Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Side 37
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1993
49
Meiming
Barnakóramót
Níunda landsmót íslenskra barnakóra stóð nú um helgina. Liður í því
voru tónleikar, sem haldnir voru í Laugardalshöll á laugardaginn, þar
sem fram komu fjölmargir bamakórar, skipaðir hátt í þúsund bömum.
Undirleik annaðist Sinfóníuhijómsveit íslands. Stjórnandi var Jón Stef-
ánsson. ___________
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Tónleikarnir fóm þannig fram að
hinum ýmsu barnakórum var skip-
að saman í þrjá stóra kóra með aht
að 350 bömum hveijum. í lokin
simgu svo allir kóramir saman. í
upphafi og inni á milli lék Sinfóníu-
hljómsveitin þekkta forleiki úr óperum. Áður er tónleikamir hófust flutti
útvarpsstjóri, sr. Heimir Steinsson, ávarp.
Efnisskráin var fjölbreytt en mest var þó sungið eftir íslensk tónskáld.
Ath Heimir Sveinsson, Jón Leifs, Sigvaldi Kaldalóns, Skúli Halldórsson,
Jón Asgeirsson, Ingi T. Lárusson, Páll ísólfsson og Sveinbjörn Svein-
björnsson áttu lög, sem flutt vom, en auk þess var sungið og leikið eftir
Bizet, Verdi og Orff. Kynning dagskrárinnar var í höndum ungrar skýr-
mæltrar stúlku sem skilaði sínu hlutverki mjög vel. Mikið íjölmenni var
í Laugardalshöll og hvert sæti skipað. Einnig var setið í tröppum og
göngum. Að einhverju leyti var hátalarakerii notað og var mesta furöa
hve vel tókst að blanda hinu uppmagnaða hljóði saman við það sem ekki
var magnað upp. Við þessar aöstæður verður að segja að hljómburðurinn
var vel þokkalegur og mátti vel heyra flest af því sem fram fór.
Það er mikið fyrirtæki að skipuleggja samsöng svo mikils hóps bama
auk heillar hljómsveitar. Allt tókst það mjög vel og varð ekki vart neinna
vandræða í því efni. Söngur kóranna var mjög góður og var tilkomumik-
ið að sjá allt þetta unga fólk sameinast um þá göfugu og heilbrigðu tján-
ingu sem söngurinn er. Meðal annars komu fram einsöngvarar sem áreið-
anlega eiga eftir að láta meira til sín taka í söng í framtíðinni. Sinfóníu-
hljómsveitin lék mikilvægt hlutverk þama og er vart hægt að hugsa sér
heppilegri kynningu á starfi hennar en þessa. Stjórnandinn, Jón Stefáns-
son, vann þrekverki í að halda öllu saman og eiga hann og allir hinir
kórstjóramir miklar þakkir skildar fyrir framtakið.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um viðskiptasið-
fræði
Dr. Lidmila Nemcová heldur opinberan
fyrirlestur um viðskiptasiðfræði ávegum
Siðfræðistofnunar Háskóla íslands
þriðjudaginn 27. apríl. Fyrirlesturinn,
sem fluttur verður á ensku, verður hald-
inn í stofu 101 í Odda og hefst stundvís-
lega kl. 17.
Fundir
Hið íslenska náttúru-
fræðifélag
í dag, 26. apríl kl. 20.30, verður haldinn
sjötti fræðslufundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags á þessum vetri. Fundur-
inn verður að venju haldinn í stofu 101 í
Odda, hugvisindahúsi Háskólans. Á
fundinum heldur Borgþór Magnússon lif-
fræðingur; Rannsóknastofnun landbún-
aðarins, erindi sem hann nefnir: Vist-
fræði og útbreiðsluhættir Alaskalúpínu.
í erindi sínu segir Borgþór frá rannsókn-
um á lúpínu, sem fram hafa farið á Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins, og helstu
niðurstöðum þeirra. Fræðslufundir fé-
lagsins eru öllum opnir og aðgangur
ókeypis.
