Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
9
Útlönd
Óttast fæðuskort
Alvarlegur matarskortur verður í
Austur-Evrópu og Afríku á næstu öld
þar sem þróuðu ríkin hafa ekki fjár-
fest nægilega mikið í landbúnaði
þessara þjóða, sagði í ræðu fram-
kvæmdastjóra Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar SÞ á fundi landbúnað-
amefndar stofnunarinnar í Róm í
gær. Reuter
Refsiaðgerðir SÞ gegn Júgóslavíu hertar:
Vilja banna innf lutning
á poppkorni og súkkulaði
Sjálfskipað þing Bosníu-Serba var
ekki fyrr búið að hafna friðaráætlun
Sameinuðu þjóðanna fyrir Bosníu í
gærmorgun en umheimurinn herti
refsiaðgerðir sínar gegn Serbíu og
Svartijallalandi sem mynda júgó-
slavneska sambandsríkið. Nýju
refsiaðgerðirnar tóku gildi skömmu
fyrir miðnætti síðastliðið.
Refsiaðgerðanefnd Öryggisráðsins
kom saman í gær að beiðni banda-
rískra stjórnvalda sem vilja banna
innflutning á lúxusvamingi á borð
við örbylgjupoppkorn, súkkulaði,
kavíar, vín, bjór og ost.
Samkvæmt ályktun SÞ um refsiað-
gerðirnar mega Júgóslavar flytja inn
allan mat, svo fremi sem nefndin er
Bill Clinton vill ákveðnari stefnu
varðandi Bosníu. Teikning Lurie
látin vita fyrirfram. Bandaríkja-
stjórn vill hins vegar að þegar um
lúxusvarning er að raeða verði
ákvörðun tekin fyrir hvert einstakt
tilfefli sem þýðir að beiðninni yrði
annaðhvort hafnað eða miklar tafir
yrðu á innflutningnum.
Clinton Bandaríkjaforseti sagði í
gær að Bandaríkin og bandamenn
þeirra þyrftu að koma fram með
„ákveðnari stefnu" gagnvart Bosniu
og sagðist ætla að skýra frá nýjum
hugmyndum á næstu dögrnn. Þá
sagði Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, harðlínumönnum
Serba að þeir gætu ekki vænst neinn-
ar aðstoðar frá Moskvu.
Reuter
SMAKKAÐU „ZJAKK" SUKKULAÐI
OG ÞÚ FÆRÐ ÞÉR MEIRA
16 BRAGDTEGUNDIR
og logðu eld að
- í það minnsta einn maður var skotinn í höfuðið fyrir eldinn
„Það er skoðun okkar í rannsókn-
arnefndinni að eldurinn á búgarðin-
um haíi verið kveiktur þar á staðn-
um og að olía eða annað eldfimt efni
hafi verið notað til verksins," segir
Paul Gray, einn rannsóknarmann-
anna sem falið var að ganga úr
skugga um hvað olli því að búgarður
sértrúarsafnaðar Davids Koresh
brann til grunna.
Niðurstaða rannsóknarinnar
skiptir stjómvöld miklu máli því
bæöi dómsmálaráðherrann Janet
Reno og Bill Clinton forseti verða að
sanna að lögreglan beri ekki ábyrgð
á að 86 menn létu lífið í eldinum.
Málið er þegar orðið hápólitískt og
það væri mikið áfall fyrir Clinton ef
sannaðist að yflrvöld bæru einhverja
ábyrgð á dauða fólksins og þá sér-
staklega barnanna 17 sem brunnu
inni.
Þeir sem sluppu úr eldinum full-
yrða að lögreglan hafi kveikt í og að
söfnuðurinn hafi ekki ætlað sér að
enda ævidagana með fjöldasjálfs-
morði. Fólkið fullyrðir að lampar
hafi oltið um koll í skriðdrekaárás
lögreglunnar.
Lögreglan segist nú geta staðfest
að einn maður á búgarðinum hafl
verið skotinn í höfuðið fyrir bran-
ann. Áður var fullyrt að fjöldi fólks
hefði verið skotinn og þar á meðal
börnin. Það hefur nú verið borið til
baka og enn er óljóst hvort börnin
voru lifandi þegar þau urðu eldinum
að bráð eða hvort þeim var byrlað
eitur áður.
Aðeins hefur tekist að bera kennsl
á 44 lík í brunarústunum. Lík leiðtog-
ans Davids Koresh er enn ófundið.
Lögreglan telur sig þó vita með vissu
hvar mágur hans lét lífið en hann
var í hópi leiðtoga safnaðarins. Því
er taflð líklegt að lík Koresh sé þar
nærri. Mikil áhersla er lögð á að
finna lík hans.
Reuter
Jaime Castello og Rita Faye Riddle eru í hópi þeirra níu sem komust lífs af
úr eldinum á búgarði Davids Koresh. Hér eru þau leidd til yfirheyrslu í
dómhúsið í Waco í gær. Símamynd Reuter
NeilKinnock
þætti í sjónvarpi
NeilKinnock,
fyrrum leiðtogi
breska Verka-
mannaflokks-
ins og alþekkt-
ur ræðuskör-
ungur, mun
gerast stjórn- ;
andi rabbþátt- '
ar í sjónvarpi síðar á árinu, að
því er Walesdeild BBC skýrði frá
í gær.
„Það verður ný reynsla fyrir
mig að spyrja spuminga í stað
þess aö svara þeim," sagði kola-
námumannssonurinn Kinnoek.
