Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Spumingin Á fegurðarsamkeppni rétt á sér? Jóhannes Jónsson: Hún á fullan rétt á sér. Guðmundur Jóhannesson: Já. Örvar Svavarsson: Já, að sjálfsögðu. Jóhann Kristinn: Já, já. Inga Lilja: Ég hef enga skoðun á því. Lesendur Þreifmgar ungliða A-flokkanna: Eitthvað meira en gælur? Þeir sem geta sannað aö þeir standi fyrir stjórnmálaflokki. S.B.K. skrifar: Eina ferðina enn koma þeir saman ungliðamir í A-flokkunum svoköll- uðu og taka nú með sér unga fram- sóknarmenn og kvennalistakonur (hélt að þar væri engin unglömb að finna) til að ræða hugsanlega sam- vinnu á sviði stjórnmálanna. Eins og fram kemur í upphafi máls míns hefur þetta svo sem gerst áður hér, og ungliðahreyfingar hafa sent frá sér fréttatilkynningar á suöumarki líkt og þeir hafi verið að finna upp hjólið. En nú vilja þeir líklega að það fari að snúast líka. Er þá ekki von á einhverju sögulegu? - Eða eru þetta bara gælur ungra alþýðubandalags- manna og ungkrata með framsóknar - og kvennalistaívafi? í sjónvarpsfréttum sagði reyndar að svona viðræður væru ekkert á vegum flokksbroddanna. Auðvitaö eru engir slíkir fundir haldnir án samráðs við þá sem í raun ráða flokkunum. Ég hef raunar alltaf talið að kratar og allaballar ættu eftir að komast nær því en nú að ganga til einnar sængur. Og um margt ólík- legra hefur verið fjallað en það hve- nær kratar svíkja Sjálfstæðisflokk- inn, viljandi eða óviljandi, til að geta átt heiðurinn (ef svo hátíðlegt orð má nota) að frumkvæði sameiningu Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Viðvera framsóknarmanna og kvennalistakvenna í fyrstu lotu er bara taktík þeirra A-flokka manna til að fá frið til fundahaldanna. Raunar hefur það legið í loftinu, allt síðan þeir formennirnir, Ólafur Ragnar og Jón Baldvin, borðuðu steikina seigu í New York sællar minningar, í kjölfar þátttöku þeirra í hátíð demókrataflokksins að síðar kæmi til viðræðna um samvinnu flokkanna sem leitt gæti til samein- ingar. Ungliðahreyfingunum er oft teflt fram fyrst í svona tilraunum. Og það liggur meira að baki. Sú staðreynd að ísland er á mörkunum að hljóta sömu örlög og Færeyjar aö því undanskildu að við höfum enga Dani til að vera ábyrgðarmenn, né sá framtíðarljómi yfir Evrópu þessa stundina að þar verði okkur tekið sem týnda syninum er mikilvægt að eiga hauk í horni í Vesturálfu. Þeir sem geta sannað að þeir standi fyrir stjórnmálaflokki uppi á íslandi sem sé nánast ígildi Demókrataflokks Clintons forseta, þeir einir geta, eða a.m.k. segjast geta. Því fylgja nú kannski eitthvað meira en gælur í kjölfar fyrstu funda ungliðahreyf- inga A-flokkanna um þessar mundir. En framsóknarmenn og kvennalista- konur? Hreinar afgangsstærðir sem verða viðskila viö A-flokkana þegar upp er staðið. Brölt félagsmálaráðherra Lúðvíg Eggertsson skrifar: Skarpur blaðamaöur, Agnes Bragadóttir, látið nýlega látið að sér kveða. Skrif hennar um húsnæðis- málin vekja athygh. Þar er gengið hreint og hressilega til verks. Ekki veitir af þegar t.d. í hlut á tröllkona fáránleikans í íslenskum