyrgjast
hlutinn í lengri tíma.
Úrræði kaup-
andavegna galla
Þau réttarúrræði sem kaupandi
hefur ef söluhlutur er gallaöur eru
margvísleg. Tiltekin skilyrði verða
þó að vera til staðar til að þeim
megi beita. Ef kaupandi hyggst
rifta kaupum verður gafii að vera
verulegur nema um svik sé að
ræða. Ef kaupandi krefst afsláttar
verður galhnn að hafa í fór með sér
verðrýmun á hlutnum. Kaupandi
getur krafist skaðabóta eingöngu
eða saman með öðrum vanefndaúr-
ræðum en haim getur þó ekki kraf-
ist bóta vegna þeirrar verðrýmun-
ar sem verður á hlut sem hann fær
bættan með afslætti. Séu skhyrði
th vanefhdaúrræða uppfyht er það
kaupandi sem á val um það hvaða
úrræðum hann beitir.
Matgæðingur vikurmar
Italskar
kjötbollur
- og grískt bóndasalat
„Þessar kjötbohur eru feikna vinsæll réttur heima
hjá mér þvi brauðið gerir þær svo léttar," sagði Ragn-
heiður Erla Rósarsdóttir menntaskólakennari sem er
matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Ragnheiður
Erla gefur uppskrift að ítölskum kjötbollum og byrjar
á sósunni. í henni er:
1 meðalstór, saxaður laukur
2 hvítlauksgeirar
3 msk. ólífuolía
1 hehdós tómatar
1 bohi tómatpúrra
1 'A bohi vatn
1 'A tsk. salt og pipar
1 /2 tsk. oregano
1 lárviðarlauf
1 tsk. sykur
Laukurinn er hitaður í ohunni þar th hann er glær.
Hvítlauk og afganginum er síðan bætt í og látið krauma
meðan bolludeigið er búið th. Það er gott að gera í
blandara en þó ekki nauðsynlegt. í það þarf:
8-10 sneiðar gróft brauð sem bleytt er upp í 'A-1
bolla af vatni. Bleytt brauðið er tætt í blandara og af-
ganginum af því sem þarf í réttinn síöan bætt saman
við. Það sem þarf til viðbótar í bollurnar er:
2 egg
2-300 g nautahakk
'A-'A bohi rifinn ostur
2 msk. steinselja
1 tsk. salt
Svolítill pipar, gjaman grófur, malaður
2 tsk. olía ef steikja á bohurnar
Öhu blandað saman í blandara og formað í litlar boh-
ur með teskeið. Annaðhvort er hægt að steikja bollurn-
ar og setja síðan í sósuna eöa setja þær beint í hana.
Bollumar stífna tiltölulega fljótt svo það er alls ekki
nauðsynlegt að steikja þær. Þær em látnar malla í
sósunni í 10-15 mínútur.
Með þessu er borið fram ferskt pasta, smábrauð og
rifinn parmesanostur, sem fæst í Ostabúðinni, eða þá
vepjulegur brauðostur.
Ragnheiður Erla lætur fljóta með uppskrift að öðrum
Ragnheiður Erla Rósarsdóttir er matgæðingur vik-
unnar að þessu sinni. DV-mynd ÞÖK
rétti sem heitir „grískt bóndasalat" og hún notar gjarn-
an sem aðalrétt. í honum era:
5 tómatar
A laukur
8 svartar ólífur
feta-ostur (sauðamjólkurostur sem fæst í Ostabúðinni)
Graslaukur
Tómatarnir era skornir í sneiðar og laukurinn skor-
inn niður þannig að hringir fáist. Feta-osturinn er
skorinn í teninga og öhu blandað saman. Ólífunum
er dreift hehum yfir og borðað með grófu brauði og
miklu smjöri.
Ragnheiöur Erla skorar á Elsu Sigtryggsdóttur.
„Hún er dagmamman mín og góð vinkona. Hún hefur
boöiö mér í mat og er alveg frábær kokkur," segir
Ragnheiður Erla.
Hinhliðin
Geri ekkert sem mér
finnst leiðinlegt
- segir Agústa Jónsdóttir, kaupmaður í Keflavík
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Ég geri helst ekkert sem mér
finnst leiðinlegt," sagði Ágústa
Jónsdóttir í Keflavík sem sýnir á
sér hina hhðina að þessu sinni.
Hún er móðir Lovísu Aðalheiðar
sem tók þátt í Ford-keppninni í
fyrra og sigraöi nú á dögunum í
Élite-keppninni.
Ágústa er umsjónarmaður með
keppninni um fegurðardrottningu
Suðurnesja og hún hefur einnig
sett upp tískusýningar en hún rek-
ur og á eina verslun í Keflavík og
aðra í Reykjavík.
Fullt nafn: Ágústa Jónsdóttir
Fæðingardagur og ár: 28. nóvember
1951.
Maki: Guðmundur Sigurjón Reyn-
isson.
Börn Georg, fæddur 1971, og Lovísa
Aðalheiður, fædd 1975.
Bifreið: Nissan Sunny, árgerð ’87.
Starf: Kaupmaöur.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Vinnan og ferðalög.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég fékk þijár í
gamla lottóinu en aðeins tvær í því
nýja.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Þaö sem maður er að gera
Ágústa Jónsdóttir kaupmaður.
DV-mynd Ægir Már
hverju sinni og njóta þess
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Ég geri ekkert leiðinlegt.
Uppáhaldsmatur: ítalskur matur.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn, kaffi og
kampavín.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Sigrún Huld
Hrafnsdóttir.
Uppáhaldstímarit: Fashion Guide.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Það era margjr karlmenn, sem
ég hef séð, fallegir, en bara misjafn-
lega fahegir.
Ertu hlynnt eða andvig rikisstjórn-
inni? VU helst gleyma henni.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Pavarotti í Scala í Mílanó.
Uppáhaldsleikari: Harrison Ford.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep.
Uppáhaldssöngvari: Pavarotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jó-
hanna Sigurðardóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Fred Flintstone.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Tísku-
þættir.
Ertu hlynnt eða andvig veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlynnt.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Brosið á Suðumesjum og
Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjarni
Dagur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Nokkurn veginn jafnt
á báðar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Kristín
Helga á Stöð 2.
Uppáhaldsskemmtistaður: ítalskur
lambadastaður í Dusseldorf.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Kefla-
vík og Njarðvík.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að halda áfram með
það sem ég er að gera og gott betur.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Vinna, en annað er óráöið.