Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1993 Fréttir Skákmeistarinn Bobby Fischer enn 1 Serbíu: Er í stof uf angelsi á hóteli í Belgrad „Ég frétti af Fischer þegar ég var í Belgrad eftir áramótin og þar sem ég er áhugamaður um skák og forvit- inn um afdrif hans vildi ég endilega hitta hann. Hann vildi alls ekki hitta neinn og þrír lífverðir sáu til þess að hann yrði ekki truflaður. Ég komst ekki lengra en upp á 2. hæð hótelsins. Eftir á frétti ég síðan og las um þaö í tímaritinu Ilustrovana Poli- tika að honum væri haldið í eins konar stofufangelsi á hótelinu. Hann fer ekki hænufet án öryggisvarða og ferðast þá um í stórum Mercedes Benz. Viiji Fischer fara út að skokka fylgja verðimir honum eins og skugginn," sagði Uros Ivar Ivanovic, Júgóslavi sem býr hér á landi, í sam- tah við DV. Uros hefur haft milli- göngu um að Júgóslavar komi hing- að til að leika knattspymu. Uros sagði blaðamanni frá inni- haldi greinarinnar sem birtist mn Fischer í nefndu tímariti, auk eigin reynslu í tilraunum til að nálgast Fischer. í greininni kemur fram að Fischer býr í íbúð á 6. hæð í Hótel Intemational í Belgrad. Þar mun mánaðarvist kosta 2,8 milljónir króna. Enginn veit hver borgar reikningana en Fischer mun ekki - segir tímaritið Ilustrovana Politika vera í vanskilum við hótehð. Samkvæmt greininni er hann eins konar fangi, kemst hvergi án þess að hafa öryggisverði á hælunum. Hann getur ekki farið aftur til Bandaríkjanna þar sem hann á yfir höfði sér aht að 10 ára fangelsisdóm vegna brots á samskiptabanni því sem Sameinuðu þjóðimar settu á Serbíu og Svartfjallaland. Það var einmitt þar sem skákeinvígi Fischers og Borís Spasskís fór fram í vetur. Ungversk unnusta Fischers býr í Búdapest en þangað hefur Fischer ekki fengið að fara. Uros segir þá Fischer og Spasskí þegar hafa fengið greitt út umsamið fé vegna einvígisins. „Vasihvic, einn ríkasti maður Júgóslavíu, var búinn að borga skákmönnunum þegar hann flutti úr landi til ísrael þ'ar sem hann dvelur nú. Vasihvic þessi mun einnig hafa gert sölusaminga um skákklukku Fischers upp á 100 millj- ónir dollara. Fischer á því enn mikla peninga inni hjá honum.“ Um ástæður þess að Fischer er nánast haldið fóngnum á hótelinu segir htið í greininni. Er látiö að þvi Bobby Fischer á leik í einvíginu við Boris Spasskí. Nú segir tímaritið llustro- liggja að þær séu póhtísks eðlis. vana Politika að Fischer sé haldið í eins konar stofufangelsi á hóteli í -hlh Belgrad. Simamynd Reuter Hermann Ingason á Þingeyrum býr eingöngu við hross. Hér er hann á ungum stóðhesti, sem hann hefur nýlega fest kaup á, Heljari frá Hofi. Heij- ar er á fjórða vetur, undan Eldi 950. Mynd-Magnús Ólafsson Mörgstörfí hestamennsku Magnús Ólafesan, DV, Húnaþingi: Sífeht fjölgar þeim Austur-Hún- vetningum sem hafa fuha atvinnu af því að sinna tamningum og öðru staríi kringum hrossarækt. Nokkrir bændur stunda eingöngu hrossabú- skap og margir sinna tamningum með öðrum verkum. Þá taka nokkrir ungir menn sér frí frá öðrum störfum yfir vetrarmán- uðina og stimda tamningar. í vetur munu yfir 20 manns hafa af því at- vinnu að sinna hrossum í Austur- Húnavatnssýslu og hafa þeir ekki veriö jafnmargir áður. Undanfarin ár hafa Húnvetningar lagt mikla áherslu á að kynbæta