stjómmál- um, Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra. Brölt hennar í hús- næðismálum er orðið dýrt spaug fyr- ir land og lýð. Svo sem Agnes greinir frá nemur húsbréfaútgáfa Jóhönnu röskum þremur tugum milljarða króna á 3 árum. Afíollin af þessum bréfum hafa lengstum verið 25%. Þannig verða ung hjón, sem ætla að byggja sína fyrstu íbúð og fá 4 milljóna króna húsbréfalán, að greiöa verð- bréfabröskurum 1 millj. króna í skatt vilji þau koma bréfunum í reiðufé til borgunar á byggingarkostnaði. Þetta er svo óhagstætt að minni hluti útge- finna húsbréfa fer til nýbygginga en meiri hlutirtn til fjármögnunar á kaupum og sölu eldri húsa - og verð- ur þannig eyðslueyrir þeirra sem þau hús eiga. Lánsfjárausturinn í formi húsbréfa hefir ruglað peningakerfi okkar, þ.m.t. vextina. Ekki er hitt björgu- legra að ríkisábyrgð er á bréfunum. Þau eru að vísu baktryggð með veði í fasteignum en í alvarlegri kreppu og atvinnuleysi geta fasteignir orðið nánast verðlausar í heilum byggðar- lögum eða landinu öllu þegar þær seljast ekki. - Enginn veit hvað bíður skattborgaranna í þeim efnum. Sam- tímis skrúfar ráðherra upp vexti en hækkunin greidd til baka frá ríkinu með vaxtabótum og húsnæðislánum. Megingallinn við húsnæðiskerfið hér á landi er sá að fólk er neytt til að byggja áður en það hefur efni á því. Okkur vantar íjölda hentugra leiguíbúða þar sem yngri kynslóðin getur búið meðan hún er að safna fé upp í eigin íbúð og leggja á banka. Það er svo bankanna að lána eins og tíðkast í siðmenntuðum löndum. Ríkissjóður á hvergi nærri að koma nema með félagslega íbúðakerfinu. Hnngiðísíma milli kl. 14og 16-eóa skriíið Nafn ORjslmanr. verður að fylgja brífum Hvað blasir við sjónum ferðamanna? Kristinn skrifar: Nú er áætlað að fjöldi skemmti- ferðaskipa leggist við nýjan hafnar- garð á þeim stað þar sem Gullfoss var við festar hér áöur fyrr. En hvað bíður þúsunda erlendra ferðamanna, t.d. í miðborg Reykjavíkur? Vonandi hlýja og góðar móttökur borgarbúa. Ekki efa ég að svo verði. Með einni undantekningu þó. Því miður er til staðar mikill fjöldi útigöngumanna sem eru hreint ekk- ert augnayndi og því síður myndefni fyrir erlenda ferðamenn sem sýna þessar myndir vinum og kunningj- um þegar heim kemur. Skyldi göngu- móður feröamaður, sem vildi tylla sér á bekki við fallegan Austurvöll- inn, fá þar sæti? Örugglega ekki. Allt Timi skemmtiferðaskipanna nálgast. höfuðborginni? síöasta sumar voru bekkir á þessum stað uppteknir af drykkjulýð og án þess að lögreglan hefði nokkur telj- andi afskipti af. Þó stendur skýrum stöfum í lögreglusamþykkt að ölvun á almannafæri sé óheimil. Því er þá ekki farið eftir þessum ákvæðum? Ég skora á borgarstjórn Reykjavík- ur að taka þetta mál upp því það skiptir miklu máli fyrir framtíðina hvort Reykjavík verður kölluö falleg borg eða einfaldlega „rónaborg norð- - Hvað bíður erlendra ferðamanna i m-sins“. Ferðamannaþjónusta er stórt mál og allt neikvætt í Reykjavík skaðar okkur sjálf. Engey mætti nota á sumrin til að hýsa útigangsmenn og þar mætti auðveldlega koma upp viðunandi aðbúnaði