Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993
57
„Talið er aö spilakassar séu varhugaverðastir allra fjárhættuspila þó að upphæðirnar sem spilað er um í
hvert skipti séu ekki háar.“
Spilakassar/
spilafíkn
Þeir sátu saman í hálfrökkri á
bamum á Rauða ljóninu og hvísl-
uðu leyndarmálum hvor að öðrum.
Báðir voru þeir í ágætum stöðum,
áttu konu og böm, bíl og hús en
allt var runnið þeim úr greipum.
Annar haíði ungur verið hallur
undir happdrætti og eytt meim en
góðu hófi gegndi í skafmiða og
lottóseðla. Hinn fór snemma að
spila peningaspil í litlum spila-
klúbbi í austurbænum. Á árunum
í kringum 1990 höfðu þeir báðir
kynnst spilakössunum á börum
Reykjavíkurborgar. Þeir höfðu lagt
undir einhveija peninga og grætt
nokkra þúsundkalla. Upp frá þessu
jókst sókn þeirra í kassana snar-
lega. Allt lífið fór að snúast í kring-
um þá. Þeir fóm á ákveðinn bar
kl. 10 á morgnana, stóðu þar til
hádegis, fluttu sig síðan um set og
héldu áfram á nýjum kassa á öðr-
um bar. Flesta daga var spilað fyr-
ir 15-75000 kr. Áður en varði var
tapið mun meira en gróðinn og
grípa varð til alls kyns vafasamra
aðgerða til að fjármagna spila-
mennskuna. Bílar voru seldir, hús-
eignir veðsettar og sparibaukar
bamanna fóm fyrir htið. Undir
lokin vom nöfn systkina og tengda-
fólks fölsuð á skuldabréf og víxla
til að tryggja áframhaldandi fé.
Þetta kvöld var allt komið í þrot.
Spilaborgin var hrunin. Þeir höfðu
ákveðið að leita sér aðstoðar vegna
þessarar sjúklegu spilafíknar sem
hafði lagt líf þeirra beggja ogfjöl-
skyldnannaírúst.
Nýir kassar
Fjárhættuspilhefur um árabil
verið bannað á íslandi. Láknarfé-
lögum og fyrirtækjum er þó heim-
ilt að reka happdrætti með sér-
stöku leyfi dómsmálaráðuneytis. Á
áttunda áratugnum fékk Rauði
kross íslands leyfi til að reka spila-
kassa. Á síöustu árum hafa þessir
kassar gjörbreyst og önnur líknar-
félög, s.s. SÁÁ og hjálparsveitimar,
hafa fengið heimild til að fjár-
magna starfsemi sína með þeim.
Nýjustu kassamir taka við þúsund
króna seðlum og ábatavonin er
talsverð fyrir spilafólkið. Tahð er
að spilakassar séu varhugaverðast-
ir ahra fjárhættuspila þó að upp-
hæðimar sem spilað er um í hvert
skipti séu ekki háar.
Skilgreining,
úrræði og meðferð
Engar tíðnitölur era til um sjúk-
lega spilafíkn hérlendis. Sam-
kvæmt erlendum heimildum er tal-
ið að alvarleg spilafikn hijái nálega
1% fólks í vestrænum löndum.
Sjúkhngurinn er mjög upptekinn
af sphamennsku eða útvegun pen-
inga til að spila fyrir. Hann eykur
þá fiárhæð sem lögð er undir til að
magna spennuna. Spilafíkilhnn er
órólegur og kvíðinn ef hann getur
ekki spilað og tapar oft miklum
peningum. Margir reyna ítrekað
að hætta að spila en halda þó ahtaf
áfram þrátt fyrir öh félagsleg
vandamál sem af þessu stafa.
Venjulega þróast spilafikn á örfá-
um áram og fylgir þá ákveðnu stig-
versnandi ferh. Flestir vinna eitt-
hvað í byijun sem leiðir til óhóf-
legrar bjartsýni. Menn halda áfram
aö spha og tapa þá öllu sem áður
vannst. Með áframhaldandi spila-
mennsku eykst tapið og margir
Álðáknavaktiniú
spilafíklar fara þá út í ólögmætar
aðgeröir til að fiármagna áfram-
haldandi spilamennsku. Þetta end-
ar yfirleitt með ósköpum: gjald-
þroti, fangelsi, flótta eða jafnvel
sjálfsmorði. FÍestir spilafíklar
kannast við þá þráhyggju að þeir
verði að ná aftur því sem áður tap-
aöist. í því skyni fá menn lánað hjá
fiölskyldumeðlimum, vinum eða
lánastofnunum. En tapiö heldur
áfram svo að vandamálin verða sí-
fellt stærri. Miklir andlegir og fé-
lagslegir erfiðleikar steðja að. Sam-
viskubit, sektarkennd og sjálfsá-
sakanir kvelja þessa menn en þeir
beita vamaraðferðum sjálfsins til
að halda þessum röddum niðri.