Þroskaþjálfar
Aðalfundur félags Þroskaþjálfa verður
haldinn í Munaðamesi laugardaginn 8.
maí 1993 kl. 14.15. Dagskrá: 1. venjuleg
aðalfundarstörf, 2. Önnur mál, a. tillögur
á breytingum á siðareglum þroskaþjálf-
ara. B. stofnun stéttarfélags?.
Kvenfélag Hreyfils
verður með gestafund 27. apríl kl. 20 í
Hreyfllssalnum. Gestir fundarins eru
konur úr Thorvaldsensfélaginu.
Foreldrafélag misþroska
barna
heldur fund í dag, 26. apríl, í Æfingadeild
kennaraháskóla Islands kl. 20.30. A fund-
inum verður fjallað um Starfsdeildir -
starfsþjálfun og starfsprófun. Edda Ólafs-
dóttir, Guðbjörg Daníelsdóttir og Rósa
Björk Þorsteinsdóttir eru allar starfsráð-
gjafar hjá starfsþjálfunarstaðnum Örva
og þær aðstoða ungt fólk við að finna sér
viðeigandi hillu í lífinu. Nína Baldurs-
dóttir er forstöðukona starfsdeildarinnar
í Þingholtsskóla í Kópavogi og hefur náð
miklum árangri í starfi með unglinga sem
falla út fyrir hinn hefðbundna ramma
skólakerfisins. Hún hefur haft með mörg
misþroska böm að gera og mun segja frá
þeirri reynslu sinni. Foreldrar stálpaðra
bama og unglinga em hvattir til að koma,
hlýða á mjög áhugaverða fyrirlestra og
koma með fyrirspumir.
Tórúeikar
Vortónleikar Passíu-kórsins á
Akureyri
verða í Glerárkirkju miðvikudaginn 28.
apríl kl. 20.30. Á efnisskránni em tvö
verk. Hið fyrra er Stabat Mater eftir ít-
alska tónskáldið G.B. Pergolesi (1710-
1736). Síðara verkið er Messa í A-dúr fyr-
ir þijár raddir opus 12 eftir César Franck.
Einsöngvarar á þessum tónleikum verða
Jón Þorsteinsson tenórsöngvari, sem
m.a. flytur kaflann Panis Angelicus, Guð-
rún Jónsdóttir sópran, Þuríður Baldurs-
dóttir alt og Michael J. Clarke bariton.
Lítil strengjasveit ásamt hörpuleikara,
sembal- og orgelleikara tekur þátt í flutn-
ingi þessara verka. Stjómandi tónleik-
anna er Roar Kvam.
Sjö tónleikar með
Karlakór Reykjavíkur
Fyrstu styrktarfélagstónleikar Karlakórs
Reykjavíkur á þessu vori vom í Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði á sunnudaginn
sl. Samsöngvar Karlakórs Reykjavíkur á
þessu vori verða fleiri en oftast áður. Á
mánudagskvöld verður sungið í Nes-
kirHju kl. 20.30 og síðan í Langholtskirkju
á miðvikudag kl. 20.30, fimmtudag kl.
20.30 og laugardag kl. 17.
Túkynningar
Vísnakvöld
í kvöld, mánudagskvöld, verður haldið
vísnakvöld á Blúsbarnum við Laugaveg
á vegum Vísnavina í Reykjavík. Fram
koma Haraldur Reynisson trúbador,
Unnur Margrét Jónsdóttir og Kristinn
Níelsson en þau munu flytja franskar
vísur og Hreiðar Gíslason og Einar Ein-
arsson flytja heimagerð lög og Ijóð.
Félag islenskra háskóla-
kvenna 65 ára
Á þessu ári em liðin 65 ár frá stofnun
Félags íslenskra háskólakvenna. Af því
tilefni hefur félagið gefið út afmælisrit
sem dreift verður bæði til félagskvenna
og annarra. í ritinu er m.a. að finna fróð-
legar greinar um starfsemi félagsins,
sögu þess og markmið. Félag íslenskra
háskólakvenna er aðili að Alþjóðasam-
bandi háskólakvenna (IFUW). Félagið
hélt aðalfund sinn fyrir skömmu og var
þar kosinn nýr formaður, Kristín A.