með litlum tilkostnaði í þessum tilgangi. Lögreglustjórinn í Reykjavík og borgaryfirvöld eiga að taka á þessu máli, þá fer allt vel og enginn þarf að skammast sín fyrir hönd borgarinnar. arkvikmyndir? Pétur hringdi: Nú er nokkuð rætt um ríkis- frainlag til kvikmyndagerðar, m.a. í DV. Þar las ég álit tveggja manna, með og móti þessu ágreiningsefni. Ég segi fyrir mig að ég er ekki viss um að við viJj- um yfirleitt nokkrar íslenskar kvikmyndir. Aðrar þjóðir eru miklu færari að gera kvikmyndir. Og þátttaka skattborgaranna er fráleit þótt enihverjum hugnist það flókna verk að gera kvik- mynd og það íslenska. Þeirerumóðir ..... Sigríður Ólafsdóttir hringdi: Eg vil byrja á að taka undir les- endabréf i DV í dag (23. apríl) þar sem rækilega er rökstutt hvemig menn fara offari í hinu svokall- aöa H rafns/ Heimis-máli hjá Rik- isútvarpinu. Ég held þó að í sjón- varpsþættinum sl. þriðjudag hafi menntamálaráðherra tekist prýðilega að setja amen á eftir efninu í þessu ómerkilega máli sem ég kalla. - En víst eru ekki allir sama sinnis. í morgunút- varpi rásar 2 í morgun fjallaði Óskar Guðmundsson í fjölmiðla- pistli um málið og líkast því sem nú væri málið i brennidepli á ný. Hann upplýsti iíka aö á „rásinni" væru margir móöir út af málinu. Við getum því áfram búist við þungum andardrætti einhverra í hljóönemann á þeim bæ. Ogtryggingafélög- Sigurður Guðmundsson hringdi: Loks hefur veriö komist að nið- urstöðu í máli tryggingalækn- anna sem vantöldu tekjur sínar vegna örorkumats og útgáfu vott- orða fyrir tryggingafélögin. Skiptu vantaldar tekjur þeirra mUljónum króna. í frétt um málið segir m.a. að tryggingafélögin hafi ekki gefið tekjumar upp til skatts - og þá líklega aö beiöni læknanna. Sá liður fréttarinnar kemur mörgum spánskt fyrir sjónir, þ.e. að það skuli hafa verið hægt yfirleitt. Ágúst Guðmundsson hringdi: Þaö var timi til kominn að fella niður óþarfa tímamörk áfengi- sveitinga að degi til hér á landi. Gagnvart ferðamönnum voru þessi mörk orðin veruleg plága. Lítum bara í eigin barm þegar við íslendingar erum í fríi erlendis. Þá viljum við fá þjónustu á hvaða sviði sem er og engar refjar. Ég fagna því samfelldum áfengisdegi ef svo má að orði komast. Næsta skref er að leyfa léttvín og bjór í matvörumarkaði svo að ljúka megi endanlega hér þessum fáránlegu hömlum á vínsölu sem engum tilgangi þjónar þegar öllu er á botninn hvolft. Muna menn miðvikudagslokunina eða bjór- bannið? Dytti nokkrum í hug aö hverfa til þessara hafta? Óboðinntókúr J.B. skrifar: Þú sem fórst óboðinn inn í íbúö mína þann 19. apríl sl. við Klapp- arstíg og tókst nýtt ELTA mynd- bandstæki með Qarstýringu en skildir fiarstýringuna eftir, nýjan Panasonic símsvara, svartan að lit, svartan, kringlóttan DYCOM síma meö bláu neonljósi, tvam ferðatöskur og fötin mín -- hafðu samband við mig í síma 620100 og skilaðu dótinu og þá gleymum við þessu. Pötin þekki ég hvar sem er. Tækin nýtast þér ekki þar sem þau eru skráö. Og síðast en ekki síst, það sást til þín og ég veit hver þú ert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.