Þeir ljúga og blekkja og reyna að
friða fiölskyldu sína með öllum til-
tækum ráðum. Allir virðast þeir
trúa því að einhvem tírna takist að
koma öhu í lag með aðstoð ein-
hvers sphs. Peningar leysa ÖU
vandamál og aUt sem á bjátar staf-
ar af peningaleysi. Meðferð á þess-
um einstaklingum er erfið og bata-
horfur óvissar. Margir vilja enga
meðferð enda sjá þeir ekki hversu
umfangsmikUl vandinn er. Menn
hafa reynt aðferðir AA-samtak-
anna og vinna með þessa einstakl-
inga eins og sjúklinga sem misst
hafi aUa stjóm á lífi sínu vegna
ómótstæðUegrar fíknar. Sjálfs-
hjálparhópar í anda AA-samtak-
anna GA (Gamblers anonymous)
hafa verið stofnaöir bæði hér og
erlendis og gefa góöa raun. Breyta
verður hugsunarhættí fikUsins og
kenna honum aðrar leiðir til að
fást við vanhðan og leiða. Menn
verða að forðast áreiti sem tengist
spUamennsku. Fjölskyldan verður
að fá hjálp til að vinna úr reiði,
beiskju og meðvirkni.
Meðferð í leiðarlok
Mennimir tveir ákváðu að fara í
meðferð enda engra annarra kosta
völ. Þeim létti þegar ákvörðunin
hafði verið tekin. „Við getum þó
huggað okkur við það að viö styrkt-
um gott málefni," sagöi annar.
„Bömin í Sarajevo fengu mat sem
keyptur var fyrir peningana okkar
sem runnu til Rauöa krossins. Ein-
hveijir alkóhóhstar fengu að fara
í meðferð hjá SÁÁ fyrir fé sem við
dældum í kassana.“ Hinn svaraði
fáu en sagði síöan: „Er það siðferð-
islega rétt að fiármagna baráttu viö
eina fíkn með því að magna upp
aðra? Er þaö réttlætanlegt að leggja
líf einnar fiölskyldu í rúst til aö
bjarga annarri?" Þeir þögnuðu báð-
ir og horfðu á þrjá unga menn sem
stóðu frjá kössunum og dældu í þá
peningum af ástríðu. Von, spenna
og örvænting skein út úr svip
þeirra. Allir höfðu þeir staðið við
kassana í 2-3 klukkustundir og
eytt stórum fiárhæöum. „ Vonandi
nýtast þessir peningar vel,“ sagöi
annar maðurinn. „Peningar hafa
hvorki samvisku né sál. Eins dauði
er annars brauð. Vonandi geta þeir
sem græða á ógæfu þessara manna
varið það fyrir eigin samvisku.“
Þeir stóðu upp og gengu hljóðlega
útínóttina.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni fasteign verður háð á henni sjálfri sem hér
segir Skólabrekka 6, Fáskrúðsfirði, þinglýst eign Gests Stefánssonar, gerðar-
beiðandi Öm Höskuldsson hrl., miðvikudaginn 14. apríl 1993 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
Ferðafólk á Hálendi íslands um
páskahelgina!
Feröaklúbburinn 4x4 beinir þeim
tilmælum til allra þeirra er leggja leið
sína á Hálendið þessa helgi, að það
velji sér leiðir með tilliti til snjóalaga.
Göngum vel um náttúru landsins.
Munum að á Hálendi ísland er engin
skipulögð sorphirða og tökum því allt
sorp með til baka.
Ferðaklúbburinn 4x4.
Samvinnuháskólinn
- rekstrarfræði
Rekstrarfræðadeild
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum miðar að því
að rekstrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-,
ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða við-
skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam-
vinnuháskólann eða annað sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og
stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjármálastjórn, starfs-
mannastjórn, stefnumótun, lögfræði, félagsmál o.fl.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Námið
er lánshæft hjá LlN.
Frumgreinadeild
Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskóla-
stigi, án tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar,
enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði og félagsmála-
fræði. Einn vetur.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á Bif-
röst ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði’o.fl.
Barnaheimili og grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um
38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans
á Bifröst. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar,
upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina
og um fyrri störf. Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Þeir
umsækjendur ganga fyrir sem eru orðnir eldri en 20
ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Um-
sóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því
sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólinn á Bifröst
311 Borgarnes - sími 93-50000