hrossastofn sinn og hafa margir af fremstu stóöhestum landsins verið notaðir í héraöinu. Árangur þessa starfs er nú að skha sér með fleiri góðum hrossum. A annað hundrað slökkviliðsmenn mótmæla: Krefjast viðurkeniting- ar á stéltarf élaginu Á annað hundrað slökkviliðsmenn gengu á fund forsætisráðherra og borgarstjóra á dögunum. Slökkvi- hösmenn vildu mótmæla því að fjár- málaráöuneytið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga við- urkennáLandssamband slökkviliðs- manna ekki sem stéttarfélag og við- semjanda í kjaramálum. x „30. mars hafði Reykjavíkurborg afskipti af okkar innri málum með því að gera ákveðið tílboð um að við- urkenna slökkvhiðsmenn í Reykja- vík í stofnanafélagi en ekki aðra,“ segir Guðmundur Vignir Óskarsson, formaður Landssambands slökkvi- liðsmanna. Þetta þýöir að hluti slökkvihðsmanna hefði samnings- rétt en aðrir ekki. Samkvæmt heimhdum DV hta ein- staklingar innan landssambandsins á þetta sem thraun til að kljúfa sam- stöðu slökkviliðsmanna og var tiÞ boöinualgjörlegahafnað. -pp Brúnaþungir slökkviliósmenn ganga á fund borgarstjóra til að leggja áherslu á kröfur sínar. DV-mynd GVA Vaclav Havel, forseti Tékklands, á Keflavíkurflugvelli. DV-mynd Ægir Már Þrírforsetar í Keflavík Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjura- Þrír forsetar Austur-Evrópu- landa komu til íslands á dögun- ura, þeir Vaclav Havel, forseti Tékklands, Michal Kovac, forseti Slóvakíu, og Lech Walesa, forseti . Póllands. Flugvélar þeirra milh- lentu hér á leiö vestur um haf til Waslhngton. Forsetarnir ræddu við blaðá- menn og virtust hafa miklar áhyggjur af ástandinu í Balkan- skaga og þá sérstaklega ef átökin kynnu aö breiðast út. Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, endaði fund sinn með stuttri ræðu, riíjaði upp þriggja ára gamalt heimboð th íslands og sagði: „Ég minnist þeirra góðu stunda sem ég átti hér á landi þegar ég var forseti Tékkóslóvakíu og vil nota tækifærið meöan ég er hér að senda kveðju til forseta íslands og itreka að hún er ávallt velkom- in th lands okkar, Tékklands. Gytfi Krístjánsson, DV, Akuieyxi: Hehdarvelta Kaupfélags Ey- firðinga og dótturfyrirtækja þess var tæplega 9,8 milljarðar á síð- asta ári. KEA skilaði 12 milljóna króna hagnaði en um 230 milljóna króna tap varð á rekstri dóttur- fyrirtækjanna. Tekjur félagsins drógust saman um 6% mihi ára en rekstrargjöld lækkuðu meira eða um 7%. Hagnaður fyrir íjármagnsliöí var um 360 milljónir króna. Þrátt fyr- ir að skuldir lækkuðu á árinu hækkuöu fjármagnsgjöld að frá- dregnum fjármagnstekjum um 19% og voru um 333 milljónir króna. Hagnaöur af reglulegri starfsemi var um 27 milljónir borið saman viö 39 milljóna króna tap árið áður. Dótturfyrirtæki KEA eru 10 talsinsog skhuðu Qesttapi. Lang- mest var tapiö hjá Útgerðarfélagi Dalvíkinga eða 112,3 mihjónir, AKVA hf. var með 44 milljóna króna tap, 40 miQjóna tap varð af rekstri Hafnarstrætis 87-89 hf., 9 milljóna króna íap afVöruborg hf., Dagsprent var með 7,1 millj- ónar króna tap, Þórshamar með tap upp á 1,4 mihjónir en örlítill hagnaöur varð af Kaffibrennslu Akureyrar, Efnaverksmiðjunxú Sjöfn og Garðræktarfélagi Reyk- hverfmga hf. Aðalfundur KEA verður haldinn í næstu viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.