Ámadóttir, deildarstjóri á Alþjóðaskrif-
stofú háskólastigsins. Fráfarandi for-
maður er Þórey Guðmundsdóttir lektor
sem gegnt hefur formennsku sl. 9 ár.
Fígaró flutt i
nýtt húsnæði
Hársnyrtistofan Fígaró er flutt í glæsilegt
húsnæði að Borgartúni 33. Boðið er upp
á alhliða hársnyrtingu fyrir dömur og
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðló kl. 20.00.
KJAFTAGANGUR
eftlr Neil Simon.
Þýðlng og staðfærsla: Þórarinn Eldjárn.
Lýsing: Asmundur Karlsson.
Lelkmynd og búnlngar: Hlin Gunnars-
dóttir.
Lelkstjórn: Asko Sarkola.
Leikendur: Lllja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Örn Árnason, Tinna Gunnlaugsdóttlr,
Pálml Gestsson, Ólafia Hrönn Jónsdóttir,
Slgurður Slgurjónsson, Ingvar E. Slg-
urðsson, Halldóra Björnsdóttlr, Randver
Þorláksson og Þórey Sigþórsdóttlr.
Frumsýning fös. 30. april kl. 20.00.
2. sýn. sun. 2/5,3. sýn. fös. 7/5,4. sýn.
flm. 13/5.
MY FAIR LADY söngleikur
eftir Lerner og Loeve.
Lau. 1/5, lau. 8/5, fös. 14/5, lau. 15/5.
Ath. Sýningum lýkur í vor.
MENNINGARVERÐLAUN DV1993
H AFIÐ eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Aukasýningar sun. 9/5 og miövd. 12/5.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Sun. 9/5 kl. 14.00, örfá sæti laus, sun.
16/5 kl. 13.00, örlá sæti laus (ath. breyttan
sýnlngartíma), fimmtud. 20/5 kl. 14.00.
Lltla svlðlð kl. 20.30.
STUND GAUPUNNAR eftir
Per Olov Enquist.
Lau. 1/5, lau. 8/5, sun. 9/5.
Slðustu sýningar.
Ekki er unnt að hleypa gestum I sallnn
eftlr aö sýning hefst.
Smiöaverkstæöið kl. 20.00.
STRÆTI eftir Jim Cartwright.
Sun. 2/5 kl. 15.00 (ath. breyttan sýningar-
tima), þri. 4/5 kl. 20.00, mlð. 5/5 kl. 20.00,
flm.6/5 kl. 20.00.
Allra síðustu sýningar.
Ath. aö sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekkl er unnt að hleypa gestum i sallnn
eftiraösýnlng hefst.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aögöngumiðar grelðist viku fyrlr sýnlngu
ellaseldlröörum.
Mlðasala Þjóðlelkhússlns er opln alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
aö sýningu sýningardaga.
Mlöapantanir frá kl. 10 virka daga í sima
11200.
Greiðslukortaþj. -Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
ÞJóðleikhúsið - góða skemmtun.
Nýir eigendur að
Ölkjallaranum
Nýir eigendur, þeir Bjöm og Jón Þór
Þórissymr og Þórir Bjömsson, tóku við
rekstri Ölkjallarans fyrir skömmu. í til-
efni þess verður efnt til samkeppni um
nýtt nafn á staðinn og geta gestir og gang-
andi tekið þátt með því að leggja tillögur
sínar í nafnabanka á staðnum. Krónur
50.000 verða veittar fyrir frumlegasta og
skemmtilegasta nafnið. Staðurinn hreyk-
ir sér af lægsta bjórverði miðbæjarins,
kr. 490, en einnig verður boðið upp á
ódýra smárétti í hádeginum og á kvöldin.
