Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
13
Neytendur
Sum efni þola ekki hreinsun og þá er það skylda efnalauganna að benda viðskiptavinum á það.
Til leigu í Faxafeni
Til leigu skrifstofuhúsnæði í Faxafeni, tvö u.þ.b. 310
ferm pláss. Húsnæðið er nýlegt, mjög miðsvæðis og
næg bílastæði eru við það. Á sama stað eru einnig
til leigu góð geymslupláss (70 ferm, 135 ferm og
558 ferm) með 4 m lofthæð og möguleika á inn-
keyrslu sendibifreiða. Leigist saman eða hvert í sínu
lagi.
Nánari uppl. Helgi Jóhannesson hdl., Lágmúla 7, s. 812622.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
ftídan
AÐALFUNDUR
verður haldinn föstudaginn 30. apríl kl. 17.00
að Borgartúni 18, 3. hæð.
Stjórnin
Efnalaugar:
Bera ábyrgð
á flíkunum
Vornámskeið eru að hefjast í:
íslensku fyrir útlendinga.
Umhverfisteikningu.
Skokki.
Upplýsingar og innritun í símum 12992 og 14106
Nokkrir veitingastaðir bjóða nú upp á sérstakt vatn sem þeir taka 90 krón-
ur fyrir.
I mörgum efnalaugum gefur að líta
tilkynningu þar sem segir að engin
ábyrgð sé tekin á flíkum. Samkvæmt
upplýsingum frá Neytendasamtök-
unum eiga slíkar yfirlýsingar ekki
rétt á sér.
„í flestum tiifellum eru efnalaug-
amar ábyrgar fyrir fatnaöinum,“
sagði Sesselja Ásgeirsdóttir hjá
kvörtunardeild Neytendasamtak-
anna. „Sú ábyrgð gildir þó ekki sé
um sérstök tilfelli að ræða. Sum efni
þola t.d. ekki hreinsun og stundum
taka framleiðendur það alls ekki
fram. í þannig tilvikum eru efnalaug-
amar ekki ábyrgar ef flíkin eyði-
leggst.“
Sesselja sagði að efnalaugarnar
yrðu að taka það fram við viöskipta-
vini ef einhver hætta væri á að flíkin
gæti skemmst. Þá er það viðskipta-
vinarins að ákveða hvort sú áhætta
sé tekin eða ekki.
Sesselja sagði að sérstök nefnd
væri starfandi á vegum Neytenda-
samtakanna sem fólk gæti leitað til
ef það á í útistöðum við efnalaugar
vegna skemmda á flíkum. „Þessi
nefnd vegur og metur hvert mál fyr-
ir sig og efnalaugamar hafa í flestum
tilfellum farið eftir úrskuröi nefnd-
annnar.
-KMH
Veitingastaðir:
Taka gjald fyrir vatnið
Eigendur veitingahúsa em
óánægðir með að fólk geti komið inn
á veitingastaðina og notið skemmti-
atriða, hlýju og þæginda án þess að
gera nein viðskipti. Því hafa nokkrir
veitingahúsaeigendur bmgðið á það
ráö að byrja að selja sérstakt vatn
en vatn er oftast það eina sem þetta
fólk biður um.
Hér er um að ræða svokallað Lind-
arvatn frá Sól og gjaldið fyrir hvert
vatnsglas er um 90 krónur. Einnig
er hægt að fá sér venjulegt krana-
vatn en þá verður að fylgja sítróna
með sem kostar 40 krónur.
„Ástandið var orðið þannig að um
30-40% af liðinu, sem hingað kemur,
vora bara í vatninu," sagði Hans
Helgi Stefánsson, einn af eigendum
veitingastaðarins Gaukur á Stöng.
„Það gengur náttúrlega ekki þegar
við erum með dýrar hljómsveitir því
það þarf að borga þeim laun.“
Hans sagði að einstaka kúnni fengi
þó vatnið ókeypis, sérstaklega ef
hann kæmi í hóp fólks sem gerir við-
skipti. „Ef það kemur hins vegar stór
hópur af fólki sem sest við borð og
pantar bara vatn þá bjóðum við upp
á Lindarvatnið.“
Samkvæmt Hans er stefna veit-
ingahúsanna að stofna sameiginleg-
an sjóð af vatnssölunni seinna á
þessu ári sem renna á til líknarmála.
-KMH
x Félag
v/ járniðnaðarmanna
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl
nk. kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá
1. Félagsmál
2. Samningamál
3. Sameining Málm- og skipamiðasambands íslands
og Sambands byggingamanna.
Stjórnin
KORTHAFAR
fá 15% afslátt eins og þeir sem greiða smáauglýsingar út í hönd
með beinhörðum peningum. Það eina sem þú þarft að gera er
að hringja og smáauglýsingin verður færð á kortið þitt. Það er
gamla sagan: Þú hringir, við birtum og það ber árangur!
Smáauglýsingadeild DV er opin:
Virkadaga kl. 9.00-22.00
Laugardaga kl. 9.00-16.00
Sunnudaga kl. 18.00-22.00
Athugið:
Auglýsing í helgarblað DV þarf að berast
fyrir kl. 17.00 á föstudag.