Hann ætlar að tala við frægt fólk.
: Kinnock hefur þegar komið
fram sem plötusnúður í útvarpi
frá þvi hann lét af leiðtogaemb-
ættinu í Verkamannaflokknum í
fyrra.
Græningjarí
Tsjernobyls
Hópur um þrjátíu umhverfis-
sinna úr flokki græningja og sam-
tökura grænfriðunga komu fyrir
hvítum krossum fyrir framan
höfuðstöðvar frönsku rafveitn-
anna í gær til að minnast þess að
sjö ár voru líðin frá kjamorku-
slysinu í Tsjernobyl í Ukraínu.
Mótmælendur vora einnig með
borða þar sem þess var krafist
aö umdeildum kjarnakljúfi í
Rhone-dalnum yrði iokað fyrir
fuflt og aflt. Verinu var lokað af
öryggisástæöum árið 1991 en
hugmyndir hafa verið uppi um
aö opna það að nýju.
Þing Slövakíu
styðurefna-
hagsstefnuna
Þingið í Slóvakíu iýsti yfir
stuöningi sínum við eíhahags-
stefnu Vladimirs Meciars forsæt-
isráðherra í gær en fór jafnframt
fram á þaö við stjómina að hún
skýrði ýmis stefnumál sín betur.
Þingmenn samþykktu stefnu
stjórnarinnar með 104 atkvæðum
en tuttugu þingmenn sátu hjá. Á
þingi Slóvakíu sitja 150 menn.
Meciar skýröi þingheimi frá því
fyrir helgi að kreppan í Slóvakíu
nú væri verri en sú sem rikti á
íjórða áratugnum.
viðbrúðkaupið
Stjórnvöld í
Japan ætla að
verja um það
bileinummiflj-
arði króna í ör-
yggisgæslu við
brúðkaup
Naruhito krón-
prins í sumar.
;: Embættismenn fjárnu'daráðu-
neytisins lögðu blessun sína yfir
kostnaðinn í gær og verður féð
teitið úr sérstökum neyðarsjóði.
í síðustu viku ákvað japanska
stjórnin að leggja fram tæpar 200
mflljónir króna til brúðkaups-
veislunnar þegar hinn 33 ára
gamli prins gengur að eiga Ma-
sakoOwada. Reuter
Fullorðiitnmað-
urpúaðiáBreta-
drottningu
Mark Haywood, 59 ára gamafl
Breti, á yfir höfði sér ákæru fyrir
að púa á Elísa- -
betu drottn-
ingu þegar hún
var á opinberu
ferðalagi. Maö-
urinn vakti
mikla hneyksl-
an meðal
áhorfenda með
uppátæki sínu.
Lögregla tók skýrslur af sjónar-
vottum og hafa þær verið sendar
saksóknara til umfjöllunar.
Haywood sera starfar í forn-
gripaverslun í bænum Wells
sagði í samtali viö blaðið Daily
Mirror að hann heíði ekki búist
við þessum viðbrögðum. „Þaö er
allt útlit fyrir að ég verði tjargað-
ur og fiðraður."
hlýturdauða-
dóm I Singapore
Fimmtiu og átta ára gamall
Hoflendingur, Johannes van
Damme, var dæmdur tfl dauða
fyrir heróínsmygl í Singapore í
gær. Hann er fyrsti hvíli maður-
inn sem fær svo strangan dóm
fyrir eiturlyfjasmygl.
Van Damme var handtekinn á
fiugvellinum í Singapore í sept-
ember 1991 með tösku sem í voru
rúm íjögur kfló af heróíni. Hann
var á leið frá Bangkok til Aþenu
og segist hafa verið að flytja tösk-
una fyrir mann einn frá Nígeríu,
án þess að vita um innihald henn-
herra Tyrklands
gagnrýndur
Suieyman
Demirel, for-
sætisráðherra
Tyrklands.
sætti liarðri
gagnrýni
stjórnarand-
sfæðinga í gær
þegar þeir sök-
uðu hann um að reyna að troða
sér inn í forsetaembætti landsins.
. Demirel var á föstudag valinn
til að vera frambjóðandi fiokks
síns í forsetaembættið vegna
skyndilegs fráfalls Turguts Ozals
forseta. Leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar segja að Demirel ætli
að notfæra sér styrk eigin flokks
og koma í veg fyrir aimennt sam-
komulag um hann eöa annan
frambjóðanda.
Útnefningar til forsetaembætt-
isins hefjast opmberlega á morg-
un og þingið verður að vera búið
að kjósa forsetann 30 dögum síð-
ar.
ForsQóri hjá Fiat
gefursigfram
Massimo Aimetti, fram-
kvæmdastióri Iveco, þeirrar
deildar Fiat-samsteypunnar ít-
ölsku sem framleiðir vörubíla,
gaf sig fram við yfirvöld í Milanó
í gær. Hann hafði verið eftirlýst-
ur vikum saman vegna gruns um
aðild að fjármálaspillingarmál-
inu sem nú tröllríöur ítölsku
samfélagi.
Aimettí hefur veriö sakaður um
að borga mútur til stjómmála-
flokka til þess að ná samningi um
framleiðslu á strætisvögnum.
Hann varö fyrstur háttsettra eft-
irlýstra forstjóra hjá Fiat til að
gefa sig á vald lögreglu eftir að
fyrirtækið hét samvinnu við yfir-
völd. Reuter
Rannsókn bendir til íkveikju á búgarðinum 1 Waco:
Ötuðu allt í olíu