Nýju eigendumir ætla að halda hefð stað-
arins fyrir keppninni um trúbador ársins
og verður næsta keppni bráðlega. Lifandi
tónlist og pílukast verða aðalsmerki stað-
herra svo sem klippingar, permanent, lit-
anir, strípur og fl. Á stofunni starfa
Gunnar Bjömsson, Þóra Vésteinsdóttir
og Ásthildur Sumarliðadóttir. ATH. nýtt
símanúmer 623444.
Leíkhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðlð:
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir Astrid Lindgren
Tónllst: Sebastlan.
Lau. 1/5, sun. 2/5, næstsiðasta sýnlng, sun.
9/5, síöasta sýnlng.
Mlðaverð kr. 1.100, sama verð fyrir börn
ogfullorðna.
Skemmtilegar gjafir: Ronju-gjafakorl,
Ronju-bolir o.D.
Stórasvlðkl. 20.00.
TARTUFFE ensk lelkgerð á verki
Mollére.
Lau. 1/5, lau. 8/5.
Coppelía
íslenski dansflokkurinn.
Uppsetning;
Eva Evdokimova.
Laugard. 8/5 kl. 14.00.
Litlasviðkl. 20.00.
DAUÐINN OG STÚLKAN eftir
Ariel Dorfman
Flmmtud. 29/4, föstud. 30/4, laugard. 1/5.
GJAFAKORT, GJAFAKORT
ÖÐRUVÍSIOG SKEMMTILEG GJÖF!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Mlðapantanir í sima 680680 alla virka
dagafrákl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslínan, sími 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttlr þrem
dögum fyrir sýn.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús.
|| ÍSLENSKA ÓPERAN
6ardasfur<st/njan
eftir Emmerich Kálmán.
Föstudaglnn 30. aprll kl. 20.00.
Laugardaglnn 1. maí kl. 20.00.
SÍÐUSTU SÝNINGAR.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega en til kl.
20.00 sýningardaga. SÍM111475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
LEIKHÚSLÍNAN 99-1015.
arins og boðið verður upp á frítt pílukast
á virkum dögum, auk þess sem haldnar
verða keppnir reglulega.
Sumardvöl fyrir
þroskahefta
I sumar verður starfrækt á Selfossi sum-
ardvöl fyrir þroskahefta. Meðal annars
verður boðið upp á styttri ferðir um Suð-
urland og sumar vikumar verður farið í
Þórsmörk og dvalið þar í 4-5 daga. Öll
tilboð munu þó að sjálfsögðu miðast viö
áhuga og getu þeirra sem í sumardvöl-
inni eru hveiju sinni. Allar upplýsingar
veita Katrín Klementsdóttir meðferðar-
fulltrúi í s. 98-22357 og Jensey Sigurðar-
dóttir þroskaþjálfi í s. 98-22101.
Leikfélag Akureyrar
^ltbnxbínkmx
Óperetta
Tónlist
Johann Strauss
Föstud. 30.4. kl. 20.30.
Laugard. 1.5. kl. 20.30. úrlá sæti laus.
Sunnud. 2.5. kl. 20.30.
Föstud. 7.5. kl. 20.30.
Laugard. 8.5. kl. 20.30. Uppselt.
Föstud. 14.5. kl. 20.30.
Laugard. 15.5. kl. 20.30.
Mlðvlkud. 19.5. kl. 20.30.
Miðasala er í Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57, alla virka daga kl.
14 til 18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu.
Símsvari fyrir miðapantanir allan
sólarhringmn.
Greiöslukortaþjónusta.
Slml I mlðasölu:
(96)24073.
Látum bíla ekki
vera í gangi aA óþörfu!
Utblástur bitnar verst
á börnunum
yujJFEHOAR
l/VIAGE
Bylting
nýjar
strípur
Skila hárinu
siikimjúku.
Strípuefnið er
blandað vatni.
O
13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN |
KLAPPARSTÍG 1
Vió hjá H-Gæði erum að breyta í sýningarsal
okkar og seljum því næstu daga nokkrar
innréttingar (eldhús, böð og fataskápa) með
40 % AFSLÆTTI